Tölvumál - 01.11.1992, Side 22
Nóvember 1992
Smækkun
("Downsizing")
Þegar litið er til íslenska mark-
aðarins og reynt að átta sig á því
hvað séu opin kerfi og hvað
stórtölvur eða lokuð kerfi þá vil
mjög stór runuvinnslukerfi eða
stór beinlínukerfi, hér á Islandi
t.d. SKÝRR og RB. Þar hafa í
raun ekki verið margir valkostir.
Spurningin er ekki hvort, heldur
hve fljótt farið verður úr lokuðu
kerfi í opið kerfi.
þróunin er mjög ör og hugbún-
aðurinn sem nú vantar verður til
fljótlega frá þeim hugbúnaðar-
húsum sem hafa sérhæft sig í
stórtölvuumhverfinu því þau sjá
vaxtamöguleikana í opnum
kerfum.
Er til betri leið ?
ég gjarnan koma með mína
persónulegu skoðun á þessu máli.
Opin kerfi eru byggð upp á
viðurkenndum stöðlum, svo sem
POSIX og XPG3 frá X/Open.
Flest UNIX kerfi uppfylla þessa
staðla sem leyfa flytjanleika
forrita milli mismunandi UNIX
kerfa og tengjanleika þar sem hægt
er að tengja saman UNIX vélar
frá mismunandi vélaframleið-
endum. En hvað þá með PC
vélar og MS-DOS? Að mínu
mati er hér einnig um að ræða
opin kerfi og ljóst er að á íslenska
markaðnum hafa hugbúnaðar-
hús, stofnanir og fyrirtæki í
auknum mæli farið út í "opin
kerfi".
Hvað eru þá stórtölvur eða lokuð
kerfi? Ýmis verkefni hafa í raun
krafist sérhæfðs búnaðar t.d.
Tölvutegundir eins og VAX, HP
3000 og AS/400 eru nú að fá
POSIX viðurkenningu og eru þá
hvað hugbúnað varðar orðnar
samhæfðar við UNIX tölvur sem
nú eru á markaðnum.Það má
segja að á undanförnum árum
hafi vinnsla færst frá stórtölvum.
Stefnan er sú að minnka umfang
hinnar hefðbundnu stórtölvu-
vinnslu en á sama líma auka
framleiðni notenda/forritara.
Það eru til bæði góðar fréttir og
slæmar fréttir varðandi þessa
þróun. Góðu fréttirnar eru þær
að flestir geta farið úr stórtölvu-
umhverfinu yfir í opin kerfi.
Slæmu fréttirnar eru að þetta
gildir ekki fyrir alla stórtölvu-
notendur. En góðu fréttirnar um
slæmu fréttirnar eru þær að
Staðan í dag og
framtíðarsýn
John Y oung aðalforstjóri HP telur
að upplýsingaiðnaðurinn hafi
árið 1990 verið 300B$ en áætlað
að árið 2000 þá verði 600B$ og
verði stærsti framleiðsluiðnaður
heims.
Tölvusalar stjórna ekki lengur
markaðnum heldur eru það stórir
skoðanamyndandi notendur. í
Evrópu má t.d. nefna EB og stóru
símafyrirtækin. I Bandaríkjunum
er það t.d. herinn. I dag eru það
óskir þessara fyrirtækja sem stýra
þróun tölvumarkaðarins. Þeir
segja: "Ég vil fá":
a) Betri notendaskil
b) Staðla
-> flytjanleika hugbúnaðar
-> tengjanleika
22 - Tölvumál