Tölvumál - 01.11.1992, Síða 26
Nóvember 1992
Hegðunarmynstur:
Viðfangið er tiltölulega staðlað m.v. meðaltalsmælingar frá 1994. Mælingar sýna frávik innan við 12%
og hegðunarradíus 0,34. Með samanburði við miðlægu mannskráninguna hafa þó komið fram
einkennilegar tilviljanir og tengsl við 240867-3189, Egla Margeirsdóttir, ógift(ur), Þarmastræti 7, 220
Hafnarfjörður. 9 færslur út af bankareikningi Jóns Jónssonar samsvara færslum inn á bankareikning Eglu
Margeirsdóttur, m.v. 95% öryggisstuðul.
Við almennt eftirlit á atferli Jóns Jónssonar frá 1.2.1997 til 1.3.1997 hefur eftirfarandi ósamræmi verið
skráð:
Dagsetning Skráning Athugasemd
3.2.1997 Jón Jónsson og maki eyða nótt í tveggja manna herbergi á Hótel Mörk Jóna Skelmisdóttir er sama dag lögð inn vegna gallsteinaaðgerðar á Almenna Spítalanum hf.
5.2.1997 Jón Jónsson kaupir pels af stærð 38 í versluninni Minkaðu! Laugavegi Pelsastærð Jónu Skelmisdóttur er 43
6.2.1997 Jón Jónsson kaupir 15 rósir í blómaverslun Þjóðólfs Fossvogsbraut kl. 17:06 87% líkur að Jón Jónsson hafi yfirgefið skrifstofuna fyrir kl. 17:00
11.2.1997 Jón Jónsson tekur bensín í Mosfellsbæ kl. 8:57 94% líkur að Jón Jónsson hafi ekki verið kominn á skrifstofuna kl. 9:00
Fyrri staðbundnar athuganir sýna eftirfarandi óeðlilegt ósamræmi sem skv. SYS-B412 ber að tilkynna
til Samræmisnefndarinnar:
Dagsetning Skráning Athugasemd
3.3.1983 Jón Jónsson borgar með ávísun að upphæð 2.300 í veitnga- húsinu Skautanum á Akureyri Vinnuskýrsla frá sama degi sýnir að Jón Jónsson sé þátttakandi í PL/1 forritunamámskeiði í Hafnarfirði
2.8.1994 Jón Jónsson vinnur 1.5 milljónir í lottókassa í Las Vegas Skv. tryggingarskýrslum var Jón Jónssonfrávinnuí 14daga, 220191- 050294, vegna bakmeiðsla
Endir skýrslu
Takk fyrir í dag, HUMM er þér ávallt til þjónustu
reiðubúið, vonandi sjáumst við fljótt aftur.
- Aftenging -
26 - Tölvumál