Vísir - 30.08.1962, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 30. ágúst 1962.
VISIR
3
Magnús E. Guðjónsson bæjarstjóri flytur ræðu við vígslu hins nýja Elliheimilis.
Jón G. Sólnes forseti bæjar-
stjórnar setur hátíðahöldin.
Frá hátíðaguðsþjónustunni í Akureyrarkirkju um morguninn.
Frá hátíðahöldunum á Ráðhústorgi. I fremstu röð sitja forseti Islands, forsætisráðherra og
aðrir gestir.
Karlakórar bæjarins syngja sameinaðir á Ráðhústorgi.
HATIÐAHÖLDIN Á AKUREYRI
Myndsjá Vísis birtir í dag
nokkrar myndir frá hátíða-
höldunum á Akureyri í tilefni
aldarafmælis kaupstaðarins.
Hátíðahöldin fóru fram með
hinni mestu prýði. Meðal þess
sem gerðist á þeim var hátíða
guðsþjónusta í Akureyrar-
kirkju, hátíðafundur í bæjar-
stjórn Nýtt Elliheimili var
vígt, Sögusýning var opnuð
og útihátíðahöld fóru fram
bæði á Ráðhústorgi og íþrótta
vellinum með ávörpum, söng
og ýmsum skemmtunum. Að
lokum var dansað á Ráðhús-
torgi.
Það er víst að Akureyring-
ar eru nú í miklu hátíða-
skapi og hafa tekið mikinn
þátt í hátíðahöldunum. Þær
þrjár stóru sýningar, sem nú
eru opnar í bænum, Ásgríms-
sýning, Iðnsýningin og Sögu-
sýningin eru þegar fjölsóttar
og vekja verðskuldaða at-
hygli.