Vísir - 10.09.1962, Page 2
VISIR
-Mánudagur 10. september 1962.
r/.y///A '"////////ÓL
"Tt* *—[ p~>
Valur skorar annað mark sitt og er þar Þorsteinn Sívertson að verki. Er það Þorsteinn sem
fagnar markinu með uppréttar hendur.
Fram:Skovhakken
18. nóv. íArósum
Pram fær ferlldág greidd —
/Efa nú af fullum krafti
UMSÓKN íslandsmeistaranna í
handknattleik, Fram, um þátt-
töku í Evrópubikarnum barst
franska handknattleikssamþand
inu laugardagskvöldiS fyrir
rúmri viku síðan, viku of seint.
Áður hafði verið búið að benda
á væntai. ,ga þátttöku Fram-
ara hér í blaðinu, en enginn
hafði við það kannazt, enda
hafði HSÍ láðst að tilkynna
Fram um keppnina.
Nú er hins vegar búið að
draga um fyrstu leikina og mun
Fram Ieika við Skovbakken í
Árósum 18. nóv. og ef vel geng
ur síðar við Noregsmeistarana
í Osló. Tapi Fram hins vegar
eru þeir úr keppninni.
Valsmenn unnu Akurnesii
og eru enn mea / baráttunni
Vulur — Akranes 4:1
Valur vann heldur óvænt bæði
stigin af Akurnesingum, sem til
þessa liafa verið orðaðir hvað mest
í sambandi við sigur í íslandsmót-
inu ásamt Fram, en Akureyringum
tókst að krækja í annað á heima-
velli slnum á sama tíma. Valur
vann stóran sigur 4:1 sem vart
verður talið verðskuldað, enda þótt
sigur væri e. t. v. sanngjarn, en
Akureyringar áttu jafntefli fyllilega
s’.iilið, en sigur Fram hefði getað
gert út um mótið fyrir þá og þeir
komið heim í gærkvöldi sem ís-
landsmeistarar, en því var ekki að
fagna. Staðan nú er þannig, að
einn leikur er eftir í mótinu, KR —
Akranes í Reykjavík. KR getur
ekki unnið mótið, en Akranes getur
orðið jafnt Fram og Val áð stigum
með 13 stig með því að vinna leik-
inn. Vinni KR hins vegar verða
Fram og Valur að leika saman um
titilinn „bezta knattspyrnufélag ís- ar gott tæn’ t>orsteinn nottæröi
lands' og hinn nýja íslandsbikar,
sem verðúr þá væntanlega afhent-
ur fyrsta sinni.
Hinn sterki norðanvindur hafði
sín áhrif á báða leikina í gær. Þó
skoruðu Valsmenn þrívegis gegn
rokinu, þar af 2 úr vítaspyrnum.
Akurnesingar höfðu sótt allnokkuð
eftir vindinum en á 8. mínútu kom
skot frá Bergsteini Magnússyni,
fast en á mitt mark Akraness, og
eflaust hefði Helgi Daníelsson
klárað sig á skotinu, sem lenti í
Boga Sigurðssyni, miðverði Akra
nrrs, eða öllu heldur hendi hans,
greinilega ekki viljandi, og hafði
þetta lítil áhrif á leikinn. Dómur-
inn var því nokkuð harður, er Bald-
ur Þórðarson gaf Val vltaspyrnu,
en úr henni skoraði Bergsteinn
mjög laglega I vinstra hornið.
Aðeins 3 mínútum síðar eru
Valsmenn enn á ferðinni. Það er
Steingrímur Dagbjartsson hægri út-
herji Valsmanna sem einleikur inn
að vlitateignum og gefur þar lag-
lega á Þorstein Sívertsen I góðri
stöðu og skorar hann 2:0.
Ekki leið nema tæp hálf mínúta
áður en Ingvar Elísson hafði vaðið
upp miðjan völl og skorað 2:1 fyrir
Akranes, Snaggaralega gert og
skotið frá vítateig sjaldgæf sjón.
En heldur var Valsliðið illa á verði
gegn þessari hættu, enda enn að
fagna hinu óvænta marki og vel-
gengninni gegn vindinum.
Akurnesingar áttu harða hrlð að
markinu, skot á skot ofan en flest
grófiega framhjá. Óheppnin reið
heldur ekki við einteyming. Stór-
glæsilegt skot Þórðar Þórðarsonar
lenti I stöng og út fyrir, en sama
átti eftir að gerast síðar I leiknum.
Tvö allgóð skot lentu I hliðarnet-
unum. Valsmenn voru næst á ferð-
inni eftir 29 mínútna leik, og þá
var ekki að sökum að spyrja að
hætta skapaðist við Akraness-
markið er Þorsteinn Sívertsen, ung-
ur en alltof svifaseinn piltur, eyði-
lagði gott tækifæri.
Á næstu mínútu kom hins veg-
það með góðu skoti, sem að flestra
dómi hefði hafnað I bláhorni
marksins, Helgi náði ekki til bolt-
ans, en Bogi Sigurðsson náði hon-
um hins vegar með aðferðum mark-
varðar, þ. e. hann kastaði sér eftir
honum og kýldi I horn, og nú var
ekki lengur um vltaspyrnu að vill-
ast. Bergsteinn Magnússon skoraði
þarna með eins skoti og fyrr I hálf-
leiknum, 3:1.
Síðari hálfleikurinn var heldur
sviplítil knattspyrna I haustnepj-
unni og áhorfendum til lltillar
skemmtunar. Akurnesingar voru
mjög niðurdregnir og ekki bæt'ti hin
sífellda óheppni þeirra og klaufa-
skapur úr. Þórður Þórðarson gaf |
inn er athugaður er Valssigur rétt-
lætanlegur vegna stórgallaðs varn-
arleiks Akraness. Langbeztur Vals-
mannanna var Bergsteinn Magnús-
son, en Þorsteinn Slvertsen kom
yfirleitt mikið við sögu I hættu-
legustu sóknum liðsins. Steingrlm-
ur var oft skemmtilegur. Ormar og
Elías nutu sín allvel sem framverð-
ir, en vörnin var sem fyrr lang-
sterkasti hluti liðsins, með aðeins
8 mörk eftir 10 leiki I 1. deildinni
£ sumar.
Akurnesingar voru slappir og
fallega fyrir markið á 6. mlnútu og J hafa ekki verið svo lélegir fyrr I
nafni hans Jónsson skaut strax en
I stöng og út fyrir, en markið svo
til opið. Tólf mlnútum síðar átti
Þórður Jónsson aftur færi á víta-
punkti en skaut framhjá. Mörg skot
önnur áttu Skagamenn en voru
fjarri því að notfæra þau.
Á 36. mínútu gerðu Valsmenn al-
gjörlega út um leikinn er Þorsteinn
varð fyrri til að ná boltanum við
vítateiginn af Helga Dan„ en Þor-
cteinn gaf þegar á Steingrím Dag-
bjartsson, sem renndi boltanum I
markið, 4:1.
Þannig lauk þessum leik með
yfirburðasigri, en eftir að leikur-
sumar, en búizt hafði verið við
miklu af þeim I leik þessum. Þórð-
ur Jónsson var nú aftur með eftir
meiðslin I Dublin en var greinilega
miður sln, sömuleiðis Ríkharður
sem var meiddur og Helgi stakk
við I þessum leik og var hálfur mað-
ur miðað við það sem hann á að
sér. Vörnin var og mjög léleg og
Bogi Sigurðsson miðvörður átti
sinn versta leik 1 sumar. Líflegastur
var Ingvar Ellsson og reyndar sá
eini sem eitthvað kvað að I liðinu.
Dómari var Baldur Þórðarson og
dæmdi allvel.
- jbp -
Þröng á þingi á markteig Valsmanna. Myndin er frá leik Vals og Akranes. Akranes sótti ail
fast á köflum og framherjar liðsins fengu allmörg gullvæg tækifæri sem þeir misnotuðu.
Einnig stóð stóð VValsvömin þétt fyrir eins og sézt hér á myndinni.
Aldrei fyrr hafa svo mörg lið
tiikynnt þátttöku sem nú, 22
lið alls. Keppt er fyrst eftir legu
landanna í „grúppum“, en síðan
hefja 16 liðanna leik saman.
Önnur og þriðja umferðin eru
leiknar heima og heiman.
Framarar eru þegar byrjaðir
á undirbúningi ferðarinnar og i
gærmorgun æfðu þeir I KR-
salnum og í kvöld leika þeir
æfingaleik við Unglingalands-
liðið á Keflavíkurflugvelli, en
UL æfir fyrir utanferð á Norð-
urlandamótið í vetur. Mjög vel
hefur verið mætt á æfingar
Fram að undanförnu.
Skovbakken mun greiða
Fram sem svarar fargjaldi á 2.
farrými fram og til baka á sklpi
sem eru rúmar 4 þús. kr. á
mann og er það einstakt boð,
enda hefur yfirleitt verið svo
með utanfarir íslenzkra liða, að
þau hafa þurft að borga mest-
allan sinn ferðakostnað sjálf,
og auk þess þurft að borga all-
an kostnað af komu erlendra
liða.
Tveir fulltrúar HSÍ eru farn
ir utan á alþjóðaþing I Madrid,
þeir Ásbjörn Sigurjónsson og
Axel Einarsson, en þeir munu
fara með umboð Framara og
reyna að fá aukaleiki við dönsk
lið, fari svo að Fram tapi gegn
Skovbakken, en á hinn bóginn
að fá leiknum við Noregsmeist
‘ arana flýttj fari svo að sigur-
inn í Árósum verði íslenzkur,
sem ekki er gott að segja um
þar sem dönsk lið eru alls ekki
búin að sigra íslenzk lið fyrir-
fram, enda eigum við lið, sem
eru gjaldgeng vara hvar sem
er, ekki sízt Fram og FH.
10 markhæstu menn i deildinni:
Steingr. Björnsson I.B.A. 10 mörk
Gunnar Felixson K.R. 8 —
Ingvar Elisson I. A. 8 —
Þórður Jónsson I.A. 6 —
Skúli Ágústsson I.B.A. 6 —
Grétar Sigurðsson Fram 6 —
Guðm. Óskarsson Fram 5 —
Ellert Schram K.R. 4 —
Bergsteinn Magnússon Val 4 —
Matthías Hjartarson Val 4 —
Fram 10 4 5 1 17-7 13
Valur 10 5 3 2 17-8 13
Akranes 9 4 3 2 18-12 11
K.R. 9 3 4 2 17-11 10
Akureyri 10 4 2 4 21-18 10
ísafj. 10 0 X 9 2-3' 1