Vísir - 27.09.1962, Síða 1
HVAR ER SPRENGJAN ?
52. árg. —■ Fimmtudagur 27. september 1962. — 221. tbl.
Málmhylki sést
yfír Seyðisfírði
Á milli kl. 9 og 10 i gær-
morgun voru tveir menn trá
Seyðisfirði staddir úti á Vest-
Refum
fækkar
Vísir átti í morgun
samtal við veiðistjóra,
Svein Einarsson og
spurðist fyrir um gang
grenjavnnslu og minka-
veiða í sumar.
Grenjavinnslu kvað hann hafa
gengið vel I vor og hægt \iiiri
að fullyrða að refnúm væri
haldið niðri og honum fækkaði.
Tjón af völdum hans væri orð-
ið hverfandi lítið, það væri þó
alltaf eitthvað, einkum af völd-
um þeirra dýra sem gengju ekki
að sjó. Sagði veiðistjóri að
einna mest væri um refi í Norð-
ur-ísafjarðarsýslu.
Um gang minkaveiða sagði
veiðistjóri að þær hefðu gengið
svipað og undanfarið, þó
kannski heldur betur, en um
þessar mundir er nokkuð mikið
um minkaveiðar. Hann sagði að
minkar væru mun dreifðari í
sumar og væru sumir komnir
þó nokkuð langt frá vötnum,
einnig hefði minkurinn náð þv£
að breiðast nokkuð út og væri
hann kominn að vötnunum á
mörkum Strandasýslu og tsa-
fjarðarsýslu, þar hefðu tlu
minkar verið veiddir í sumar.
Framhald á bls. 5.
daiseyri og sáu þá eins og
glampandi málmhylki svífa
hægt í Ioftinu yfir jörðinni, frá
suðri til norðurs. Hlutur þessi
var eins og blýantur, eða sí-
valningur, að lögun og sveif
lóðrétt í Ioftinu. Það glampaði
á þetta í sólskininu og töldu
sjónarvottar að það hefði verið
úr málmi. Ekki tóku sjónarvott-
ar tímann en töldu að hylkið
hefði verið margar mínútur að
svífa yfir fjörðinn. Þeim dettur
helzt í hug að hér hafi þrep
úr eidflaug verið á ferðinni.
Fréttaritari Vísis á Seyðis-
f' -ði, Ólafur Björnsson lögfræð-
ingur, sá sjálfur undarlega sýn
Framhald á bis. 5.
ingi kemur
sesmun 10. október
Sanikvœmt ákvörðun síðasta Al-
þingis á reglulegt Alþingi 1962 að
koma saman eigi síðar en 10.
október n.k. Ekki er talið líklegt
að þingið kohii saman fyrir þann
tíma. 1 fyrra kom þingið saman
10. október.
Vaxandibær—Siglufjörður
hæði af fólki og atvinnu
Það hefur vakið almenna
undrun og reiði á Siglu-
firði, að í reykvískum blöð
um hefur verið talað um
fólksflótta frá bænum.
Fréttaritari Vísis hringdi
til blaðsins í gær, ,til að
mótmæla þessum furðu-
EGGERTÁ VlÐI II. EÆR
NÝTT200 LESTA SKIP
— smíðnð eftir bns fyrirsögn
Um næstu áramót fær síldar-
kóngurinn, Eggert Gíslason á
Víði II. frá Sandgerði, nýtt 200
Iesta stálskip í hendurnar, sem
smíðað er nákvæmlega eftir
hans höfði og verður að öllum
líkindum nefnt Víðir II., því að
Eggert hefur tröllatrú á nafn-
inu. Hafi hann fengið nýtt skip,
hefur það jafnan verið skírt upp
og nefnt Víðir II. Sá hængur
er þó á þessu máli, að Sigurður
Magnússon, skipstjóri á Víði frá
Eskifirði, hefur fyrir nokkru
keypt einkarétt á öllum Víðis-
nöfnum á skipum. Þó má það
skip, sem í dag heitir Víðfr II.,
bera það nafn eins lengi og því
lízt, en verði nafnið fært yfir
á annað skip þarf leyfi Sigurð-
ar Magnússonar til þess. „Við
vonumst til að Sigurður veiti
okkur þetta leyfi góðfúslega,"
sagði Guðmundur Jónsson á
Rafnkelsstöðum i Garði í við-
tali við,Vísi f morgun.
Eggert Gíslason hefur nú
verið á skipum hjá Guðmundi
á Rafnkelsstöðum í 11 ár og
það er Guðmundur sem er að
láta smíða hið nýja skip fyrir
Framhald á bls 5
legu ósannindum“ og kvað
þetta ekki vera annað en
landráðastarfsemi að bera
slíkar fullyrðingar út.
Samkvæmt nýjustu skýrslum frá
Manntalsskrifstofunni, eru nú I dag
2635 íbúar á Siglufirði. 30 væru
búnir að tilkynna brottflutning, en
á sama tíma væru 14 að setjast að.
Flestir þessara þrjátíu „er gamalt
Tollverðir og lögreglumenn á
Kefiavíkurflugvelli höfðu nóg
að gera s.l. nótt, þegar. þeir
urðu að framkvæma leit í ÖUum
farangri farþeganna af tveim-
ur Lufthansa flugvélum. Þeir
fóru ekki út að flugvélunum
fyrr en hver maður hafði verið
líftryggður fyrir hálfa milljón
kr. Hér sést einn tollvörðurinn
Ieita í tösku, — það er leit að
sprengju eða vítisvél. Nánari
lýsing á leitinni er f Myndsjá.
fólk sem flytur burt af eðlilegum
| ástæðum og hefur fyrir löngu lagt
| niður vinnu“.
Þegar verið er að auglýsa eftir
I fólki til vinnu á Siglufirði, í út-
Framhald á bls. 5.
HAGSTÆÐARIVÖRU-
SKIPTI I AGUSTMAN.
Vöruskiptin við útlönd voru hag-
stæð í ágústmánuði, svo að nam
rúmlega 6,1 milljón króna.
Við fluttum út í mánuðinum fyr-
ir 288,7 milljónir króna, en inn-
flutnlngurinn nam hins vegar 282,6
milljónum. Útflutningur allt árið til
ágústloka nam þá 2,253,1 milljón
króna, en innflutningurinn var þá
orðinn heldur meiri eða 2,310,7
milljónir króna, og voru vöruskipt-
in því þessa fyrstu átta mánuði
ársins óhagstæð um 57,6 milljónir
króna, en hér er þess að geta, að
skip höfðu þá verið flutt inn á
árinu fyrir 69,3 milljónir króna, svo
að annar vöruskiptajöfnuður var
hagstæður, svo að nam næstum
12 milljónum króna.
Framh. á bls. 5.