Vísir - 27.09.1962, Blaðsíða 10
Fimmtudagur 27. september 1962.
70
VISIR
Víólutækifæri og fleira
Alltaf ungur
Nýlega hitti amerískur blaða-
maður Adenauer og spurði hann
þá m.a. hvort það væri ekki
skynsamlegt fyrir hann að hafa
það eins og Churchill þegar
hann var orðinn gamalí, að
benda á eftirmann sinn, en
Churchill benti á slnum tíma
á Sir Anthony Eden.
Adenauer svaraði: — Nei,
það held ég ekki. Munurinn á
mér og Churchill er að Churc-
hill var alltaf gamall maður,
en ég er alltaf ungur.
Óska eftir atvinnu
Bette Davis, sem er ein af
hinum eldri frægu leikkonum
auglýsti nýlega í blaði 1 Los
Angeles. Auglýsingin hljóðaði
svo: Fráskilin kona, móðir
þriggja barna 10, 11 og 15 ára
með 30 ára reynslu sem kvik-
myndaleikkona óskar eftir
fastri atvinnu í Hollywood.
í Argentínu sló knattspymu-
dómarinn Juan Barquino niður
fjóra knattspyrnumcnn sem.
mótmæltu dómi hans um víta-
spymu. Frekari mótmæli komu
ekki fram í þelm kappieik.
Á póstkorti
Walter Ulbricht einræðis
herra í Austur Þýzkalandi hefur
nú í fyrsta skipti Iátið gefa út
af sér póstkort, sem selt er I
,öllu Austur Þýzkalandi. Nú er
ætlazt til þess, að góðir flokks-
menn sendi vinum sínum póst-
kort, ekki af fögru landslagi,
heldur með skeggjaðri ásjónu
flokksforingjans.
Stórgjöf
Michele Morgan heitir frönsk
kvikmyndaleikkona, sem tekin
er að reskjast en heldur þó
frægð sinni frá fornu fari. Ný-
lega vakti það athygli, þegar
sonur hennar Mike Marshall-
Morgan átti 18 ára afmæli, að
móðir hans færði honum að
gjöf ýmiss kohar íþróttatæki og
útbúnað samtals að verðmæti
um 300 þús. kr.
Siðsöm
Leslie Caron kvikmyndaleik-
konan fræga hefur getið sér
orð fyrir að lifa óspilltara lífi
en flestar stjörnur. Hún dvelst
nú um skeið í Parísarborg og
hefur beitt sér fyrir stofnun
félags, sem hefur það aðallega
á stefnuskrá sinni að berjast
gegn notkun bikini baðfata á
baðströndum.
Fótbrotin
Elísabet drottningarmóðir í
Englandi og fyrrverandi drottn-
ing varð fyrir óhappi í sveita-
höll sinni Balmoral. Hún mis-
steig sig, féll og brotnaði á
vinstra fæti. Fjórir læknar ann-
ást hana nú.
í 9
, ÍXv 'Í&ÍZZÍ. jS»cS Jl
Það kom illa upp um „fransk
an“ þjóf sem var handtekinn
í Rómaborg. Þegar lögreglan
ætlaði að yfirheyra hann skildi
hann ekki orð í ítölskunni, þar
sem hann sagðist vera fransk-
ur. En skömmu síðar var einn
lögregluþjónninn að segja fé-
laga sínum skrítlu. Þá fór fang
inn að skellihlæja og komst
þannig upp um hann, að hann
var af ítölsku þjóðerni og höfðu
þetta verið Iátalæti hjá honum.
Atómskýli
Elísabet Bretadrottning er nú
að láta byggja stórt loftvarnar-
skýli sem er tryggt gegn atóm-
árás. Verður það við hina frægu
höll „Tower of London“. Ekki
er skýlið ætlað henni sjálfri né
öðru kóngafólki heldur á að
geyma kórónu og krýningar-
djásn í því, ef styrjaldarhætta
kemur upp.
Leiddist biðin
Janet Leigh kvikmyndaleik-
kdna er enn mikið umrædd
vegna skilnaðarmáls hennar og
Tony Curtis. Janet flaug nú í
vikunni til Mexíkó til að fá
hraðskilnað. Áður hafði banda-
rískur dómstóll kveðið upp
skilnaðardóm, en hann átti ekki
að fá gildi fyrr en eftir eitt ár.
Svo lengi gat Janet ekki beðið
því að hún vill nú giftast hið
bráðasta kaupha”arbraskara að
nafni Bob Brandt.
Beethoven góður
Harry S. Truman forseti
Bandarikjanna þegar Kóreu-
styrjöldin stóð yfir réðst nýlega
á Eisenhower og sagði að hann
hefði verið latasti maður, sem
setið hefði f forsetastól vestan
hafs. Nýlega skýrði Truman
fréttamönnum frá því að hann
hefði breytt um uppáhaldstón-
skáld. Ég hef haldið mest upp
á Mozart, en nú er ég kominn á
þann aldur að.mér líkar betur
við Beethoven.
Ökuferð
Michael prins af Kent, frændi
Elísabetar Bretadrottningar sem
nú er um tvítugt, fór nýl. í langa
og ævintýralega bílferð. Hann
ók sjálfur á bíl sinum til Aþenu
Iandveg yfir Jugóslaviu og
sömu leið til baka upp að Erm-
arsundi. Hann' háfði þt'i ökið um
10 þúsund km. ....... vl' 1 ;
Hvatning
í London hefur starfsfólki
flughafnar borgarinnar verið
gefin fyrirmæli um að taka ekki
að sér að bera úr flugvélunum
börn farþega. Stafar þetta af
því að nýlega varð ílugvallar-
stjórnin að greiða miklar skaða
bætur, | gar reifabarn slasaðist
hjá einum starfsmanninum.
Sukarno forseti Indónesíu
hefur gefið út nýja tilskipun
í menningarmálum, sem talið er
að muni fljótlega bæta ástand-
ið í menntun þjóðarinnar. Efni
tilskipunarinnar er í stuttu máli,
að bannað er að það fólk gangi
í hjúskap, sem ekki hefur lært
að lesa og skrifa.
Heiðursmerki
Jacqueline Kennedy forseta-
frú var nýlega sæmd æðsta
heiðursmerki bandarísku kvenna
samtakanna. Rökstuðningur fyr
ir veitingunni er sá, að hún
hafi unnið mest allra kvenna
að bví að ika 31it og virðíngu
fyrir banHarískum konum '
öðrum löndum.
DANDARÍSKI „LaSalIe"
strengjakvartettinn hélt
fyrstu tónleika sína hér fyrir
Tónlistarfélagið í Austurbæjar-
bíói í fyrrakvöld. Mozart, Schull
er og Brahms sameinuðust þá í
eftirminnilegu kvartetthljóði. —
Þar var gengið hreint til verks.
Eftirtektarverðasta verkefnið
var Kvartett nr. 1 eftir Gunther
Schuller, og vildi ég gjarnan
heyra þá leika meira af slíku.
Veit ég, að þeir eiga sitthvað
nýstárlegt í pokahorninu. I
verki Schullers komu hæfileik-
ar leikaranna skýrast í ljós, þá
er þeir Iéku óstuddir hefðinni.
Tækni þeirra og hjartalag hélt
áheyrandanum í eftirvæntingu,
því að fátt-er jafn hrífandi og
þakkarvert og að heyra lítt
þekkta nýsmíð. Fátt er' jafn
hollt áheyrandanum og að
kynnast sem margvíslegustum
tónlistrænum hugsunarhætti,
slíkt getur af sér „víðheyrn".
Leikur fjórmenninganna var
ágætur allt frá flöktandi „ör-
Iagafrumi“ upphafsins til hinn-
ar þrælerfiðu „kadensu" í nið-
urlaginu. Hafi þeir þökk fyrir.
Ekki er þetta skrifað til að
kasta rýrð á þær tvær perlur
kvartettbókmenntanna, d-moli
kvartett Mozarts K. 421 og B-
dúr kvartett Brahms op. 67,
sem fram voru bornar fyrst og
síðast á efnisskránni. Þar horfir
aðeins annað við. Þar er hefðin.
Áheyrandinn kemur í tónleika-
salinn með sínar ákveðnu hug-
myndir um það, hvernig þessi
vel þekktu verk skulu hljóma.
Hans reynsla verður að Iíða
úr minni, ef hann á að geta
notið þess fyllilega að heyra
nýjan flutning á „gömlu kunn-
ingjunum."
— ★ -
í.þessum sígildu verkum var
leikur kvartettsins töluvert hlut
lægur og óneitanlega heilsteypt-
ur á sína vísu. Samspil var
gott. Samt hefði ég viljað heyra
meiri andstæður, þegar tæki-
færi gáfust, ekki aðeins í leik
heildarinnar, heldur sérstaklega
hjá einstaklingunum. Brahms
gaf þarna t.d. víóluleikurum
ógleymanleg tækifæri í þessum
B-dúr kvartett, hvað skyldu
þeir nota þau oft? Gaman verð-
ur að kynnast „LaSalle" kvart-
ettinum betur á næstu tónleik-
um.
Þorkell Sigurbjörnsson.
Austurbæjarbíó sýnir nú mikið
umtalaða mynd, en lítið umdeilda,
þar sem flestir hafa komizt að
þeirri niðurstöðu, að hún sé góð.
Mynd þessi nefnist Never on a
Sunday, eða Aldrei á sunnúdög-
um. Mynd þessi fjallar um gríska
gleðikonu, sem nefnist Illia (Mel-
ina Mercouri), og samskipti henn-
ar við ungan, sakleysislegan Am-
eríkumann, Hómer að nafni (Jules
Dassin). Hann er kominn til Grikk-
lands til að finna sannleikann, og
kynnist henni fljótlega. Hann getur
ekki fellt sig við að hún skuli vera
hamingjusöm með það líf, sem
hún lifir, og vill fyrir hvern mun
kenna henni muninn á ímyndun og
veruleika. Áður en hann kom til,
var hún mjög hamingjusöm og ó-
siðsöm. Honum tekst að gera hana
hreinlífa, mennta hana talsvert, en
einnig að gera hana mjög óham-
ingjusama. Af þessu skyldu menn
ekki draga þá ályktun, að mynd
þessi boði vændislifnað sem leið-
ina til hamingjunnar, heldur það,
að það getur orkað tvímælis, að
troða í fólk meira af menntun, lær-
dómi og listum en það hefur
nokkra hæfileika eða vilja til að
meðtaka.
Myndin er mjög skemmtilega
gerð af Jules Dassin, sem leikur
aðalhlutverkið, skrifaði handritið
og stjórnaði henni, aðallega vegna
þess, að hann hafði ekki efni á að
fá neina aðra til þess. Myndin geld
ur þó ekki þessara vanefna, því að
Dassin er öllum hlutverkunum vax-
inn. Melina Mercouri, sem leikur
gleðikonuna, sem tekur sér frí frá
störfum á sunnudögum og heldur
opið hús fyrir vini sína, sem sumir
eru viðskiptavinir á virkum dög-
um, er mjög sérkennileg. Hún
hefur óvenju stór augu, stóran
munn og óreglulegt andlitsfall.
Samí er hún töfrandi kona og svo
full af lífi, að unun er á að horfa.
Mynd þessi er sérkennileg og ó-
venju skemmtileg. ós
Reyðarvatn til sölu
„Eitt af stærstu og beztu silungs
veiðivötnum suðvestanlands er til
sölu“ segir í auglýsingu i dagblaði
í gær. Vísir hefir aflað sér upp-
lýsinga um að hér er um að ræða
Reyðarvatn, en það er stórt vatn
upp af Lundarreykjadal, í raun-
inni uppi á Uxahryggjum norðan
Uxahryggjavegar. Mikið hefir
veiðzt af bleikju í þessu vatni.
Skipstjórar á
síldveiðiflotanum
Skipstjórar á síldveiðiflotanum frá í sumar
halda samfagnað með borðhaldi fyrir Jakob
Jakobsson fiskifræðing og skipstjóra á síld-
arleitarskipunum í Lido n.k. föstudag kl. 19.
Þeir skipstjórar, sem ekki hafa gefið sig fram,
geta látið skrá sig til þátttöku í dag (fimmtu-
dag) kl. 16—18 á skrifstofu skipstjóra- og
stýrimannafélagsins Aldan, Bárugötu 11,
sími 23476.