Vísir - 27.09.1962, Blaðsíða 4
4
VISIR
Fimmtudagur 27. september 1962.
'Æi'í
LÍF sem gerði út af við FÍL
Spánn og Mallorca eru
í augum margra íslend-
inga ímynd þess munað-
ar sem helzt er hægt að
veita sér í lífinu. Því skal
heldur ekki mótmælt,
staðurinn hefur lokk-
andi áhrif — sól og sum-
ar, baðstrandir og vel-
lystingar. En Mallorca
hefur sínar slcugga
hliðar og freistingar -
og það svo að stúlkur
frá Norðurlöndum eru
eftirsóttustu og vinsæl-
Ustu gestirnir í drauma-
landinu.
Og vitið þið af hverju? Jú,
af því að þær eru auðveldasta
bráð þeirra suðrænu senjóra
sem spóka sig á ströndinni og
lifa á sakleysi ferðamanna
Þetta eru alsnauðir iðjuleysingj
ar, sem reika um og eíga ekki
einu sinni 90 aura fyrir bað-
stól. Þeir leggja lag sitt við
stúlkur og láta þær borga fyrir
sig mat, vín og sígarettur í stað
blíðu sinnar og fleðuláta.
Þýzkar stúlkur reka þá kröftug
lega í burt frá sér, frönsku
stúlkurnar láta þá fá það óþveg-
ið og þær spönsku virða þá ekki
einu sinni viðlits. En þær
skandinavisku — þær taka þeim
opnum örmum í allra augsýn.
Kannske standast þær ekki
hið dökka útlit Spánverjans,
kannske er það lauslæti eða
bara einskær ævintýraþrá. En
4
ef það er það síðastnefnda, þá
er það víst að sjaldan endar sú
„vinátta“ eins og ævintýrin
gera. Ýmist labba þeir sig í
bdrt þegar þeir hafa fengið
nægju sína eða stela frá stúlk-
unum öllu því sem lauslegt er
og oftar en einu sinni hefur það
komið fyrir að stúlkur hafa orð-
ið óléttar af völdum þessara
samskipta við innfædda.
Undanfarið hafa sænskir látið
opinskáa vanþóknun sina á
framferði dætra sinna og finnst
léttúð þeirra ná engu tali.
Einn virðulegur Svíi segir
svo: Ég hafði alltaf þá trú
að sögumar um framferði
sænskra stúlkna í Mallorca
væru meira og minna ýktar. En
eftir að ég hafði dvalizt þar um
nokkurn tíma, sá ég að svo var
ekki og ég blygðast min blátt
áfram þegar ég hugsa tii þess
sem ég sá til stúlknanna þarna
á baðströndinni".
Svo mörg voru hans orð.
Meinið er bara að stúlkurnar
sjálfar blygðast sín ekki og það
Framhaid á bis. 13
/