Vísir - 29.09.1962, Side 5

Vísir - 29.09.1962, Side 5
V í SIR . Laugardagur 29. september 1962. 100 skipstjórar F'ramliald af bls. 1. vefandi, hér heima eða erlendis. Eggert Gíslason, skipstjóri á Víði II gat ekki verið viðstadd- ur vegna veikinda, en sendi hóf- inu kveðjur. Annars voru þarna saman komnir fjölmargir af mestu aflamönnum landsins. Skipstjórarnir gæddu sér á sveppasúpu, köldum humar, reyktu grísalæri og rjómaís, með tilheyrandi vínum. Meðan setið var undir borðum, söng Guðmundur Jónsson óperu- söngvari, Karl Guðmundsson leikari fór með skemmtiþátt og leikararnir Gunnar Eyjólfsson og Bessi Bjarnason fluttu sam- talsþátt. Eftir það var dansað við undirleik hljómsveitar Svavars Gests. í ræðu þeirri, sem Guðmund- ur Oddsson hélt, mælti hann nokkur viðurkenningarorð til Jakobs Jakobssonar og komst þá svo að orði: „Þegar talað er um síldarleit með þeim tækjum og við þær Jakob Jakobsson. Landsspítalinn Framhald af bls. 1. búningsherbergi fyrir starfsfólk o. fl. Þá hefur tannlæknadeild Há- skóla I’slands þegar fengið til bráða birgða húsnæði fyrir starfsemi í svonefndri tengiálmu viðbygging- arinnar. Formaður byggingarnefndar, sem nú er Sigurður Sigurðsson land- læknir, lét við s.l. áramót gera á- ætlun um kostnað við að Ijúka smlði svonefndrar tengiálmu og vesturálmu auk ketilhúss, aðalinn- gangs og aukningar á eldhúsrými, en í þessu húsnæði verða, 135 sjúkrarúm, aukning á rými skurð- deildar, rannsóknardeildar, kennslu deildar o. fl. Byggingaráætlunin, sem hljóð aði á framkvæmdir fyrir um kr. 28 milljónir og var miðuð við árið 1962 og 1963, var samþykkt af ríkisstjórninni. Er nú unnið af krafti að þessum stóra áfanga, og þess vænzt, að tengi- álman verði fullsmíðuð um lok þessa árs: og vesturálman við önnur áramót hér frá. Þá er áformað að hefja á næsta sumri smíði húss fyrir eldhússtarfsemi spítalans ásamt hæfilegri borð- stofu fyrir starfsfólk, en núver- andi aðstaða í þessu efni er fyr- ' ir löngu orðin óviðunandi vegna þrengsla. aðstœður sem nú eru, verður að líta í ýmsar áttir. Mikil hugsun og margar hendur koma hér til greina, en hlutur’ skipstjóranna verður hér ætíð stór, því segja má að þeir séu leitandi frá því að þeir sleppa bryggju eða eru komnir fyrir fjarðarmynnið. Samdómaálit veiðimannanna er þó það, að hið þróttmikla starf og hin vökulu augu Jak- obs Jakobssonar fiskifræðings við • síldarleitina, beri að meta að verðleikum, sem svo jafn- framt gæti orðið honum léttir í framhaldandi starfi hans fyrir Iand og þjóð“. Rabbað við Reumerthjön- in um ieikiist e.fl. Það er dásamlegt að koma enn hingað til ís- lands, sagði Poul Reu- mert, þegar fréttamenn áttu tal við hann og konu hans í gær. — Ég hef oft komið til Is- lands til gestaleiks, í íyrsta IÞessi mynd var tekin af Reumerts-hjónunum í gærdag. Þegar senunni var stolii / fyrsta skipti frá POUL REUMERT skipti fyrir 33 árum. Nú ætlum við að lesa upp úr Fjalla-Ey- vindi á afmælishátíð Norræna félagsins. En í þetta skipti er það enn fleira en áður sem bindur, því að sonur okkar Stefán hefur flutzt tii íslands og býr nú í Hafnarfirði. Og þar eigum við litla sonardóttur, Ás- laugu. — Hvað er hún gömai? — Hún er tveggja ára, segir Poul Reumert, og bregður síðan skjótt við. — Mér finnst ann- ars skemmtilegra að segja, að hún sé að verða þriggja ára. Ég tók mína fallegu konu frá íslandi og þá er ekki nema eðli- legt að Jsland jafni reikning- ana með því að taka soninn frá mér. Stal senunni. — Þykir yður vænt um son- ardótturina? — Hún er yndisleg og meira en það. Hún stal frá mér sen- unni í fyrra, þegar ég átti 60 ára leikáfmæli. Menn segja að það hafi enginn gert fyrr að stela senunni frá mér. Og hún stal henni algerlega frá mér, en annars er oftast hægt að bjarga sér á sviðinu. Þetta' var í hátíðlegri veizlu og einhver hátíðlegur ambassador var að tala, öllu var sjónvarpað. Þá kom hú allt í einu inn rétt ný órðin tveggja ára og kippti • buxnaskálm mína. Sjónvarþs- mennirnir sáu hana og beindu ðtlum vélum að henni. Þá hljóp hún áður en við var ráðið al- veg að sjónvarpstækjunum og ýtti ölluín hinum virðulegu gest um út af sjónvarpssviðinu. Og nú tekur frú Anna orðið af manni sfnum: — Áslaug litla kom þegar hún var í heimsókn í Kaupmannahöfn í tleikhúsið þar sem verið var að æfa Rigo- letto. Hún smaug inn á sviðið og fékk að vera þar nokkra stund Þegar hún hafði verið leidd út, sagði hún: — Ég vil fara aftur inn I lætin. — Haldið þér að hún verði leikkona, þegar hún stækkar? — Það er ekki gott að segja, svarar Poul, og svo bætir hann við hlæjandi: — Okkar vegna má hún verða það. Á sviðinu í gömlu Iðnó. Það er auðheyrt að þeim hjónunum liggiir ofarlega hugs- unin um þessa litlu sonardóttur sína, en nú víkjurti við talinu að öðru. ! — Þegar ég kom hingað fyrst til gestaleiks árið 1929, segir Poul Reumert, þá lék ég hér í fleiri leikritum, m. a. Galge- mandon á möti Önnu.;Þá lékum yið í Iðnó. Það yar skemmti- legt leikhús, sviðið var að vísu miklu minna en á Konunglega leikhúsinu, en þaðan á ég marg- . ar mínar fegurstu endurminn- ingar um sértaklega góðan leikanda, þó það kæmi að vísu fyrir, að statistarnir tilkynntu, að því miður gætu þeir ekki mætt til „generalprufu", þar sem þeir ættu að leika knatt- spyrnu sama kvöldið. Þeir slaufuðu þó knattspyrnunni það kvöldið. Ég var ekki á því að beygja mig fyrir knattspyrn- unni, því að sjálfur hef ég aldrei sparkað bolta. Fjalla-Eyvindur á íslenzku. — Nú þegar þér ætlið að lesa hér upp úr Fjalla-Eyvindi, lang- ar okkur að vita, hvort þér haf- ið leikið í því leikriti. - Já, það he ég oft gert. Annars er gallinn sá, áð ég held að það sé ekki hægt að leika Fjalla-Eyvind vel nema á ís- lenzku. Það er þessi sérstaka tilfinning, sérstaki bher ein- manaleika, sem vlð getum ekki náð, af því þið hafið aðra og hreinni menningu en við. Ég á líka mínár minningar úr Fjalla-Eyvindi, segir frú Anna Ég var smábarn, þegar ég var Tóta í leikritinu. Þá lék Guðrún Indriðadóttir Höllu og ég man enn hverja hreyfingu hennar. þegar hún var að1 vagga mér Ég man það t. d. að hún sagði við mig: — Þú átt að Iáta eins og þú sofir, en passaðu þig samt að sofna ekki. Ekki alveg hættur. > — Þér eruð ekki hættur að leika enn, þrátt fyrir háan ald- ur? spyrjum við Poul Reumert. — Nei, nú innan skamms á ég að leika kardínálann í Thomas Beckett eftir Anouhil. Hann er hið mesta illmenni og í samtali hans við páfann koma fram ýrhis ummæli, sem eru ekki sérlega hagstæð fyrir ka- þólsku kirkjuna. Síðan leik ég í Lokaður múr, sem fjallar um Gyðingavandamálið. Þið hér á íslandi þekkið ekkert til þess vandamáls. Og þá leik ég álfa- kónginn í Elverhöj. Það er leik- rit dönsku þjóðarinnar. Er und- arlegt, að það var samið eftir pöntun til að leika það aðeins eitt hátíðarkvöld. En ekkert leikrit hefur verið sýnt oftar í Danmörku. Það er fyrsta leik- ritið, sem öll dönsk börn sjá. Nú eins og oft áður á að leika það í haustfríi skólabarna. Skól arnir byrja miklu fyrr f Dán- mörku en á íslandi og í staðinn er börnunum gefið .vikufri í okt óber Þá reynum við í leikhús- unum að gera eitthvað til að skemmta börnunum, og sýning- in í Elverhöj er liður í þeirri viðleitni. Kjarvalsmálverkið. — Annars er ég að verða átt- ræður og ég geri mér ljóst, að þá er kominn tími til að hætta. Allt í. óinu bendir Poul á mál- verk á veggnum eftir Kjarval. — Þessir geta haldið áfram, Framhald á bls 10. i

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.