Vísir - 01.11.1962, Side 1
52. árg. — Fimmtudagur 1. nóvember 1962. — 251 tbl.
Læknar hættu störfum í nótt
Yfirlæknar og kandidatar einir
eftir. — 40-50 sjúklingar á
hverri deild í Landsspítalanum
Hreingerning fer auðvitað fram reglulega á spitalanum, en í þetta sinn var notaður tími, sem annars fer í skurðaðgerðir. (Ljósm. Vísis, I. M.).
Með brottför lækn-
anna á miðnætti í nótt
hefur skapazt hið alvar-
legasta ástand á öllum
deildum Landsspítalans,
Slysavarðstofunni,
Rannsóknarstofu Há-
skólans, Hvítabandinu
og Borgarsjúkrahúsinu.
Eftir sitja yfirlæknamir á
sjúkradeildunum með 40—60
sjúklinga og enga aðra aðstoð
en þá, sem kandidatarnir geta
látið í té, en þeir verða að vinna
undir eftirliti lækna.
Á rannsóknastofunum, sem
vinna úr' verkefnum fyrir öll
sjúkrahús á landinu, t. d. að
vef jarannsóknuni, sem skipta
máli vegna uppskurða,
____„st upp verkefni, þar sem
yfirlæknirinn er eini maðurinn,
sem hefur verulega reynslu og
þekkingu til að vinna að þessum
störfum.
Heimild
ríkisstjómarinnar
Ríkisstjórnin hefur gefið út
heimild til yfirlæknanna um að
þeir fái þá aðstoð, sem þeir
Framh. á bls. 5.
biskups um prestskosningu
Verða prestskosningar af-
numdar, eða verða þær ekki
afnumdar? Úr því verður skor-
ið á kirkjuþingi því, sem nú
situr, og fylgist almenningur
með því máli af áhuga. Fyrlr
kirkjuþingi liggur fmmvarp
2 SÆKJA UM
Umsóknarfrestur um stöðu
skólastjóra við Stýrimannaskólann
var á enda í gær, og eru umsækj-
endur tveir.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Vísir fékk í morgun hjá Brynj
ólfi Ingólfssyni, ráðuneytisstjóra í
spngöngumálaráðuneytinu, eru
umsækjendur þessir: Gunnar Berg
steinsson, sem starfað hefir hjá
Landhelgisgæzlunni um langt
skeið og verið m.a. yfirmaðúr sjó-
mælingadeildar hennar, og Jónas
Guðmundsson, sem kennt hefir við
Stýrimannaskólann undanfarin 15-
20 ár.
flutt af biskupi landsins og
kirkjuráði, er gerir ráð fyrir að
almennar prestskosningar verði
afnumdar og tekið upp kjör-
mannafyrirkomulag, þ.e. að
safnaðarnefndir og safnaðarfull
trúi kjósi prcstinn í stað al-
menn:.. prestskosninga. Þetta
mál hefir verið borið undir hér
aðsfundi í prófastsdæmunum
milli þinga og meirihluti þeirra
hefir aðhyllzt afnám prestskosn
inga. Aftur á móti hafa sumir
þessara funda lagzt eindregið
gegn afnámi þeirra.
Og hvað gerir nú kirkjuþing?
Allar líkur benda til þess að
fiestir kirkjuþingsmenn séu því
andvígir að söfnuðirnir afsali
sér rétti til að kjósa prest og.
virðist þeirri skoðun vaxa fylgi
eftir því sem á þingið Iíður.
Laganefnd kirkjuþings hefir nú
fjallað um þetta mál og kom
álit hennar fyrir þingið í dag. í
henni ei^.. sæti 7 prestar og
leikmenn.Leggur meirihlutinn til
að prestskosningunumverði hald
ið eins og verið hefir, þó með
þeirri breytingu að söfnuðun-
um gefist kostur á að kalla
sér prest, áður en embættið er
auglýst laust til umsóknar. I
laganefnd kirkjuþings eiga sæti
Hákon Guðmundsson hæstarétt
arritari, Jór: Auðuns dómpróf-
astur, Jón Jónsson á Hofi, sr.
Sigurður Pálsson á Selfossi,
Steingrímur Benediktsson kenn
ari í Vestmannaeyjum, Þórar-
inn Þórarinsson skólastjóri Eið
um og Þorstcinn Gíslason próf-
astur í Steinnesi.
Krishna Menon.
BR0TTVIKNING MEN0NS
Sú frétt hefur vakið feikilega
athygli, að Nehru vék hinum gamla
vini sínum, Krishna Menon, i gær
úr embætti landvarnaráðherra. —
Ástæðan fyrir þessu er sú harða
í gagnrýni, sem komið hefur fram á
andvaraleysi Menons í stríðinu við
Kínverja. Þrátt fyrir þetta situr
M.non enn í stjórninni sem ráð-
herra hergagnaframleiðslu.
Mistök Menons liggja í því, að
hann hefur algerlega vanmetið
. hernaðaraðgerðir Kínverja á landa-
mærunum. Þeir, sem gagnrýna
hann, segja jafnvel, að aðgerðaleysi
hans jaðri við landráð, þar sem
vitað hafi verið að Menon hafi ver-
ið hlynntur kommúnistum.
Síðan gerðist það fyrir nokkruiíi
ust, hefur Menon stöðugt haldið því
fram, að óþarfi væri að efla ind-
verska herinn verulega á landamær-
unum, og hann hefur snúizt gegn
því að leitað væri eftir vopnaað-
stoð erlendis frá.
Síðan gerizt það fyrir nokkrum
dögum, að Kínverjar réðust með
miklu ofurefli inn yfir landamæri
Indlands, og svo skæðir bardagar
tókust, að yfir 2000 indverskir her-
menn fórust.
Samtímis og Menon víkur úr em-
bætti, eru að hefjast flutningar á
hergögnum frá Frakklandi og
Bandaríkjunum til Indlands, og enn
fremur hefur Nehru leitað eftir
vopnahjálp frá Rússum.