Vísir - 14.11.1962, Síða 7
VlSIR . Miðvikudagur 14. nóvember 1962.
11
7
Nýtt barnaleikrit
fmmsýatáaiorguu
Spánskur fiskréttur
Islendingar borða mikið salt--
fisk og það gera Spánverjar
einnig, en mikill munur er á,
hvernig hann er matreiddur í
þessum tveimur löndum. „Baca-
lao a la Barcelona" heitir einn
spánskur saltfiskréttur, sem
þykir mjög góður og er borð-
aður mikið í borgum og út um
sveitir. Ef ykkur langar til að
reyna hann þá er uppskrift hnns
á þessa leið:
1 kg. saltfiskur
1 dl. matarolía
50 g. smjör
1 feitur hvxtlaukur
2 litlir Iaukar
2 dl. tómatsósa
12 kryddsíldarflök
2 stk. grænn pipar og
dálítið af venjul. pipar.
Saltfiskurinn er lagður í bleyti
í mjólkur-vatns blöndu og lát-
inn liggja þar í hálfan sólar-
hring, síðan tekinn upp og þurrk
aður.
Laukarnir, hvítlaukurinn og
síldarflökin er hakkað vel sam-
an og blandað olíunni, sett í
pott og hitað. Þegar laukarnir
eru orðnir brúnir er tómatsós-
unni hellt yfir og allt látið sjóða
nokkrar mínútur. Síðan er salt-
fiskurinn skorinn í hæfilega
stór stykki og settur í pottinn,
smjörklínur settar hér og þar,
lok sett á pottinn og innihaldið
látið sjóða í um það bil eina
klukkustund.
Þegar rétturinn er borinn á
borð er hann skreyttur með
þunnum sneiðum af pipar (það
hefur ekki mikið að segja, þó
að honum sé sleppt). Með þessu
borða svo Spánverjarnir grænt
salat, kartöflur eða brauð.
Konur út í geiminn
25 amerískar konur hafá' gerig
izt undir mjög umfangsmiklar
og óþægilegar rannsóknir á
Lovelacesjúkrahúsinu í Albuqu
erque í New Mexico, en það er
engin ástæða til að vorkenna
þeim því að þær gengu undir
rannsóknir þessar af fúsum
vilja. Tilgangurinn með þeim
var að leiða í Ijós, hvort konur
uppfylltu kröfur þær, sem þarf
til að geta orðið geimfari.
Á konunum voru gerðar 110
tilraunir og voru þær mjög mis-
jafnar. T. d. voru augu þeirra
__/
böðuð úr isköldu vatni, og þær
látnar hjóla á reiðhjóli unz púls
slögin voru orðin 180 á mínútu.
Þó að 13 af þessum konum hafi
gengið undir rannsóknirnar af
löngun til að verða geimfarar,
hafa engar ákvarðanir verið
teknar um hvort skipuleggja
skuli víðtækari þjálfun kvenna
til geimferða.
Aftur á móti hafa Rússar þeg
ar þjálfað kvenfólktilgeimferða
og er vitað, að innan skamms
muni þeir láta kven-geim-
fara taka þátt í geimferðum.
Bandaríkjamenn ganga ekki svo
langt við svo búið því að þeir
eru hræddir um að áhrif í'adíó-
aktívra geisla valdi því að kon-
urnar megi ekki eða geti ekki
alið börn að ferðinni lokinni.
Þegar vísindin hafa komizt að,
að hve miklu leyti geislarnir eru
hættulegir og hvernig á að fara
að því að verja sig gegn þeim
verður þess ekki langt að bíða
að konur feti í „geimspor"
karla. >
Verður hún fyrsttil
tunglsins?
Það er viðar en í Ameríku og
Rússlandi að kvenfólk hefur á-
huga á geimferðum. Frönsk
stúlka álítur sig vera búna að
finna leiðina til að verða fyrsta
konan sem lendir á tunglinu.
Hún hefur sent mynd af sér til
bandarísku geimferðastofnun-
arinnar og beðið að myndin
verði látin prýða klefa tungl-
farans, og stúlkan er — Birgitte
Bardot!
Sokkar með saum?
Er „saumlaususokkatízkan"
að líða undir lok? Margt bend-
ir til þess, því að á tízkusýn-
ingum sjást nú aftur saumar á
sokkum — og kvenfólk er nú
þannig gert, að það reynir af
fremsta megni að fylgja því,
sem þar kemur fram.
Frumsýnt verður á morgun barna-
Ieikritið DÝRIN í HÁLSASKÓGI,
eftir Thorbjöm Egner, sem frægur
varð og vinsæll fyrir Kardi-
mommubæinn.
Egner hefur sjálfur samið ekki
aðeins leikritið heldur og tónlist-
ina og gert teikningar að sviðsút-
búnaði, sem er miklu viðameiri en
hér tfðkast og einhver hinn íburð-
armesti, sem sézt hefur hér. Leik-
ritið verður flutt í nokkrum lönd-
um i vetur eða Norðurlöndunum
' o0 Þýzkalandi, og á væntanlega
eftir að fara sigurför eins og
Kardimommubærinn.
Leikstjóri hér verður Klemens
Jónsson, Carl Billich stjórnar
hljómsveitinni, en í henni eru 7
menn. F.lisabcth Hodgsohn æfir
dansana. Leikendur eru um 40.
Með aðalhlutverk fara Bessi
Bjarnason, Árni Tryggvason, Bald-
vin Halldórsson.EmiIía Jónasdóttir,
Jón Sigurbjömsson, Ævar Kvar-
an og Lárus Ingólfsson.
Sýningar hefjast kl. 7 og standa
2 y4 klst. — Verð aðgöngumiða
hækkar um 15 kr. og verður 60
kr. að barnasýningum.
Stúkan Frnmsókn á
Siglufirði 40 óra
Stúkan Framsókn á Siglufirði
minntist 40 ára starfsafmælis síns
sl. laugardag. Hún var stofnuð 10.
nóv. 1922 og hefur starfað óslitið
síðan. Félagsmenn voru fyrst 30
en eru nú 233. Stúkan Framsókn
hefur um áratugaskeið rekið Sjó-
mannaheimili Siglufjarðar og ann-
ast þar ýmsa fyrirgreiðslu fyrir
sjómenn og hefur það starf nctið
mikilla vinsælda. Stúkan hafði
á sínum tíma forgöngu um leiksýn
ingar á Siglufirði og á hennar veg
um hafa verið sýndir margir sjón
Ieikir. Um margra ára skeið befur
hún gefið út blaðið Regin. Afmæl
ishófið var fjölsótt og fóru þar
fram ræðuhöld og ýmis skemmli-
atriði.
Sovétríkin og hlutleysi íslands — Hver er alvara
Einars? — Afstaða er andstaða — Afstaða Fram-
sóknar - Eysteinn talar kosningamál.
Það væri sannarlega þess virði
að greina hér í smáum atriðum
frá þeim umræðum, sem fram
fóru á Alþingi í gær. Almanna-
varnir var hinn formlegi dag-
skrárliður, en þeir Einar OJgeirs
son og Bjarni Benediktsson
skiptust þarna á skoðunum um
veigamikil alþjóðamál, aðgerð-
ir stórveldanna og stöðu Islands
með tilliti til þeirrar valdabar-
áttu, sem á sér stað í heimin-
um.
Þarna stóðu andspænis hvor
öðrum áhrifamestu málsvarar
hér á landi, þeirra sjónarmiða,
sem bítast á í veröldinni í dag.
Einar Olgeirsson talaði fyrst
og leitaðist við að færa rök að
þeirri skoðun sinni, að íslandi
stafaði fyrst og fremst hætta af
herstöðvunum og flugvöllunum
hér, hlutleysið væri þv£ bezta
vörn okkar og því bæri að
stefna að því. Hann taldi, að
Sovétríkin væru reiðubúin að
virða hlutleysi íslands og
myndu jafnvel gera það með
skýlausri yfirlýsingu.
Bjarni Benediktsson hélt hins
vegar fram þeirri skoðun sinni,
að engin þjóð gæti verið óhult
í hlutleysi sínu, þegar Rússar
væru annars vegar. Rakti hann
síðan samskipti Rússa við all-
mörg hlutleysisríki Evrópu,
Pólverja, baltnesku þjóðirnar,
Eystrasaltshafslöndin, A.-Þjóð-
verja, Finna o. fl. o. fl. Með
þessi dæmi í huga væri það
algjöi'Iega óforsvaranlegt að
hafa ísland varnarlaust, það
væri sannfæring sín og margra
annarra. Einar var líka á þess-
ari sömu skoðun á árunum
1939—1945, sagði Bjarni og las
máli sínu til stuðnings fjöl-
marga kafla úr skrifum Einars
Olgeirssonar frá þeim árum,
þar sem Einar marglýsir því
yfir, að ísland verði að leita
á náðir annarra þjóða til vernd-
ar sjálfstæði sínu og til varn-
ar gegn árásarþjóðum. Það er
það, sem við gerum £ dag, sagði
Bjarni, verjum okkur gegn árás-
arþjóðum.
Bjarni lauk ekki ræðu sinni,
og munu umræður um almanna
varnir halda áfram á morgun,
og ósennilegt er að kommúnist-
ar láti málþóf þetta niður falla
án þess að leggja enn aftur
orð £ belg. Þeir halda mjög á
lofti hlutleysissjónarmiðum sín-
um og slá á þá strengi að tor-
timingarhætta vofi yfir íslend-
ingum, meðan herinn sé stað-
settur hér. En jafnvel þótt menn
taki tillit til þessara raka þeirra
er samt ekki erfitt hinum al-
menna kjósanda að trúa þvf, að
Einar 0|lgeirsson, sá maðurinn,
sem oftast tekur upp hanzkann
fyrir kommúnistana í Rússlandi,
meini það f fullri alvöru að
hann vilji ísland hlutlaust og
óháð öllum erlendum stórveld-
um?
I fyrradag var einnig rætt
stórpólitiskt mál i þinginu,
Efnahagsbandalagið. Ræða dr.
Gylfa Þ. Gfslasonar birtist í Vísi
í gær, en ekki var greint frá
málflutningi stjórnarandstöðunn
ar. Finnbogi R. Valdimarsson
talaði fyrir hönd kommúnista
og kom ekki fram í ræðu hans
nein skýlaus afstaða til máls-
ins af hálfu flokksbræðra hans.
Allir vita þó hug þeirra til
bandalagsins og ljóst er, að þeir
verða á móti hverri þeirri leið,
sem farin verður. Árásir þeirra
og gagnrýni beinist fyrst og
fremst gegn þeim ákvæðum
Rómarsáttmálans, sem segja til
um, að erlendu vinnuafli og
fjármagni megi veita inn í sér-
hvert aðildarríki. (I þessu sam-
bandi er rétt að benda á kafla
þann f ræðu dr. Gylfa, sem
fjallar um þetta atriði og birt-
ist í Vísi f gær).
Eysteinn Jónsson talaði fyrir
hönd Framsóknar og lýsti hann
þar þeirri skoðun sinni, og þá
væntanlega flokksins, að auka-
aðild kæmi ekki til greina (allir
flokkar eru sammála um að full
aðild sé útilokuð). Vill hann
fara þá leið að gera viðskipta-
samning, og byggir hann þá af-
stöðu sína á þeirri trú sinni, að
aðildarríki sjái aumur á Islandi
og setji ekki upp háa tollmúra
gegn sjávarafurðaútflutningi
okkar. (Eins og kunnugt er girð-
ir bandalagið sig með háum toll
múrum gagnvart þeim rfkjum,
sem ekki eru í bandalaginu).
Eysteinn leggur einnig á-
herzlu á, að við bfðum átekta,
eins og ríkisstjórnin hefur
reyndar lýst yfir að gert verði,
og gagnrýnir þau viiyiubrögð,
sem rfkisstjórnin hefur haft
varðandi Efnahagsbandalagið.
Þetta eru skoðanir Framsókn-
armanna — f orði.
Þeim, sem á annað borð hafa
kynnt sér aðgerðir ríkisstjórn-
arinnar í þessu máli, rannsókn-
ir hennar, viðræður og hina
hyggilegu varfærni, fær ekki
dulizt að hér er vel og vitur-
lega haldið á spöðunum.
Verður vart trúað öðru en
Framsóknarmenn viðurkenni
einnig þá staðreynd í raun og
veru — á oorði, en vilji að-
eins hafa vaðið fyrir neðan sig,
með komandi kosningar í huga.