Vísir


Vísir - 14.11.1962, Qupperneq 9

Vísir - 14.11.1962, Qupperneq 9
V í SIR . Miðvikudagur 14. nóvember 1962. 9 Gunnar Thoroddsen fjármálaráðherra: Er ekki betra að borga jafnóðum? Það er nú umrætt mál í ýms- um löndum, hvort betra sé að borga útsvör, skatta og önnur opinber gjöld jafnóðum og teknanna er aflað eða árið eftir. Skattar greiddir eftir á hér á landi. Hér á landi er sá háttur hafður, að opinber gjöld eru ár hvert lögð á þær tekjur, sem maður hefur aflað árið áður. Af tekjum manns árið 1962 þarf þvl að borga skatta og skyldur á næsta ári, án tillits til þess, hverjar tekjur hans, efni og ástæður verða þá. í mörgum löndum er greitt jafnóðum. En með mörgum þjóðum er þessu á annan veg farið. Skatt- amir eru teknir af tekjum, manna mánaðarlega eða viku- lega, áður en launin eru út borguð, svo að sá hluti, sem ríkisins er eða bæjarins, kem- ur ekki í hendur launþegans Þegar árið er á enda, hefur skattgreiðandinn því innt af hendi til hins opinbera það sem honum ber af tekjum hins liðna árs, éða a. m. k. megin hluta sattsins. Þessi skipan skattgreiðslu af tekjum jafnóðum og þeirra er aflað, er nefnd í Danmörku „Kildeskatsordning", i Svíþjóð „skatt ved kallan“, í Banda ríkjunum „pay-as-you-go“, — eða „collection at source“ Enn vantar gott orð íslenzkt. Þetta fyrirkomulag er nú í gildi í Englandi, írlandi, Þýzkalandi Austurríki, Hollandi, Finn- landi, Noregi, Svíþjóð, Banda- ríkjunum, Kanada og Ástralíu. í Danmörku hefur málið ver- ið rætt og rannsakað í mörg ár og er þar ofarlega á baugi. Forsætisráðherra Dana hefur lýst sig eindregið fylgjandi því, en samstað? hefur ekki enn náðst í því landi. Gunnar Thoroddsen Hagsmuriir skattgreiðenda. Launamenn og aðrir skatt- greiðendur myndu hafa margs konar hag af þessu fyrirkomu- lagi. Sumir hafa mjög misjafnar tekjur frá ári til árs. Sá, sem hefur háar tekjur í ár, en lægri á næsta ári, þarf að borga skatta af háu tekjunum á ári hinna lágu tekna. Snertir petta ekki sízt sjómenn á síldveiðum. Þegar opinber starfsmaður lætur af starfi fyrir aldurssak- ir sjötugur, lækka tekjur hans oftast verulega. Eftirlaun koma í stað launa. Á fyrsta ári eftirlaunanna þarf hann þá að greiða skatta af síðustu embættislaununum. Þegar sjúkdómar, slys eða önnur óhöpp og ágæfa steðja að, gerist venjulega allt f senn: Tekjur mannsins minnka, út- gjöld hans vaxa og skattar og útsvör fyrra árs falla til greiðslu. Að vísu mætti úr þessu bæta, ef sérhver maðu legði sjálfur til hliðar af launum sínum jafnóðum fyrir skatt- greiðslum síðar. En slík for- sjálni er fáum gefin. Fyrir hið opinbera og efna- hagslífið í heild myndi sú skip- an hafa marga kosti, að skatt- ar væru greiddir jafnóðum og tekjumar myndast. Annmarkar. En annmarkar og örðugleik- ar eru ýmsir á þessari braut. Álagning skattanna yrði væntanlega vinnufrekari og dýrari en nú e r.Hér eru tekju- skattur og útsvar stighækk- andi og ýmsir frádráttarliðir eru leyfðir, sem ekki er unnt að vita um með vissu fyrr en í árslok. Ef manni er gert að greiða vikulega eða mánaðar- lega hluta af launum sínum, þarf að umreikna allan skatt- inn að árinu loknu. Þó ber að hafa í huga, að hinar afkastamiklu skýrsluvél- ar, sem hér eru nú til, myndu draga mjög úr þeim kostnaðar- auka, sem áður var talinn fylgja þessu fyrirkomulagi. Einnig er það allmikið vandamál, hvernig fara skuii um skattgreiðslur á því ári, sem skipulagsbreytingin kæmi til framkvæmda, hvort miða skal skatt við tekjur þess árs, eða undanfarandi árs, eða með- altal þessara tveggja ára eða einhver önnur sanngjöm leið yrði fundin. Undirbúningur hafinn. Kostir þess, að greiða op- inber gjöld af tekjum jafnóð- um og þeirra er aflað, eru vafalaust meiri en annmark- anir. Undirbúningur er því þegar hafinn undir slíka breytingu. jf I / #• f.. g §,* Stutt athugasemd um Alaarafmæli Logmannshlið- bíiatoii og benzínverð arkirkju minazt Akureyri í gær. Siðastliðinn sunnudag var aldar- afmælis Lögmannshlíðarkirkju við í.kureyri minnzt með hátíðarguðs- þjónustu í kirkjunni. Meðal viðstaddra við guðsþjón- ustuna var biskupinn yfir íslandi, séra Sigurbjöm Einarsson. Hann ætlaði flugleiðis norður á laugar- daginn, en þegar útséð var um að engin flugferð yrði um daginn ~ða kvöldið, steig hann ásamt séra Ólafi Skúlasyni upp í bifreið sína og óku þeir um nóttina norður Kafði biskup aldrei komið í Lög- mannshlíðarkirkju áður. Auk þeirra biskups og séra Ólafs Skúlasonar voru eftirtaldir prestar viðstaddir guðsjónustuna: Séra Sig urður Stefánsson vígslubiskup og héraðsprófastur, séra Björn O. Björnsson fyrrv. sóknarprestur á Hálsi I Fnjóskadal og Akureyrar- prestarnir séra Pétur Sigurgeirsson og séra Birgir Snæbjörnsson. Biskup messaði, en fyrir altari þjónuðu þeir séra Birgir Snæbjörns son og séra Ólafur Skúlason. Bæn las séra Björn O. Björnsson, en að guðsþjónustunni lokinni flutti vígslubiskupinn séra Sigurður á Möðruvöllum ítarlegt erindi um sögu staðarins, byggingu kirkjunn- ar, presta sóknarinnar og margan annan fróðleik. Það var Þorsteinn Daníelsson skipasmiður og byggingameistari á Skipalóni sem lét gera kirkjuna á eigin kostnað. Kirkjan var talin messufær árið 1860, árið eftir var hún vígð af séra Sveinbirni Hall- grímssyni sóknarpresti á Akureyri, en úttekt kirkjunnar fór ekki fram fyrr en árið 1862. Að sunnudagurinn 11. nóvember s. 1. var valinn til afmælishátiðar- haldanna var ekki af handahófi einu, þvl þetta var fæðingardagur þess sóknarprests Lögmannshlíðar- kirkju, sem nafntogaðastur hefur orðið innan héraðs sem utan, en það var þjóðskáldið góðkunna, séra Matthías Jochumsson. í fyrstunni var Lögmannshlíðar- kirkju þjónað af Glæsibæjarprest- um, en nokkru fyrir síðustu alda- mót var hún sett undir A-kureyrar- prestakall. Kvenfélagið Baldursbrá, sem er félag sóknarkvenna, bauð kirkju- gestum til samsæt': á Akureyri að iokinni g j;stunni, en hófinu stjórnaði Sigfreður Guðmundsson. bóndi i Lögmannshlíð og formaður I sóknarnefndar Lögmannshliðar- I kirkju. Ávörp fluttu undir borð- i um biskupinn, báðir Akureyrar- prestarnir og formaður sóknar- nefndar Akureyrarkirkju, Jón Þor- , steinsson. Áskell Jónsson organisti stjórnaði söng, bæði kirkjukórsins og eins almennum söng. 1 gærkveldi var haldið kirkju- kvöld i Möðruvallakirkju, þar sem flestir prestar úr prófastsdæminu vo»ti saman komnir, auk biskups. Að þvi loknu hélt biskup, ásamt séra Ólafi, aftur suður til Reykja- víkur og hugðust þeir halda áfram um nóttina. ' 1 greinarkorni, sem birtist í þessu blaði 6. þ. m., var skýrt með augljósum dæmum, að vegna gif- urlegra aðflutningsgjalda á bifreið- um eru afskrift og vextir fjárhæð- ar, sem bundin er I bilverði, stærstu liðir rekstrarkostnaðar fyrir allan þorra fólksbifreiða, en eldsneyti tiltölulega smár póstur. Maður nokkur, sem veit ekki, hvað afskrift er, geysist fram á rit- völlinn í Vísi s.l. laugardag og tel- ur sig hafa mikið vit á þessum hlutum. Segist hann ekki geta orða bundizt og vitnar siðan í tölur úr 1 nefndu greinarhorni, sem stóðu þar raunar hvergi. 1 lokin er þó allur vii.Jur úr honum, og kemur hann með sömu tillögu og gerð var í greinarkorninu um benzín- verð. Annars virðist helzt vaka fyrir manninum, að halda beri i toilfrið- indi til handa einstökum stéttum. Þessi hugsunarháttur ^er þvi miður algengur, en eigi að 'síður rangur og óheilbrigður. Stétt leigubílstjóra er ekki styrkþurfi. Það, sem bænd- ur þarfnast, er rétt verð fyrir af- urðirnar, en ekki ívilnanir eða ölmusur. M. G. Nýr hæstnréftcsrdómur: MaBurinn kaus ranglega Hæstiréttur kvað nýlega upp dóm i máli manns eins ( Innra- Akraneshreppi. Fellir Hæstiréttur úr gildi dóm setudómarans á Akra nesi, sem bæjarstjórn Akraness hafði áfrýjað, og var áfrýjandinn, bæjarstjórn Akraness sýknaður. Mál þetta er óvenjulegt að þvi leyti til að það er sérstætt kjör- skrármál. Deilt var um hvort mað ur einn ætti heimild til að vera á kjörskrá. Kærði hann sig inn og lauk málinu svo að hann var dæmd ur inn á kjörskrá og kaus hann við siðustu bæjarstjórnarkosning- ar. Þessum málalyktum vildi bæj- arstjórn Akraness ekki una og á- frýjaði því til Hæstaréttar, jafnvel þótt maðurinn væri búinn að kjósa. Komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að maðurinn hefði rang lega verið dæmdur inn á kjör- skrá og héfði ekki átt að fá rétt til að kjósa á Akranesi. Maður, sá, sem hér er um að ræða er Halldór Grimsson og náði málið einnig til konu hans Lilju Gestsdóttur. Voru þau heimilis- föst um hríð á Akranesi hjá bæj- arfógetanum þar, Þórhalli Sæm- undssyni. Er þau hjónin kærðu til bæjarstjórnarinnar út af þvi að þau voru strikuð út af kjörskrá Akraness óg talin búsett að Borg- artúni I Innri Akranesshreppi gerð ist bæjarfógetinn talsmaður þeirra í malinu. Kvað hann sjálfur siðan upp úrskurð á bæjarþingi Akra- Framhald á bls. 5.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.