Vísir - 14.11.1962, Side 10

Vísir - 14.11.1962, Side 10
w VÍSIR . Miðvikudagur 14. nóvember 1962. Drekkið kaffi í SMÁRAKAFFI LAUGAVEGI 178 ÁHALDASMIÐUR óskast Staða áhalda- og tækjasmiðs Veðurstofu íslands er laus til umsóknar. Umsækjendur þurfa að hafa sveinspróf í járnsmíði eða annarri grein smíða og auk þess góða framhaldsmenntun, t. d. próf frá Vélskólan- um í Reykjavík. Ennfremur þarf væntanlegur starfs- maður að hafa talsverða starfsreynslu, vera heilsu- hraustur og reglusamur. — Umsóknir ásamt upplýs- ingum um menntun, aldur og fyrri störf sendist Veð- urstofu íslands, Sjómannaskólanum, Reykjavík, fyrir 21. þ. m. Veðurstofa íslands. - BÍLAV AL - Nýi sýningarbíllinn DKV (Das Kleine Wunder) frá Mercedes Benz-verksmiðjunum er til sýnis og sölu á sölusvæði okkar í dag. Kynnið yður hina hagstæðu skilmála. BÍLAVAL Laugavegi 90—92 . Símar 18966, 19092 og 19168 Híolbarðaverkstæðid Millon Opin alla daga frá kl. 8 að morgm til kl. 11 að kvöldi. Viðgerðii á alls konar hjólbörðum — Seljum einmg allai stærðii hjólbarða. — Vo.iduð vinna. — Hagstætt verð. — Bíla og bilpartasalan Höfum til sölu m. a. Skoda station '52 kr. 15.00. Skoda station ’56 ýms skipti. Dodge ’54 stationbyggður með nýuppgerðum mótor, skipti hugsanleg. Dodge ’48 eins tons með hliðargrindum. Volkswagen '60 Seljum og tökum í umboðssölu bíla- og bílparta. Bíla og bílpartasalan Hverfisgötu 20 . Sími 50271. BÍLASALAN ALFAFELLI Hafnarfirði Sími 50518 Volkswagen '57 '59 '62 Opei Capitan '60 Merceder Ben2 t'lestar ár gerðið. Chervolet ’55 fólks- og station. Góðir bflar. Skóda fólks- og stadionbílar. Consul og Zephyr ’55. BÍLASALAN ÁLFAFELLI . Hafnarfirði . Sími 50518 Hreinsum vel - - Hreinsum fljótf Hreinsum allan fatnað - Sækjum Sendum Efnoloúgin LIND8N H.F. Hafnarstræti 18. Skúlagötu 51. Sími 18820. . / Sími 18825 LI—WMI.IMI-IJ)11.11111—111 IIIIIH'I I.. ¥5ðtoS dogsins — Framhaid aí bls 4 Ég hef hvergi séð færðar fram ó- yggjandi sannanir fyrir því að skólasetum sé um að kenna, þó að það geti verið líklegt í sum- um tilfellum. Hér í borg eiga nemendur með hryggskekkju og ilsig kost á ókeypis sjúkraleik- fimi.“ / Eftirlit með tönnum skólafólks. „Hvaða ráðum er beitt liér í bænum, síðan flestir skólatann- læknar sögðu upp störfum sín- um, og hvernig er ástandið úti um landið?” „Úr tannlæknaskortinum hér er reynt að bæta með því að skoða tennur í börnunum og fá þeim tilvísun til tannlæknis. Bærinn borgar síðan helming tannviðgerða samkvæmt reikn- ingi, en vitanlega er undir hæl- inn lagt, hvort foreldrar notfæra sér þessa hjálp. Úti um land er víða hörmungarástand í þessum efnum. Tennurnar molna úr börnunum, án þess að hægt sé að veita þeim neina hjálp. Ástæð an til þessa ástands er tann- læknafæðin í landinu, en hér munu nú vera um það bil helm- ingi færri tannlæknar miðað við mannfjölda en annars staðar á Norðurlöndum. Stjórn Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur hef- ur nú í undirbúningi ráðstafanir, til að reyna að,koma í veg fyrir tannskemmdir í skólabörnum, en þær ráðstafanir krefjast nokkurs undirbúnings.” Geðheilsa nemenda. „Eru brögð að því, að börn á skólaaldri séu taugaveikluð?” „Um þetta eru ófullkomnar upplýsingar, en áreiðanlega eru talsverð brögð að truflunum á tilfinningalífi, sem birzt geta á margvíslegan hátt, t. d. í aðlög- unarerfiðleikum. Fyrir þessi börn hafa skólar lengstum lítið getað gert, en undanfarið hefur áhugi á geðvernd farið vaxandi i land- inu, og ávöxtur hans er meðal annars geðverndardeild Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur, sem mun aðallega sinna börnum innan skólaaldurs, og sálfræði- deild skóla í Reykjavík. Sál- fræðideildin á vafalaust eftir að forða ófáum börnum frá því að glíma tímum saman við nám, sem þau hafa ekki þroska til að fást viS, og í því er fólgin ekki lítil geðvernd. Þessi starfsemi er nú meðal menningarþjóða tal- in óaðskiljanlegur þáttur skóla- halds, og þess er að vænta, að byrjunin hér í Reykjavík verði til þess, að fræðslumálastjórn hrindi af stað sams konar starf- semi fyrir landið í heild.“ v Skólahús og þrengsli. „Hvað um skólahúsin sjálf og stærð þeirra miðað við nemenda- fjölda? Hvað er til dæmis að segja um skólana í Reykjavík?" „Það er þáttur í skólaeftirlit- Inu að hafa eftirlit með skóla- húsum, skólaborðum og stólum, ljósum, upphitun, þrifnaði o. fl. í Reykjavík hefur skólabygging- um miðað ágætlega undanfarið, og með fáum undantekningum eru skólahúsin hér hin ágætustu hús. Vegna þessa mikla átaks er þrísetning að hverfa úr barna- skólum, og það tel ég ómetan- iegt. Þó að æskilegt væri að ein- ;etja i barnaskóla, er ekki hægt að ætlast til þess, vegna þess hve mannfjölgun í landinu er ör og aðf! ;tningar miklir til borgar innar. Hins vegar er enn tvísetr í framhaldsskóla, en tvísetning Leikfélag Kópavogs hefur starfsemi sína að þessu sinni með sýningum á gamanlciknum „Saklausi Svallarinn“ undir stjórn hins bráðsnjalia leikstjóra Lárusar Pálssonar. Leikurinn hefur verið sýndur nokkrum sinnum við góðar undirtektir og verður sýndur í Kópavogsbíó á fimmtu dag kl. 8.30. Myndin er af Jóhönnu Axelsdóttur, Sigurbjörgu Magnús- dóttur og Helgu Harðardóttur, í hlutverkum sínum. þar veldur márgvíslegum vand- ræðum, sem ég hef áður gert nokkra grein fyrir í blaðavið- tali.“ „En hvað um skóla utan Reykjavíkur?” „Utan Reykjavíkur rísa óðum upp ný og vönduð skólahús. Ég vil sérstaklega vekja athygli á nýju heimavistarbarnaskólunum í Borgarfirði og Holtum í Rang- árvallasýslu, en þeir eru til mik- illar fyrirmyndar. Mörg gömlu skólahúsin eru hins vegar að vonum léleg, og aðbúð í sumum farskólum telja héraðslæknar ó- viðunandi, en þar er ekki í önn- ur hús að venda. í flestum hér- aðsgagnfræðaskölum er mjög þröngbýlt. Aðsókn að þeim er geysimikil og stjórnendum þeirra þvi nokkur vorkunn, þó að' þeir reyni að troða sem flestum inn. Þess er þó ekki að dyljast, að það getur verið hættulegt að yfirfylla heimavistarskóia.” Vinnutilhögun og námskröfur. „Hefur skólaeftirlitið afskipti af vinnutilhögun og námskröfum í skólum?” „Að nafni til er þetta hlutverk eftirlitsins, enda skiptir hvort tveggja máli fyrir líðan og heilsu nemenda, en f reynd er þó ekki auðvelt að hafa áhrif á þetta. Ýmsir alvarlegir gallar á vinnu- tilhögun stafa af margsetningu I skólahúsin, og úr þeim fæst ekki bætt, fyrr en skólarnir hafa nóg húsrými. Það er til dæmis í meira lagi óeðlilegt, að bör.n og unglingar byrji vinnudag klukku stund fyrr en foreldrarnir, fái ekki mat á matmálstímum og ef til vill aðeins 5 mínútna hlé milli kennslustunda. Námsefni og stundafjölda hafa fræðsluyfir- völd venjulega ákveðið án þess að leita álits lækna. Ég hafði ekki hugmynd um síðustu náms skrá fyrir skyldunámsstigið, fyrr en hún var komin út, en i henni er t.d. leyft að fara upp í 42 viku stundir í 2. bekk unglingaskóia. Þetta álít ég óhæfilega mikinn stundafjölda, þegar heimavinna bætist ofan á, en eins og kunn- ugt er, ætlast íslenzkir skólar yf- irleitt til mikillar heimavinnu, og hætt er við, að hún verði því meiri sem kennslustundir eru fleiri”. „Hve langar eiga frímínútur að vera?“ „Rannsóknir benda til þess, að 10 mínútur séu hæfilegt hlé milli kennslustunda. Flestir afþreytast á þeim tíma, að minnsta kosti framan af kennsludegi. en if ilé ið er öilu lengra, tekur það aem- endur lengri tíma að komast í gang í næstu kennslustund. Gömlu skólamennirnir vissu, hvað þeir sungu, þegar þeir á- kváðu 10 mínútur, án þess að hafa neinar rannsóknir við að styðjast. Nú mun algengt, að eitt hlé á kennsludeginum sé 15-20 mínútur, en hin 5 mínútur, og dæmi eru til þess, að kennt hafi verið óslitið 3-4 fyrstu kennslu- stundirnar. Sem betur fer, halda þó ýmsir skólar enn fast við 10 mínútur". Svo sem sjá má af þessu stutta viðtali við skólayfirlækni, er verkefni hans og skólalækna víðtækt og mikilvægt. Er þess vegna fyrir miklu, að svo sé um hnútana búið, að hægt sé að framkvæma eftirlitið eins og nauðsynlegt er, nægt fé sé til slíkra hluta og það jafnan gert til úrbóta, sem talið er skilyrði fyrir bættu heilsufari nemenda. Margt hefir verið gert í þvi efni á síðustu árum, eins og fram kemur m.a. í fullkomnari r-kóia- byggingum, en þær einar nægja ekki til að bæta úr öllu, sem aflaga fer. En með framhaldandi starfi þessa þáttar heilbrigðis- þjónustunnar í landinu ætti að þokast að markinu. iinkoframtak — Framhald af bls. 8. þetta og uppræta. Á þessum smáskikum hirða menn lítt um kornrækt, en þeim mun meira . er hugsað um að rækta kartöfl- ur og aðrar matjurtir. Með þessum hætti koma 64% allrar kartöfluuppskeru frá skikum slíkra einstaklinga, 46% alls grænmetis og 67% af öllum á- vöxtum, sem framleiddir eru í Sovétríkjunum. Einstaklingar eiga líka þriðj- ung alls búpenings í landinu, fjórðung allra svína, 27% af öllu sauðfé og hvorki meira né minna en 75% af öllum ali- fuglum. Einka-framtakið sér þess vegna fyrir 47% alls kjöts, sem sovétþjóðirnar eta, næstum helmingi allrar mjólkur og 82% allra eggja, sem neytt er. GÚSTAF ÓLAFSSON hæstaréttariögmaðui Austurstræti 17 - Sími 13354 Lösfræðistörf Innheimtur Fasteignasala Hermsr.n G Jónsson hdl. LÖGFRÆÐISKRIFSTOFA Skjólbraut 1, Kópavogi.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.