Vísir


Vísir - 20.11.1962, Qupperneq 2

Vísir - 20.11.1962, Qupperneq 2
V1SIR . Þriðjudagur 20. nóvember 1962. .. n i r L r ] VgQr-j | J tl 1 | li ,==j '//////////" 1 ] {////////// Doktorar hlutu sigur Skemmtilegt leikkvöld Menntaskólans í gær Með því að blanda sam- an vizku sinni á hinn ótrú- legasta hátt tókst kennara liði Menntaskólans í Reykjavík að sigra skóla- sveina í handknattleiks- keppninni að Hálogalandi. Grasafræði, dýrafræði, stærðfræði, erlendum mál- um, öllu var steypt saman og útkoman var sterkt handknattleikslið gætt at- / / gjörfi fornhetjanna. Sigur- inn hlaut því að lenda hjá kennaraliðinu sem vann 13:11 yfir hinum heimsku skólasveinum. Leikur kennara og nemenda Menntaskólans hófst að afloknum tveim „alvöruleikjum" Menntaskól ans og Verzlunarskólans f hand- knattleik og körfuknattleik, en báð um lauk með sigri-Menntskælinga en naumum þó eins og að verður komið hér á eftir. Kennaraliðinu var vel fagnað er það loksins birtist á fjölum Há- logalands, en nemaliðinu mætt með köldu „new-york-bauli", enda er hetjudýrkunin enn við lýði hér á landi svo sem alkunna er. Einar MagnUsson yfirkennari MR kynnti liðin, hina gleiðhærðu og skeggvöxnu doktora og lið hinna „fávísu“ nemenda þeirra. Var at- höfnin hin fegursta, einkum þegar nemendur réttu lærifeðrum sínum hver sína rauðu nellikkuna, enda eins gott að koma sér í mjúkinn þá þegar fyrir leikinn! Það leið ekki á löngu áður en boltinn lá í netinu og vitanlega höfðu kennarar skorað glæsilegt mark. Var það Eyþór Einarsson sem fann smugu fyrir boltann og skorar óverjandi. Dr. Finnbogi bæt ir við og Valdimar fimleikakenn- ari „lyftir sér upp á tábergið“ tví- vegis og ver tvö annars óverjandi skot Hrannar Haraldsson, nem- andi, hafði fallið í ónáð, er hann skoraði 3 mörk fyrir nemendur og jafnar leikinn, en áður hafði Bjarni Guðnason, fyrrverandi landsliðs- maður f handknattleik og knatt- spyrnu, skorað fallega. Kennarar ná nú forystu en í hálfleik er stað an tvísýn 6:6. Stórkostleg frammistaða Bjarna Guðnasonar í síðari hálfleik færði sigurinn, en hvað eftir annað Iyfti hann sér fallega frá gólfi og hátt yfir vamarvegg andstæðinganna og negldi í homið hjá veslings markverðinum sem ekkert gat að gert. Var engu líkara en Bjarni hefði stokkið ljóslifandi af blöðum Þorleifur jarðfræðingur átti og nokkur gólfskot, sem vöktu at- hygii. Annar, sem vakti og athygli var Ottó Jónsson, fyrrum landsliðs maður í knattspyrnu, einkum var hann góður þegar hann „smygl- aði“ sér inn á völlinn óséður og varð 8. maður liðsins, en há- markstalan er 7. Síðast, þegar nemar sáu til kenn Kennari að skora mark í kappleik við nemendur sína í Menntaskólanum. ara var staðan 10:10, en þá gliðn aði sundur og yfirburðirnir færðu kennurum sigur 13:11. Leikir Menntaskólans og Verzl- unarskólans voru mun meira al- varlegs eðlis því að þar mættust úrvalslið skólanna, sem hafa löng um verið miklir keppinautar á í- þróttasviðinu. Bæði í körfuboltan- um og i handboltanum vor-u .leikir liðanna góðir og skemmtilegir og var það ekki sízt, þeim góða „ramma“ að þakka sem þarna hvatti keppendur, en áhorfendur voru eins r.iurgir og húsrúm frek- ast leyfði. Oft var engu líkara en hér væri um úrslit að rreða svo mikið voru leikmenn liðanna hvatt ir, einkum Menntskælingar, sem Framhald á bls. 5 Roðar fyrir degi í hafnfirzkri knattspyrnu HÉRAÐSMÓT EFTIR 13 ÁRA HLÉ Skin og skúrir hafa skipzt á í hafnfirzkri knatt- spyrnu. Fjölmörg félög hafa verið stofnuð í Hafnar- firði með knattspyrnu á stefnuskrá sinni, en fæst hafa verið langlíf. Knattspyrnan hefur verið olnbogabarn gagnvart handknattleiknum, stolti hins myndarlega kaupstaðar, en öðru hverju hafa Hafnfirðingar þó náð aðdáanlegum árangri fyrir einstæða hörku og dugnað. Nú í haust skeði einmitt atburður sem telja má merki- legan í knattspyrnusögunni, innanhéraðsmót í knatt- spyrnu var haldið eftir 13 ára hlé. Menntaskólamaður skorar í keppninni við Verzlunarskólann. „Við væntum mikils af þessum áfanga," sögðu forráðamenn íþróttafélaganna Hauka og FH á laugardaginn, þegar sigurvegurum í knattspyrnumótunum voru af- hent sigurlaunin, en mótið var nú haldið eftir 15 ára hlé á því móti, en 13 ár eru síðan síðasta héraðs- mót fór fram. Haukar, raunverulega nýlifgaðir við úr Þyrnirósarsvefni, unnu | sæmdarheitið „bezta knattspyrnu- félag Hafnarfjarðar" og fyrir það hljóta þeir fagran silfurskjöld Lýsis og Mjöls. Haukar unnu sigra í 1., 2. og 5. flokki, en FH vann 3. og 4. flokk. Haukar hlutu þvf | 6 stig en FH 4. Hver er ástæðan fyrir þessu langa hléi ú héraðsmótunum? Þetta skýrði Óskar Halldórsson, formaður Hauka fyrir mönnum í samsætinu sem haldið var fyrir sigurvegarara í Alþýðuhúsinu. í greinargóðu erindi: Knattspyrnusaga Hafnarfjarðar j er auðug af knattspyrnufélögum, en flest hafa þau horfið í tímans' rás, og nú eru aðeins tvö þeirra á lífi, þau tvö sem síðast voru stofnuð, Knattspyrnufélagið Hauk- ar og Fimleikafélag Hafnarfjarðar. Árið 1912 var fyrsta félagið stofn- að, Kári, rekið með knetti úr tjörubornum striga, en síðar kem- ur Framsóxn, þá 17. júní, Þjálfi og Knattspyrnufélag Hafnarfjarðar. Þá kemur FH árið 1929, en Hauk- ar koma tveim árum sfðar. FH og Haukar sendu síðar frá sér sam- eiginlegt lið í nafni Hafnarfjarðar og kölluðu það Knattspyrnufélag Hafnarfjarðar. Árin 1947- 1950 var Hvaleyrar- völlurinn í „klössun" og þá skeði óhappið, héraðsmótin leggjast nið- ur vegna vallarleysisins og fyrst nú að þau eru haldin, en vit- anlega hljóta þau fyrst og fremst að efla yngri flokka Hafnarfjarðar. Þrátt fyrir þetta hafa Hafnfirð- ingar komizt langt á knattspymu- sviðinu og leikið í hópi beztu knattspyrnuliðanna, þj e. í 1. deild. Þetta var Albert Guðmundssyni nær eingöngu að þakka. Þegar eng inn aðili i knattspyrnumálum Is- lands taldi sig þurfa á aðstoð Al- berts að halda, tóku Hafnfirðing- ar, algerlega án knattspyrnu- manna, fegnir á móti Albert. Árangur Alberts var stórkost- legur. Á skömmum tíma fékk hann fram marga afbragðs knattspyrnu- menn á staðnum og brátt var liðið komið í 1. deild og þar lék það í 2 ár. Fleiri sigrar unnust. Knatt- spyrnumenn unnu sleitulaust að byggingu búningsherbergja á vell- inum á Hvaleyri og þar eru nú mync’.arlegustu bautasteinar þeirra ágætu manna sem að unnu. Eftir að sigurvegarar höfðu fengið sigurlaun sín ávarpaði Stefán Jónsson forseti bæjar- stjórnar knattspyrnumennina og ýmsir fleiri tóku til máls og hvöttu piltana til dáða. Er ekki að efa að með héraðs- mótum er stigið hiá eina rétta skref I áttina að knattspyrnu- þroska, og er ekki að efa að við eigum eftir að sjá góð lið knatt- spyrnumanna frá Hafnarfirði, enda ætti Hafnarfjörður ekki síður að geta náð Iangt í knattspyrnu en handknattleik, þar sem bærinn státar með lið, sem örugglega má teíja á heimsmælikvarða. i I i

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.