Vísir - 20.11.1962, Blaðsíða 7
V í S IR . Þriðjudagur 20. nóvember 1962.
"7
t
„FRJÁLST LjÓÐFORM ER AÐ-
EINS NÝR BRAGARHÁ TTUR “
Hannes Pétursson skáld.
Stutt samtal við Hannes Pétursson
í tilefni útkomu nýrrar
Á laugardaginn kom í bóka-
verzlanir ný ljóðabók eftir Hannes
Pétursson og nefnist hún Stund
og staðir. Petta er þriðja Ijóða-
bók Hannesar, hinar fyrri eru
Kvæðabók (1955) og 1 sumardöi-
um (1959). Auk þess sendi hann
í fyrra frá sér smásagnasafnið
Sögur að norðan. Þessi nýja bók
Hannesar hefur að geyma 40
kvæði, sem skiptast í 5 kafla:
Raddir á daghvörfum (tilbrigði við
10 þjóðsögur), Hinar tvær áttir,
Stund einskis, stund alls, Staðir,
Sonnettur. Hið fyrsta sem athygli
vekur þegar þessari nýju bók er
flett er fyrsti kaflinn sem allur er
sóttur til þjóðsagna. Hannes hef-
ur að vísu ort um þjóðsögur áður
en aldrei jafn mikið og nú. Það
Iiggur því beint við að hefja máls
á þessu atriði.
Hannes svarar: Fyrirmyndirnar
eru að vísu teknar úr þjóðsögum
en í rauninni er það nútímamað-
urinn sjálfur sem talar í kvæð-
unum en ekki þjóðsagnapersónur
þótt það sé látið heita svo. í
hverju kvæði fer tveimur sögum
fram.
Ég sé að þú yrkir oftar en einu
sinni um sömu þjóðsögu, t. d.
hefur þú áður ort kvæði um
Djáknann á Myrká og í þessan
bók eru tvö kvæði um óvættina
í Drangey.
Það er algengt í öllum listum
að nota sömu fyrirmynd oftar en
einu sinni, t. d. í málaralist.
Hvað hefur Cezanne málað oft
mynd af epli? Þetta ætti alveg
eins að vera hægt í skáldskap.
Það er hægt að velta verkefninu
fyrir sér frá ýmsum hliðum; í
sömu fyrirmynd geta búið tvö eða
fleiri yrkisefni.
Hvenær eru ljóðin í þessari
bók ort?
Þau eru öll ort á síðustu þrem
árum. Líklega er um helmingur
kvæðanna ortur á ferðalagi mínu
um Vestur-Evrópu sumarið 1960
t. d. allur fyrsti kaflinn og mikið
af kaflanum Staðir og Hinar tvær
áttir. Þarna er þó vitanlega um
frumdrög að ræða, kvæðin hafa
meira eða minna verið endurort
síðan.
Þetta hefur þá verið mjög frjó
ferð?
Já, það má kannski segja það.
Þú notar í einum kafla bókar-
innar miklu frjálsara Ijóðform en
áður. Ertu farinn að linast í
notkún hins hefðbundna forms?
Það held ég ekki. Ég lft ekki
Ijóðabókar
á frjálst ljóðform sem allsherjar
lausnara undan öðrum ljóðform-
,um. Frjálsa formið er aðeins að-
ferð sem hægt er að grípa til ef
manni býður svo við að horfa.
Með hinu frjálsa formi hefur ís-
lenzkri ljóðlist bætzt nýtt form,
án þess að hin fyrri missi við
það gildi sitt.
Það eru líka allmargar sonnett-
ur í þessari nýju bók. Ég man
ekki til þess að hafa áður séð
sonnettur eftir þig.
Jú, sonnettur eru f bókinni, en
tæpast sonnettur í strangasta
skilningi, til þess er form þeirra
of frjálslegt. En sonnettan er
freistandi form og það er gaman
að spreyta sig á því.
Áttu mikið af ljóðum eða sög-
um í fórum þínum núna?
Nei, ég á engin ljóð og engar
sögur.
Og hvað liggur fyrir næst?
Ætli ég haldi ekki áfram að
yrkja. Það er líklega það eina sem
ég get. Ljóðið er eina skáldskapar-
formið sem ég hef áhuga á sem
stendur, enda þótt maður sé f
vafa um að ljóðlist nái taki á
þeim veruleika sem glímt er við.
N. P. N.
Mennhverfa fljótt
frá bréfberastarfí
Bréfberar ílendast ekki i starfi,
en þó hefir tekizt að r’ylla að
mestu í skarðið hjá okkur að
þessu leyti nú í haust.
Vísir hefir átt tal við Matthías
Guðmundsson, póstmeistara, um
ýmis málefni póststofunnar hér f
Reykjavík, og.sagði hann bá þetta
meðal annars. Póststofuna vantaði
nokkra bréfbera í haust og var
Sæsímðnn opn-
aður í jnnúar
Gunnlaugur Briem, Póst- og
símamálastjóri, sagði í stuttu
viðtali við blaðið, að hann
reiknaði ekki með að hægt yrði
að taka nýja sæsímastrenginn
milli Islands og Ameríku, um
Grænland, ; notkun fyrr en f
janúarmánuði. Unnið er að
mælingum og athugunum á
strengnum, ennfremur að því
að ganga frá útbúnaði þar sem
hann' er tekinn á land, í Vest-
mannaeyjum, Grænlandi og í
Arríeríku. Eins og kunnugt er
lauk lagningu strengsins í síð-
asta mánuði. En póst- og síma-
málastjóri ' vað hafa verið gert
ráð fyrir að ki myndi verða
búið að ganga frá öllum út-
búnaði og hægt að taka sfmann
í notkun fyrr en eftir tvo til
þrjá mánuði frá því að þeim
áfanga lauk.“
auglýst eftir mönnum, en
ekki hefir tekizt að fylla f tvö af
þeim 30 hverfum, sem um er að
ræða.
Almennur póstur er borinn í
þessi 30 hverfi tvisvar á dag, og
er vinnutíma bréfbera hagað þann-
ig, að þeir fara tvær ferðir á dag.
Þeir koma í pósthúsið kl. 8,30 að
morgni og starfa þar í svo sem
hálfa klukkustund við að raða
póstinum í hverfi sitt, en fara síð-
an út og eiga að ljúka umferð un
hverfi sitt fyrir hádegi. Þeir kcma
síðan aftur eftir hádegið, raða
póstinum, meðan þeir eru staddir
í pósthúsinu og fara síðan aðra
umferð. Vinnutíminn er sjö stund
ir á dag og hálfrar stundar yfir-
vinna.
Að undanförnu hefir ein kona
; verið við bréfaburð hjá þóststof-
unni, en það er ekki eins dæmi,
að konur hafi þennan starfa á
hendi, því að tvær hafa gegut
slíku starfi áður. Þetta er þó »áum
ast talið kvenmannsverk, því að
fara verður með póstinn, hvernig
sem viðrar, og hann er oft mikill.
Pósttaskan tekur um 30 kg, en
pósturinn er fluttur heim til bréf-
beranna, þegar mjög mikið póst-
magn hefir borizt að. Þó ættu
konur að geta unnið þetta starf að
sumarlagi, þegar allar aðstæður
eru heppilegri, og oft sækja konur
eða ungar stúlkur um bréfburð
fyrir jóiin, en starfið er þá allt
öðru vísi en á öðrum tímum árs,
eins og menn vita.
Kostnaður Bændahallarinnar 100 milljónum hærri
en áætlað var — Samsæri gegn lýðræðinu — meiri
arður eða iækkuð iðgjöld? — almannatryggingar.
Það var bent á það hér I dálk-
unum, þegar Iandbúnaðarnefnd
neðri deildar á 'sínum tíma lagði
til að %% af landbúnaðarafurð
um rynni áfram til Bændahallar
innar, að enginn fulltrúi bænda-
stéttarinnar á Alþingi mótmælti,
né lét svo lítið að hreyfa athuga
sm semduin.
\ ■■
• Við aðra umræðu þessa máls
f neðri deild f gær, fór þó svo,
að upp stóð Jón Pálmason, sem
nú situr á þingi sem varámaður
Jóhanns Hafstein og lýsti and-
stöðu sinni við þessa ráðstöfun.
Jón sagði m. a., að þegar bygg-
ing Bændahallarinnar hefði ver-
ið samþykkt á Alþingi 1958,
hefði hann barizt gegn þvf frum
varpi og talið bændum flest
nauðsynlégra en að eignast
Ihóte.l í Reykjavík. Þá var full-
I yrt að kostnaðurinn við bygg-
inguna yrði um 25—30 miljónir
króna, sagði Jón, en nú er ó-
hætt að segja að hann sé 100
milljónum króna meiri, og er
það sú rosalegasta hækkun sem
ég veit deili á, sagði hanji, op
f undir þau orð þingmannsins er
sanr.arlega hægt að taka. Það
I hálfa prósent sem tekið væri af
verðmæti landbúnaðarafurða og
bændur þyrftu þannig að greiða
til byggingarinnar, næmi um 4
—5 milljónum á ári hverju, og
allar líkur væru til þess að þau
útgjöld fari hækkandi frekar en
hitt. Jón kvaðst fáa bændur
þekkja sem samþykkir hefðu
verið þessari hótelbyggingu,
enda mun málið aldrei hafa ver-
ið Iagt undir almenna atkvæða
greiðslu bænda. Stakk Jón
Pálmason upp á því að lánsfé
yrði tekið til byggingarinnar og
lagður yrði niður þessi „milljóna
skattur" á bændum.
Gísli Jónsson gagnrýndi máls
meðferð landbúnðarnefndar og
fór fram á að umræðum yrði
frestað meðan nefndin aflaði
fnekari upplýsinga um málið og
legði gleggri skýrslu fram.
Gunnar Gíslason (S) formaður
landbúnaðarnefndar svaraðimeð
nokkrum orðum. Hann kvað það
sér síður en svo fagnaðarefni að
fara fram á framlengingu
skattsins, en tillaga þessi væri
komin fram að beiðni Búnaðar
félagsins og byggingarnefndar
Bændahallarinnar og þar sem
húsbyggingin væri svo langt
komin að ekki væri aftur snúið,
hefði Iandbúnaðarnefnd þótt
rétt að leggja frumvarpið fram.
Ef bændur koma byggingunni
í höfn og ef þeir vildu auka
lánsmöguleika sína, þyrftu þeir
að sjálfsögðu að leggja eitthvað
af mörkum sjálfir.
í gær bar það til tíðinda að
umræðunum um almannavarnir
lauk og mun atkvæðagreiðsia
fara fram í dag. Einar Oigeirs-
son, sem þegar hafði talað tvis-
var, fékk Ieyfi forseta til að
gera athugasemd. Þann tima not
aði þó Einar til að ræða um
Munchen samninginn og Cham-
berlain og fullyrti hann, að
samningurinn hefði verið sam-
særi auðvaldsríkjanna í Vestur
Evrópu gegn lýðræðinu og
sósialismanum. Á sama hátt er
Atlantshafsbandalagið samsæri
gegn lýðræðinu og sósiaiisman-
um sagði Einar.
Þessi yfirlýsing mannsis, sem
kallar sig foringja Isenzkra
sósilalista, er hin athyglisverð-
asta og því merkilegri, þegar
haft er I huga að í Nató og raun
ar í komandi Efnahagsbanda-
Framhald á bls. 10.
/