Tölvumál - 01.03.1999, Side 3

Tölvumál - 01.03.1999, Side 3
Tímarit Skýrslutæknifélags íslands • • TOLVUMAL E • F • N • I Frá formanni Oskar B. Hauksson 5 Rekstraröryggi upplýsingakerfa Albert Ólafsson og L Guðríður Jóhannesdóttir 0 Um staðla, tungumál og íslensku Þorgeir Sigurðsson Skýrsla formanns fyrir 1998 ÓSKAR B. HaUKSSON 6SM posar fáanlegir 14 Elvar Guðjónsson Fjarskiptamál í brennidepli Kristján Geir Arnþórsson 15 Ártalið 2000 hjá Skýrr hf. 17 SlGRÍÐUR B. VlLHJÁLMSDÓTTIR Að gefa út bók á netinu Viðtal RUV við Þorgeir Þorgeirsson Islensk útgáfa af Windows 98 Arnaldur F. Axfjörð Samantekt á birtum greinum í 23. árgangi Tölvumála 19 27 29 Núna fer að styttast í að árið 2000 gangi í garð með öllum sínum vandamálum. Það er víst að bera í bakkafullan lækinn að tala um ár 2000 vandann en góð vísa er aldrei of oft kveðin. I skoðanakönnun sem að Gallup gerði fyrir Skýrslutæknifélag Islands kom meðal annars fram að tæplega 40% fyrirtækja í útgerð og fiskvinnslu hafa ekki hafið athugun á vandanum og einungis 10% þeirra hafa lokið athugun. Þessar upplýsingar hljóta að teljast mikið áhyggjuefni þegar svo mikilvæg atvinnugrein á í hlut. Það var einnig athyglisvert að það sótti engin aðili frá sjávarútvegsfyrirtæki hádegisverðarfundinn þar sem skoðanakönnunin var kynnt, fyrir utan fulltrúa frá Haraldi Böðvarssyni sem flutti erindi á fundinum um þeirra 2000 verkefni. Svo er það hin hliðin á 2000 vandanum sem snýr að lagalegri hlið málsins, hverjir eru ábyrgir fyrir lausnum á 2000 vandanum? Eru það fyrirtækin sjálf, eru það hugbúnaðarsalar, vélbúnaðarsalar, eða er það ráðgjafinn? Þessum spurningum verður eflaust svarað eftir aldamót fyrir dómstólum. A síðustu vikum hafa fallið tveir dómar sem snerta hugbúnaðarfyrirtæki, og koma til með að skerpa línurnar á milli verkkaupa og verksala, og er fróðlegt fyrir hug- búnaðarfyrirtæki að skoða niðurstöðu þessara dóma. Þar sem ég mun nú láta af störfum í ritstjórn Tölvumála vil ég nota þetta tækifæri og þakka samstarfsmönnum mínum í ritstjórn- inni fyrir ánægjulegt samstarf og jafnframt bjóða nýja ritstjórnarfull- trúa velkomna til starfa. Agnar Björnsson ISSN-NUMER: 1021-724X Tölvumál 3

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.