Tölvumál - 01.03.1999, Blaðsíða 28
íslenskt ritmál og eru innbyggð í
algengustu forrit fyrir enskt tungumál.
Því þarf að hvetja til þróunar á
tölvutækum orðabókum, samheitaskrám,
leiðréttingartækjum fyrir stafsetningu og
málfræði og öðrum slíkum tækjum og
tólum, og koma þeim inn í hugbúnað eins
og Office. Það hlýtur að vera markmið að
efla notkun á íslenskri tungu, en ekki bara
að gefa almenningi kost á aðgangi að hug-
búnaði með íslenskum valseðlum og
leiðbeiningum.
Arnaldur F. Axfjörð
er verkefnisstjóri hjá Aliti ehf.
og í ritstjórn Tölvumála.
Að gefa út bók d netinu ... frh
- Já, Hjálmar?
- Ja ég er að spekúlera í því, hérna,
gagnvart okkur sem að eigum að heita
fjölmiðlamenn, þýðir þessi hlutur, að
allskyns milliliðir - þú hefur jú talað um
gagnrýnendur og fleiri - og þá dettur mér
líka í hug svona hefðbundnir íjölmiðla-
menn. Eru þeir þá líka í rauninni að verða
ónauðsynlegir milliliðir?
- Ef að þeir ekki gera eitthvað í málinu.
- Þú, ég sá það á vefnum, Þorgeir,
að þú tileinkar (Ævar) vefsetrið, náms-
hvað eigum við að segja - stúdentum í
málvísindum og?
- Stúdentum í málvísindum og mann-
réttindum.
-Það er þá er sá hópur sem þú beinir
kröftunum að, ert að beina þeim að, núna?
- Já, raunverulega. Eða þannig - þeir,
þeir hafa verið, þeir sem vilja þiggja þetta,
við þá hef ég sagt, gjörið þið svo vel, ef
þið getið notað þetta. Þeir geta notað -
mikið af þessu er tveggja tungumála texti,
og stór hluti af þessu er kennsla í því að ná
rétti sínum í- fyrir mannréttindadóm-
stólnum. Þar er mitt umfangsmikla mál,
bara sett upp, og getur sem sagt með for-
mála og eftirmála kennt þér það hvernig á
að ná rétti sínum. Og það er þetta fólk sem
ég í fyrstu umferð þeirra er að seilast til.
- Mér fínnst við ættum kannski að
(Ævar) slá botn í þessa heimsókn til þín,
Þorgeir, með því að biðja þig að lesa fyrir
okkur þýðingu þína á Ijóði eftir Federico
Garcia...
- Federico Garcia Lorca.
- Já, því að hann - eftir viku nákvæm-
lega, þá verða liðin hundrað ár frá fæðingu
hans. Og það verður haldið upp á það
meðai annars í Ríkisútvarpinu á rás eitt
með ýmsu móti. Byrjar kannski strax á
sunnudag með leikriti. Það væri svona...
og þá sest Þorgeir við tölvuna aftur...
- Hér er þetta komið. Þetta heitir
Malaga-stef.
Feigðin sífellt á stjái
inn og út af kránni.
Náttsvartir Iiestar heiftarmanna
á hyldýpisvegum gítaranna.
Keinrur af seltu og kvendýrsblóði
úr fjörunnar logandi liljustóði.
Feigðin alltaf á stjái
út og inn á stjái.
Feigðin í kránni.
28
Tölvumál