Tölvumál - 01.03.1999, Blaðsíða 12
Skýrsla fyrir 1998
Haldinn var
hér á landi fundur
norrænna
skýrslutæknifélaga
en mikill uppgangur
er í starfi
systurfélaga okkar
Við undirritun
samnings ríkisins við
Microsoft voru
félaginu færðar
þakkir fyrir þess hlut
og eru þar birtar jafnvel samdægurs
fregnir af ráðstefnum og niðurstöður
Gallup kannanna sem félagið hefur staðið
að um 2000 málið. Efni Tölvumála er nú
birt á vefnum ásarnt ýmsum upplýsingum
um starfsemi félagsins. Vinna þarf að því
á næstu vikum og mánuðum að samræma
enn betur útgáfu Tölvumála og aðra
útgáfu á vegum félagsins. Markmið sem
sett voru í upphafi starfsársins hafa öll
náðst hvað varðar vefútgáfuna.
Orðasafn
Utgáfa Tölvuorðasafnsins markaði viss
tímamót í sögu félagsins. Markaðssetning
þess gekk vel og hafa nú selst um 700 ein-
tök af ritinu sem er mjög góður árangur. I
því efni ber sérstaklega að þakka
Olíufélaginu hf. fyrir þess hlut í því að
kynna og selja orðasafnið til safnkortshafa
en sú markaðssetning bar mikinn árangur.
Við afhendingu orðasafnsins hjá
Forseta íslands vöknuðu ýmsar hug-
myndir urn eflingu íslenskrar tungu og
hvernig væri hægt að nýta orðasafnið í
þeim efnum. Meðal annars voru ræddar
hugmyndir um að nálgast Microsoft með
öðrum aðferðum en gert hafði verið áður.
Við vitum öll hver niðurstaða þessa máls
varð en við undirritun samnings ríkisins
við Microsoft voru félaginu færðar þakkir
fyrir þess hlut. Ein þeirra hugmynda sem
rædd var við forsetann var að gera
orðasafnið aðgengilegt á öllum tölvum
sem seidar eru á Islandi. Skoða þarf
hvernig hægt er að hrinda þessu í
framkvæmd og verður það verkefni á
dagskrá á komandi mánuðum.
Erlent samstarf
Ohætt er að fullyrða að erlent samstarf
var með miklum blóma á síðasta ári.
Þátttaka í CEPIS og á norrænum vettvangi
efldist verulega.
A vettvangi CEPIS ber hæst vinna við
svokallað tölvuökuskírteini sem er
Evrópskt hæfnisvottorð fyrir almenna
tölvukunnáttu. Skýrslutæknifélagið ákvað
að ganga til samstarf við danska systur-
félagið og hefja undirbúning og markaðs-
setningu hér á landi. Þessu verkefni fylgir
töluverð vinna og kostnaður fyrir félagið
en þýða þarf hæfniskröfur og próf.
Verkefnið verður formlega kynnt á skóla-
ráðstefnu sem félagið hefur undirbúið í
samvinnu við menntamálaráðuneytið og
haldin verður 26. og 27. febrúar nk.
Haldinn var hér á landi fundur
norrænna skýrslutæknifélaga en mikill
uppgangur er í starfi systurfélaga okkar.
Mikilvægt er fyrir félagið að vera í góðurn
tengslum við þessi félög sem eru að vinna
að mörgum áhugaverðum viðfangsefnum.
Má í því sambandi nefna starf danska
félagsins við kynningu á 2000 vandanum.
Afkoma
A árinu 1997 var methagnaður í sögu
félagsins en á síðasta ári var hagnaður ein-
ungis 72 þkr. f starfsemi eins og hjá
Skýrslutæknifélaginu er hagnaður ekki
meginmarkmið heldur að halda uppi
áhugaverðri starfsemi fyrir félagsmenn.
Traust fjárhagsstaða er hins vegar mikil-
væg, eigi félagið að geta haldið úti öflugu
starfi. Ljóst var að á afmælisári yrðu
útgjöld meiri en á venjulegu starfsári en
leitast var við að hafa ráðstefnur veglegar
og brydda upp á ýmsum nýjungum í starf-
semi félagsins. Á komandi ári þarf að efla
kostnaðaraðhald og auka tekjur, til dæmis
af auglýsingum. Vonast er til að tölvuöku-
skírteinið verði umtalsverður tekjupóstur í
starfi félagsins á komandi árurn.
Innlent samstarf
Ákveðin tímamót urðu í starfi félagsins
þegar gengið var til samstarfs við
Staðlaráð íslands og Gæðastjórnunar-
félagið um húsnæðismál. 1 kjölfarið flutti
félagið starfsemi sína í Holtagarða í mun
betra húsnæði en félagið hafði. Munar þar
mestu um góða fundaaðstöðu sem nýtist
vel fyrir undirbúningshópa og faghópa
félagsins. Áfram verður unnið að því að
efla samstarf við önnur innlend félög,
sérstaklega á sviði stjórnunar.
Faghópar
Mikilvægt er að efla þátttöku hins
almenna félagsmanns í starfi Skýrslu-
tæknifélagsins. Stofnun faghópa er mikil-
vægur þáttur í þeim viðleitni. Stofnaður
var á árinu faghópur um 2000 vandann og
hefur hann unnið mikilvægt starf sem
vakið hefur athygli fjölmiðla á félaginu.
Starfsemi faghópsins hefur verið öflugt og
hefur hann ma. staðið fyrir Gallup
12
Tölvumál