Tölvumál - 01.03.1999, Síða 17
Ártal 2000
Ártalið 2000 hjá Skýrr hf.
Sigríður B. Vilhjálmsdóttir
Niðurstöður
frumkannana voru,
að breyta þyrfti
einhverju í 43 kerfum
sem er um helmingur
allra notendakerfa
hjá Skýrr
í febrúar 1998 var
verkefnishópurinn
endurvakinn.
Hann hefur nú
umsjón með
framkvæmd
breytinga og prófana
hugbúnaðarkerfa
Flest kerfin verða
lagfærð með því
að nota svokallaða
gluggaaðferð
Umræða um þau vandamál sem upp
geta kornið vegna ártalsins 2000
hefur lengi verið í gangi hjá Skýrr.
Vinna til að leysa þennan vanda hófst
formlega í lok ársins 1996 en þá var
stofnaður verkefnishópur sem átti að
annast undirbúning og hafa yfirumsjón
með framkvæmd þeirra breytinga sem
gera þurfti á notendakerfum. A þessurn
tíma var umræðan um ártalið 2000 ekki
mikil og vinna hjá fyrirtækjum hér á landi
víðast hvar ekki hafm.
Fyrsta verkefni hópsins fólst í því að
leggja mat á urnfang breytinga og gera
áætlanir fyrir einstök notendakerfi.
Niðurstöður frumkannana voru að breyta
þyrfti einhverju í 43 kerfurn sem er urn
helmingur allra notendakerfa hjá Skýrr.
Utbúin var lýsing á þeirn leiðum sem
helst komu til greina við breytingar á
kerfunum og helstu kostir og gallar þeiiTa
voru útlistaðir. Umsjónarmönnum
kerfanna var síðan falið að meta hvaða
leiðir hentuðu best til breytinga á hverju
kerfi og hversu mikið umfang þessara
breytinga yrði.
Eftir að verkefnishópurinn skilaði
niðurstöðum þessara áætlana tók við tími
sem notaður var fyrir samningaviðræður
við eigendur kerfanna og var þá meðal
annars samið við ríkissjóð um breytingu á
17 af notendakerfunum. A meðan lá vinna
verkefnishópsins niðri.
í febrúar 1998 var verkefnishópurinn
endurvakinn. Hann hefur nú umsjón með
framkvæmd breytinga og prófana
hugbúnaðarkerfa. Hópurinn skipuleggur
og samræmir vinnubrögð. Einnig á hann
að taka á öllum þeim vandamálum sem
upp kunna að koma vegna ártalsins 2000.
Verkefnihópurinn er þveifaglegur og í
honum eru 6 starfsmenn úr þjónustudeild
og hugbúnaðardeild.
Forstjóri Skýrr er ábyrgðamaður
verkefnisins en auk hans sitja í stýrinefnd
verkefnisins forstöðumenn hugbúnaðar-
og þjónustudeildar og formaður
verkefnishópsins.
2000 verkefnið er hinsvegar ekki bara
verkefni hóps eða nefndar. Mikilvægt er
að allir starfsmenn séu meðvitaðir um
mikilvægi málsins.
2000 Úttekt á Skýrr hf
í samvinnu við Ár 2000- ráðgjafa-
þjónustu Skýrr var byrjað var á því að
gera úttekt á stöðu fyrirtækisins með tilliti
til ártalsins 2000. Áhersla var lögð á að
gefa heildarmynd af stöðu fyrirtækisins,
en ekki að fara út í nákvæma greiningu á
einstökum þáttum. Bent var á þá þætti sem
þurfti að athuga til að æskilegum mark-
miðum yrði náð.
Notendakerfin
Búið er að gera samninga um breytingar
á flestum notendakerfunum. Verið er að
smíða nýjar lausnir fyrir einhver þeirra, en
þó eru enn nokkur kerfi, þar sem eigend-
umir hafa ekki tekið ákvörðun um
framtíðina. Þetta er áhyggjuefni því vegna
tímaskorts er óvisst hvort takist að breyta
þeim, verði þess óskað.
Breyting á notendakerfunum er unnin
samkvæmt gæðakerii Skýrr, en
hugbúnaðardeildin fékk ISO 9001
gæðavottun árið 1996. Til að auðvelda og
samræma vinnuna voru útbúnar
vinnulýsingar og gátlistar. Auk þess að
lýsa vinnuferlinu eru skráð öll þekkt
vandamál sem upp kunna að korna vegna
ártalsins 2000 og hvað gera þurfi til að
leysa þau. Einnig hefur verið útbúinn
mikill fjöldi hjárása sem nota rná til
lausnar á vandanum.
Flest kerfin verða lagfærð með því að
nota svokallaða gluggaaðferð. Með
þessari leið er gögnunum ekki breytt. Með
glugganum er valið 100 ára tímabil sem
stjórnar því hvernig túlka á ártalið.
Glugginn sem notaður er hjá SkýiT hefur
árabilið 1940 til 2039. Þetta þýðir að
tveggja stafa ártölin 40 til 99 eru túlkuð
sem 1940 til 1999 og ártölin 00 til 39 eru
túlkuð sem 2000 til 2039. Þessari túlkun
er bætt inn í forritin þar sem þess er þörf.
Einnig hel'ur verið gefin út yfirlýsing
um að öll skil á rnilli kerfa bæði til og frá
Tölvumál
17