Tölvumál - 01.03.1999, Síða 20

Tölvumál - 01.03.1999, Síða 20
Það einkennilega við netið þetta nútímatæki er það, að það minnir einna helst á verslunarhætti gömlu, amerísku indíánanna Þarna er prentviHa og þarna er hugsunarviHa og þetta er ekki nógu vel orðað, og þá get ég tekið það fil athugunar og endurbæft Það er greinilegt að þessi tækni hentar barátfumanninum - Prósentin sem eru komin inn. - Þetta er á leiðinni úr handritasafninu (Þorgeir) í útgáfusafnið. - Já þetta er nú eiginlega viðburður að gefa út bók í beinni útsendingu í Ríkisútvarpinu. - Já og þetta er bók sem er frumútgefm á Netinu. - Hvað heitir bókin? - Hún heitir „Lesefni handa lýðræðissinnum". - Og er komin þarna? - Nú sjáið þið að hún hlýtur að vera komin héma. Ég fer héma aðeins neðar.... Jújú, hérna er hún komin. - Já þetta tók þrjátíu sekúndur - þrjátíu og tvær. - Þetta tók þrjátíu og tvær sekúndur (Þorgeir). Ja það - maður á ekki að slóra við svona. Nú, eigum við að kíkja á hana? - Já. (Ævar), nafnið Lesefni handa lýðræðissinnum. Það er nú, Þorgeir, satt að segja það eina sem minnir á þig hér, ég er að hugsa um það hvort að þú værir að gera grín að okkur ha því að síðan við komum hér inn þá hefur ekkert minnt á hérna þennan mann sem okkar hlustendur kannast mætavel við, tekur í nefið og gæti tilheyrt þessvegna hvaða öld sem er, en þú hljómar eins og svona tækniiðjót, þú hefur haft uppi allskyns orðræðu sem ...ég veit ekki hvort að nokkur maður skilur! Þar til titillinn á bókinni kom inn. „Lesefni handa lýðræðissinnum“. - (Hjálntar) Já.. það er spennandi. - Nú erum við komnir, nú erum við komnir inn á Leshús-vefsetur. Og ég kalla þetta vefsetur, website heitir það á ensku. Og af setrinu tekur bygging síðunnar dálítið mikið - dálítið mikið svona mynd. Og ef við styðjum hér... þá kemur gulur skjár með ýmsu. Hér sérðu nú mælinn, það eru komnir 1.616 gestir. - Hvað er langt síðan þú opnaðir? - Ekki mánuður. Það eru yfir 50 manns á dag. Og það er eiginlega ekkert búið að segja frá henni. Þannig að ég er svolítið kátur. Og við getum svo farið í stefnuskrá síðunnar ef þið viljið... - En ef ég lýsi - hérna stendur „Verið velkomin á vefsetur Leshúss" og „kynnið ykkur fyrst stefnuskrá vefsíðunnar". Eigunt við ekki að opna hana? - Já þá smelium við á hana sent kallað er. (Þorgeir les:) „Mér hefur alltaf þótt ritverk eiga að vera ókeypis til lestrar, kennslu og rannsókna. Þessi hugmynd blasir við nú, er ég flyt útgáfu verka minna inn á veraldarvefinn. En það mikla verk hófst upp úr áramótum og því verður ekki lokið að sinni. Hugmyndin er sú að hér á setrinu verði öllum mínurn verkum komið fyrir í aðgengilegu formi. Þau má prenta út héðan eða hlaða þau niður á aðrar tölvur, en einungis til einkanota, kennslu og rannsókna. Þýðingar verkanna á önnur tungumál verða sett inn á setrið líka með tímanum, og þá við hliðina á frumtextanum. Fyrst þær þýðingar sem til eru og síðan viðbætur sem berast.“ Af því nú fer að verða auðvelt að þýða mín verk, þau liggja fyrir, það eru eitthundrað - rúm- lega eitthundrað milljón manns sem geta nálgast þetta og ef að 0,0001 prósent af þeim langaði til að þýða eitthvert af verkunum að þá er það framkvæmanlegt. Já, þá verða mínar eigin þýðingar einnig látnar inn ásamt frumtextum eftir því sent tími vinnst til. Markhópur Leshúss-vef- setursins er semsé námsfólk. Erlent náms- fólk sem er að læra íslensku og íslenskt námsfólk sem er að læra tungumál og aðrir sem eru forvitnir unt þýðingar. En áhugafólk um ritfrelsi og almenn rnann- réttindi má skoða Strassborgarsíðuna. Það er annað mikið flæmi þar sem að öll mín gögn um Strassborgarmálið hér um árið verða einskonar kennslubók, ókeypis líka til útprentunar. Ja, hana ber að skoða sem kennsluefni í kúnstinni að ná rétti sínum andspænis yfirgangi ríkisvaldsins. Ferðu nú að kannast við mig, Ævar? - Já, þetta er kunnuglegur tónn. - Þetta er nú úr tölvunni samt: Allir textarnir á Netinu eru merktir með kópíuréttarmerki og því er óheimilt að birta þá eða flytja opinberlega nema með leyfi rétthafanna, sem ýmist eru bókaút-gáfan Leshús eða aðrir rétthafar, svo sem þýðendur og erlendir höfundar. Flestir verða textarnir einnig prentaðir og gefnir út á pappírsbókunt sent verða væntanlega til sölu í Leshúsi. Og það sem ég var að sýna ykkur áðan í E-svæði, þar safnast þær upp í því formi. Þannig að á þessari tölvu liggja þessi tvö form hlið við hlið og síðan... Kosturinn við þessa útgáfu, með þessum hætti, er 20 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.