Tölvumál - 01.03.1999, Síða 31

Tölvumál - 01.03.1999, Síða 31
/ Omissandi fyrir tölvunotendur! í Tölvuorðasafni eru um 5800 íslensk heiíi og um 6500 ensk heiti á rúmlega 5000 hugtökunr sem lúta að upplýsingatækni og tölvunotkun. Langflest hugtökin eru skilgreind eða útskýrð nákvæmlega á íslensku. Hugtökin eru flest sótt í alþjóðlega staðla. Tölvuorðasafn er bæði íslenskt-enskt og enskt-íslenskt. f ensk-íslenska hlutanum er íslensk þýðing við hvert orð og er hún hugsuð sem tilvísun til íslensk-enska hlutans en þar er að finna skilgreiningar og útskýringar á hverju hugtaki. Tölvuorðasafn er afrakstur af margra ára starfi orðanefndar Skýrslutæknifélags íslands og samvinnu hennar við fjölmarga sérfræðinga í fremstu röð. Það kernur nú út í þriðja sinn og er tvöfalt stærra en í síðustu útgáfu. Tölvuorðasafn er höfuðrit á sínu sviði og ómissandi þeim sem tala og skrifa á íslensku um tölvur og notkun þeirra. Tölvuorðasafn hentar öllum, bæði byrjendum og sérfræðingum. Tölvuorðasafn er selt í öllum helstu bókabúðum. Félagsmenn Skýrslutæknifélags íslands geta fengið 10% afslátt af verði bókarinnar með því að snúa sér til Kára Kaaber hjá íslenskri málstöð.

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.