Vísir - 28.11.1962, Blaðsíða 2

Vísir - 28.11.1962, Blaðsíða 2
2 V í S IR . Miðvikudagur 28. nóvember 1962. #2* /7 V _________ ^ T~ \/j r* T v/y////m//////////M//////ÆM^ JÍ3^. vann leikinn en KFR hirðir stigin Hið efnilega en ólöglega lið KR vann sigur yfir KFR 73:57 en fær ekki stigin „fyrir æsku sukir## Hið kornunga KR-liðið er staðnað um of og mætti „skipta um blóð" í liðinu. Of fáir leikmanna eru „einir á vell- inum“ og hugsa ekki eða vart um samleik, en aðeins einn Ijós punkt- ur var í liðinu þetta kvöld, Einar Matthíasson, sem skoraði 22 stig á sinn rólega og örugga hátt, og var stighæsti maður kvöldsins. Stlghæstir KR-inga voru þeir Ein ar Bollason og Krlstinn Stefáns- son með 18 stig, en Guttormur Ól- Þeir sigruðu í 1. flokki Myndin sýnir sigurvegara Ármenninga í 1. flokki á Hand- knattleiksmóti Reykjavíkur. — Aftari röð frá vinstri: Kristinn Karlsson, 'Sigurjón Ingvarsson, Ingvar Sigurbjörnsson, Ást- bjöm Egilsson, Bergur Jóns- son. Fremri röð frá vinstri: Gunnar Jónsson, Haukur Sig- hvatsson, Stefán Gunnarsson. Ármenningar unnu 3 leikja sinna en gerðu jafntefii við KR og Víking. afsson var með 17 stig og yngri bróðir hans Þorsteinn með 14. í 4. flokki vann ÍR Ármann með 22:6, en í 2. flokki vann Ármann hins vegar með 29:25 og var sá leikur mjög spennandi og skemmti- legur. — jbp — Sundmót Ægis í Sundhöll Reykjavíkur kl. 8.30 í kvöld. Keppt í 10 spennandi sund- greinum, með þátttöku alira okkar beztu sundmanna og kvenna. körfu- lék sér í körfu- í gær- knattleikslið KR hreinlega að KFR knattleiksmótinu kvöldi að Hálogalandi. Fyrri hluti síðari hálfleiks var mjög vel leikinn af KR- ingum og sýndi liðið ein- hver beztu tilþrif í mótinu. KR-liðið hrósar þó ekki sigri í leiknum, — liðið er dæmt í neðsta sæti móts- ins, — allir leikmennirnir eru „undir aldri“ — þ. e. í 2. flokki, og vinni liðið leik eins og nú varð raunin, tapast hann allavega á kæru og má búast við henni frá KFR. Fyrri hálfleikurinn í gærkvöldi var heldur jafn en það sem brá fyrir af góðum leik var allt frá hinum ungu KR-ingum. í hálfleik var staðan 26:25 fyrir KR. I byrjun síðari hálfleiks byrjaði síðan „ballið“. KR-ingarnir sækja hvað eftir annað og hörkuskotin eru aðdáánlega nákvæm, oft eftir mjög glæsilegan leik. Stöðunni er á skömmum tíma breytt Ur 26:25 í- tölur eins og 41:28 fyrir KR, 45:30 og 57:34 og enn munaði 23 stigum í liðunum í 63:40. Síðari hluta hálfleiksins var eins og drægi heldur niður i piltunum, ekki sízt eftir að harðir leikmenn eins og Marinó og Ingi komu inn aftur. Sigri KR í þessum leik var þó ekki neitað enda aðeins fáar mínútur til leiksloka og lokatalan 73:57 gefur ágæta hugmynd um leikinn. KR-liðið lék mjög vel. Beztu menn voru þeir Þorsteinn, Guttormur og Kristinn, en Einar Bollason átti einnig ágætan leik, en mætti oft vera gæddur meiri snerpu. Er ekki nokkur vafi á að lið KR-inga á eftir að láta að sér kveða í framtíðinni. Reynir til Akureyrar Akureyrlngar ætla heldur ekki að brenna sig á því sama og i sum- ar. íþróttaráð Akureyrar hefur lagt til vlð bæjarráð að malarvöli- ur verðl útbúinn norður af Gefj- unarverksmiðjunni á Gleráreyr- um. Mundi slikur völlur koma í veg fyrir að knattspymumenn Akureyrar kæmu æfðir til fyrstu leikja sinna f Islandsmótinu, eins og varð í sumar, en þá fengu þeir aidrei veruleg afnot af völlum en urðu að notast við þýft tún fyrir utan bæinn. Mundi völlur þessi því koma að r.ijög góðum notum. Akureyringar munu þegar hafa ráðið Reyni Karlsson til sín sem þjálfara þó ekki muni hafa verið frá samningum gengið. Má vænta mikils af liði þeirra. Oli B. til Vestnwnnaeyja? Hinir fljótu og skoí- hörðu Vestmannaeyingar eru staðráðnir í að sigra í Sundþing mótmælti bygg- ingu styttri en 25 m. lauga Ársþing Sundsambands íslands var haldið í Hveragerði 19. maí sl. Þingið setti form. SSl Erling- ur Pálsson, tilnefndi hann sem þingforseta Benedikt G. Waage, forseta lSl og til vara Þóri Þor- geirsson, íþróttakennara Lauga- vatni. Þingið sátu 13 fulltrúar frá sundráðum og héraðssamböndum auk gesta, en meðal þeirra var Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi. Erlingur flutti skýrslu fráfarandi stjórnar, gat hann þess m.a. að keppendur hefðu verið sendir á Sundmeistaramót Norðurlanda sl. ár og unnið væri að þátttöku af íslands hálfu í Evrópumeistaramót inu í sundi sem haldið yrði í Leipz ig, hefðu lágmarkstímar verið sett- ir og landsþjálfari skipaður Jónas Halldórsson. Nýjar sundknattleiks reglur voru gefnar út á árinu og verið væri að ljúka við að semja nýjar sundreglur. Þá hefði stjórn- in látið gera merki fyrir samband ið og væri væntanleg reglugerð um sundmerki SSÍ. Form. ræddi nokk uð um væntanl. Norræna sund- keppni sem fram á að fara næst ár. Þórður Guðmundsson, gjaldkeri SSÍ las upp endurskoðaða reikn- inga Sundsambandsins, er voru sarhþykktir athugasemdalaust. Töluverðar umræður urðu um skýrslu stjórnarinnar, en þingfull- trúar voru á einu máli um að gera veg sundfþróttarinnar sem mestan þó að menn greindi nokkuð á um leiðir. Samþ. voru till. frá stjórn- inni varðandi samþ. meta, en bætt var inn í metaskrána þrem vega- lengdum, 200 og 400 m einstakl. fjórsundi og 4x100 m flugsundi, og að framvegis verði keppt í 200 m einstaklings fjórsundi, karla og kvenna á Sundmeistaramóti ís- lands. Þorsteinn Einarsson, íþróttafull- trúi ræddi nokkuð um hin athyglis Frar-'- ild á bls. 10 2. deildar keppninni næsta ár. Til þess að svo megi verða, hafa þeir nú þegar hafið leit að góðum þjálf- ara og hafa einkum rætt við hinn góðkunna þjálfara Vals, Óla B. Jónsson, en viðræðurnar eru þó á frum stigi. „Boð þeirra er freistandi," sagði Óli okkur í gærkvöldi, „en því miður er ég mjög bundinn hér í Reykjavík þar eð hér er ég í föstu starfi hjá Olíufélaginu og erf- itt að setjast að utan heimaborg- ar sinnar með svo stuttum fyrir- vara. Á hinn bóginn er tilboð Vest- mannaeyinga freistandi, þar eð leikmenn Vestmannaeyja eru flest- ir hverjir mjög skemmtilegir og ætti að vera hægt að gera gott lið úr úrvali félaganna þar.“ Vestmannaeyingar eru mjög mikl ir áhugamenn um að koma sér upp sterku liði og virðist þeim fátt til foráttu um að svo verði. Bæjar- stjórn Vestmannaeyja sýnir málum þessum mikinn skilning og hefur lofað að styrkja kostnað af þjálf- ara til helminga móti félögunum. Vallavandamál er vart til 1 Vest- mannaeyjum, þar eð þar eru þegar 2 ágætir malarvellir og næsta sum- ar mun Týr ’íklega taka nýjan gras völl í notkun við svonefndan Há- stein, en þar var sáð fyrir 3 ár- um. Knattspymumenn Eyjaskeggja hafa eínnig mikinn áhuga og tii marks um það hafa þeir þegar haf- ið innanhússæfingar af kappi og æfa í leikfimisölum skólans. Vinnan f Vestmannaeyjum, eink- um á vertíðinni, leggur knattspyrnu iðkunina að velli, en þá er svo til hver maður upptekinn og hugsar aðeins um fisk og meiri fisk. Á sumrin er mikil vinna, og yngri flokkarnir geta ekki æft fyrr en eftir 7 á kvöldin eða á sama tfma og meistaraflokkur. Fari svo að Vestmannaeyingar ráði Óla B. Jónsson til sfn mundi hann líklega fara eins fljótt og hann ætti heimangengt og er þá ekki ósennilegt að knattspyrnufé- lögin tvö, Þór og Týr, hefji sam- eiginlegar æfingar undir stjórn Óla. Er ekki seinna vc:nna, enda sam- keppni félaganna oft meiri en góðu hófi hefur gegnt. Er ekki vafi á að með þjálfun Óla og áhuga Vest- mannaeyinga mundi skapast gott og heilsteypt lið, sem mundi kom- ast langt.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.