Vísir - 28.11.1962, Side 5

Vísir - 28.11.1962, Side 5
V í SIR . Miðvikudagur 28. nóvember 1962. 5 Fimmtugur í dag: Bjarne Paulson sendiherra Cendiherra Dana á Islandi, Bjarne Paulson, er fimmtug- ur í dag. Er hann íslenzkrar ættar. Faðir hans var Ólafur Ágúst Pálsson lögfræðingur og skrifstofustjóri í Kaupmanna- höfn, en 'anskur er hann f móð- - urætt. Bjarne Paulson gekk að loknu lögfræðiprófi í utanríkisþjónust- una dönsku, árið 1939. Síðan hefir hann gegnt stötfum í sendi ráðum Dana í Parísj London og Bonn, auk starfa í utanríkis- ráðuneytinu f Kaupmannahöfn. Er hann lét af störfum í Bonn var hanr. skipaður sendiherra á íslandi, en hér hefir hann dval- izt undanfarin tvö ár. Hér á landi hafa dönsku sendiherrahjónin þegar eignazt fjölmarga vini' þótt þau hafi ekki dvalizt hér Iangan tíma. Kemur þar bæði vafalaust til, að sendiherrann hefir óvenju góðan skilning á íslenzkum hög- um sökum ætternis síns og einn ig hitt, að hann er hið mesta prúðmenni og hefir gert sér far um að kynnast sem flestum hlið um íslenzks þjóðlífs af eigin sjón og raun. Þótt Island og Danmörk séu ekki lengur í ríkjasambandi hafa samskipti íslendinga og Dana sízt minnkáð. Flestir ís- Iendingar, sem leggja land und- ir fót, halda til Danmerkur. Þar eru flestir íslenzkir námsmenn utan íslands og svo mætti lengi telja. Vináttubönd þjóðanna hafa jafnan verið sterklega knýtt og ekki er að efa að svo muni verða enn um Ianga fram- tíð. Danmörk á góðan fuíltrúa á íslandi þar sem Bjarne Paulson er. Vísir óskar honum heilla á afmæli hans. Jón Stefánsson listmálari £NN einn af mönnum vornóttar- innar er horfinn. Til minningar um sig hefur hann skilið eftir góða mynd af lómtium í sumarnóttunni, ásamt mjög mörgu framúrskarandi öðru. Ég sá hann fyrst í garði Jóhanns Sigurjónssonar, skáldsins ógleyman- lega, sem bjartleitan ungan mann með litla vatnslitamynd í hendi. Svo sá ég hann oft síðar á þroskaaldri hans. Mér er minnisstætt, að ef maður af einhverjum ástæðum þurfti að biðja guð að hjálpa sér, þá kom Jón Stefánsson í hugann. J.óhannes Sv. Kjarval Bjarne Paulson. fcsfnr — Sýning Nú er opin sýning Sveins Bjömssonar í Bogasal Þjóð- minjasafnsins. Á sýningunni eru 26 myndir, málaðar í olíu og olíupastel. Em myndirnar mál- aðar á s. 1. tveim ámm. Sveinn sýndi síðast fyrir 2 ámm. Sýn- ingin er opin frá kl. 2—10 til sunnudagskvölds. — Nokkrar myndanna hafa þegar selzt. Framhald af bls 1 á jöklinum og standa af sér þau veður, sem þar geisa oft og einatt. Þetta mál virðist þó þegar vera leyst, því að haustið 1960 lögðu þeir Sigurjón Rist vatna- mælingamaður og Ásgeir Guð- mundsson verkstjóri í Lands- smiðjunni á ráðin um útbúnað nýrrar gerðar af snjómöstrum, sem síðan hafa verið reynd á ! Vatnajökli og staðið þar af sér öll veður. Þessi snjómöstur eru þrífætur úr tveggja þumlunga vatnsrör- um. Fastar fötplötur eru á rör- unum, sem ná hálfan metra út fyrir rörin. Hlutverk þeirra er hvort tveggja, að halda rörunum uppi og líka hitt, að standast tog upp á við, t. d. af völdum ísingar, sem hleðst utan á eina hlið mastursins og togar gagn- stæða hlið upp. Rörin eru fest saman með hringum og er 125 cm. bil á milli hringanna. Jöklarannsóknafélagið hefur látið reisa tvö þvílik möstur á Vatnajökli, annað um 7,5 km. norðvestur af Pálsfjalli, en það mastur er við snælínu, hitt við Grímsvötn. Hvert mastur er röska 9 metra á hæð, en ofan á Grímsvatnamastrið verður ár- lega að bæta 4—5 metra langri viðbót til að taka við snjóþykkt ihni, sem bætist við á hverjum vetri. Með tímanum myndast þannig geysimikil súla úr þessu mastri, og ef að líkum lætur, nær það um 200—250 metra nið ur í jökulinn eftir 50 ár. Þessi möstur hafa staðið af sér öll veður og reynzt með ágætum. Áður var illmögulegt að mæla snjóþykktina eftir vet- urinn með nokkurri nákvæmni. Engar stengur eða möstur, sem áður hafa verið settar niður í jökulinn, stóðust veðrin, og þess vegna var helzta ráðið að grafa gryfjur niður í hann og finna vetrarúrkomumagnið á þann hátt. En það var í senn erfitt verk og mælingin ekki eins ná- kvæm. Með því fyrirkomulagi, sem nú er háft um snjómælingar á Vatnajökli, er unnt að mæla árs- úrkomuna úr flugvél og með svo mikilli nákvæmni, að ekki skakkar nema 10 sentimetrum. Eitt af síðustu verkefnum Jökla rannsóknafélagsins á þessu hausti var að senda flugvél upp á Vatnajökul til slíkra mæl- inga. Bátur sökk og 200 síldar- tunnur fóru isjóinn í fárviðri sem gekk yfir Gríms- ey á sunnudagskvöldið og aðfara- nótt mánudags varð stórtjón af völdum sjógangs og roks. Talið er að verðmæti sem nemur yfir hálfa milljón króna hafi farið þar til spillis. 1 þessu veðri sökk 3 — 4 lesta bátur, „Ninna“ sem var í eigu þeirra Hannesar Guðmundssonar og Alfreðs Jónssonar, enda var þá ofsalegur sjógangur og hauga- brim. Báturinn náðist upp i gær, eii var þá allur stórlega brotinn, trieð al annars annar kinnungurinn alveg úr. Vátryggingarfélagið, sem báturinn var tryggður hjá, taldi mjög vafasamt að unnt væri að gera við skemmdirnar. í sama veðri tók um 200 tunnur síldar út af bryggjunni f Grímséy og fóru þær allar í sjóinn. Þau verðmæti eru talin gersamlega glötuð. Þess má geta að bæði síld in svo og báturinn, sem sökk, var vátryggti Heildartjón er metið Iaus lega á rúmlega hálfa milljón kr Þetta er talið eitt af ofsalegustu veðrum sem gengið hafa yfir Grímsey um langt skeið. Skaðsemi — Framh. af öls i barnshafandi konum sem allra minnstu af lyfjum yfirleitt, að undanskildu járni, kalki og vita mínum. Heilbrigðisstjórn Sví- þjóðar hefur ráðið læknum frá að ávísa bamshafandi konum Postafen og skyldum Iyfjum. Þótt ekki sé vitað til að tjón hafi hlotizt af ofangreindum lyfj um hér á landi, þykir mér rétt að brýna fyrir Iæknum, að gæta ýtrustu varkárni í lyfjaútlátum til barnshafandi kvénna og þang að til nánari upplýsingar eru fyrir hendi ræð ég læknum frá að ávísa þeim Postafen og skyld um lyfjum. Er yður hérmcð fal- ið að gera öllum starfandi lækn um í héraði yðar Icunnugt um efni þessa bréfs“. Siðan sagöi iandlæknir í við- tali við Vísi í morgun: — Það skal tekið fram, að hér á landi hefur aldrei verið heimilt að Iáta úti ‘c .tafen og skyld lyf nema gegn lyfseðli, þó að slíkt hafi tiðkazt i nágrannalöndun- um. Hafa lyf þessi svo sem kunnugt er einkum verið notuð gegn veltuveiki (sjóveiki, bil- veiki og flugveiki) og ógleði barnshafandi kvenna. Engar sérstakar ráðstafanir hafa verið gerðar varðandi notkun á Preludin, en það lyf er einungis Iátið úti hér gegn Iyfsebli. Fylgzt verður vel með rann- sókn 'ieirri er nú fer fram er- lendis á hugsanlegri hættu af notkun preludins".

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.