Vísir - 12.12.1962, Qupperneq 16
Stjórn fulltrúa-
ráðs enéurkjörin
Stjórn Fulltrúaráðs Sjálfstæðis-1
félaganna í Reykjavík var endur-
kjörin á aðalfundi ráðsins sem
haldinn var í Sjálfstæðishúsinu í I
gær. Fundurinn hófst með því að j
Höskuldur Ólafsson bankastjóri j
var kjöfipn fundarstjóri, en.Bjarni
Beinteinsson fundarritari. Birgir
Kjaran, form. stjórnar fulltrúaráðs |
ins flutti skýrslu stjórnarinnar fyr
ir sl. ár.
. Pá fór fram kosning stjórnar og
voru aliir endurkjörnir en þeir eru
Baldvin Tryggvason, framkv.stj.,
Birgir Kjaran alþm. og Gróa Pét-
ursdóttir borgarfulltrúi. I vara-
stjórn: Guðmundur Benediktsson,
Frh. á bls. 5.
Nýstárleg iinnlerðarsaia fyrSr
Birgir Kjaran.
Vísir hefur haft fregnir af manni
nokkrum sem gerir sér tfðförult í
hús Reykvikinga og falbýður þar
ýmsan smyglvarning, án þess þó að
hafa hann meðferðis, en þarf hins
vegar á nokkurri fyrirframgreiðslu
að halda.
Eftir því sem blaðið veit bezt,
mun manni þessum hafa orðið
næsta vel ágengt í fjármálastarf-
semi sinni, því margir ágirnast
smyglvarninginn svona rétt fyrir
jólin og láta því eitthvað af hendi
rakna upp í fyrirframviðskiptin.
Hitt er svo annað mál, að þar með
eru viðskiptin á enda, hvorki mað-
urinn né varningurinn koma framar
fyrir augu þess, sem lætur fé af
hendi.
Þar sem maður þessi hefur birzt
undanfarið, hefur hann ýmist þótzt
vera flugstjóri, skipstjóri eða stýri
maður og hafi hann ýmiss konar
girnilégan varning í fórum sínum,
Gengið í hús
að úfengi, pelsar oJi
þ. á. m. áfengan bjór, áfengi og
allt upp í dýrustu pelsa. Hann er
fús til að ná í þetta strax á stund-
inni, en á bara ekki til fyrir bíl
og það væri þess vegna gott að fá.
þótt ekki væri nema 100—200 kr.
fyrir farartækinu. Hitt megi svo
gera upp um leið og varningurinn
kemur. Margir hefur þegar látið
glepjast af faguryrðum mannsins,
hafa trúað honum og treyst og lát-
ið hann hafa nokkurn skilding fyr-
irfram — en síðan hefur hann ekki
sézt.
Á einum stað lét viðkomandi þó
ekki ginnast, trúði manninum ekki
og lét hann ekki snuða sig. Hafði
hrappurinri barið þar á dyr og hús-
móðirin opnaði og spurði um er-
indi. Gesturinn jívaðst vilja tala við
eiginmannipn, en hann var ekki
heima. Þá sagðist gesturinn verða
að ljósta upp því ieyndarmáli, sem
sér væri trúað fyrir, en það var
að bóndi hennar hafi beðið sig að
kaupa pels handa henni erlendis,
sem hún ætti að fá í jólagjöf. Nú
væri hann kominn til landsins með
pelsinn, og þyrfti aðeins fyrir bíl-
^rh á bls. 5.
BANASL YS Á AKUREYRI
i Akureyri í morgun.
Það sviplega slys vildi til á Ak-
ureyri í gær, að maður hrapaði úr
stiga með þeim afleiðingum að
hann beið bana af.
Slys þetta varð laust eftir kl. 12
á hádegi. Jón Jóhannsson skipstjóri
á v. b. Særúnu frá Siglufirði var
að ganga upp stiga í bát sinn, sem
var í viðgerð i slippnum á Akur-
eyri. Þegar Jón var kominn lang-
leiðina upp, féll hann afturfyrir
sig úr stiganum og kom niður á
höfuðið. Hann var strax fluttur í
sjúkrahúsið, en var örendur þegar
þangað kom.
Það er álitið að Jón heitinn hafi
fengið aðsvif þegar hann var að
ganga upp stigann og ennfremur
talið að aðsvifið hafi orsakazt af
hitabreytingu. Hafði Jón rétt áður
verið inni í heitri skrifstofu og sat
þar snöggklæddur, en úti var mikið
frost og svalt.
Jón var hátt á sextugs aldri og
var búsettur á Siglufirði.
FIMM 2000 KR. VINN-
INGAR í GETRAUN VÍSIS
Vísir efnir í þespum mánuði til getraunar, sem áskrifendur og aðrir
kaupendur geta tekið þátt í, Verða vinningar í getrauninni fimm, hver
þeirra að verðmæti 2 þúsund krónur.
• Vinningamir verða að þessu sinni iðgjöld hjá Almennum tryggingum og eru þær tryggingar,
sem einkum koma til greina, þessar:
£ Bifreiðatryggingar, en þar sem iðgjald með bónus fyrir 4 manna bíl er um 1 þúsund krónur,
nægir hver vinningur sem iðgjald í 2 ár.
• Heimilistrygging að upphæó 200 þús. krónur í steinhúsi ktfstar um 500 krónur á ári, svo að
einn vinnlngur jafngildir slíkri tryggingu í 4 ár.
• Slysatrygging ,og þrunatrygfiing.
• Þeiri.sem hljóta^. vinfllíí^fpiji auk þess; valið um hvers konar tryggingar aðrar, sem Almennar
tryggingar hafa á btfðstóium; t. d. líftryggingu með 2000 króna iðgjaldi.
• Getraunin mun birtast í Vísi á morgun.
íLls - ■. ■' :■. . ■ Ú' : ■ É__________________________________________
Mb. Arnarnes við Grandagarð.
Píast settí lestína
í gær var settur á flot, stál-
bátur, sem hefur verið í smíð-
um hjá Stálsmiðjunni og hef-
ur hlotið nafnið Arnarnes. Er
búizt við að báturinn verði af-
hentur kaupendum nálægt ný-
ári. Er nú meðal annars unnið
að því að sprauta Iestina að inn
an með plasti.
Plastið er sett innan á timb-
urklæðningu I lestinni, til að
ekki komist grútur oj. annað að
stálinu. Hefur þetta aldrei fyrr
verið gert hér á landi, en hef-
ur verið sett í einn eða tvo ís-
lenzka báta úti í Svíþjóð. Fyrir
tækið Trefjaplast framkvæmir
verkið.
Bátur þessi er 130 tonn að
stærð. í honum er Deutz diesel
vél og er reiknað með að hann
kosti fullbúinn um sjö milljón-
ir króna. Kaupandi bátsins er
íshús Hafnarfjarðar. Teikningu
gerði Agnar Norðdal, skipaverk
fræðingur hjá Stálsmiðjunni.
.....................
Dómur
■ dog
Rannsókn lauk kl. hálf átta
í gærkvöldi í máli brezka skip-
stjórans, sem tekinn var að
meintum Iandhelgisveiðum við
Langanes og færður til Seyðis-
fjarðar. Skipstjórinn kvaðst
hafa vitað um varðskipið f
grenndinni og talið að hann
væri í rétti. Ratsjá hans sýndi
melri fjarlægð frá Iandi en rat-
sjá Óðins. Beðið er eftir ákvörð-
un um málshöfðun. Dómur í
máli skipstjórans verður vænt-
anlega felldur í dag.
vism
Miðvikudagur 12. des. 1962.
Hlýindin
skamm-
jvinn
| Klukkan 11 árdegis var enn
10 stiga frost hér, en spáð |
hafði verið hlýnandi veðri og |
hláku, og er enn á leiðinni, en ;
líklega verður um skammvinn
hlýindi að ræða.
Það er sem sé spáð suðaust-
anátt allhvassri með hlýnandi
veðri seinni partinn og slyddu
í kvöld, en suðvestur í hafi er
að myndast lægð, og frekar út-
lit fyrir, að aftur komi fljót-
lega til norðlægrar áttar.
11 14'*!!!) ■'! 'S
1:1 , .1 . .;