Vísir - 27.12.1962, Page 4
4
Jtgetandi: Blaðaútgátan VISIR.
Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G Schram
Aðstoðarritstjóri: AxeJ Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 55 krónur á mánuði.
í lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línurj.
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Mesfu jólainnkaupin
Nú eru jólin gengin úr garSi og í dag hverfa menn
aftur til vinnu sinnar að vanda. Flestum munu jólin
hafa verið hyíld og análeg upplyfting, þrátt fyrir ann-
ríki á heimilum, einkum þar sem börnin eru mörg.
Þótt ekki sé lengra liðið en til þriðja dags jóla, hefur
,ein athyglisverð staðreynd þó komið í ljós yfir þessa
hátíð. Á þessum jólum munu Reykvíkingar hafa gefið
hverjir öðrum fleiri og meiri gjafir en dæmi eru til á
fyrri jólum. Jólaverzlunin hefur aldrei verið eins mikil
eins og fyrir þessi jól, sagði formaður Kaupmanna-
samtakanna við Vísi á aðfangadag. Og þegar það er
sagt, þá er miðað við verðbreytingar krónunnar, svo
um raunverulega aukningu er hér að ræða.
Hvað sýnir þessi mikla jólasala?
Hún sýnir að Reykvíkingar og eflaust aðrir. lands-
menn hafa aldrei haft jafn mikla peninga handa á milli
sem nú. Það þýðir, að góðæri er í landinu meira r.ú en
líklega nokkru sinni fyrr. Ekkert heimili hefur þurft
að líða skort yfir jólin vegna þess að fyrirvinnan hafi
verið atvinnulaus. Atvinnuleysið þekkist ekki lengur.
Og það er næstum því sama hvar borið er niður. Ungir
sem gamlir hafa úr óvenju miklu að spila. En þrátt
fyrir þeséa miklu peninga í umferð hefur sparifé lands-
manna aldrei aukizt svo ört eins og í ár. Ber hér að
sama brunni, að almenningur er efnalega óvenju sjálf-
stæður.
Þetta á sér stað aðeins tveimur árum eftir að and-
stæðingar ríkisstjórnarinnar spáðu því að viðreisnin
myndi flytja þjóðinni kreppu og atvinnuleysi. Slíkar
spár reyndust falsspár. Það er nú öllum orðið ljóst.
Þeir fögnuðu ekki jólunum
Góður kommúnisti hefur ekki haldið jólin hátíðleg.
í hans augum hafa jóladagarnir verið sem hverjir
aðrir virkir dagar og jólin einungis tilefni til þecs að
fá frí úr vinnunni. Jólin hafa verið þurrkuð út úr
almanaki kommúnista. Þeir hrækja á hugsjónina, sem
að baki jólanna liggur. Sjálft jólaguðspjallið hljómar
sem draugasaga í þeirra eyrum.
Samt sem áður munu flestir íslenzkir kommúnistar
hafa haldið heilög jól neð fjölskyldum sínum. En með
því hafa þeir gerzt enn brotlegri við heiðarlega hugs-
un en þeir kommúnistar, sem neita tilvist jólanna. Með
jólahaldinu hafa þeir véíengt stefnu flokks síns, en um
leið gengið til jólahátíðarinnar með fölsku hugarfari.
Þeirra stefna predikar guðleysi og afnám ríkiskirk?
unnar. Því eru þeir heiðingjar í jólaguðþjónusíunni.
íslenzka þjóðin þarf að gera sér það miklu Ijósar,
að þeir menn, sem kommúnistar kallast, eru höfuð-
óvinir allra þeirra krístilegu hugsjóna, sem þjóðinni
eru kærastar og hún byggir tilveru sína á.
V1 S IR . Fimmtudagur 27. desember 1962.
waasmvsm
Danskir kommúnistar
fordæma Mao-Tse-tung
Slysavarðstofan i Heilsuverndar-
stöðinni er opin allan sólarhring
irm. — Næturlæknir kl. 18—8,
•sími 15030.
Neyðarvaktin, sími 11510. hvern
virkan dag, nema la.gardaga kl
13-17
Næturvarzla apóteka 22.-28.
des.: Laugavegsapótek (25. des. er
opið í Ingólfsapóteki og 26. des.
er opið f Laugavegsapóteki).
Utvarpið
Fimmtudagur 27. desember.
Fastir liðir eins og venjulega.
18.00 Fyrir yngstu hlustendurna
(Gyða Ragnarsdóttir). 20.00 Ein-
söngur í útvarpssal: Olav Eriksen
frá Osló syngur tólf lög eftir Grieg
Við píanóið: Árni Kristjánsson).
20.35 Höfðingi á upplýsingaröld:
Tíu útvarpsmyndir úr ævi Magnús
ar Stephensen í Viðey á tveggja
alda afmæli hans. Vilhjálmur Þ.
Gíslason útvarpsstjóri tók saman.
Aðrir flytjendur: Árni Gunríarsson,
Ingibjörg Vilhjálmsdóttir, Ólafur
Egilsson, Guðrún Sveinsdóttir, dr.
Páll ísólfsson og Liljukórinn, und-
ir stjórn Jóns Ásgeirssonar. 22.10
Á blaðamannafundi: Hplgi Sæ-
mundsson formaður mpnntamála-
ráðs svarar spurningum. Stjórn-
andi: Dr. Gunnar G. Schram. 22.45
Djassþáttur ' (Jón Múli Árnason).
23.45 Dagskrárlok.
Sjónvqrpið
Fimmtudagur 27. desember.
17.00 Ozzie and Harriet
17.30 Science in action
18.00 Afrts news
18.15 The telenews weekly.
18.30 The Jack Benny show
19,00 Zane Grey Theater
19.30 The Dick Powell show
20.30 Timex all-star comics
21.30 Bat Mastersow
22.00 The Untouchables
23.00 Science fiction theater
23.30 Sports special.
Final Edition news
Árnað heilla
Fimmtugur er í dag Jens Vigfús-
son, veggfm., Vesturgötu 18, Rvík.
Danska kommúnista-
blaðið Land og Folk
birti á Þorláksmessu for
ustugrein, þar sem það
lýsir yfir fullkominni
samstöðu við Rússa í
hugs j ónabar áttunni
milli Moskvu og Peking.
Hefur þessi grein vakið
talsverða athygli vegna
þess, að þetta er í fyrsta
skipti, sem blaðið íekur
þannig ákveðna afstöðu
og fordæmir stríðsæs-
Róieg jól
á Akureyri
V
Akureyri í morgun.
Jólahátíðin á Akureyri var hin
rólegasta og ánægjulegasta í hví-
vetna og bæði án slysa og elds-
voða.
Veðrið var og hið ákjósanleg-
a?ta, bjart og fagurt, en talsvert
frost, oftast 5-10 stig.
Jörð er auð á láglendi og hátt
upp til fjalla. æði Vaðlaheiði ogf
Öxnadalsheiði eru góðar yfirferð-
ar fyrir hvaða bifreiðar sem eru og
sama gegnir um flestar aðrar leiðir
á Norðurlandi.
ingar kínverskra komm- 5
únista. *
$
í ritstjórnargreininni sem tal J
in er rituð af Ib Nörlund segir *
m.a. að ef sósíalisku ríkin tækju
almennt upp stefnu Peking-1
stjórnarinnar myndi það leiða ^
til nýrrap heimsstyrjaldar og t
glötunar mannkyhsins. J
Land og Folk ásakar kín- \
verka kommúnista um að rangj1
færa hver sé hin eiginlega,
stefna Rússa og framkoma Kín J
verja sé í alla staði ósanngjörn;,!
ekki sízt í sambandi við Kúbu-f
málið. Kínverjar verði að gæta t
þess, að ef Rússar hefðu látið J
hart mæta hörðu í Kúbumálinu -j
myndi heimsstyrjöld geisa í J
heiminum í dag. t
ilngur sési®¥css?
kesnyr frnsn
Ungur eyfirzkur söngvari, Gest-
ur Guðmundsson, sem verið hefur
undanfarin þrjú ár við söngnám
í Þýzkalandi, heldur fyrktu hljóm-
leika sína hér á landi í Borgarbíói
á Akureyri annað kvöld.
Gestur er tenór og hefur aldrei
haldið sjálfstæða hljómleika fyrr.
Hann er hér nú til skammrar dval
ar og hyggst halda bráðum utan
aftur til að ljúka námi, en hann á
1 ár eftir. Á söngskránni eru 5
íslenzk lög, ljóðalög eftir Schubert
og loks nokkrar óperuaríur. Við
hljóðfærið verður Guðrún Kristins
dóttir píanóleikari.
stjörnuspá
morgundagsins
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Dagurinn er ekki sérlega
viðburðarríkur og bezt að halda
sig vel að störfunum. Hyggi-
legt gæti reynzt að líta til eldri
vina og kunningja eða jafnvel
að heimsækja foreldrana.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Deginum væri hezt varið til
bréfaskrifta við erlenda aðila
eða vini og kunningja, sem dvelj
ast erlendis. Kvöldstundirnar
væri bezt að eiga heima í ró og
næði.
Tvíburarnir, 22. maí til 21.
júní: Hagstætt að annast loka-
uppgjör þar sem um sameigin-
lega reikninga félaga er að ræða
þar eð árið er nú senn á enda.
Vandamál varðandi skatta ætti
einnig að taka á dagskrá.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlí:
Þú ættir að leitast við að taka
deginum með sem mestri ró eft-
ir því sem tök eru á, þar eð
þreyta sækir nú að þér og gæti
þróazt upp í einhvern kvilla.
Ljóniðj 24. júlí til 23. ágúst:
Horfur eru á að dagurinn reyn-
ist þér fremur erilsamur og
verkefnin séu nú næg því mörgu
þarf að ljúka fyrir áramótin.
Forðastu samt ofreynslu í sam-
bandi við þetta.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.:
Dagurinn ætti að geta verið
hinn ánægjulegasti fyrir þig að
flestu leyti, þar eð horfur eru
á að þú þurfir ekki að vera mjög
bundinn yfir starfinu.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Hentugast að halda sem mest
kyrru fyrir í dag á vinnustað
eða heima fyrir þar eð allt bend
ir til þess að næg verkefni séu
fyrir hendi og óheppilegt að
vera á ferðinni.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.
Þú’ ættir að einbeita þér sem
mest að bréfaskriftum og bók-
haldi ef þú starfar við slík störf
í dag. Aðrir ættu að setjast nið-
ur og skrifa vinum og ættingj-
um smá bréf.
Bogamaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Fjármálin verða talsvert á
döfinni í dag og allt bendir til
þess að þú getir efngzt ef þú
tekur hinu rétta tækifæri. Var-
astu deilur um fjármálin.
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan.: Ýmsir aðilar hefðu bara
gott /af því að þú segðir þeim
hreint út meiningu þína um hlut
ina svo enginn misskilningur
ríki lengur milli ykkar.
Vatnsberinn, 21. jan. til 19.
febr.: Þér er nauðsynlegt að
hafa þig ekki mikið í frammi í
dag þar eð straumarnir kunna að
reynast þér fremur andstreymir.
Reyndu að ljúka verkunum af á
hljóðlegan hátt.
Fiskarnir, 20. febr. til 20.
marz: Skynsamlegt væri að leita
ráðlegginga vina og kunningja
á hvern hátt hentugast er að
leysa vandamál líðandi stundar.
Forðastu samt deilur við þá um
smáatriði.
TWOB