Vísir - 06.10.1962, Síða 16
VISIR
Laugardagur 6. október 1962.
• • r
Oræfaflug F.l.
Eins og undanfarin haust ann-
ast Flugfélag íslands nú vöruflutn-
inga til og frá Öræfum.
Flutningarnir hófust að þessu
sinni 25. september og ráðgert er
að þeim Ijúki 10.— 15. október.
Farnar eru til jafnaðar tvær ferð-
ir á dag og fluttar rúmar þrjár lest-
ir í hverri ferð, þannig að tólf lest-
ir eru fluttar daglega til og frá.
Vörurnar, sem þannig eru flutt-
ar, eru að austan, sláturafurðir,
kjöt og aðrar búsafurðir, en frá
Reykjavík ipatvörur, fóðurvörur,
byggingarefni o. fl.
AHs er áætlað að fluttar verði
að þessu sinni 120 lestir.
Hinn 1. okt. s.l. gekk vetrar-
áætlun innanlandsflugs Flugfélags
Islands í gildi. Samkvæmt henni
verður flogið til sömu staða, sem
í sumaráætlun, að undanteknum
stöðunum Hellú og Skógasandi, en
þangað hefir sem kunnugt er að-
eins verið flogið á sumrin.
t
Frú Jésefína
Gíslndóttir látin
— Frú Jósefína Gísladóttir, kona
Þorsteins Jósefssonar blaðamanns
við Vísi, Iézt á sjúkrahúsi hér í
bænum í fyrrinótt. Hún hafði átt
við langvarandi veiki að stríða.
Hún var 43 ára er hún lézt. Henn-
ar mun verða minnzt síðar hér í
biaðinu.
Líkanið af hinni fyrirhuguðu verzlunarmiðstöð i Háaleitishverfi.
Undirbúningur verzlunar-
miðstöðvar i fullum gungi
Vísir sagði frá því í gær-
dag, að ný verzlun yrði
opnuð í Háaleitishverfi um
næstu mánaðamót. Með til
Lögbrot
I dag og á morgun kýs Verka-
mannafélagið Dagsbrún 34 full-
trúa til setu á Alþýðusambands-
þingi. Vegna skriflegra áskor-
ana frá um 640 verkamönnum
neyddist Dagsbrúnarstjórn til
að hætta við það áform sitt að
láta kosningar fara fram á fundi,
þar sem litið brot félagsmanna
gat rúmazt. í Þjóðviljanum í
gær er skýrt frá ræðu Eðvarðs
Sigurðssonar, þar sem glöggt
kemur fram andúð kommúnista
á því að láta fara fram almenn-
ar kosningar. Segir Eðvarð, að
það kosti svo mikla vinnu og sé
svo dýrt og auk þess megi skrif-
stofulið félagsins (a. m. k. 4
fastráðnir menn) ekkert vera að
því að standa í svoleiðis hlut-
um.
Eftir að kommúnistar sáu, að
ekki varð komizt hjá kosning-
um, hafa skrár og gögn féiags-
ins verið á fleygiferð inilli skrif-
stofu þess og kommúnistaflokks
ins. Hefur einkum einn starfs-
maður flokksins sézt þar að
verki, Kjartan Helgason að
nafni.
Jafnframt þvi sem flokksvél
kommúnista er þannig á allan
hátt útbúin fyrirfram vegna
kosninganna hefur stjórn Dags-
brúnar sýnt þá einstöku ó-
skammfeilni að neita að af-
henda kjörskrá félagsins eins og
skylt er skv. reglugerð A.S.Í.
Mörgum mun nú þykja nóg
komið um afbrot og lögleysur
kommúnista innan verkalýðs-
hreyfingarinnar. Er ekki sýnt
aniiað en að grípa verði til nýrra
úrræða, ef þeir fást ekki til að
láta af ofbeldi sínu með öðrum
hætti. Að þessu sinni hafa þó
þeir verkamenn, sem komizt
hafa á kjörskrá, það vopn í
hendi sinni, sem kommúnistum
svíður sárast að beitt verði
gegn þeim, og það er kjörseð-
illinn í Dagsbrún nú unr helgina.
nwrow
Launamélin
Þing B.S.R.B. hófst í Hagaskól-
anum kl. 5 í gær. 137 þingfulltrúar
eru komnir til þingsins frá 28 fé-
lögum. í gær ávörpuðu fulltrúar
ýmissa stétta þingið og báru fram
kveðjur.
Þá voru nefndir kjörnar. Skýrsla
stjórnarinnar fyrir liðið- kjörtíma-
bil var og flutt í gær. Höfuðmál
þingsins er launamálið og skilaði
launanefndin tillögum sínum til
stjórnarinnar 1 gærmorgun. Ekki
voru þær lagðar fram á þinginu í
gær og voru ófáanlegar, en nokkuð
hefir þegar verið frá þeim skýrt í
blaðinu.
Munu þingstörfin í dag og á morg
un snúast að mestu leyti um launa-
málin og mun ítarlega skýrt frá
þeim hér í blaðinu. Fundi í gær
stýrði form. bandalagsins, Kristján
Thorlacius fulltrúi.
Myndin að neðan er frá þinginu
að störfum.
komu hennar er stærsta
hagsmunamál þessa hverf-
is komið í höfn og bætt
er úr þeim miklu vandræð-
um sem hljótast af því,
þegar engin verzlun er á
stóru svæði.
Hér er þó um bráðabirgða-
verzlun að ræða, því eins og
Vísir skýrði jafnframt frá í gær,
þá er ætlunin að reisa þarna
rnikla verzlunarmiðstöð, og hef-
ur verið unnið ötullega að und-
irbúningi þeirra byggingafram-
ltvæmda. Þegar vitað var um
hina nýju verzlun, snéri Vísir
sér til franikvæmdarstjóra Aust
urvers h.f., Sigurðar Magnússon
ar kaupmanns, og spurðist fyrir
um gang og undirbúning hinn-
ar eiginlegu verzlunarmiðstöðv-
ar sem fyrirhuguð er.
i Sigurður sagði svo frá, að unnið
hafi verið að tæknilegum hliðum
þessa verks að undanförnu og ekk-
! ert sé til sparað, til að hafa mið-
stöðina með sem beztum hætti.
„Þarna verður1, sagði hann, „20—
25 þjónustu fyrirtæki til húsa, og
byggingin sjálf mun ná yfir um
3000 fermetra, auk bílastæðis“.
„Það hefur lengi verið ætlun
Austurvers“, hélt hann áfram", að
koma á fót miðstöð sem þessari
(shoppii.g center). Þær tíðkast
mjög í nágrannalöndum okkar, sér
í lagi í nýjum borgarhlutum, sem
hafa risið upp mjög ört eftir stríð.
I því skyni hef ég haldið utan og
viðað að mér upplýsingum frá
Framh. á bls. 5.
Símar B-listans í Dagsbrún
Kosningaskrifstofa B-listans í Dagsbrún er í Breið-
firðingabúð uppi. Verður hún opin meðan kosn-
ing stendur eða frá kl. 10—7 e. h. í dag og frá
kl. 10 f. h. til lle. h. á morgun.
Símar skrifstofunnar eru:
20160
og
20161.
Allir þeir, sern vilja aðstoða við kosninguna eru
beðnir að gefa sig fram við skrifstofuna.
Kjúklingasteik
í fyrrinótt var brotizt inn I
hænsnakofa einn, sem er efst í
Lækjargili á Akureyri. Þar eru ýms
ir menn, sem eiga smákofa er þeir
hafa bæði fyrir hænsni og kindur.
Þarna var brotin hurð á kofa,
sem Arthur Benediktsson á, og
höfðu þjófarnir greinilega verið að
fá sér hænsni f soðið. Hafa fund-
izt þar þrír hænuhausar ,sem þeir
höfðu slitið af búkunum. Svo senni
lega hefur einhver notið gómsæts
kjúklings á Akureyri I gær. Hafi
einhver fundið ilminn af kjúklinga-
steikinni gæti hann e. t. v. upplýst-
hver þarna var að verki um há-
nótt.
J