Vísir - 08.01.1963, Blaðsíða 3

Vísir - 08.01.1963, Blaðsíða 3
V í S IR . Þriðjudagur 8. janúar 1963. «» . ■r-:. «wapw«»»t--re.,Ai.i»ii.i ..iiieaciJU'uuuwiMn Jules de Canouville Iýkur ævi sinni á vígvöllum Rússlands. Hann fellur á bökkum Beresina-fljóts. Hann er leikinn af Stephen Boyd. Pálína var mjög fögur kona og er mynd hennar varðveitt um alla eilífð í hinni fögru höggmynd Canova, sem kölluð hefur verið Borghese Venus. Hún var einnig skarpgreind kona sem lék sér að biðlunum og hafði oft persónuleg áhrif á stjórnarstefnu Napoleons. I hinni miklu kvikmynd leik- ur sjálf Gina Lollobrigida aðal- hlutverkið Pálínu og er það álit manna, að Gina hafi aldrei ver- ið fegurri og skapmeiri en i þessu hlutverki. Er því lýst sem miklum leiksigri hennar. ooo Einn aðalþáttur kvikmyndar- innar fjallar um baráttu Pálínu og Jósefínu eiginkonu Napole- ons um sama elskhugann. En Jósefína var ekki síður lauslát en Pálína. Hinn ungi maður sem þær rifust um hét Jules de Canouville og lyktaði ferli hans þannig, að Napoleon tók hann með sér i Rússlandsleiðangur- inn. Þar féll Canouville. . Myndsjáin birtir í dag nokkr- ar atriðismyndir úr kvikmynd- inni, sem hefur vakið svo mikla athygli. Þegar Napoleon er gersigraður og leggur niður völd yfirgefa allir yinirnir hann. Þá Ieitar hann hælis hjá systur sinni Pálínu. •Nýlega er lokið suður á ftalíu töku mikillar kvikmyndar, sem fjallar um líf Pálínu Bonaparte systur Napoleons keis- ara, sem frægust varð undir heitinu Paola Borg hese, en Napoleon gifti hana ítölskum aðals- manni af hinni virðulegu Borghese ætt. Það hjónaband varð þó lítið meira en nafnið tómt, því að Pálína var hin mesta léttúðar- drós, lifði í stöðugum veizlu- fagnaði ýmist í París eða Ítalíu. Hún var mesta lauslætisdrós og átti fleiri elskhuga en á fingr- um yrði talið. Jósefína neyðir Pálínu til að giftast Leclerc hershöfðingja, en skömmu síðar andast hann og sést Pálína hér við dánarbeð hans. \

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.