Vísir - 23.01.1963, Blaðsíða 2
2
VISIR . MlSvIkudagur 23. Janúar 1963.
Guðmundur Gíslason kjör-
inn „íþróttamaður ársins '
Guðmundur Gíslason úr iR var
f gærkvöldi kjörinn „íþróttamaður
ársins 1962“ í atkvæðagreiðslu,
sem íþróttarilstjórar Reykjavíkur-
blaða og útvarps gangast árlega
fyrir. Úrslit voru kuniigerð í Þjóð-
leikhúskjallaranum, en þangað
höfðu mætt 7 þeirra 10 hæstu á
listanum.
Guðmundur Gíslason hefur und-
tanfarin ár verið ofarlega á blaði
í sömu keppni, en aldrei fyrr hlot-
ið hina veglegu styttu fyrr. Guð-
mund er óþarft að kynna. Hann
hefur í 5 ár í röð unnið það af-
rek að setja 10 íslandsmet á einu
ári og nú í ár hefur hann sett met
í öllum sundgreinum. Guðmundur
hlaut 58 stig af 66 mögulegum.
Úrslit voru annars þessi í at-
kvæðagreiðslunni:
1. Guðmundur Gíslason, IR, sund
58 stig
2. Jón Þ. Ólafsson; IR, frj.íþr.
55 stig
3 Hörður B Finnsson, ÍR, sund
41 stig
/ dug
Handknattleiksmót Ármanns
heldur áfram að Hálogalandi
kl. 8,15.
3. fl. k. b. Ármann—-Víkingur
2. fj, k. a. Valur—Fram
Mfl. kv. Þróttur—Fram
Ármann—Víkingur
Brciðablik—FH
4. Ríkharður Jónsson, lA, knatt-
spyrna, 31 stig
5. Vilhjálmur Einarsson, IR, frj.
íþr., 22 stig
6. Valbjörn Þorláksson, KR, frj.
íþr. 20 stig
7. Þorsteinn Hallgrímsson, IR,
körfukn 19 stig
8. Hjalti Einarsson, handkn.leik-
ur, 16 stig
9. Guðjón Jónsson, Fram, hand-
kn.leikur 16 stig
10. Helgi Daníelsson, lA, knatt-
spyrna, 15 stig
Aðrir, sem hlutu stig voru þessir:
11. Hrafnhildur Guðmundsdóttir,
iR, sund
12. Kristinn Benediktsson, Hnífsd.
skíði
13.Sigríður Sigurðardóttir, Val,
handkn.
14. Gunnlaugur Hjálmarsson, iR,
handkn.
15. Garðar Árnason, KR
16. Kjartan Guðjónsson, KR
17. — 18. Ármann J. Lárusson, Aft-
urelding, glíma, og Þórólfur
Beck, St. Mirren, knattspyrna.
r
Dukla, Prag til Islands
í fooði ÍR-inga í sumar
Verði hið heimsfræga hand-
knattleikslið Dukla mcðal
þriggja efstu liðanna í tékk-
nesku meistarakeppninni, scm
lýkur í júlímánuði n. k., hefur
liðið þar með unnið til íslands-
ferðar 1 nóvember næsta vet-
ur.
Þannig stendur á þessu, að
iR-ingar hafa samið við Tékka
um að þeir sendi hingað hand-
knattleiksiið næsta haust og
munu ÍR-ingar hafa farið fram
á að Dukla yrði sent, en Tékkar
vilja hins vegar ekki senda Iak-
ara lið en eitt af þrem bcztu.
Þess má geta, að Dukla er
eitt bezta félagslið heims og
leikmenn þeirra eru „bcina-
grind“ hins sterka Iandsliðs
Tékka. Er því ólfklegt að liðið
verði ckki meðal þriggja cfstu.
Dukla er eitt þeirra liða, sem
er nú búið að tryggja sig í 8-
liða úrslit í Evrópubikamum.
Tékkar hafa áður átt fulltrúa
á islenzkum handknattleiksvöll-
um. Það var liðið Gottwaldow,
sem hingað kom á vegum Vík-
ings haustið 1960 og vakti geysi
athygli, enda frábært lið. En
óhætt er að fullyrða, að það
lið hafi rnest allra erlendra Iiða
skilið spor eftir sig í íslenzkum
handknattleik.
Gabor þjálfar knaftspyrnumenn
Ungverski íþróttaþjálfarinn Simon Gabor er fyrir nokkru kominn til landsins til að þjálfa íslenzka íþrótta-
menn. Þessi mynd var tekin af honum um helgina þar sem hann var að þjálfa knattspyrnumenn í Þrótti
innanhúss.
Þórólfí ætlað
stærra hlutverk
Þórólfur Beck kom heim fyrir
nokkrum dögum og dvaldi heima
hjá sér laugardag og sunnudag, en
á mánudagsmorgun hélt hann utan
aftur til æfinga.
Þórólfur er nú mun ánægðari
með lífið í Paisley-félaginu en fyrr.
Telur hann ástæðuna fyrst og
fremst vera hinn nýja framkvæmda
stjóra, Jacky Cox, sem hefur sagt
Þórólfi að honum sé ætlað stórt
hlutverk hjá St. Mirren í framtíð-
inni.
Fyrrverandi frkvstj. St. Mirren,
Bobby Flavell, varð að hrökklast
frá félaginu skömmu fyrir jól, þeg-
ar allt virtist komið í kaldakol hjá
félaginu. FJavell, sem aldrei sendi
lið frá sér án þess að breyta þvi,
var orðinn mjög óvinsæll meðal
leikmanna og fjölmargir farið fram
á að verða fluttir til annarra félaga.
Meðl þeirra var Þórólfur, en beiðni
hans var synjað. George McLean,
19 ára samherji Þórólfs, er nú á
sölulista og hafa mörg félög haft
áhuga. Celtic og Rangers komu
lengi til greina, en ensku félögin
bjóða betur og ekki er ósennilegt,
að McLean fari til 1. deildarliðsins
Sheffield Wednesday fyrnr nær
35 000 pund.
Jacky Cox
Jacky Cox, hinn nýi frkvstj. St.
Mirren, segir nóg af góðu efni í
Love Street, en félagsandinn sé í
molum. „Mitt hlutverk verður að
ná fram réttum baráttuanda meðal
liðsmanna og þannig krækja í nokk
ur stig í viðbót við heldur slaka
stigatölu okkar."
Cassius Clay:
„Þá læt ég bróður
minu fá titilmn"
Eins og Kennedyarnir gera
Cassius Clay, hnefaleikarinn
frægi, hélt fyrir síðustu helgi há-
tíðlegt 21 árs afmæli sitt í Phila-
delphiu. Var Clay hrókur alls fagn-
aðar og fór ekki dult með álit sitt á
hæfileikum sínum.
„Ég hef 10 mánuði til að hnekkja
meti Floyd Pattersons og verða
yngsti heimsmeistarinn 1 þungavigt
hnefaleikanna. Það eina, sem stend
ur í veginum er meistarinn sjálfur,
Sonny Liston. Hann er hræddur við
mig.“
Því næst sneri hinn ungi og
myndarlegi Clay sér að framtíð-
inni: „Ég er að hugsa um að vera
heimsmeistari f 10 ár. Þá er ég að
hugsa um að láta bróðir minn,
Rudolph Valentino Clay fá titilinn,
— eins og Kennedyarnir gera í
Washington.
Clay er í Philadelphiu að undir-
búa sig undir keppni við Charly
Powell, fyrrverandi atvinnumann f
knattspyrnu. Clay hefur auðvitað
spáð úrslitum að venju, en hann
segir: „Mér líkar sérlega vel við
fólkið í Philadelphiu. Ég ætla þess
vegna ekki að rota Powell fyrr en
í 5. lotu, annars væri fólkið kann-
ski ekki komið allt í salinn."
Margar góöar, íslenzkar frá-
sagnir á 10 ára ferli „Satt"
Tíu ár eru nú liðin, síðan tima-
ritið Satt hóf göngu sina, og cr
þess að nokkru minnzt í fyrsta
hefti þessa árgangs, sem nú er
komið í bókaverzlanir.
1 hefti þessu er m. a. rifjað upp
ýmislegt efni, sem Satt hefir birt
á undanförnum áratug, en það hef-
ir alla tíð verið einkenni þessa
tímarits og aðgreint það frá öllum
öðrum, að það hefir jafnan lagt
áherzlu á að birta að minnsta kosti
eina íslenzka frásögn í hverju hefti,
framhaldsfrásögn eða einstaka. Hef
ir þetta mælzt vel fyrir, enda verið
fjallað um slíkt efni af miklum
ágætum svo að augljóst hefir verið,
að þar hafa ritað menn, sem eru
í fremstu röð á sínu sviði, þótt
ekki hafi þeir látið nafns síns get-
ið, enda hvergi getið höfunda í rit-
inu nema að hinum dulrænu sög-
um, sem það hefir birt, enda gegn-
ir þar öðru máli, Af hinu innlenda
efni, sem Satt hefir birt, má nefna
þátt um Bólu-Hjálmar, sem var
snilldarvel ritaður. Þá eru einnig
þættir um Skáld-Rósu, mál Agnes-
ar og Friðriks og margt fleira, sem
hér verður ekki rakið.
Sigurður Arnalds hefir alla tíð
verið ritstjóri og útgefandi ritsins.