Vísir - 23.01.1963, Page 7
V í S I R . Miðvikudagur 23. janúar 1963.
Sagt frá einkeniiilegum dómum í
umferðarmálum, þar sem menn eru
skyldaðir til að skoða hræðilegar
afleiðingar umférðarlagabrotanna.
Á hverjum degi í síð-
asta mánuði kom
vel búin og glæsileg frú
gangandi upp tröppur
sjúkrahússins í Santa
Monica, einni útborg
Los Angeles. Kona þessi
var frú Patricia Law-
ford, fædd Kennedy,
systir forseta Bandaríkj
anna.
Hún fðr á hverjum morgni til
barnadeildar sjúkrahússins og
kynnti sér hvaða ný börn hefðu
komið á sjúkrahúsið og hvernig
þeim liði, Pað var undarlegt að
sjá þessa heimskonu gifta kvik-
myndaleikaranum Peter Law-
ford ganga milli barnarúmanna
og tala við börnin og hjúkrun-
arkonurnar. Það var engu líkara
Angeles og þar fékk hún að sjá
bíla, sem höfðu verið dregnir
þangað síðaSta sólarhringinn.
Starfsmaður bíiageymslunnar
sýndi henni hvernig bílarnir
sem lent höfðu í árekstrum voru
leiknir, sumir þeirra pressaðir
saman, rúðurnar brotnar, hlið-
arnar rifnar úr og hann greindi
frá því hvar bílstjórar og far-
þegar þeirra lægju nú, sumir í
líkhúsi, aðrir á sjúkrahúsi.
Frú Patricia Lawford fór ekki
í þessar sjúkraheimsóknir vegna
þess að hún hefði allt í einu
fengið brennandi áhuga á um-
ferðarmálum og mannúðarmál-
um. Hún var skylduð til að gera
þetta með dómi, sem Blair Gibb-
ens dómari í Santa Monica kvað
upp.
Dómstóllinn skyldaði Pat eins
og hún er kölluð til að heim-
sækja barnasjúkrahús til þess
að sjá með eigin augum hryggi-
lega afleiðingu umferðarslys-
anna. Og hún var skylduð til að
sjá með eigin augum afleiðing-
ar af ógætilegum akstri.
teini hennar kom í ljós, að það
var úr gildi fallið.
Nú bjóst frúin við því að fá
sem stundum áður venjulega
fjársekt, kannski fimm doll-
ara sekt, en þegar hún var leidd
fyrir jdómara kom í ljós að hún
slapp ekki svo létt. Dómarinn
reyndist vera Blair Gibbens,
sem nú hefur getið sér mikla
frægð fyrir sérkennilega dóma
sína.
j bandarískum refsilögum eru
aðalrefsingarnar eins og í
flestum öðrum löndum fangels-
isvist eða fjársektir. Sektirnar
eru víða um lönd algengasta
refsingin og stafar það oft ó-
sjálfrátt af þvf að sektir skapa
rikisvaldinu tekjur. í Bandaríkj-
unum er hins vegar talið í sum-
um fylkjum að dómari hafi
frjálsari hendur með að á-
kvarða önnur viðurlög, ef vænta
má þess að þau kunni fremur að
hafa bætandi áhrif á sakborn-
ingana.
Þetta sá Blair Gibbens dóm-
ari í Santa Monica og hann hef-
ur eftir ítarlega könnun komizt
að þeirri niðurstöðu, að réttast
væri að afnema sektir fyrir um-
ferðarlagabrot. Hann telur að
svo sé komið að þessar sektir
séu lítið orðið annað en tekju-
stofn hins opinbera. Almenning-
ur sé farinn að reikna með þess
um „skattgreiðslum“ og láti sér
alveg á sama standa. Sektirnar
hafi engin bætandi áhrif, þvert
á móti fylli þær menn leiða og
afskiptaleysi.
Blair Gibbens dómari sýnir mönnuni fangaklefa. Á gólfinu cr iína
sem notuð er tii að kanna jafnvægisskyn ölváðra öloxmanna.
ÞVt DÆMIST RÉTT
en að hún væri að la^ra læknis-
fræði.
J7ftir sjúkrahúsheimsóknina
fór frú Patricia til bílakirkju-
garðs eins í öðru úthverfi Los
Tj’rú Patricia Lawford hafði
brotið lítillega af sér gagn;
vart umferðarlöggjöfinni. Lög-
regluþjónn hafði stöðvað hana
vegna of mikils ökuhraða, og
þegar hann fékk að sjá ökuskír-
í fimm klst. var þjónustustúikan Lis Kieiskov skylduð til að vera
á slysavarðstofunni og sjá hina særðu sem komið var með úr
umferðinni.
T>lair Gibbens hefur leitað eft-
ir öðrum ráðum til að kenna
mönnum að virða umferðarlög-
in. Hann fer aðallega tvær leið-
ir, að Iáta menn vinna sjálfa að
því að bæta tjón, sem þeir hafa
valdið og svo hitt, sem er al-
gengast, að dæma þá til að
kynna sér hörmulegar afleiðing-
ar umferðarlagabrotanna.
Fyrst og fremst berst hann
við ökugikkina, mennina, sem
aka með ólöglegum hraða um
vegi.
Ein þeirra fyrstu, sem hann
dæmdi var þjónustustúlka að
nafni Lis Kielskov, sem hafði
ekið bifreið sinni með 110 km
hraða á svæði þar sem leyfður
Dómarinn kvað upp úrskurð
um að Lis þyrfti ekki að greiða
sekt, en farjð skyldi með hana á
sjúkrahús og henni sýndar þar
i afleiðingar of mikils ökuhraða.'
Svo var gert, og var það sýni-
legt að sjúkrahúsheimsóknin
hafði djúptæk áhrif á stúlkuna.
Hún sagði þegar hún gekk
hrærð út af sjúkrahúsinu: — Ég
veit aðeins eitt, að ég mun ekki
á næstunni aka yfir löglegum
hámarkshraða.
Dlair Gibbens dómari hefur
ekki bundið sig í dómunum
við heimsóknir í sjúkrahús. Þeg
ar menn hafa ient í minniháttar
árekstrum, hefur hann jafnvel
sleþpt hinum brotlegu við væg-
ar venjulegar refsingar, en
skyldað þá til að heimsækja
fangelsi og ræða við fangana
til þess að fá hugmynd um hvað
þeir mættu þola, ef áreksturinu
hefði verið meiri og mannslíf
tapast.
J haust fann Blair Gibbens upp
á nýrri „refsingu", að
skylda menn til að horfa á
„slysakvikmyndir" er sýna fólki
hin ægilegustu umferðarslys.
Þá hefur hann kveðið svo á,
að rannsaka skuli nákvæmlega
ökuhæfni allra þeirra, sem lenda
í árekstrum. Það er í rauninni
furðulegt að víðsvegar um lönd
er ekkert gért til að kanna öku-
hæfni manna eftir árekstur. Lög
reglumenn rannsaka bifreiðina,
hvort stýrisútbúnaður og heml-
ar séu í Iagi, hitt er aldrei kann-
að nema í verstu tilfellum, svo
sem við ölvun,! hvort maðurinn
sé hæfur til að aka bifreið. —
Þetta telur Blair Gibbens mjög
þýðingarmikið og athugun á
þessu hefur leitt til þess að
margir óhæfir ökumenn hafg
verið sviptir ökuleyfinu.
Tjegar margir brotlegir hafa
safnazt saman eftir dóma
Blair Gibbens kallar hann þá
saman, oft um 40 manns ,og
fer með þeim í hringferð eða
eins konar kynnisferð um
sjúkrahús, bílakirkjugarða og
Iíkhús borgarinnar og segir
þeim persónulega frá mörgum
sorgarsögum, sem gerzt hafa í
umferðinni. Og hann kynnir þá
líka mönnum, sem sloppnir eru
af sjúkrahúsi en verða að lifa
limlestir það sem eftir er æv-
innar.
TL’ins og eðlilegt er hafa þessar
^ aðferðir Blair Gibbens dóm-
ara verið nokkuð umdeildar.
Margir ágætustu refsimálasér-
fræðingar Bandaríkjanna hafa
Frh. á bls ó
Pat Lawford, systir Kennedys
forseta gengur inn í sjúkrahúsið
í Santa Monica. Hún var tekin
föst fyrir of hraðan akstur,
skyiduð til að heimsækja barna-
spítala.
waaa