Vísir - 24.01.1963, Blaðsíða 7
7
V í S I R
Fimmtudagur 24. janúar 1963.
Hfrmiiuif. ^irm.......
ByBting i prentiisfiniiis
Setningarvélarnar í
Prentsmiðju Vísis eru
einu setningarvélarnar
hér á landi, þar sem
unnt er að koma við
sjálfvirkri setningu les-
máls. Ekki þarf annað
en festa litlu tæki, svo-
kölluðu „Operating
unit“ við vélarnar, og
vinna þær þá sjálfkrafa,
án þess að vélsetjarar
komi þar nærri við
sjálfa setninguna. Þær
eru af gerðinni Inter-
type.
Tjessi árin stendur yfir bylting
" í gerð setjaravéla í heimin-
um. Kjarni þeirrar byltingar er
einmitt sjálfvirk setning og hafa
til þess verið fundnar upp ýms-
ar gðferðir. Ein þeirra, sú.^em
a§, framan var greind, er þegar,
komin í notkun allvíða um heim.
Þannig má finna slíka sjálfvirka
setningu í allmörgum dagblaða
prentsmiðjum á Norðurlöndum.
m. a. hjá Berling f Kaupmanna-
höfn, og fleiri dönskum blöðum.
hjá blöðum í Stavanger og
Björgvin f Noreei og auðvitað
í Bandaríkjunum, þar sem þessi
aðferð var fundin upp.
I stuttu máli er hin sjálfvirka
setning þannig að í stað þess að
vélsetjarar setji handritin þá
koma hér til vélritunarstúlkur,
sem endurrita þau á sérlegar rit
vélar. Úr þeim vélum kemur
mjó pappírsræma með götum,
er tákna stafi og orð. Þessari
pappírsræmu er síðan rennt í
gegn um áhald. sem fest er við
setjaravélina, og fyrr er minnzt
á. Setur þá vélin jafnóðum eftir
þesari ræmu og hreyfist letur-
borð vélarinnar sem á það
styðji ósýnilegar hendur. Kost-
urinn við þessa aðferð er sá að
slík sjálfvirk setning er miklu
hraðari en vélsetjari fær
unnið. Hann setur að jafnaði
ekki nema um 6 línur á rnínútu.
Vélin getur hins vegar sett all
að 12—14 línur á mínútu, og ef
pappírsræman er villulaus verð
ur lesmálið villulaust, sem úr
setjaravélinni kemur. Auk þess
getur vélin vitanlega unnið
sleitulaust allan sólarhringinn,
hún þarfnast ekki hvíldar eða
sumarleyfa, og sparnaðurinn er
* a‘ig}j|6s,i,.vvl.. tóri VV *
^nnar kostur er við slíka sjálf
virka setningu. Það kemur
all oft fyrir að bókaútgefendur
vilja geyma lesmálið, ef þeir
hyggjast gefa út aðra útgáfu
bókar. Hins vegar er mikið fé
fólgið i því blýi, sem notað er
við setningu bókarinnar og ekki
Þetta eru setningarvélarrar í Prentsmiðju Vísis. Tvær vélarnar eru
útbúnar fyrir sjálfvirka setningu og þær einu hér á landi.
er unnt að steypa upp og nota
aftur þegar í stað. Og allmikið
rúm þarf til geymslunnar. Þenn-
an vanda ley^ir pappírsræman.
Eftir setninguna má stinga
henni upp í hillu. Hún kostar
sáralítið og fyrirferð hennar er
mjög lítil. Þannig má geyma
handrit margra bóka í einni
skúffu, og þau eru tilbúin til
setningar hvenær sem þarf á að
halda — án nokkurs kostnaðar.
Ekki þarf annað að gera en
renna ræmunni gegn um setjara
vélina í annað sinn. Þá liggur
lesmálið fyrir tilbúið til prent-
unar.
Enn hafa íslenzkar prentsmiðj
ur ekki tekið þessa tækni í þjón
ustu sína. Kemur þar til að nær
allar setjaravélar í prentsmiðj-
um hérlendis eru það gamlar að
ekki er unnt að koma hinni
nýju tækni við. Og eins hitt
að talið er að um allstór og sam
felld verkefni þurfi að vera að
ræða til þess að verulegur fjár-
hagslegur ávinningur sé að sjálf
virkri setningu. En það atriði
ætti ekki að þurfa að standa í
vegi fyrir því að íslenzkar
' prént'smiðjur hagnýti "sér þessa
nýju tækni, a. ’Vn. k. ekki á
meðan verið er að undirbúa
jólabækurnar.
|gn eru þá vélsetjarar að verða
óþörf stétt, má vera að
ýmsir spyrji. Svarið við þvi er
neikvætt, að minnsta kosti ekki
enn langa hríð. Að vísu hafa
vélsetjarar litið hina nýju tækni
óhýru auga víða um lönd, enda
varla við öðru að búast. Hér
hefir vélin verið látin vinna þau
verk sem þeir áður önhuðust
einir. Hefir þetta leitt til nokk-
urra deilna við fagfélög prent-
ara í upphafi, en svo hefir þó
farið að prentarar hafa gert sér
Ijóst að hér var ekki verið að
skerða hag þeirra, heldur var
hér einungis um að ræða eðli-
lega framþróun í prentlistinni,
sem ekki var skynsamlegt að
standa á móti.
Hafa fagfélög prentara á
Norðurlöndum og í Bandaríkj-
num samþykkt að hin sjálfvirka
setning væri upptekin, en þó
með nokkrum skilyrðum, sem
reyndar Ieiða af eðli málsins.
Villur lcoma fram í lesmálinu,
er vélritunarstúlkunni hefir yfir
sést, og þá kemur til kasta
setjarans að annast leiðrétting
ar. Ekki er heldur hagkvæmt
að setja eingöngu sjálfkrafa allt
lesmál, heldur verður að beita
gömlu aðferðinni við setningu
ýmiss efnis, sem ekki þykir
hentugt að setja á pappírsræm
urnar.
Hafa þeir samningar tekizi.
milli prentsmiðjueigenda á
Norðurlöndum og félaga prent-
ara að einn vélsetjari skuli
starfa við hverjar tvær sjálf-
virkar setjaravélar. bæði til eft
irlits og til þess að annast fram
angreind störf. í Bandaríkjun
um mun vélsetjari annast um-
sjón með þrem slíkum vélum.
Efst á myndinni sést götunarræman eins og hún lítur út þcgar
hún kemur frá ritvélinni. Neðst til hægri sést götunarritvélin
tengd setningarvélinni, er setur svo sjálfvirk undir eftirliti véisetjara.
|7n það eru fleiri nýjungar
komnar fram á sjónarsvið-
ið í þessum þætti prentlistar-
innar, en sú sem hér hefur ver
ið nokkuð lýst. Frekari tilraun
ir hafa farið fram í Bandaríkj-
unum með sjálfvirka setningu
lesmáls. Þar hefir einkum ver-
ið lögð áherzla á að finna upp
vel sem skipti orði rétt milli
y
Sjálfvirk bandarisk setning-
arvél.
lengi erfitt að leysa. Nú þefir
setningavél verið tekin í notkun
á nokkrum bandarískum blöð-
um, er annast þetta verk án
þess að þörf sé atbeina vél-
setjara og er nokkuð greint frá
henni í nýju hefti bandaríska
vikuritsins Time. Blaðamaður-
inn ritar grein sína á rafmagns
ritvél, sem auk hins venjulega
handrits ritar lesmálið á gata-
pappírsræmu, sem síðan er
rennt í gegn um setjaravélina.
Síðan kemur lítill rafmagns-
heiii til skjalanna er jafnar orð
unum í línu í setriingunni og
skiptir þeirn málfnæðilega rétt
rnilli línanna. Leiðréttinga er
því engin þörf. Hraðinn er 3
línur á sekúndu, eða sem svar
ar 8 dálkum lesmáls í hinu
stóra bandaríska dagblaðabroti
i sjö; op hálfri mínútu.
Efnfaldari í sniðum og ódýr
iri er sjálfvirk setningavél, sem
nefnist Linasec, þar sem at-
beina vélsetjara þarf enn við
leiðréttingar. Sú vél setur 23
dálka á klukkustund, en venju-
legur vélsetjari setur að jafnaði
ekki nema dálk á sama tíma
og er þá miðað við bandaríska
dagblaðastærð. Vélin kostar
27 þúsund dollara eða ca. 1,2
millj. íslenzkra króna.
JJér skal engu íim það spáð
hvenær hin sjálfvirka setn
ing lesmáls heldur innreið sína
í fslenzka prentiðn. Líklegt má
þó telja að hún verði tekin
upp hér á landi fyrr en síðar,
þar sem kostir hennar eru aug-
Ijósir, bæði hvað sparnað og
flýti snertir. Verður þá væntan-
Iega litið til reynslu Norður-
landaþjóðanna á þessu sviði og
samningar við stéttarfélag prent
ara sniðið eftir fyrirmyndum
frá frændþjóðum vorum. g.
Kennedy
heimsækir
Adenauer
Kennedy Bandarikjaforseti hefui
þegið boð Adenauers forsætisráð-
herra Vestur Þýzkalands að heim-
sækja hann í sumar. Ekki hefur
enn verið ákveðið hvenær heim-
sóknin verði en hún mun verða í
sambándi við Ítalíuferð Kennedys
fyrri hluta sumars.
í tilkynningu sem gefin var út í
Hvíta húsinu um þetta er sagt að
Kennedy forseti muni ekki heim-
sækja fleiri lönd í Evrópu cn ítaliu
og Þýzkaland. Þar með þykir Ijóst
að hann muni ekki koma við í
París til að ræða við de Gaulle.
Með Kennedy í ferðinni verður
frú hans. Bæði á Ítalíu og Þýzka-
landi ríkir mikil ánægja með vænt
anlega heimsókn forsetans. Itölsku
blöðin segir: Velkomin aftur frú
Kennedy, en hún heimsótti Ítalíu
s.I. sumar og varð elskuð af ítölsku
þjóðinni.