Vísir - 11.02.1963, Blaðsíða 6

Vísir - 11.02.1963, Blaðsíða 6
t V*SIR . Mánudagur 11. febrúar 1963. Rýmingarsala Vegna þess að það áa ð rífa húsið, sem við > erum í, seljum við ýmsar vörur á stórlækk- ^ uðu verði. \ Ljós og hiti LAUGAVEGI 79 TIL SÖLU Vegaútgerð ríkisins hefur ákveðið að selja nokkrar bifreiðar ökufærar og óökufærar, einnig rafsuðuvél, vökvakrana og kranabáf- reið. Tæki þessi verða til sýnis í birgða- geymslu Vegagerðar ríkisins við Grafarvog frá kl. 1 til 4 í dag og á morgun. Tilboðum sé skilað á skrifstofu vora, Ránar- götu 18, fyrir kl. 2 e. h. miðvikudaginn 13. febrúar. INNKAUPASTOFNUN RÍKESINS ÍBÚÐ íbúð óskast til leigu. i- iU’..1! í -x iwlAH Bifreiðar- og Iandbúnaðarvörur Brautarholti 20 . Sími 19345 og 19346 GJALDKERI Stórt útgerðarfyrirtæki vantar nú þegax mann tii gjaldkerastarfa. — Framtíðarvinna. Þar að«vera á aldr- inum 25 — 40 ár, og hfa Verzlunarskóla éða hliðstæða menntun ásamt einhverri reynslu. Upplýsingar ekki gegnar í síma. BJARNI BJARNASON, Iöggiltur endurskoðandi Austurstræti 7. Fjölskyldan og hjónabandið Erindaflokkur á vegum Félagsmdlastofnunarinnar Vomámskeið Félagsmálastofn- unarinnar em nú í þann veginn að hefjast og munu þá tveir náms- flokkar taka til starfa. 1 dag (mánudag) hefst fram- haldsflokkur í fundarsköpun og ; mælskulist, og er hann ætlaður 'þeim, sem sótt hafa námsflokka í þessum greinum áður. í marz verður fluttur erinda- iflokkur um fjölskylduna og hjóna- Jbandið. Sá flokkur hefur lengi ver- (ið á döfinni, en hann er mjög erf- íiður viðfangs og hefur krafizt mik- Bls undirbúnings. Er þetta í fyrsta skipti, sem almenningi hér á landi gefst kostur á skipulegri fræðslu am þessi mál. Hannes Jónsson fé- llagsfræðingur, forstjóri Félags- málastofnunarinnar, sagði á fundi með fréttamönnum, að á stefnu- skrá væri að koma á fót stofnun, sem hefði á að skipa guðfræðingi, sðlfræðingi og félagsfræðingi sem væru almenningi til aðstoðar og ráðlegginga f ýmsum fjölskyldu- Akranes — Framhald af bls. 9. sfðan hið stóra rauðmálaða hús Haraldar Böðvarssonar og fjær frá höfninni frystihús Fiskivers h.f. Á þessu svæði er einnig fjöldi minni húsa og skúra, sá elzti þeirra sagður byggður af Thor Jensen. Þau hafa hvert sín hlutverki að gegna sem söltun- arhús, þurrkhús og birgða- skemmur. Ckipaskagi hefur frá fornu fari ^ verið sjávarpláss og þó segja Skagamenn okkur, að hafnarskilyrði hafi ekki verið sérlega góð þar. Það er meira að segja undarlegt við útvegs sögu staðarins, að allt fram til um 1930 fóru Akurnesingar f verið. Þá var það siður, að um áramótin var haldið mikið skiln aðarhóf, þar sem menn drukku og skemmtu sér fram á morgun. þegar því lauk um morguninn. kvöddu allir verkfærir karl- xnenn þeir fóru ekki heim til sín heldur beint út f bátana og sfðan var siglt til Sandgerðis. Alla vertíðina voru konur börn og gamalmenni heima og það var ekki fyrr en f lok maf, sem sy'ómennirnir komu heim með aifla sinn. Sandgerði var verstöð Akurnesinga og þar hófu allir stóru útgerðarmennirnir og at- hafnamennirnir á Akranesi vandamálum. Víða erlendis væru slíkar stofnanir og væri reynsla af þeim góð. Fyrirlestrarnir verða haldnir á hverjum sunnudegi í marzmánuði, frá kl. 4 til 6. Tveir fyrirlestrar 45 mín. verða hvern dag, en á milli þeirra verður 15 mín. hlé og verð- ur áheyrendum þá gefinn kostur á að ræða við fyrirlesarann og gera nánari fyrirspurnir. Sérfræðingamir, sem erindin munu flytja, eru: Hannes Jónsson M.A., dr. Þórir Kr. Þórðarson pró- fessor, dr. Þórður Eyjólfsson sæstaréttardómari, dr. Pétur H. Jakobsson prófessor og Sigurjón Björnsson sálfræðingur. Erindi þessi verða flutt í Gagn- fræðaskólanum við Vonarstræti og mun þátttökugjald verða kr. 200. Nemendum æðri menntastofn ana verður þó gefinn kostur á þátttöku fyrir hálfs verð. Hannes Jónsson og próf. Þórir Kr. Þórðarson sögðust vona að þátttaka yrði góð, því að eitt af mestu vandamálum þjóðfélags okkar nú væri að skapa festu í hjónabandinu og heimilislífinu. starfsemi sína. En nú hefur nútíma tækni og verkmenning breytt Akranesi í raunverulegan útgerðarbæ. Áð- ur fyrr urðu Akurnesingar að leggja bátum sínum á opinni vík, þar sem oft kom fyrir í útsynningi að legufærin slitn- uðu og bátana ra'k á land. En á fáum árum hefur verið komið upp öruggri höfn og þar voru Akurnesingar brautryðjendur í hafnargerð. Þeir urðu fyrstir til að sjá þá möguleika, sem steyptu innrásarkerin f Norman dy gáfu. Okkur er sagt að Haraldur Böðvarsson hafi átt hugmyndina, en Arnljótur heit inn Guðmundsson er var bæjar stjóri um tfma kom henni í framkvæmd. Cíðan höfnin var gerð hefur fiskiskipafloti Akurnesinga haldið áfram að aukast, bæði hefur sjcipunum fjölgað og þau stækkað, þannig að nú er þessi : höfn að verða oú J lftit. Þá er byrjað að leita nýrra ráða, e.t.v. að dýpka núverandi höfn eða jafnvel, að gera aðra höfn að vestanverðu. 'P’inhver Akurnesingur sagði við okkur Vísismenn þegar við vorum að kveðja staðinn eftir daglanga dvöl þar og ljós rákin frá Reykjavfk sást glampa 1 fjarska og speglast í öldum Faxaflóans: Við á Akranesi erum eigin- lega máturlega langt frá Reykja víjk. Það getur að vfsu verið að við séum of nálægt henni að því leyti að okkur finnst hún taka of mikið frá okkur af unga fólkinu, sem sækir suður f ýmis konar störf, svo sem afgreiðslu störf. En við erum nógu langt frá höfuðborginni til þess að eiga okkar sjálfstæða bæjarfé- lag með vaxtarskilyrðum. Og vissulega þægilegt, að geta sjkroppið til höfuðborgarinnar f leikhús og lystisemdir hennar, það er aðeins klukkustundar sigling með Akraborginni. Og þá mætti eins segja að Akranes sé mátulega langt f burtu fyrir Reykvíkinga. Þeir gætu gert meira af því með vorinu að taka sér far með Akraborginni þegar veður fara að batna og birtir í lofti og sjá myndarskapinn f þessum ná- grannakaupstað. Það er e!kki nema klukkustundar sigling. Samningur við Ungverjaland Þriðjudaginn 5. febrúar 1963 var undirritaður í Búdapest nýr við- skipta- og greiðslusámningur milli íslands og Ungverjalands. Samningurinn gildir til eíns árs og gert er ráð fyrir að frá íslandi verði fluttar út m. a. eftirtaldar vörur: Freðfiskur, síld, fiskimjöl, lýsi, ull, gærur, húðir o. fl. Frá Ungverjalandi er gert ráð fyrir að kaupa m.a.: Járn og stál sykur, vefnaðarvörur og fatnað, búsáhöld o. fl. 4 Norsk kona hefur tilkynnt að á vori eða sumri komanda muni hún fljúga sportflugvél yfir norður heimskautið frá Barrow-odda í Alaska, nyrsta odda meginlands Ameriku, og til Svalbarða, en það an verður svo tiltölulega stutt stökk til Noregs. Kona þessi, sem heitir Ingrid Pedersen er reyndur flugmaður, og verður maður henn ar með henni sem er siglingafræð- ingur. r.W.V.VAWAWAW.VAV.VAVA'WAVAV/VWWI.W.VAVA'.VAV.W.V.VAV.WASW.VV.V.V/.V.V.V.V.V.V.V.V.V, LANDSMÁLAFÉLAGIÐ VÖRÐUR LANDSMALAFÉLAGIÐ VÖRÐUR IALMENNUR FÉLAGSFUNDUR! verðuc haldinn í Sjálfstæðishúsfnu mánudaginn 11. febrúar kl. 20,30. Fundlarefni: Tæknimenntun og atvinnulífið. Frummælandi: Ásgeir Pétursson, sýslumaður. Alit Sjálfstæðisfólk veikomið meðan húsrúm leyfir. LANDSMALAFELAGIÐ VORÐUR;! í .,.V.,.V.V.,.,.V.,.,.V.V.V.V.,.,.VAV.*AVV.\WV.WW.W.V.W.V.,.V.V.V.,.V.V.V.V.V.V.V.,.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.,.V.1.V.V.,.V.V.V.V.V.‘

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.