Vísir - 11.02.1963, Blaðsíða 8

Vísir - 11.02.1963, Blaðsíða 8
8 VÍSIR . Mánudagur 11. febrúar 1963. VÍSIR Útgefandi: Blaðaútgáfan VtSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskriftargjald er 65 krónur á má nuði. t lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 linur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Börðusi gegn heilsugæzlunni tos nerlr augsýnilega komið illa við Tímann, er Vísir benti á það fyrir nokkrum dögum að framsóknar- menn hefðu lagzt gegn því sjálfsagða réttlætismáli sem almannatryggingarnar eru. Reynir blaðið í gær í löngu máli að afsaka þessa afstöðu flokksins. Skýring- in, sem blagið gefur á því að framsóknarmenn á þingi voru þeir einu sem ekki greiddu atkvæði með almanna tryggingafrumvarpinu er sú, að það hafi verið flaust- urslega undirbúið! Að vísu eru liðin 17 ár frá því að almannatrygg- ingafrumvarpið var samþykkt, en svona lélegar skýr- ingar duga ekki einu sinni til, þótt málið sé ekki lengur í fersku minni. Sannleikurinn var sá að framsóknar- flokkurinn lagðist gegn fullkominni heilsugæzlu í land- inu vegna þess að hann taldi hana óþarfa og of kostn- aðarsama. Bamalegar tilraunir til þess að víkja sér undan ábyrgðinni á því að hafa verið gegn almanna- tryggingunum duga ekki þótt mörg ár séu liðin frá því að flokkurinn brást í þessu réttlætismáli. Hér sem endranær kom hið sanna eðli framsóknar í ljós: hatrammt afturhald og eiginhagsmunastefna. Og það er sama afstaðan sem einkennir flokkinn í dag. Nú er barizt gegn tilraunum ríkisstjórnarinnar að hefta dýrtíðina og festa krónuna. Og öll viðskiptasamvinna, við erlendar þjóðir er fyrirfram stimpluð sem land- ráðastarfsemi! Hjartaslög afturhaldsins hafa sízt dofnað. Hví seldust skuldabréfin? Tímanum gengur illa að sætta sig við þá staðreynd að skuldabréf íslenzka lánsins í Englandi seldust upp á einni mínútu, svo mikil var eftirspumin. Og sízt af öllu má blaðið af því heyra að þetta sýni traust á greiðslugetu íslenzka ríkisins og hag- stæðri fjármálastjórn síðustu ára. Sú skýring er ekki til annars en að hlæja að henni segir Þórarinn. „Mörg ríki sem hafa traustari fjárhag en ísland hafa sótt um leyfi til þess að fá að bjóða út skuldabréfalán í Bret- landi“ segir Tíminn . Það er hárrétt, en hér þegir Tíminn yfir aðalatriði málsins, því að ísland var fyrsta ríkið sem fékk leyfi til þess í 10 ár að bjóða út skuldabréfalán. Það leyfi hefði ekki fengizt ef f jármálatraustið hefði skort. Aldrei fékk Eysteinn slíkt leyfi. Það myndi verða hlegið í Bretlandi ef Þórarinn snéri þessum ummælum sínum yfir á ensku. Það yrði hlegið hátt að framsóknarskýringunni á velgengni skuldabréfalánsins. LandkömmBiim langaði ekki á norðurhesmsskaatið Þegar Vilhjálmur Ste- fánsson andaðist á sl. ári, var hans getið víða um heim, meðal annars í fréttaritum, sem Upplýs ingaþjónusta Bandaríkj- anna gefur út á ýmsum stöðum, og hefir Vísir borizt slíkt rit, sem gefið er út í Danmörku. Er fyrsta greinin í janúar- hefti þessa árs um Vil- hjálm og hljóðar svo: Einhver fróðasti maður varð- andi könnun héraðanna við norðurskautið, Vilhjálmur Stef- ánsson, sem var af fslenzkum ættum, er látinn í Bandaríkjun- um á 82. ári. Hann var einn af hinum síðustu ótrauðu braut- ryðjenda, sem könnuðu óbyggð ir norðurhjarans f upphafi þess arar aldar á hundasleða en Filhjálmur Stefánsson í Eskimóab úningi á einum leiðangra sinna hann hafði hins vegar engan á- huga fyrir sjálfu norðurheim- skautinu. Þegar einhver spurði hann, hvernig á því stæði, svar aði hann: ,,Ég er vísindamaður, ekki skemmtiferðamaður". Á tímabilinu frá 1904 til 1919 var Vilhjálmur Stefánsson alls tíu vetur og þrettán sumur í heimskautshéruðunum og dró sig síðan í hlé til að helga sig útbreiðslu þekkingar á 'þessúm slóðum. Það var þess vegna frekar vegna kenninga sinna en ferðalaga og leiðangra, að Vilhjálmur Stefánsson varð þekktur á sviði heimsskauts- kannana. Þegar hann andaðist, hafði hann ritað 24 bækur um heimsskautshéruðin auk ótelj- andi greina og haldið fjöl- marga fyrirlestra, en að auki lét hann eftir sig safn bóka um heimskautamál, sem á engan sinn líka. f safni þessu voru alls um 25,000 bókabindi og 45,000 handrit, auk ýmissa minni verka, og er safn þetta talið í senn það stærsta og bezta af sínu tagi f heiminum. Dartmouth-háskóli tók við safninu 1953, og er það til ó- metanlegs gagns fyrir heim- skautskönnuði um heim allan. Spáir um ferðir flugvéla. Vilhjálmur spáði því þegar árið 1922, að flugleiðir fram- tíðarinnar milli Ameríku og Evrópu og Asíu mundu liggja yfir heimskautið. Hann spáði þvf einnig árið 1913, að sá tfmi kæmi, þegar kafbátar mundu sigla undir íshellu norður- heimskautsins, og hefir það ver ið gert nokkrum sinnum upp á síðkastið. Vilhjálmur fæddist árið 1879 f Manitoba f Kanada, og voru foreldrar hans íslenzkir, Jó- hann Stefánsson og Ingibjörg Jóhannesdóttir. Þegar sveinn- inn var á öðru ári, fluttust þau suður til Dakota-svæðisins f Bandaríkjunum, þar sem þau settust að og hófu búskap. Fyrst íslandsferðir Vilhjálms. Þegar Vilhjálmur hafði lokið námi, heimsótti hann ættland sitt til að framkvæma rannsókn á fjárbúskap Islendinga fyrir utanríkisráðuneytið bandaríska. Þetta var árið 1904, og ári síð- ar kom hann aftur til íslands og þá sem meðlimur fornfræða- leiðangurs, er gerður var út af Harvard Fyrstu heimskautsleiðangrar hans voru til ósa Mackenzie- fljóts og norðurhéraða Alaska Sá leiðangur var farinn á árun- um 1906 og 1907. og var til- gangurinn að framkvæma mannfræðilegar rannsóknir á Eskimóunum, sem árna búa. Þar sem skip það, er átti að sækja Vilhjálm og leiðangur hans, komst ekki á staðinn vegna hafíss, hafði hann vetur- setu hjá Mackenzie-Eskimóum, og gafst honum með því ágætt tækifæri til að rannsaka tungu þeirra og lifnaðarhætti. Næsta heimskautsleiðangur fór hann ásamt gömlum skóla- bróður frá Iowaháskóla, dr. Rudolph M. Anderson. Stóð sá leiðangur frá 1908 til 1912 og var þá farið til héraðanna um- hverfisParry-höfða, Krýningar flóa og Viktoríueyju. Lengsti leiðangurinn. I Ieiðangri þessum, sem kostaður var af Náttúrugripa- safni Bandaríkjanna og Kanada stjórn, gerði Vilhjálmur þá merkilegu uppgötvun, að á Viktoríueyju byggju ljóshærðir Eskimóar. Vísindamenn tóku frásögn hans af þessu með nokkurri varúð, en þetta var síðar staðfest af öðrum leið- öngrum, og kenning Vilhjálms um, að Eskimóar þessir væri afkomendur norrænna land- könnuða, sem komið hefðu til heimskautshéraðanna frá Græn landi, hlaut almenna viður- kenningu. Meðan á þessum leiðangri Framhald á bls. 10. m j i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.