Vísir


Vísir - 13.02.1963, Qupperneq 7

Vísir - 13.02.1963, Qupperneq 7
V í S IR . Miðvikudagur 13. febrúar 1963. 7 Geislar frá gerfisólum í skammdeginu sjáum við lítið til sólarinnar góðu, hún skín sjaldan og stutt í hvert skipti. Við erum fölar og veiklulegar í útliti og því ekki nema eðlilegt að við reynum að bæta úr þessu með gerfisólum - en hvað eru gerfisólimar og hvaða gagn gera þær? Sérhver sólargeisli, sem á okkur skín, er samansettur úr mörgum mismunandi geislateg- undum. Tvær þeirra geislateg- unda eru sérstaklega mikilvæg- ar fyrir heilbrigði og fegurð mannsins: ultrafjólubláu og infrarauðu geislarnir UV og IR). Báðar þessar geislategundir má framleiða á tæknilegan hátt: hina ultrafjólubláu með kvarz- brenni og hina með infrarauð- um lampa. HVERNIG VERKA ULTRA- FJÓLUBLÁU GEISLARNIR? Ultrafjólubláu geislunum er skipt eftir öldulengd. UV-A eru langbylgjugeislar, UV-B eru miðbylgjugeislar og UV-C eru stuttbylgjugeislar. UV-A breyta litarefnum húðarinnar þannig; að húðin verður brún, UV-B efla myndun litarefnanna og valda því að húðin flagnar. UV-C gera húðina rauða, ef þeir eru látnir skína of lengi á hana. UV-B og UV-C hafa þannig eng ar beinar fegurðarverkanir. Aft- ur á móti efla þær mótstöðu líkamans gegn sjúkdómum, haida efnaskiptunum í líkaman- urh réttum og mynda D víta- mín í líkamanum, en það er mjög mikilvægt fyrir myndun beinanna. I flestum lömpum eru UV-A, -B og -C geislar settir saman á ákveðinn hátt en einnig eru til lampar. þar sem hægt er að stjórna magni hverrar geisla- lengdar. Hvernig verka infrarauðu geislamir? f flestum kvarzlömpum er infrarauður lampi, sem hægt er að nota einan eða með UV geislum. Infrarauðu geislarnir eru mjög heitir og efla blóð- rásina. Þeir lækna einnig ýmis konar bólgur og lina sársauka. Eru geislamir óskaðlegir? Þeir, sem þola eðlilegan sól- bruna, þola yfirleitt einnig UV geisla. Það mikilvægasta er að- eins að kunna að fara rétt með þá og Iáta ljóstímann í hvert skipti fara eftir gerð húðarinn- ar. Það verður að gæta mikillar varúðar, ef háræðarnar eiga til að víkka mikið, þar sem UV geislarnir og einkum þó infra- rauðu geislarnir örva blóðrás- Verður maður brúnn af UV geislum? Hvort maður verður dökk- brúnn, ljósbrúnn eða alls ekki brúnn er komið undir húðinni. Hjá sumum verka geislarnir sterkt á litarefnin, hjá öðrum lítið eða alls ekkert. Ef þið ætlið að kaupa ykkur ljóslampa aðeins í þeim tilgangi að verða brúnar, skuluð þið fyrst fá lán aðan Iampa eða fara í Ijós á snyrtistofu og sjá hvaða áhrif Ijósin hafa á húð ykkar. Þar að smyrja líkaman fyrir ljósböð? Ef húð ykkar er viðkvæm berið þið á hana verjandi krem — alls ekki næringarkrem — og nuddið því vel inn. Ef húðin er mjög feit er óþarfi að smyrja hana. Augun verjið þið bezt með tveimur bómullarhnoðrum, sem þig festið við augnlokin með kremi. Þetta á að vernda augun alveg eins vel og gler- augu en kosturinnn er sá að hér losnið þið við hvítu rendurn ar í kring um augun. Ef þið notið aðeins infrarauða geisla (ekki UV) er óþarfi að verja húðina og augun sérstaklega. Hve oft má fara í Ijósböð og hve lengi i hvert skipti? Þið byrjið með hálfa mínútu og lengið tímann um hálfa mín- útu í hvert skipti. Um leið og þið finnið, að húðin er farin að stríkka eða roðna stanzið þið við þann tíma, sem þið þol- ið bezt. Það er alls ekki hægt að gefa ákveðna stundaskrá. En fyrir alla muni látið ekki leiðast til að vera of lengi f ljósunum í fyrstu, þótt þið sjáið engan árangur. Hann kemur ekki í Ijós. fyrr en eftir átta klukku- stundir. Tvö UV ljósböð á viku eru alveg nóg. Effir að þið haf- ið tekið 16 Ijósböð (8 vikur hættið þið í 4—6 vikur og byrj ið þá aftur — með hálfa mín- Sitjið ekki of náiægt Iampanum. í leiðarvísinum fáið þið upplýsing- ar um hve langt frá þér eigið að vera. útu ef húðin er viðkvæm en með 1—2 mínútur ef þið hafið þolað vel geislana. Um infrarauða geisla gildir önnur stundaskrá. Þar er óhætt að byrja með 15 mínútna Ijósa- tíma og lengja hann upp í allt að 1 klst. ef þið þolið geislana vel. UV-lampinn, og einnig hinn infrarauði, verður að fá að hita sig í þrjár mínútur því að þá fyrst er afl geislanna full- komið. Þessar upplýsingar um ljós- Iampana eru aðeins almenns eðl is — þið megið ekki láta undir höfuð leggjast að lesa vel leiðar vísinn sem fylgir hverjum lampa. Þar fáið þið að vita hve langt frá lampanum þið eigið að vera o.m.fl., sem nauð- synlegt er fyrir ykkur að vita. Þórarinn við sama heygarðshomið — Ólafur Bjröns son gefur lexíu í hagfræði — einhliða áróður og skrum Framsóknar — um iðnlánasjóð. .ÍOi:':.' Fjölsóttur fundur Sjálf- stæðismanna á Selfossi Sjálfstæðisfélagið Óðinn hafði mjög fjölsóttan stjórnmálafund á Selfossi sl. sunnudag. Aðalræðu- maður fundarins var Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra. Ráðherrann ræddi um árangurinn af viðreisnarráðstöfunum ríkis- stiórnarinnar. rosidiiTÍnn hófst kl. 15 og stóð fram yfir kl. 19, enda voru fjörug- sr umræður eftir aðalræðu ráð- ''errans. Mikill einhugur ríkti á undinum, sem þótti sérstaklega el heppnaður. Þeir, sem tóku þátt '’inum frjálsu umræðum eftir að- 'ðuna voru þeir ^’iðlaugur ason, alþingi .,aður. Sigurður ‘li Ólason, alþingismaður, Óli Þ. Tuðbjöms, kennari, Helgi Jónsson, bankafulltrúi, Gunnar Sigurðsson, Seljatungu, Runólfur Guðmunds- son, smiður. Um 100 manns sóttu fundinn. Sjálfstæðismenn á Suðurlandi halda annan fund nk. sunnudag, að Flúðum í Hrunamannahreppi. Þar talar Ingólfur Jónsson, ráð- herra og ræðir um landbúnaðar- mál. Þingmenn og frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins f Suðurlands- kiördæmi mæta á fundinum. Þá er ákveðið að haldinn verði fundur S’álfstæðismanna á Eyrarbakka og S'okkseyri, 24. febrúar. Þar munu Tnnólfur fóp-son. Sieurður Óli Ólason og ’uðlaugur Gíslason flytja ræður. í;S" jgnn þá hélt umræðunum um áætlunarráðið áfram f gær, umræður, sem frekar mætti kalla almennar stjórnmálavanga veltur. Hingað til hefur málflutn 'ng^ir^-Ou.ræður manna einkum rl'™^.l»Íl,?ílatusarþvott Þórar- ins Tímaritstjóra og afneitun hans á kommum. Einar Olgeirsson notaði ræðu tíma sinn, eins og rakið hefur verið hér áður til að minna Framsókn og Þórarinn á fyrri samskipti þeirra við sósialista og opinberaði jafnframt hið á- nægjulega samstarf sem verið hefur á milli þessara tveggja flokka í núverandi stjórnarand- stöðu. Þórarinn fékk orðið aftur í gær, og var þá sannarlega ekki búinn að ljúka sér af um þetta umræðuefni. Endurtók hann enn fyrri ummæli sfn og Tímans um lengri vinnutíma nú en nokkru sinni fyrr, um versnandi afkomu og álasanir sínar á hendur Sjálf stæðisflokknum fyrir að reyna breiða yfir samstarf sitt við kommúnista. „Það er einhver mesti hræsnisleikur í íslenzkum stjórnmálum, einstæð og stór- kostleg hræsni“. Því næst vék Þórarinn tali sínu að kommúnistum og ásak- aði þá um samvinnu við íhalds- öflin. Hann kvað Einar Olgeirs- son og hans fylgismenn vera stærstu svikarana í kjarabar- áttu verkalýðsins, því þeir hefðu hvað eftir annað svikizt undan merkjum og haft samvinnu við auðvaldið. Ef þeirri samvinnu hefði ekki verið til að dreifa og pólitík Einars hefði ekki verið eins sterk og raun ber vitni, þá væri verkalýðurinn betur á vegi staddur. Hann viðurkenndi að Fram- sóknarflokkurinn hefði stundum verið á móti kauphækkunum, þvi það væri hans stefna, að kaupgjald mætti aðeins þá hækka, þegar atvinnuvegirnir stæðu undir þeim hækkunum. Þær hækkanir sem ekki eru raunhæfar koma að engu gangi, sagði hann. Takmarkið ætti þvi einnig að vera að bæta önnur kjör, svo sem með lækkun vaxta og lengingu lánstíma. ICvað Þór arinn þessi tvö síðast nefndu atriði vera ein höfuð baráttumál Framsóknar. JJar hann þá að sama brunni og kollegar hans halda sér við í efri deild þar sem á dag- skrá er þessa dagana, Stofnlána deild landbúnaðarins. Eins og getið var um hér í gær, leggja þeir þar til að vextir á lánum verði lækkaðir. Ólafur Björns- son gaf þeim Framsóknar- bændum enn lexíu í hag- fræði varðandi vexti. Með lækkun vaxta, sagði Ólafur, dregur úr sparifé, þá minnkar fé i bönk- um, með öðrum orðum, minna er hægt að lána út. Það er því til lítils að lækka vexti til hvers sem vera skal, ef ekki er hægt að útvega fé. Bændur eru litlu bættari, þótt vextir verði lækk aðir ef engin fjármagnsmyndun er fyrir hendi og ekkert fé er tii. Þetta sjá allir heilvita menn. I þessum umræðum leggja Framsóknarmenn einnig til að ríkisstyrkur verði hækkaður, upp í 30 milljónir á ári, og telja það ósanngjarnt að bændur leggi sjálfir fram fé í sína lána- sjóði. Ásgeir Bjarnason (F) sem talaði í gær, hélt því fram í þessu sambandi að bændur borg uðu 2 krónur á móti hverri einni frá ríkinu í stofnlánadeildina. Bjartmar Guðmundsson (S) svaraði þessari fullyrðingu Ás- geirs, kvað hana ranga og vill- andi, og óviðeigandi að Iáta slík ummæli frá sér fara á háttvirtu Alþingi. Bjartmar kvað það rétta vera, að bændur greiddu árlega 8 milljónir á ári til sjóðsins, rík- ið sjálft 4,1 millj., neytendur 5 millj. og 65 milljónir hefðu verið lagðar fram sem stofnfé til 10 ára, svo hlutföll þau er Ásgeir talaði um væru alröng. Þannig kýttu menn um þessi mál, en ljóst er af öllu, að um- ræður og tillögur Framsóknar- manna eru hinar óraunhæfustu og hreinn og beinn einhliða áróð ur og skrum gagnvart bændum, skrum sem enga stoð á, ef litið er almennum, raunsæjum aug- um á þessi mál. j efri deild urðu einnig nokkrar umræður um iðnlánasjóðinn sem getið er um annars staðar í blaðinu. Gagnrýndi Ólafur Jóhannesson (F) þá tilhögun að láta iðnrekendur sjálfa greiða til sjóðsins og sagðist vera á móti þeirri tilhögun að deila sköttum í sjóði og einnig því að þeir sem njóta góðs af sjóðnum skuli sjálfir, látnir greiða í hann Ekki vildi hann þó taka af skar- ið, þar sem hann sæi í greina- gerð að iðnrekendur hefðu sjálf- ir lagt blessun sína yfir frum- varpið. Að öðru leyti studdi hann breytingar þær sem gerðar eru á iðnlánasjóði. Bjarni Benediktsson þakkaði Ólafi stuðninginn og tók undir, að óheppilegt væri að deila sköttum í sjóði. En íann kvað hins vegar erfitt að breyta þess ari tilhögun, hún væri komin á. og mörgum þeim, sem hefðu sér stök áhugamál, fyndist slnu tó betur borgið ef því væri varið beinlínis til þeirra. Eggert Þorsteinsson (A) tó’- einnig til máls og lýsti ánægji sinni með breytingarnar.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.