Vísir - 28.02.1963, Side 13
VlSIR . Fimmtudagur 28. febrúar 1963.
73
Alþingi —
Frh. af 7. síðu:
bygging þverbrautar á flugvel!-
inum í Vestmannaeyjum, hver
yrði heildarkostnaðurinn við
verkið, hve mikið fé væri hand-
bært og að lokum hvenær gert
væri ráð fyrir að verkinu yrði
lokið.
Ingólfur Jónsson kvaðst áætla
að verkinu yrði lokið fyrri hluta
næsta árs, myndi það kosta 5.7
milljónlr. Flugráð væri ekki bú-
ið að ákveða hve miklu fé yrði
veitt í völlinn á þessu ári, en
búið væri að framkvæma fyrir
eina milljón króna. Hér er gert
ráð fyrir 600 metra flugbraut.
Upphaflega var reiknað með að
hún yrði mun lengri, og mundi
kosta um 20 milljónir, en með
kaupum Björns Pálssonar á 16
manna flugvél, sem gæti lent
á 600 metra braut, væri fengin
bráðabirgðaiausn, sem myndi
spara allmikið fé í svipinn, og
gera mögulegt að veita meira
fé en ætlað var í byggingu ann-
arra flugvalla. Mundi sennilega
hefjast samvinna milli Flugfé-
Iags I'slands og Björns Pálsson-
ar, þannig að Björn sendi flug-
vél sína til Vestmannaeyja, þeg
ar flugvélar Flugfélagsins gætu
ekki lent þar.
Guðlaugur Gíslason og Karl
Guðjónsson ræddu þetta mál
einnig. Lagði Guðlaugur áherzlu
á að lokatakmarkið væri löng
flugbratit, sem tryggði betur en
litla brautin öruggar flugsam-
göngur við Vestmannaeyjar.
Jjá var lokið fyrirspurnatíma
þingsins og tekið að ræða
þingsálykt^nartillögur. Sigurður
Bjarnason gerði grein fyrir áliti
allsherjarnefndar um tillögu
nokkurra Sjálfstæðismanna
varðandi hlutdeildar- og arð-
skiptafyrirkomulag £ atvinnu-
rekstri. Lagði nefndin til að mál
inu yrði vísað til ríkisstjórnar-
efnauugin björg
Sólvollagöíu 74. Simi 13237
Barmohlíð 6. Simi 23337
innar í trausti þess að hún fengi
það í hendur milliþinganefndar,
sem gera á tillögur um nýskip-
un launa- og vinnumála, svo að
hún gæti rannsakað málið, jafn
hliða öðrum atriðum varðandi
nauðsyn þess að auka og efla
samvinnu vinnuþega og vinnu-
veitenda.
Síðan mælti Sigurður Bjarna-
son fyrir tillögu sinni og
tveggja annarra þingmanna um
athu^hn á því að bæta sam-
göngur á sjó við Vestfirði. Taldi
hann nauðsynlegt að bæta þær
mikið og gera þær öruggari.
^ður en þingfundi var slitið
deildu Helgi Bergs og Gylfi
Þ. Gíslason viðskiptamálaráð-
herra um tillögu hins fyrr-
nefnda. Fjallaði hún um nauð-
syn þess að hagnýta Suðurlands
síldina með nýjum vinnsluað-
ferðum. Lagði Helgi til að ~ík-
isstjórnin tæki forystu í málinu
og Iéti fara fram rannsókn á því
með hvaða hætti það yrði gert.
"yiðskipatmálaráðherrann
cagði, að rannsóknarefnið
væri fullkunnugt öllum þeim,
sem við sjávarútveg hafa feng-
izt. Það væri vitað hvað þyrfti
að gera, en hins vegar reynzt
erfitt um framkvæmdir, þar
sem markaður fyrir sérunna síld
væri okkur ekki opinn. Sagði
hann að tillaga Helga væri áróð
urstiilaga, varla þinghæf, og
færði ráðherrann sínar ástæður
fyrir þeirri skoðun. Jafnframt
benti hann á, að Helga Bergs
ætti að vera fullkunnugt um, rð
erfitt er um vik 1 þessu máli,
enda hefði fyrirtæki það, sem
hann starfaði við, og væri einn
af forstjórum fyrir, Samband
íslenzkra samvinnufélaga, gjör-
samlega svikizt um að gera það,
sem því bar til að efla síldar-
iðnaðinn.
Upplýsti ráðherrann, að SÍS
hefði fengið tilboð frá sænsku
samvinnufélöguriutn kð' áð þau
skyldu aðstoða SÍS við að koma
upp einni eða tveimur fullkomn
um niðursuðuverksmiðjum hér-
lendis. Hins vegar hefði SÍS
hafnað boðinu, þar sem það
taldi ekki hagnaðarvon af fyrir-
tækinu.
Annað dæmi nefndi ráðherr-
ann í sambandi við rekstur SÍS
á reykhúsi SfS í Hafnarfirði. —
Sagði hann að þar væri aðeins
reyktur áll, þótt SÍS hefði gert
litla tilraun með reykingu síld-
ar og aðeins flutt út hálfa tunnu
af þessarri framleiðslu.
PóSsk viðskipti:
Innflytjendur
Nýtt fjölbreytt sýnishorn af
Málfundafélagið Óðinn
BARNASKEMMTUN
TÓNABÍÓI n.k,
Kvikmyndasýning verður í
sunnudag 3. marz kl. 1.15 e. h. fyrir börn
félagsmanna.
Ókeypis aðgöngumiðar verða afhentir í skrif-
stofu félagsins í Valhöll við Suðurgötu, föstu-
dagskvöld kl. 8,30—10,00 — Sími 17807.
Útsala — Útsala
á kjólum. Stærðir 38—46. Einnig fermingar-
kjólar í dag og á morgun.
KJÓLLINN
Þingholtsstræti 3.
Helgi taldi ómaklegt að blanda
SÍS í málið, en viðskiptamála-
ráðherra svaraði því til að Helgi
hefði sjálfur gefið tilefni til þess
í greinargerð sinni með tillög-
unni, en þar hafi hann reynt að
færa lof á SÍS fyrir eitthvert
brautryðjendastarf £ umræddum
efnum. Staðreyndirnar töluðu
hins vegar öðru máli.
Með þessum orðaskiptum
lauk umræðunum á Alþingi £
gær.
Byggður úr Þykkara body-stáli en almennt gerist. —
Ryðvarinn — Kvoðaður _ Kraftmikil vél — Fríhjóla-
drif. — Stór fanangursgeymsla — Bifreiðin er byggð
með tilliti til aksturs á malarvegum, framhjóladrifin.
VERÐ KR.: 150.000,00.
Með miðstöð, rúðusprautum, klukku í mælaborði o. fl.
Fullkomin viðgerðarþjónusta. Nægar varahlutabirgðir.
Sveinn Björnsson & Co.
Hafnarstræti 22 — Sími 24204.
Leikdómur —
Framhala af bls. 9.
Kristbjörg Kjeld nýtir vel hið
litla hlutverk hinnar geðveiku
eiginkonu Ögmundar en Bryndis
Pétursdóttir hefði gjarnan mátt
sýna meiri kraft og átök i túlk-
un sinni á hinni aumkunarverðu
skrifstofustúlku. Önnur hlutverk
eru enn smærri ög gefa tæpast
tilefni til sérstaks umtals.
jþað eykur enn á skort höfund-
ar á hnitmiðun hve auka-
hlutverkin eru mörg á móti einu
stóru hlutverki. Þarna vantar
mótvægi til þess að skapa meiri
spennu £ leikinn. Hefði verið
betra að reyna að fækka þeim
og stækka önnur i þeirra stað.
Hjördfs hefði til dæmis getað
skapað mótvægi gegn Ögmundi
ef hlutur hennar hefði verið
meiri og skýrar markaður. Með
nokkrum breytingum af þessu
tagi hefði áreiðanlega mátt bæta
Ieikritið og hleypa í það auknu
lífi. Einnig hefði mátt reyna að
fækka atriðum en lengja önnur
til að ná meiri heildarsvip £
verkið.
Leiktjöld Gunnars Bjarnason-
ar voru yfirleitt smekkleg,
kannski helzt til losaraleg. Beit-
ing Ijósa var víða góð, einkum f
atriðunum i klettaborginni.
Njörður P. Njarðvík.
BOKAMARKAÐUR
bómullormetravöruiin
hefur borizt oss frá fa. Cet.ebe, Lódz.
Hagstæð verð, skjót afgreiðsla.
Fulltrúi frá Cetebe (bómullarvörudeild) er ný
kominn til landsins og verður til viðtals á
skrifstofum vorum næstu daga.
Sslenzk- erlenda verzlunarfélagið hf.
Tjarnargötu 18.
Símar 20400 og 15333.
Bókamarkaðurinn í Listamannaskálanum,
stærsti og fjölbreyttasti bókamarkaður,
sem haldinn hefur verið. — Fjöldi fágætra
bóka, sem ekki hafa verið á boðstólum
lengi. — Hundrað bóka með 50—70% af-
slætti frá gamla verðinu.
EINSTAKT TÆKIFÆRI.
BÓKAMARKAÐUR
Bóksalafélags íslands, Listamannaskálanum