Vísir


Vísir - 05.03.1963, Qupperneq 4

Vísir - 05.03.1963, Qupperneq 4
4 VisIR^Þriðjudagui; 5. marz 19G3. iSi ★ Sagt frá samtali við ORSON WELLES V TJann er einn frægasti og sér- 1 kenniiegasti maöur sem nú er uppi. Hann er heimsfrægur sem kvikmyndaleikari, hvað eftir annað hefur hann siegið í gegn, vakið svo mikla athygli, að allir töiuðu um hann. Hven ær sem hann birtist á kvik- myndatjaldinu þekkja allir hann jafnskjótt, þennan þunga risavaxna, skapríka mann. Oft- ast kemur hann snögglega inn i kvikmyndina og það fer gustur um salinn, en áhorfendur halda niðri f sér andanum. 1 Hann heitir Orson Welles. Hann var ungur að árum, þeg- ar hann skelfdi öll Bandarikin með útvarpssendingu sinni um innrás Marzbúa á jörðina. Síð- ar sló hann í gegn í kvikmynda heiminum með kvikmynd sinni „Citizen Kane“. Seinni kvik- myndir hans hafa allar borið einkenni áhrifamikils leiks. Þær hafa verið sýndar um allan heim við geysilega aðsókn og það er haldið áfram að sýna þær í kvikmyndaklúbbum þar sem kvikmyndirnar eru klass- ískar. Flestar kvikmyndir hans fá á sig þennan klassíska blæ. Við munum eftir honum sem Rochester í Jane Eyre, sem Cagliostro í Svartagaldri, mál- flutningsmanninum í Compulsi- on, sem .Þriðja manninum“, sem prédikarinn i Moby Dick og ótal fleiri hlutverkum. Tjrátt fyrir frægðina og snilld- ina hefur Orson Welles aldrei verið sérstaklega ríkur, eða þó hann hafi verið ríkur hefur hann verið fljótur að eyða fé sfnu og átt niðurlæg- ingarstundir. Orson Welles hefur ekki kunnað að fara með fé. Hann Móðir mín var fyrsti kennari minn. Ég gekk aðeins þrjú ár í heimavistarskóla. Þar bældi latínan mig niður og algebran sigraði mig. En ég átti foreldra sem elskuðu mig og dáðu. Mamma var fræg fegurðardís hún tók þátt í stjórnmálabar- áttunni, hún var meistari í riffilskotkeppni og hélt opin- bera píanótónleika. Þegar ég var barn er ég hræddur um að ég hafi verið einn af þessum vesalingum sem kallaðir hafa verið undrabarn. Ég stóð fyrir framan hóp tónlistarmanna sem komu f heimsókn til okkar og stjómaði kamme'rtónleikum í stofunni. Þar að auki lék ég bæði á píanó og fiðlu, hafði krullað hár og var klæddur eins og listamaður, svo þér getið ímyndað yður, að mér leið ekki vel. Svo dó manna þegar ér var átta ára og síðan hef C, ekki leikið á hljóðfæri. Faðir minn var lífsglaðui maður, sení þóttíst vera upp- finningamaður. Hann ferðaðist um allan heiminn og tók mig með í ferðalög. Þessi ferðalög urðu aðalorsök þess, hvað menntun mín varð gloppótt. 'É’g var f írlandi, þegar ég hóf leikferil minn. Faðir minn hafði dáið gjaldþrota, þetta var á kreppuárunum og ég sigldi til Englands og ætlaði að gerast listmálari. Það var stærsta ósk mín f lífinu. Ég hafði hundrað dollara í vasanum. En ég komst ekki til Englands. Skipið kom við í Galway á írlandi og þar fór ég í land, vegna þess að sólarlagið var svo fallegt. Svo eyddi ég mestúm hluta höfuð,- stófslhs í áð kaupa mér asna og vágn og eyddi sumrinu í Orson Weilés tekur vlndilinn út úr sér og segir: LÍstámáðurinn á ekki heimtingu á hamingju, aðeins ánægju. Kvöl að horfa á eigin kvikmynd hefur eytt því í alls kyns von- laus fyrirtæki. Nú sem stendur er hann þó vel stæður, eftir hinn góða árangur í kvikmynd inni „The Trial“, sem fjallar um réttarhöld yfir saklausum manni. Þessi velgengni upp á síð- kastið hefur lægt skap hans og gert hann- Ijúfari. Sennilega hef ur það haft sfn áhrif á það, að Orson Welles fékkst nú fyrir nokkrum dögum til að gefa eitt af fyrstu blaðasamtölum sínum. Hann var þá staddur í hinu glæsilega Ritz-hóteli í London, þegar blaðamaður Sunday Times kom og talaði við hann. Fara h.ér á eftir nokkr ir kaflar úr samtalinu: — lVf’g langar fyrst til að Aspyrja hvort kvikmynd- in Citizen Kane hafi verið eins konar sjálfsævisaga yðar? — Nei, alls ekki, svaraði Or- son. — Ég skil ekki hvernig sú hugmynd getur komið upp og orðið svo sterk. Kane var fædd ur fátækur, ég var fæddur rík ur en varð fátækur á sama skeiði lífsins og Kane varð rfk- ur. Æska hans var einmanaleg og hann naut engrar ástar. Mín æska var alveg öfug við það, full af umhyggju foreldranna. ferðalög um landið. Ég svaf undir vagninum á næturnar og málaði Irland á daginn. En daginn tók að stytta og nóttina að kólna og ég kom til Dublin. Ég átti aðeins eftir síð ustu skildingana en ég hugsaði með mér, að það þýddi ekkert að vera að spara þá, bezt að gera sér glaðan dag, svo ég fékk mér dýran kvöldmat og fór í Gate-leikhúsið. Þar þekkti ég aftur einn statistann í leikrit inu.hafði kynnzt honum á Aran eyjum um sumarið. Eftir leik- sýninguna fór ég til búnings- herbergjanna og hann kynnti mig fyrir forstjóranum Hilton Edwards. Áður en ég vissi af var ég farinn að biðja um vinnu en ekki sem statisti. Ég sagði honum að ég væri frægur á Broadway og kvaðst reiðubúinn að koma fram sem gestaleikari. Það kemur ekki til mála að hann hafi trúað þessu öllu, en hann var svo kurteis, að hann lét sem hann tryði því og ég var settur í aðalhlutverk. Þann- ig byrjaði ég sem stjarna. — XTvernig líkar yður sjálf- Aum við kvikmyndir yðar? —Ég hef ekkert dálæti á mínum eigin kvikmyndum. Og ég get ekki sagt að ég haldi sérstaklega upp á neina þeirra. Meðan ég er að vinna að kvik- mynd snýst allur hugurinn um hana og ég hef sterka tilfinn- ingu til hennar, en ekki þegar kvikmyndagerðinni er lokið. Ég mæti ekki á frumsýningum. Ég fór til Parísar daginn áður en frumsýningin var á „Réttarhald inu“. Ég hef sjaldan séð kvik- myndir mínar í kvikmynda- húsi innan um aðra áhorfend- ur. Það er mikill munur á kvikmynd og sviðleik. í leik ritinu er hægt að breyta leikn- um fram á síðustu leiksýningu. En kvikmyndin, strax og henni ■ er lokið, þá er henni lokið. Kvikmynd er aldrei endur- skoðuð. Það er hreinasta kvöl að sitja í kvikmyndahúsi og sjá vélræna endurtekningu á verki sínu, verki sem aldrei verður hægt að breyta. Og á meðan sýna viðbrögð áhorfandanna manni, hvað hefði mátt betur fara, en þá en engu hægt að breyta. Tjað sem mér líkar bezt við kvikmyndirnar er hvað á- horfendahópurinn er stór. Það er varla hægt að ímynda sér hvað hann er stór eða hver viðbrögð hans verða. Og það er kannski það bezta. Þegar maður er á leiksviðinu finnur maður andann frá áhorfenda- hópnum hverju sinni og maður verður að miða leik sinn við á- horfendurna Slíkt er þýðingar- laust í kvikmyndum. Þess vegna þýðir ekkert að gera kvikmyndirnar fyrir áhorfenda- hópinn, heldur verður maður^ frjáls og gerir kvikmyndina fyrir sjálfan sig. Það er mikil blesspn og ég geri kvikmyndir einmitt fyrir sjálfan mig. Það þýðir ekkert að ætla sér að setja kvikmynd á svið eins og leikrit. Ég byrja með mynd- unum, ég sé kvikmyndina fyrir mér, orðin koma seinna. Tjá var Orson Welles spurð- ur hvaða leikstjóra og leik- ara honum hefði líkað bezt við. — Ég á nú ekki auðvelt með að svara þessu, því að ég fer mjög lítið í kvikmyndahús. Áður en ég fór að leika f kvik- myndum horfði ég oft á kvik- myndir, nú nýt ég þeirra ekki, vegna þess, að allt sem miður fer vex mér í augum. Ég er slæmur áhorfandi, því miður. En það var dásamlegt að vinna með Carol Reed við „Þriðja manninn“. Hann er sjaldgæfur leikstjóri sem elskar kvikmyndavélina en vjll þó að leikararnir leiki. Bresson hatar leikarana en fær samt alltaf mikið út úr þeim. Fáir eru eins heiðarlegir og hann. Sumir hinna miklu leikstjóra eru of framandi fyrir mig svo sem Ingmar Bergman og Antonioni. Ég veit að þið dáðust að kvik- mynd Antonionis „L’Awen- tura“ en ég hataði hana. Kvikmyndaleikur er annars ' furðulegt fyrirbæri. Það er eins og kvikmyndavélin myndi sér eigin skoðun. Henni geðjast að sumum leikurum, en starir köld um augum á aðra. Jþegar kvikmyndavélin verður ástfangin fæðist mikil kvikmyndastjarna og þær eru mjög fáar. Spencer Tracy, James Cagney, Gary Cooper, James Dean, Marlene Dietrich og Marilyn Monroe voru ekki endilega góðir leikarar, en þau voru stjörnur. Flestar kvikmyndir Gretu Garbo stóðu f járnum með að borga sig, en þó var hún mesta kvikmyndastjarna sem nokkurn tímann hefur verið uppi. — Jþér hafið tekið þátt í stjórnmálabaráttunni í Frh. á bls. 13. .

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.