Vísir - 05.03.1963, Síða 5
)
VÍSIR . Þriðjudagur 5. marz 1963.
Kvenfólk í meirihluto
á hjónabandsnúmskeiði
S. 1. sunnudag voru fluttir í
Hagaskólanum tveir fyrstu fyrir-
lestramir i crindaflokki Félagsmála
stofnunarinnar, um fjölskylduna og
hjónabandið. Fyrirlestramir verða
alls 10.
Visir hafði samband við forstöðu
mann Félagsmálastofnunarinnar,
Hannes Jónsson félagsfræðing, og
innti hann eftir ýmsu í sambandi
við námskeiðið.
— Ég er mjög ánægður með
þessa byrjun, sagði Hannes, og
mér finnst hún lofa fremur góðu
um framtiðina. Tilgangurinn með
Þ*ssum erindum er að veita fólki
haldgóða fræðslu um sem flesta
þætti hjónabands og hjónalífs, við
heilbrigðar aðstæður. Eins og ráða
má af nöfnum þeirra manna, sem
flytja þessi erindi, er mikið til
þeirra vandað. Þeir eru meðal
þekktustu manna hver í sinni grein
og er Félagsmálastofouninni mikill
fengur i að hafa þá til samstarfs.
Um 300 manns sækja nú þessi
námskeið, og er mikill hluti þess
ungt fólk. Athyglisvert er, að kven
fólk er í nokkrum meiri hluta, og
eru hlutföllin núna um einn á móti
tveimur. Ef áhuginn fyrir þessari
fræðslu reynist áframhaldandi,
sagði Hannes, mun áreiðanlega
ekki standa á Félagsmálastofnun-
inni að halda áfram. Ég er mjög
þakklátur borgarstjóra, Jónasi B.
Jónssyni, Ara Þórðarsyni skóla-
stjóra, og menntamálaráðuneytinu,
en þessir aðilar hafa veitt ómetan-
lega aðstoð í sambandi við hús-
næðisvandamálið, sagði Hannes að
lokum.
2 miMj. króna árlegt ríkis-
framlag vegna landakaupa
Það kom fram á Alþingi I
gær, að allir kaupstaðir lands-
ins, að Keflavík undanskilinni,
eiga sjálfir viðunandi landrými
innan bæjartakmarkanna, en
mörg kauptún eiga lítið eða ekk
ert af þeim landsvæðum, sem
þau hafa byggzt á.
Þetta háir mjög skipulagn-
ingu og framkvæmdalífi margra
kauptúnahreppa. Athafnasvæði
og íbúðarsvæði margra þeirra
eru f einkaeign og þessar land-
spildur hafa stórhækkað 1 verði
vegna uppbyggingar, sem þar
hefur orðið, svo að það er dýrt
að kaupa og lóðaleigan einnig
mikil til jarðeigendanna. Sama
er að segja um einn kaupstað^
landsins, Keflavik. Mestallt bæj
arlandið er í eigu einstaklinga
og fyrirtækja. Ríkisstjórnin hef
ur nú borið fram á Alþingi frum
varp um ríkisaðstoð við kaup-
staði og kauptún vegna lahda-
kaupa og fylgdi Emil Jónsson
félagsmálaráðherra því úr hlaði
í gær.
í frumvarpi þessu er gert ráð
fyrir að ríkissjóður leggi fram
tvær milljónir króna árlega
næstu 10 árin og láni kaupstöð-
um og kauptúnum þetta fé til
að standa straum af nauðsyn-
legum landa- og lóðakaupum.
Lána má allt að 60% af kaup-
verði landanna til 25 ára með
aðeins 5% vöxtum. Ráðherrann
skýrði frá því að tekið hefði
verið á fjárlög yfirstandandi árs
fyrsta framlagið í þessu skyni,
tvær milljónir, og hefði þetta
fé þegar verið ætlað Þórshöfn
á Langanesi með lagaheimild
frá 1941. Einnig upplýsti hann
að Grindavikurkauptún fengi að
stoð næsta ár og nefndi nokkur
kauptún, sem myndu æskja og
þarfnast sams konar aðstoðar á
næstu árum, meðal þeirra Sand
gerði, eða Miðnesjirepp, Patreks
fjörð og Súðavík.
Eirmynd af dr. Birni á Keldum
S. 1. sunnudag var afhjúpuð eir-
mynd af dr. Birni Sigurðssyni,
fyrst#. forstöðumann Tilraunastöðv
arinnar á Keldum. Eins og kunnugt
er, lézt dr. Bjöm fyrir nokkrum
árum, en hann hefði orðið fimmtug
ur þennan dag. Styttan var afhent
í tilraunastöðinni, og gerði það Páll
A. Pálsson yfirlæknir. Viðstaddir
athöfnina voru menntamálaráð-
herra, Gylfi Þ. Gíslason, fjölskylda
Björns heitins og samstarfsmenn
hans og vinir.
Dr. Björn Sigurðsson vann is-
Búnaðarskóli —
Frh. at 7. síðu:
'efstir á blaði. Keldur og Gufu
nes eru með sínar rannsóknar
stofur og stóriðju tengd bún-
aði okkar það nánum böndum
að slíkt gæti ekki talizt óæski-
legt nábýli.
Hafa má það og í huga að
skammt er til Reykjavíkur til
að hafa gott gagn af söfnum
og fræðslustofnunum, og ráðu-
nautar í sérgreinum landbúnað-
arins eru að jafnaði staðsettir
í Reykjavík yfir vetrarmánuð-
lna og teldu þeir trúlega ekki
eftir sér, að hafa náin sambönd
við slíka skólastofnun rétt utan
við bæinn.
Er þetta ekki uppástunga
sem vert væri að taka til at-
hugunar nú, þegar þessi mál
eru tekin til yfirvegunar af Al-
þingi? H. J.
Peningar — !
Framhald -.1 bls. I.
fram við hana svo unnt sé að j
koma peningunum til skila.
Áþekkt atvik kom fyrir vestur
á Hringbraut í vikunni sem leið,
er ökumaður bifreiðar fór út úr
henni, að hann missti veski sitt
allt í einu úr vasa sínum og seðl-
arnir tvístruðust að því búnu eins
og fjaðrafok í allar áttir. Sjálfur
náði hann nokkru af fjármunum
sínum aftur, en krakkar í nágrenn-
inu hófu ákafa leit að peningun-
um. Hvort þau hafa fundið nokk-
uð af þeim eða ekki veit blaðið
ekki, og heldur ekki hve þarna var
um háa fjárhæð að ræða.
LEIÐRÉTTING
í lýsingu á skákeinvígi þeirra
Friðriks og Inga I VIsi i gær slædd
ist inn villa. í 11. leik stóð: Ra4,
Rd6, en á að vera Ra4, Bd6.
lenzkum landbúnaði ómetanlegt
gagn með frábærum störfum sín-
um og nægir I því sambandi að
nefna bóluefnið við garnaveiki,
sem hann fann upp. Björn var og
einn af þeim fáu íslenzku vísinda-
mönnum, sem hafa skapað sér
nafn á alþjóðavettvangi á sviði
vlsindamála.
Pósturinn —
Framhald af bls. 16.
að að bera einu sinni út I hverfi,
og sjá um tvö hverfi á dag. Jafn-
framt er ætlazt til þess eins og áð-
ur að bréfberinn taki að sér eftir-
vinnu.
Nú telja bréfberar hins vegar að
þeim sé ekki skylt að bera út nema
I eitt hverfi á dag, öll önnur vinna
sé aukavinna, og beri þeim að fá
aukalega greitt fyrir hana. Póst-
stjórnin telur aftur & móti að það
nái ekki nokkurri átt að hún geti,
ekki ráðið því I hvaða hverfi bréf-
beramir fara I föstum vinnutíma
sínum. Er nú mikið rifrildi upp ris-
ið, og hefur póstmálaráðherranum
verið blandað I málið, en hann er
Ingólfur Jónsson, og vilja bréfber-
arnir að hann úrskurði I málinu.
Hefur ráðherrann ákveðið fund
með bréfberum f fyrramálið.
Póst- og símamálastjóri og póst-
meistarinn I Reykjavlk sögðu Vísi
I morgun að það væri alis ekki
verið að leggja aukna vinnu á bréf-
berana með þessu móti, hvorki að
þeir yrðu að fara lengri vegalengd,
bera meira ,eða yfirieitt leggja á
þá meira starf en áður.
Forföll em mikil meðal bréfbera
vegna inflúenzu. Voru átta veikir
' gær og alls ekki nægilega margir
-eiðubúnir til að taka að sér eftir-
vinnu, þannig að hægt væri að
Ijúka bréfburði fyrir kl. 21, eins og
nauðsynlegt er til að þjónustan
geti a. m. k. verið viðunandi I
slíkum veikindatilfellum. Þess
vegna hefur hið nýja fyrirkomulag
verið ákveðið. Telja póst- og síma-
málastjóri og póstmeistarinn frá-
Ieitt að bréfberar þurfi aðeins að
bera út I eitt ákveðið hverfi á dag
og að ekki megi skikka þá til að
fara I önnur hverfi. nema greiða
aukalega fyrir. Það sé alltaf verið
að flytja bréfbera milli hverfa og
láta þá bera út I hverfi heirra, sem
verða veikir og geta ekki sinnt
þvl. Engir bréfberar eru á byrjun-
arlaunum, heldur byrja ])eir yfir-
leitt með laun þeirra, sem hafa
tr
Islnnds
stofnnr blnðnnefnd
starfað I þrjú ár, og eru langflestir
bréfberar á hámarkslaunum, sem
eru rúmar 5100 krónur. Eftirvinnu-
Iaun bréfbera voru I janúar og
febrúar samanlagt frá 1000 upp I
4500 krónur. Ekki er gert ráð fyrir
að aukavinna minnki verulega við
hina nýju skipan mála.
Þá er þess að geta I sambandi
við þetta nýja fyrirkomulag, að
ákveðið hefur verið að bréfberar
verði að koma á Póststofuna og
stimpla sig út eftir hvem vinnu-
dag, þótt þeir hafi verið að auka-
vinnu úti I bæ, en það hefur ekki
verið nauðsynlegt fyrir þá hingað
til. Hafa þeir þá getað farið heim
eftir að hafa Iokið bréfburði og
skrifað eftirvinnutlmann sjálfir.
Samningar —
Framhala at hls 1
í tilboði rikisstjórnarinnar var
gert ráð fyrir 25 flokkum, en I
tillögum BSRB 31 flokki. Þeir
eru nú 14. Eftir er nú að raða
I hina nýiu launaflokka og verð
\ ur bað væn'onlega næst.a verk-
efni samnin^anefndanna.
Ekki hafði verið ákveðið I
morgun hvenær næsti sanininga
fundur verður haldinn.
HnHBastnHnBH
Við fáa aðila þurfa dagblöðin að
hafa jafnmikil samskipti og við
lækna. Daglega niá heita að blöðin
leiti frétta f sjúkrahúsum og hjá
einstökum læknum og þá ekki síð-
ur hjá yfirmönnum heilbrigðisþjón-
ustunnar, bæði borgarlækni og
landlækni.
Hins vegar hefir blöðunum oft
þótt nokkuð á skorta að sjúkrahús
og læknar gæfu að þeirra dómi
nógu ítarlegar upplýsingar. Læk'n-
ar hafa aftur vitnað til laga um
lækningar, en þar er þeim lögð ó
hendur þagnarskylda um einkamal
sjúklinga sinna og einnig I eiðstaf
þeim, sem allir læknar undirrita,
er þeir ljúka prófi.
Til þess að auðvelda samvinnu
biaða og lækna hefir Læknafélag
íslands nú stofnað sérstaka blaða-
nefnd. Hlutverk hennar er að veita
blöðum upplýsingar um það sem
fréttnæmt þykir á sviði læknis-
fræði og vera þeim til ráðuneytis
um skrif um slík efni. Formaður
nefndarinnar er prófessor Kristinn
Stefánsson, en aðrir nefndarmenn
dr. Jón Sigurðsson borgarlæknir og
Magnús Ólafsson iæknir. Innan
Læknafélags Reykjavíkur hefir
; svipuð nefnd starfað nokkra hrlð.
Er tilgangur nefndanna að koma
samskiptum lækna við blöðin á
fastari grundvöll og má þvl segja
De Gaulle —
Framhald af bls. 16.
að tveir OAS-leiðtogar, sem þar
leituðu hælis eftir misheppnuðu
byltinguna í Alsír 1961, hafi verið
reknir þaðan. Var þeim stungið inn
I flugvél, sem var að fara til Suð-
ur-Ameríku, og fengu fréttamenn
ekki að tala við þá. Annar ætlaði
til Buenous Aires, hinn til Ascunc-
ion I Paraguay.
Brezka sjónvarpið hefir birt við-
tal við Georges Bidault, Ieiðtoga
leynihreyfingarinnar gegn Dc
Gaulle, og hefir það vakið mikla
gremju I Frakklandi, að „þannig
skuli hafa verið lyft undir hreyf-
ingu, sem hefir það að markmiði,
I að myrða De Gaulle“, eins og kom
izt var að orði I París af opinberri
hálfu.
Ennfremur var sagt, að Bidault
færi huldu höfði erlendis — „liði
sem vofá landa milli“ o.s.frv. —
Sjálfur sagði'Bidault I útvarpinu,
að samtökin „hefðu ekki á dag
| skrá að myrða De Gaulle",
að þær eigi fyrir höndum nauð-
synjastarf.
Hæsti turn —
Framhald af bls. 1.
kemur, sagði séra Jakob, er að
halda áfram að steypa upp
veggi aðalkirkjuskipsins og
koma þeim undir þak en jafn-
framt yrði kórinn að byggjast
með, en það þýddi að rífa
þyrfti þakið af núverandi
messusal, sem er undir fyrir-
huguðum kór og þá yrð.i söfn-
uðurinn húsnæðislaus fyrir
messur og alla kirkjulega starf-
semi um tíma, á meðan verið
væri að koma nýju þaki yfir
þann sal, sem nú er messað I,
en það þak yrði gólfið f fyrir
huguðum kór Hallgrímskirkju.
Munu því ýmsir hallast að
því, sagði Jakob, að fara held-
ur hina leiðina, fullgera neðsta
hluta turnsins og flytja alla
kirkjulega starfsemi þangað um
sinn svo að ekki komi til algers
húsnæðisleysis fyrir söfnuðinn.
Á milli þessara möguleika velur
sóknarnefndin endanlega. En
hvað sem þeim líður þarf að
;f byggja kjallara undir hliðarálm
unum I turninum, þar verða t.
d. miðstöðvar- og vélaherbergi
fyrir alla bygginguna, og það
er fyrir þessum kjallara, sem
nú er byrjað að sprengja".
Séra Jakob sagði að fyrirhug
að væri að gera mikið átak I
fjáröflunarskyni fyrir kirkju-
bygginguna, oft bærust góðar
gjafir í byggingarsjóðinn og allt
af miklu meira þegar fram-
kvæmdir stæðu yfir en þegar
þær lægju niðri.
í núverandi messusal Hall-
grímskirkju rúmast 250—300
manns en I aðalsal kirkjunnar
verða sæti fyrir 12 —14 hundr
uð manns. Auk þess er svo
500 fermetra húsnæði I hliðar-
skipum turnbyggingarinnar.
sem áður var getið, og á þar
að verða félagsheimili, skrifstof
ur og fundarherbergi þegar allt
er fullgert.
í sóknarnefnd Hallgrlms-
kirkju ' eru nú Sigtryggui
Klemenzson ráðuneytisstjóri.
Helgi Eyjólfsson byggingameist
ari, Gunnar Sigurjónsson, Björn
Guðmundsson og Hermann Þor
steinsson.