Vísir


Vísir - 05.03.1963, Qupperneq 9

Vísir - 05.03.1963, Qupperneq 9
V í SIR . Þriðjudagur 5. marz 1963. 9 Kennin spamannsms • • •ví {'>>•»*? j1. 'sm efstu hæð háhýsisins Ljósheimar .8, og ekki er annað hægt að segja en að nafnið sé vel við eigandi. því að Bahá’í þýðir einmitt „fylgi andi ljóssins“. Charles eða Charlie, eins og hann vill strax láta kalla sig, er ungur maður, lítill og grannur með dökkt yfirskegg. fullur af lífi og krafti, fljúgandi mælskur og glaðlegur f framkomu. Hann er verkfræðingur að mennt og vinn- ur hjá Vélsmiðjunni Héðni. En aðalerindi hans til íslands er að kynna Bahá’f-trúna og segja fólki frá hinum víðsýnu og umburðar- lyndu kenningum spámaijnsins persneska. Allir spámenn þjónar hins sama Föður „Verst að vera ekki íslending- og sama Guði. Við höldum því fram, að allir hinir miklu trúar- bragðahöfundar hafi verið guð- legir sendiboðar og þjónar hins sama Föður. Allir spámenn kenna trúarbrögð Guðs, hina einu trú, en hver þeirra verður að miða boðskap sinn við kröfur síns tíma og tala við fólkið á því máli, sem það á hægast með að skilja. Sri Krishna, Móse, Zoroaster, Budd- ha, Kristur, Múhameð, Báb og Bahá’u’lláh — allir voru þeir spá- menn og sendiboðar hins sama Guðs. En trúarbrögðin mega aldrei standa f stað, þau eru lif- andi og taka sífelldum framför- um, eftir því sem mennirnir sjálf- ir þroskast, og trú nýja tímans er grundvölluð á jörðinni af Bíb og Bahá’u’lláh".' „Hver var Báb?“ „Hann var fyrirrennari Bahá’- Það er útbreidd skoðun meðal margra trúflokka, að von sé á miklum trú- arleiðtoga, er koma muni fram í heiminum til að leiða mannkynið út úr þeim ógöngum, sem styrj- aldir, trúleysi, efnis- hyggja, illdeilur og al- menn eigingirni hafa or- sakað. Kristnir menn bú- ast við endurkomu Krists, Múhameðstrúar- menn vænta komu Imán Mihdí, Gyðingar Messías- ar, Buddhistar lávarðar- ins Maitreya, Hindúar nýs Avatars, og svo mætti lengi telja. Margir álíta, að rík þörf sé fyrir ný trúarbrögð, er uppfylli kröfur jafnt skynsemi sem tilfinninga og klæði hin ævafornu sannindi í húning, sem hæfi nútíma- hugsunarhætti og rök- hyggju vísindanna. En einn trúflokkur litur öðrum augum á þetta mál og heldur því fram, að hinn langþráði heims- fræðari hafi þegar birzt og iagt grundvöllinn að nýjum trúar- brögðum, sem muni staðfesta og endurnýja sannindi þau, er guð- legir leiðtogar og spámenn hafi opinberað mannkyninu með vissu millibili allt frá forsögulegum tímum. Þetta eru fylgjendur spámanns- ins Bahá’u’Iláh, sem fæddist f Teheran f Persíu árið 1817 og lézt í Palestínu árið 1892 eftir áratuga ofsóknir, útlegð, fangelsisvist og ólýsanlegar hörmungar. En þrátt fyrir allar ofsóknir og fjöldamorð á fylgjendum hinnar nýju trúar, hafa áhrif hennar stöðugt færzt í aukana, og nú er svo komið, að hún á sér áhangendur f öllum löndum heims. Hér á landi er starfandi lítill hópur Bahá’í-fylgjenda, og eru kanadisk hjón, Florence og Char- les Grindlay, meðal forystumanna hans. Þau búa f lítilli íbúð á Rætt við Charles Grindlay, verkfræðing og Bahá í-fylgjanda ur!“ andvarpar hann. „Ég er hræddastur við, að fólk haldi, að við séum að boða hér einhvern nýjan sértrúarflokk, og að þetta sé ekkert fyrir íslendinga. En eitf af aðalatriðunum í Bahá’í-trúnni er það, að allar þjóðir heimsins ættu að sameinast í einni trú og allir menn að verða eins og bræður, sem þjóna hinum eina u’lláh. Orðið Báb þýðir „hlið“, og hann gaf þá yfirlýsingu, 24 ára gamall, 22. maí 1844, að Guð hefði útvalið- hann sem farveg og fyrirrennará hins mikla sendi boáa, séní' væntánlegur væri í ná inni framtíð. Hann vakti gffur lega athygli með eldmóði sfnum og andagift, ótrúlegri þekkingu og vizku og eignaðist fjölmarga Charles Grindlay. nangendur, en jafnframt öfund- armenn og ofstækisfulía ándstæð inga, sem leituðu allra ráða ti) að bæla niður hina nýju „villu- trú“. Á þessum tíma ríkti hið hræðilegasta ófremdarástand f Persíu, þjóðin var sokkin niður BAHA‘U‘LLAH Hið fagra musteri Bahá’i-trúflokksins í Bandaríkjunurn. f fáfræði og hjátrú, stjórnendurn- ir voru grimmdárseggir og harð- stjórar, prestamir kreddubundnir og ofstækisfullir og embættis- menn spilltir mútuþegar. Hinn ungi umbótamaður varð að þola gegndarlausar ofsóknir, fylgis- menn þans vom líflátnir af voða- legri ^rimmd, og loks varð Báb sjálfur að deyja pfslarvættis- dauða fyrir trú sína. En hann taldi sig sælan að mega líða hvers kyns þjáningar, ef hann gæti með þvf greitt götu „Hans. er koma skyldi“.“ Hinn útvaldi. „Og það hefur verið Bahá’- u’lláh?" / „Já. Hann var elzti sonur auð- ugs vezírs í Teheran og var af hátiginni ætt. Þegar hann var 22 ára, dó faðir hans, og þá æskti stjórnarráðið þess, að hann tæki sæti hans sem vezír eða ráðherra, en ungi maðurinn hafnaði þvf boði. Hann vissi, að hann átti annað hlutverk fyrir höndum, og tignarstöður, auður og völd voru honum einskis virði. Enda fór svo, að um Ieið og hann heyrði um Báb og kenningar hans, að hann gerðist einn af ótradðustu fylgismönnum hins unga spá- manns. En þá grunaði hann ekki, að hann sjálfur væri hinn út- valdi, sá sendiboði, sem birta myndi mannkyninu nýja cipmber- un Guðs. Hann var fangelsaður hvað eftir annað, pyndaður á hinn hryllilegasta hátt og rekinn í útlegð, en ekkert gat bugað vilja hans. Hann var einn af hinum örfáu fylgismönnum Báb.s sem lifðu af ofsóknir stjómend anna, og árið 1863 birti hanr fylgjendum sínum, að hann væri sá sendiboði, sem öll trúarbrögð hefðu gefið fyrirheit um. Engurr. þeirra datt í hug að efast um sannleiksgildi orða hans, því að hann hafði fyrir löngu sýnt með líferni sfnu og spbki, að hann var innblásinn guðlegri andagift En ráðamenn landsins voru sífelli andstæðir honum, og nú var hann sendur til fangelslsborgar- innar Akká í Palestínu, þar sem hann dvaldist í varðhaldi ti! dauðadags og þoldi ósegjanlega- hörmungar". „En hvernig gat hann þá úi breitt kenningar sínar?“ „Hann var verkfæri Guðs, og hann flutti anda Guðs niður á jörðina, ekki einungis boðskap og kenningar. Þegar hann kom fram í heiminum, hvíldi þungi myrk- urs yfir jörðinni, myrkurs efnis- hyggju og staðnaðrar kreddutrú ar. Kjarni trúarbragðanna ei ávallt hinn sami, en mennirnir hafa einstakt lag á að hylja hann undir neti af fræðikenningum og kreddum og rífast um bókstaf- inn, en gleyma andanum. Ef mennirnir færu eftir því, sem Kristur kenndi þeim, þyrfti ekk- ert annað til að skapa sæluríki á jörðinni, en i stað þess að lifa í sátt og samlyndi sem kærleiks- ríkir bræður, deila þeir um orða- lag og aðferðir út af smámunum. Hvert sinn sem guðlegur sendi- boði kemur fram, breiðist ny alda af andlegum mætti yfir jörð- ina. Gömul form brotna niður, togstreitan milli hins nýja og gamla eykst og magnast og mesl ber á sundrungu og óeiningu. En þetta er undanfari nýrrar ein- ingar, og sú sameiningaralda. sem risið hefur frá ppinberun Bahá’u’lláh, er alls staðar að verki í heiminum í dag. Þjóð- irnar , gera með sér bandalög, kirkjudeildir sættast, mennirnir biðja um frið og góðvild milli einstaklinga og þjóða o. s. frv. Hinn voldugi andi er að verki hvarvetna" Samdi ritverk sín í fangelsi. i.Hvað i.im kenningar Bahá- ’u’lláh?“ „Ilann hefur skilið eftir sig ógrynni af ritum, sem ná til allra sviða mannlegs lífs, and- legra, efnislegra, þjóðfélagslegra, trúarlegra, vfsindalegra — hann virtist hafa þekkingu á öllu milli himins og jarðar, og þó hafði hanr, aldrei menntazt í neinum skóla. Meðan hann var I fangels- inu, skrifaðist hann á við marga og samdi rit um fjölmörg efni sem liann gat ekki hafa fengið vitneskju um á venjulegan hátt Hann vitnuði í bækur, sem hann hafði engan aðgang að, og þótt hann hefði aldrei komið ti) Vesturlanda og aldrei rætt við lærða menn frá Veslurlöndum nema fjögur samtö! við prófessor Edward G. Browne, þekktan Aust urlandafræðing við háskólann i Cambridge. sem hvert stóð 20— 30 mínútur, bera rit hans vott um fullan skilning á þjóðtélags legum, trúarlegum og stjómmála- Framhald á bls. 10.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.