Vísir - 09.03.1963, Blaðsíða 8
8
VÍTSIR . Laugardagur 9. marz 1963.
VÍSIR
Otgefandi: Blaðaútgáfan VtSIR.
Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn ó. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3.
Áskriftargjald er 65 krónur á mánuði.
I lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur).
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f
Bílferja yfir Hvalfjörð
Á Alþingi hefir verið borin fram tillaga um, að
ríkisstjórnin láti „gera kostnaðaráætlun fyrir full-
komna bifreiðaferju á Hvalfjörð, svo og flotbryggjur
og nauðsynlega vegi báðum megin fjarðarins. Jafn-
framt verði gerð áætlun um rekstur slíkrar ferju ... “
Hér er ekki ný tillaga eða hugmynd á ferðinni, því
að skömmu eftir stríð höfðu Akurnesingar einmitt í
huga að útvega bílferjur á fjörðinn, og Alþingi mun
hafa veitt nokkurt fé til vegalagna af þeim sökum.
Ferjur voru einnig keyptar, en þær voru aldrei notaðar
til bílflutninga, þótt þær kæmu að gagni á annan hátt.
Mál þetta komst því aðeins á byrjunarstigið, eins og
oft vill verða.
I rökstuðningi þeirra tillögu, sem getið er hér að
ofan, er því haldið fram, að meiri sparnaður mundi
verða að slíkri ferju nú en hann var talinn forðum,
þegar málið var á döfinni. Skal því ekki í móti mælt.
En spurning er, hvort ekki ætti að taka og annað mál
ti! athugunar jafnhliðá þessu, og það er, hvort ekki
mundi enn meiri sparnaður að því að hafa bílferju
gangandi milli Reykjavíkur og Akraness. Mundi
sparnaðurinn ekki verða enn meiri, ef endastöðvar
ferju væru á þessum tveim stöðum? f því sambandi
þarf ekki að nefna nema eitt atriði, og það er, að hér
eru fyrir hendi hafnarmannvirki, en skapa þyrfti að-
stöðu á báðum ströndum fjarðarins, er kosta mundi
mikið fé.
Vísir telur sjálfsagt, að þetta yrði einnig athugað,
ef Alþingi telur á annað horð ástæðu til að athuga,
hvort hagkvæmt sé að starfrækja bílferju á Hvalfirði.
Vonbrigðin eru auðsæ
Það eí augljóst, að framsóknarmenn hafa orðið
fyrir sárum vonbrigðum í sambandi við stjórnarkjörið
í Iðju um daginn. Það kemur fram í því, að þeir remb-
ast við að telja mönnum trú um, að þeir hafi ekki orðið
fyrir neinum vonbrigðum!
Frá sjónarmiði framsóknarmanna var tilgangur-
inn með sérstakri þátttöku í kosningunum að sýna,
að framsóknarflokkurinn væri „verkalýðsflokkur“.
Það mistókst með öllu, því að fylgið reyndist mun
minna, en gert hafði verið ráð fyrir. Tilgangurinn var
einnig að sanna, hvað framsóknarmenn væru „sjálf-
stæðir“, ekki væru þeir í bandalagi við kommúnista.
í því sambandi muna menn fortíð Framsóknar, þegar
þessi kosning verður löngu gleymd.
Forsprakkar Framsóknar naga sig nú í handar-
bökin yfir þessum „mistökum“, en svona fer oft fyrir
þeim, sem koma aldrei til dyranna eins og þeir eru
klæddir!
Baráttan við
stöðumælana
Það er ýmislegt mis-
jafnt, sem fólk hefur um
stöðumælana að segja.
Venjulega hefur það
ekkert um þá að segja,
fyrr en það fær sekt fyr-
ir að vera við mæli of
lengi. Að því er vér frétt-
um hjá lögreglunni tek-
ur fólk yfirleitt með ró,
þó að það fái sekt, enda
eru þær hvergi lægri en
hér á landi, aðeins
tuttugu krónur.
Margar sérkennilegar sögur
fréttast að utan um mælana.
Fyrstu mælarnir voru t. d.
settir upp f Manchester í maí
1961. Síðan hafa 750 manns
reynt að nota erlenda mynt í
mælana, en nær undantekn-
ingalaust án árangurs.
Flestir peningarnir voru af
rangri stærð eða þyngd, þannig
að einnig varð að setja enska
peninga. Þegar svo varið farið
með allt saman f banka, reynd-
ust 150 vera verðlausir. Þeir
sem eftir voru, reyndust vera
16 pund og 13 shillinga virði.
sem eftir voru, reyndust vera
16 pund og 13 shillinga virði,
sem er talsvert meira en til-
svarandi tfmi hefði kostað, með
réttri mynt.
í Bandaríkjunum hafa stöðu-
mælar tfðkast Iengur en f
nokkru Iandi, eða f 27 ár, enda
kunna menn margar sögur það-
an. Margir urðu undrandi, þeg-
ar þeir grófu bfla sfna upp, eft-
ir byljina miklu, árið 1961, að
finna festa við þá fimm hundr-
uð króna sektarmiða. Lögregl-
an hafði samúð með mönnum,
en sektin varð að standa, þar
sem þeir höfðu staðið þarna ó-
löglega.
í San Antonio í Texas, þótt-
ist Jesse nokkur Garcia hepp-
inn, þegar hann fann bílastæði
á götu, þar sem engir stöðu-
mælar voru. Hann kom aftur
tveim tfmum seinna og fann þá
miða á bflnum, þar sem hann
fékk stöðumælissekt. Mælirinn
hafði verið settur upp á meðan
hann var í burtu.
í French Lick, Indiana, hafði
hóteleigandi nokkur leyft lög-
reglunni að nota bflastæði við
hótel sitt, án nokkurs endur-
gjalds í tuttugu ár. Þegar hann
svo fékk stöðumælasekt reidd
ist hann svo, að hann tekur nú
50 dollara fyrir að leyfa lög
reglunni afnot af bflastæðinu.
New Yorkbúi nokkur reiddist
illilega, þegar honum tókst ekki
að koma pening inn í stöðu-
mæli og sló mælinn hressilega
með hnefanum. Þegar hann
kom aftur frá lækninuia. sem
hafði bundið um hendina á hon-
um, fann hann sektarmiða und-
ir vinnukonunni.
Það fór illa fyrir manni 1
Sidney f Ástralíu, sem var sölu-
maður. í ágúst 1960 varð hann
að selja bílinn sinn, húsið sitt
og hætta í vinnunni, vegna
stöðumælasekta. Á þrem árum
hafði hann borgað sem nemur
72 þúsund krónur f sektir og
fengið sekt að jafnaði fimm
sinnum á dag.
í sömu borg, hefur maður
nokkur átta til níu þúsund
króna tekjlir á viku, fyrir að
„mata" stöðumæla. Hann hefur
samkomulag við meira en
hundrað manns í stórri skrif-
stofubyggingu, um að hafa auga
með bflum þeirra í vinnutíman-
um.
Hann sér um að nóg sé i
mælunum og þegar lögreglan
merkir hjólin með kalki, til að
gefa til kynna að tfminn sé út-
runninn, þurrkar hann merkin
af og færir bílinft að öðrum
mæli. Hver viðskiptavinur
skaffar honum aukalykla að
bflnum sfnum og borgar honum
15 shillinga á viku, auk gjalda
í mælana. Jafnvel þetta borgar
sig betur en að borga allar sekt
irnar eða að verða að hlaupa út
á klukkutímafresti, til að setja
í mælirinn.
Það hlaut að vpra Skoti, sem
er einn af þeim fáu sem vitað.
er til að hafi grætt á þvf að
brjóta reglur um stöðumæla.
Hann var að flytja til Rhodesiu
og vildi selja bflinn sinn, en
fékk ekkert boð hærra en fimm
sterlingspund. Hann hélt þvi
bílnum og ók í honum til
Southampton, þaðan sem skip
hans fór. Þar lagði hann bflnum
við stöðumæli og gekk á skips-
fjöl.
Fjórum mánuðum seinna
fékk hann bréf frá lögreglunni
f ÍJouthampton, sem hafði haft
upp á honum, til að minna
hann á að bill hans hefði þegar
staðið ólöglega Við stöðumæli f
sjö vikur. Ef hann fjarlægði
hann ekki þegar, myndu þeir
gera nauðsynlegar ráðstafanir.
Nokkru seinna fékk hann
bréf, þar sem honum var til-
kynnt, að nauðsynlegar ráð-
stafanir hefðu verið gerðar og
bíllinn boðinn upp, til að
greiða áfallinn kostnað. Þeir
sendu honum það sem af gekk,
af söluverði bílsins, fjörutíu
sterlingspund.
m
Hlýr, stil’tur, {niit febrúar
Febrúar var mjög hagstæður
og góður vetrarmánuður, að þvi
er Adda Bára Sigfúsdóttir, veð-
urfræöingur, hefir tjáð Vísi.
Hiti var vel yfir meðallagi,
þvf að hann var hvorki meira
né minna en 2,0, en f meðal ári
er örlítið frost, eða 0,1 stig.
Hlýjast varð 28. febrúar, þegar
mælirinn komst upp í 9.0 stig,
en kaldast varð þann fimmta,
þegar frosið komst niður í 10,5
stig. Segja má, að alveg hafi
verið frostlaust í mánuðinum
frá 1. degi — það getur vart
talizt, þótt mælirinn færi að
eins niður fyrir frostmark þann
26. — og eru slíks ekki mörg
dæmi um þennan mánuð.
Stormar voru engir í mánuð-
inum, svo h„.m var einnig hag-
stæður að þvf leyti, og loks
nam úrkoma 42 millimetrum,
en 1 meðalári er hún 65 mm.