Vísir - 21.03.1963, Page 5

Vísir - 21.03.1963, Page 5
VÍSIR . Fimmtudagur 21. marz 1963. 5 Flugslysið *— Framhald aí hls. I. til þeirra kvartað yfir ís- ingu. Leitarstjórinn upplýsti, að það væri einmitt ísing sem mest hefði háð leitarstarfinu. Hann sagði að sjö flugvélar hefðu tekið þátt í leitarflugi, auk Loftleiðavélarinnar, sem flaug vestur. Hafa leitarflugvélarnar verið bæði frá kanadiska flug- hernum og bandaríska flughern- um og hefðu þær komið frá flugstöðvunum í Torbay á Ný- fundnalandi, Greenwood á Nova Scotia og bandarísku bæki- stöðvunum í Argentia og Goose Bay. — Við höfum gert allt sem í okkar valdi stendur til að halda uppi leitarflugi, sagði leitarstjórinn, en veðrið hefur verið mjög óhagstætt hvass- viðri af norðri og ísrigning „freezing rain“, sem skapar geysilega ísingarhættu fyrir flugvélamar. — Hvað er það stórt svæði, sem hefur verið leitað á? — Svæðið hefur 4 þúsund fermílur, 40 mflur á breidd og \ 100 mílur á Iengd SSV frá staðn um þar sem flugvélin hvarf. Við vissum nákvæmlega um stað- inn, þar sem flugvélin hvarf, vegna þess að fylgzt var með henni f radar-tækjum. Straumur og vindátt hefði aðeins getað borið fleka suður á bóginn og því hefur Ieitin aðallega beinzt að svæði fyrir sunnan slys- staðinn. Þegar leit hefur verið framkvæmd hefur leitarsvæðinu verið skipt niður þannig, að fjórar leitarflugvélar eru á flugi samtfmis. En við höfum ekkert fundið. þingið — Framhald al bls. 1. bera til almenningsbókasafna í landinu var lagt fram í þinginu í gær. Lögin um almennings- bókasöfn frá 1956 Ieiddu til þess að fjöldi útlánaðra bóka í landinu jókst um nær helming fyrstu fjögur árin sem lögin giltu, en nú er nauðsynlegt að hækka framlög til bókasafn- anna vegna stórhækkaðs verðs á bókum. Þá var einnig lagt fyrir þingið í fyrradag stjórnar- frumvarp um stóraukinn íkis- stuðning við tónlistarskólana í landinu og nýtt og ákveðnara skipulag á starfsemi þeirra en verið hefir. Af merkum stjórnarfrum- vörpum, sem verið hafa til meðferðar í þinginu að undan- förnu, og eru ennþá, má nefna frumvarp að nýrri lyfsölulög- gjöf, fyrstu heildarlöggjöf um þau mál hér á landi. Þá er frumvarp um árleg mill- jónaframlög rfkisins næsta ára- tuginn til aðstoðar kaupstöð- um og kauptúnum vegna landa- kaupa, það er til að hjálpa sveitarfélögunum að eignast þau lönd og lóðir, sem eru inn- an þeirra takmarka. Frumvarp ‘ríkisstjómarinnar um bygging- arsjóð aldraðs fólks markar tímamót í afstöðu ríkisvaldsins gagnvart elztu kynslóðinni og mun fleira á eftir fara í þessu efni. Þessi byggingarsjóður, sem á að fá 40% af hagnaði DAS-happdrættisins, er nýmæli og með þessu frumvarpi eru tvö fylgifrumvörp, annað um aukna aðstoð við aldrað fólk í heimahúsum. Segja má að frumvarpið um Iðnlánasjóð sé algerlega nýtt mál. Sá sjóður hefir að vísu starfað lengi en ávallt verið févana. Hann fær nú um 9 milljón króna árlegan tekjustofn með sérstöku gjaldi af iðnaðarvörum, sem þó verður ekki.látið ganga inn í verðlag- ið. Frumvarp um Iögreglumenn, sem flutt er að tilhlutan dóms- málaráðherra, gerir ráð fyrir stóraukinni þátttöku ríkissjóðs í kostnaði vegna löggæzlu, rik- ið greiðir samkvæmt frumvarp- inu helming þess kostnaðar, en greiddi áður aðeins sjötta hluta. Léttir þetta stórfelldum fjár- hagsbyrðum af sveitarfélögun- um í landi. Síðast en ekki sízt er að geta þess stjórnarfrum- varps sem gerir ráð fyrir stór- auknum rannsóknum í þágu atvinnuveganna, og annars sem gerir ráð fyrir stórauknum framlögum til bygginga og rækt unar í sveitum og kemur það éinkum til góða minni búunum og eflir þau. Ný og merk löggjöf um kirkjugarða í landinu er að vísu ekki stjómarfrumvarp, en flutt að tilhlutan kirkjumálaráð- ' herra. í því sambandi keriiíir einnig í hugann stjórnarfrum- varp um að ríkið afhendi þjóð- kirkjunni Skálholt til eignar og umráða, og hefir sú ákvörðun stjómarvaldanna hlotið einróma fylgi almennings. Fleiri stjómarfrumvörp munu koma fram fyrir þinglok, og ber þar fyrst og fremst að nefna frumvarp að nýrri tollskrá og frumvarp um ferðamál. Þar er gert ráð fyrir nýskipan ferða- málanna, sem margir hafa beð- ið eftir, stofnun Ferðasjóðs, ár- legum ríkisframlögum til land- kynningar, endurbótum á gisti- húsakosti og fyrirgreiðslu ferða manna. Ýmislegt er enn talið meiri háttar mála, sem ríkisstjórnin hefir beitt sér fyrir á þessu þingi. En af því, sem drepið hef- ir verið á, sést ljóslega að rík- isstjórnin hefir Iátið flest svið þjóðlífsins til sín taka, atvinnu- vegina, svo sem iðnað og land- búnað, tryggingamálin, skóla- mál, listir og vísindi, heilbrigð- ismál, kirkjumál, flugmál, tolla- mál, fjármál sveitarfélaga, al- menningsbókasöfn og fleira og fleira. &W20—30bílar teknir úr umferi Enn var í fyrradag hafin her- ferð af hálfu lögreglu og bifreiða- eftirlitsmanna gegn bifreiðum með ófulinægjandi útbúnaði og voru samtals 23 bifreiðar teknar úr umferð. Af þessum 23 bifreiðum voru skrásetningarmerki tekin af 15, en þar fyrir utan var 8 bifreiðum bönnuð umferð að svo komnu máli og auk þess var svo fjölda bifreiðaeigenda gefin fyrirmæli GulEfoss — Framhald af bls. 16. smíðastöðvarinnar verða yfirheyrðir. Kristján Aðalstednsson skip- stjóri kom fyrstur manna fyrir réttinn. Hann lýsti því yflr, að sökin væri óhjákvæmilega hjá skipasmiðastöðinni. Það kom fram við yfirheyrzl- ur í morgun, að botnlokar í botntönkum hafa ekki verið sett ir f, með þeim afleiðingum, að þegar olía var aftur látin streyma í tankana, rann hún út á stöðvarplássið, alls um 70 tonn. Það var þessi olía, sem á einhvem hátt kviknaði í. Bðrun — Framh at bls. 1. Um tíma var ráðgert að flytja borinn til á Húsavík og bora þar aðra holu nokkru ofar og innar en sú sem boruð var. Horfið hefur nú verið frá því ráði, en hins veg- ar ráðgert að kaupa viðbótartæki svo unnt sé að bora a. m. k. niður í 1600 metra dýpi. Og unz þetta tæki kemur verður borinn fluttur á brott frá Húsavík og austur í Námaskarð í Mývatnssveit, þar sem honum er ætlað að bora 2 gufuholur. Er búizt við að það taki 2—3 mánuði, en að því búnu verður borinn væntanlega fluttur til Húsavíkur aftur, og haldið þá áfram við sömu holuna og frá var 'horfið á dögunum, enda ætlazt til að vióbótartækið fyrir borinn verði þá komið hingað til Iands. Er nú unnið að því að taka bor- inn niður og verður hann fluttur einhvern næstu daga yfir í Mý- vatnssveit. Fcinney — Framhald af bls. 1. ekki hefir aflazt að ráði á Hráun- víkinni enn sem komið er, taldi hann vera, að síldin stendur djúpt og er dreifð, en ekki að lítið sé af henni. SVIPLEGUR DAUÐDAGI Laugardaginn 16. þ. m. Iézt mað- ur í slysavarðstofunni í Reykjavík, sem þá hafði verið áður um daginn í fangageymslu lögreglunnar í Sfðu- múla, en var strax fluttur til lækn- isskoðunar er séð varð að hann var sjúkur. Það var árdegis á laugardaginn, eða um áttaleytið, að lögreglunni barst tilkynning um drukkinn og illa útleikinn mann, sem væri á ferli í einu úthverfi borgarinnar. Lögreglan fór strax á vettvang og fann manninn á þeim stað, sem henni var vfsað á. Sá hún ekki á manninum annað en venjulegt ölv- unarástand og auk þess að hann var kaldur eftir útivist um nóttina. Var maðurinn, eins og venja er til í þvíllkum tilfellum, fluttur í 'fangageymsluna í Síðumúla, þar sem hlúð var að honum og reynt að koma í hann hita. Virtist þetta hafa tekizt eins og efni stóðu til, maðurinn virtist hressast og von bráðar sofnaði hann. Það sem eftir var dagsins litu fangaverðir öðru hverju eftir hon- um, eins og venja er til um fanga, sem þar eru geymdir. Virtist mað- urinn sofa eðlilegum svefni um dag 1 inn, en um kl. 6 síðdegis fór fanga- j vörður inn til hans og þótti hann þá undarlegur allur og veikindaleg- ur. Voru þá strax gerðar ráðstaf- | anir til að flytja manninn í slysa- i varðstofuna til athugunar, en nokkr um mínútum eftir að þangað kom, dó hann. Samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar í morgun var þarna um rtokk uð drykkfelldan mann að ræða, en þó yfirleitt heldur heilsuhraust- ur að talið var. Dagana áður en hann dó hafði hann legið í inflú- enzu. en mun hafa farið á fætur áður en hann var búinn að ná sér 1 til hlítar og hóf þá drykkju. um að koma farartækjum sínum í lag nú þegar, ella yrðu þau tekin úr umferð. Þetta er þriðja gagngera her- ferð lögreglunnar í þessa sömu átt og hefur hún borið ríkulegan ár- angur í öll skiptin. Eyðilögðu bíl og létu hunn liggju 1 fyrrinótt var bifreið ekið út af veginum skammt fyrir vestan Hafnarfjörð og hún stórskemmd. í gær klukkan rúmlega 7 var Hafnarfjarðarlögreglunni tilkynnt að illa farinn bíll Iægi í hrauninu skammt frá Víðigerði fyrir vestan Hafnarfjörð. Væri sýnilegt að hon- um hafi verið ekið út af og væri bíllinn stórlega skemmdur. Bíllinn var mannlaus þegar að var komið og hvergi sást til ' mannaferða í námunda við hann. Lögreglunni tókst þó fljótlega að afla sér vitneskju um hvaða menn þarna höfðu verið á ferð, en það voru Reykvíkingar, sem komið höfðu til Hafnarfjarðar í Volks- wagenbíl, sem þeir höfðu fengið í bílaleigu f Reykjavík. En ökuferð þeirra lyktaði úti í hrauninu hjá Víðigerði eins og að framan segir. Lögreglan f Reykjavfk náði pilt- unum strax er henni barst vitn- eskja um atburðinn frá Hafnar- fjarðarlögreglunni. Voru þeir þá komnir til Reykjavíkur og viður- kenndi einn piltanna að hafa verið ölvaður við stýrið, Á sjúkrtíhúsi í annarlegu ústandli I fyrrakvöld var lögreglan beðin að hirða mann nokkurn, sem staddur var I húsi við Óðins- götu og virtist í annarlegu ástandi. Við leit á manninum fundust pillur og ennfremur rakspíritus- glas. Var búizt við að hann myndi hafa neytt af hvoru tveggja og við það komizt í annarlegt ástand. Lögreglan lét flytja manninn f slýsavarðstofuna og þaðan var hann fluttur í öryggisskyni í Landakotsspítala, og mun hafa verið dælt upp úr honum. Samkvæmt frásögn lögreglunn- ar er hér um utanbæjarmann ræða, en drykkjumann mikinn og hefur lögregla viðkomandi staðar beðið Reykjavíkurlögregluna um aðstoð við eftirlit og aðra aðstoð við hann. Steinar Lúðvíksson. Nemeneður — Framh af 1. sfðu. brautskrá stúdenta afar æski- lega. Hvort ég taki stúdeiitspróf ið? Það fer alveg eftir árangr- inum í kennaraprófinu. Steirtar Lúðvíksson frá Hvammstanga er í öðrum bekk: — Ég fékk tækifæri • til að kynna mér frumvarpið Iítillega, og lízt mér mjög vel á það sem ég sá. Mér finnst frumvarpið í heild sinni mjög vel undirbúið og tel alveg nauðsynlegt að Kennaraskólinn fái tækifæri til að útskrifa stúdenta. Ég veit að það er mikill áhugi meðal nem- enda á þessu máli og þeir fylgj ast gaumgæfilega með öllu sem gerist í sambandi við það. Ragna Þórðardóttir frá Bol- ungarvík er í fyrsta bekk: — Ég er ánægð með að fá þetta tækifæri, sem í frumvarpinu er fólgið, en ég veit ekki livort ég get notfært mér það. Það fer eftir árangrinum í skólanum. Ragna Þórðardóttir Stúlkur Stúlkur vantar í prentsmiðju, helzt vanar, hátt kaup. Tilboð sendist afgreiðslu Vísis fyrir laugardag, merkt — Bókband. Vélskófla Til sölu Priestman Cub vélskófla með 8 teningsfeta skóflu (230 1.) og diesel mótor til sýnis föstudag 22. marz kl. 14—16 í birgðastöð Vegagerðar ríkisins við Grafarvog. Verðtilboð skulu hafa borizt skrifstofu vorri fyrir kl. 11 f. h. laugardaginn 23. marz. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS, Ránargötu 18.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.