Vísir - 23.03.1963, Blaðsíða 16
VISIR
Laugardagur 25. marz 1963.
Mikill bruni varð í hleðslu-
stöð Póla h.f. við Þverholt
í gær. Klukkan 21.17 barst
slökkviliðinu tilkynning
símleiðis um brunann.
Þrjár slökkviliðsbifreiðar
fóru þegar á vettvang, og
reyndist þá mikill eldur í
húsinu svo að eldtungur
stóðu allhátt upp úr því.
Innbrot á
Þarna inni voru um 7—800
rafgeymar og ýms tæki, en
hleðslutækin í viðbygg-
ingu. Slökkviliðið var önn
um kafið við að slökkva
eldinn, þegar blaðið fór í
prentun.
Tveir snáðar, sem voru að leika
sér rétt hjá húsum Póla h.f. í
Þverholti urðu fyrstir varir við
brunann, þeir Kristinn Pedersen,
Skúlagötu 72, og Ágúst Björgvins-
son, Skúlagötu 62. Þeir hlupu þeg-
ar inn í Mosaik h.f. sem er næsta
hús við Póla og tilkynntu þar
Framh. á bls. 5
rakarnstofu
í nótt var brotizt inn i rakara-
stofu Péturs og Vals á Skólavörðu-
stíg 10.
í morgun þegar rakararnir komu
til vinnu sinnar, veittu þeir því at-
hygli, að gluggi rakarastofunnar
var opinn og að það myndi hafa
verið farið þar inn í nótt.
Ekki sáu þeir í fljótu bragði,
að neinu hafi verið stolið, en þeg-
ar átti að grípa til handhárþurrku
í morgun var hún horfin. Virðist
það hafa verið hið eina, sem stolið
hefur verið. Peningar voru engir
geymdir í rakarastofunni.
Landhelgisbrot:
RéttarhöU / dag
Réttarhöldunum yfir skip-
stjóranum á Carlisle, sem tek-
inn var að ólöglegum veiðum
í Faxaflóa I fyrrinótt, hefjast
kl. 9.30 í dag. Brezka herskip-
ið Malcolm kom að þegar Óð-
in.i var búinn að taka togarann
og gerði athuganir sínar, og
komst að sömu niðurstöðu og
skipherrann á Óðni. Óðinn lá’
í höfninni í gærkveldi og var
fyrirhugað að hann yrði þar í
nótt, þar sem veður voru vá-
lynd, að sögn forstjóra Land-
helgisgæzlunnar, og rétt að
hafa skipið til taks, ef eitthvað
skyldi út af bregða.
★
Lögregluvörður var um borð
í togaranum Carlisle eftir aC
hann kom að Faxagarði í gær,
skipstjórinn tekinn fyrir land-
helgisbrot. Skipstjórinn hafði
mótmælt og tóku skipverjar
hans undir það, þegar Vísis-
menn hittu þá um borð í gær.
Unnu Norðmenn en
fvrír Dönum t hörkuleik
íslenzka handknattleiksliðið
keppti í gær við Norðmenn og
Dani í Norðurlandameistaramóti
unglinga að Hamri í Noregi. —
Þeir unnu Norðmenn með 16 mörk-
um gegn 14, en töpuðu fyrir Dön-
um með 15 mörkum gegn 21. Báð-
ir leikirnir voru mjög spennandi
og ber mönnum saman um að Is-
lendingarnir hafi staðið sig mjög
vel.
Þeir léku fyrst við Norðmenn
og byrjuðu heldur illa, enda vantar
þá keppnisæfingu og eru alllengi
að átta sig. Lauk fyrri hálfleik
9.3 Norðmönnum í 'vil. I seinni
hálfleik tóku íslendingar forust-
una, Stefán Sandholt skoraði 4.
markið, Viðar 5., Norðmaður 10.
markið. Síðan Auðunn 7. markíð,
Norðmenn 11. og Viðar 8. og Stef-
án 9, markið. Þá gera Norðmenn
12. og 13. mark fyrir slæm útköst
og einnig 14. markið. Eftir það áttu
íslendingar Ieikinn. Jón Karlsson
skoraði 10. markið, Sigurður
Hauksson það 11. og Sigurður
Dagsson því næst þrjú mörk í
röð. Síðan gerðu þeir Jón Karlsson
og Sigurður Dagsson lokamörkin.
Næst kepptu Svíar og Finnar og
unnu Svíar með 20:12. Magnús
Pétursson úr Þrótti dæmdi og
gerði það mjög vel. Jafntefli var
hjá þeim í hálfleik.
Leikurinn við Dani endaði óhag-
stæður, enda var hann spennandi
því islenzka og danska liðið skipt-
Framh >ls. 5
" " ff 1400
metra jarðgöng í Færeyjum
Snáðarnir, sem sáu fyrst brun-
ann, og létu menn við næsta síma
vita uni hann. Þeir heita Kristinn
Pedersen og Ágúst Björgvinsson.
í Færeyjum hefur verið unnið
að því nú á annað ár að leggja
gríðarlega mikil jarðgöng, um
1400 metra löng. Það sem at-
hygli vekur er, að þessu mikla
verki hefur fslenzkur verkfræð-
ingur, Páll Sigurjónsson .stjórn
að fyrir hönd danska fyrirtækis-
ins Phil & Sön.
Auk Páls, hafa starfað þarna
íslenzkur verkstjóri og íslenzk-* *
ur flokksstjóri, auk nokkurra
islenzkra verkamanna. Fyrir
nokkru síðan voru göngin
sprengd í gegn, opnuð, en að
sjálfsögðu ekki komin í notkun
ennþá. Fyrirtækið Pihl & Sön,
vann að virkjunninni í Efrafalli
ásamt Almenna byggingarfélag-
inu á sínum tíma.
Frekari upplýsingar hefur blað
ið enn ekki fengið af þessu verki
og þátt fslendinganna í því, en
mun væntanlega geta sagt nán
ar frá því á næstunni.
r
Eldtungurnar stigu upp úr hleðslustöð Póla h.f. við Þverholt, þegar ljósmyndarann bar þar að. Þá var
slökkviliðið nýkomið. (Ljósm. S. H.)