Vísir - 25.03.1963, Blaðsíða 1

Vísir - 25.03.1963, Blaðsíða 1
—:---------------------------- , , A--_ Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra Kjördæmaráð Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra hefur gengið frá framboðslista flokksins við alþingiskosningar í sumar. Framboðslistinn er þannig skipaður: 1. Séra Gunnar Gíslason, Glaumbæ, Skagafirði. 2. Einar Ingimundarson, bæjarstjóri, Siglufirði. 3. Hermann Þórarinsson, útibússtjóri, Blönduósi. 4. Óskar Leví, bóndi, Ósum, Vestur Húnavatnssýslu. 5. Jón ísberg, sýslumaður, Blönduósi. 6. Kári Jónsson, verzlunarmaður, Blönduósi. 7. Jóhannes Guðmundsson, bóndi, Auðunnarstöðum V.-Hú?j 8. Andrés Hafliðason, kaupmaður, Siglufirði. 9. Jón Benediktsson, bóndi, Höfnum, Austur Húnavatnssýlu. 10. Jón Sigurðsson, bóndi Reynistað, Skagafirði. Tvöfaldur árekst- ur á Bástaðavegi Síðdegis í gær um kl. 2,30 varð harður og tvö- faldur bifreiðaárekstur á Bústaðaveginum. — Er furðulegt að slíkt skyldi geta gerzt á þessum stað, þar sem engar byggingar skyggja á við hornið og Bústaðavegur inn hefur verið gerður að aðalbraut með bið- skyldu. Þrjár bifreiðir skemmdust mikið í þess um árekstri og þrír menn meiddust, þar af tveir allmikið. Á mynd sem hér fylgir má sjá allvel hvernig áreksturinn varð. Þetta gerðist innst og austast á Bústaðavegi. Leigu- Framh. á bls. 5. VÍSIR 53. árg. — Mánudagur 25. marz 1963. — 69. tbl. Tollskráin fyrir þing á morgun eða miðvi Þannig var Fólksvagninn út- litandi. Upp á hann kastaðist ] maður og fótbrotnaði. Efri myndin. Á árekstursstað á Bústaða- veginum Nr. 1 Mercedes-Ieigu- bíllinn, nr. 2 Fólksvagninn og j ínr. 3 Dodge-bifreiðin. Kjördngur fluttur frum? Enn hefir ekki verið afráðið á hvaða degi alþingiskosning- arnar munu fara fram. Venju- lega hefir verið kosið síðast í júní, hugsanlegt er að nú verði kosið fyrr en venjulega. Koma helzt tveir dagar til greina, sunnudagarnir 9. júni eða 23. júní. Mun ríkisstjórnin taka á- kvörðun um kjördag á næst- unni. Undanfarið hefir verið unnið að samningu hinnar nýju toll- skrár, eins og frá hefir verið verið skýrt hér í blaðinu. Er það mjög umfangsmikið verk þar sem máliö er mjög víðtækt og hér er um mikinn Iagabálk að ræða. Undirbúningi er nú að fullu Iokið og er frumvarpið nú í prentun. Verður því útbýtt á Alþingi á morgun eða miðviku dag. Fjölmargar lagfæringar á nú-. verandi tollalögum eru gerðar í frumvarpinu. Er þar um ýmsar lækkanir á núgildandi tollum að ræða og m. a. er söluskatt- urinn felldur niður. ítarlega verður skýrt frá frumvarpinu hér í blaðinu næstu daga. ■ na« Frostin ytra og mikill hygg- timburskorti „Almennt talað virðist sjaldan hafa verið meiri hugur í mönnum en nú að hefjast byggingafram- kvæmdir, og niiðað við árstímann aldrei meiri byggingaáhugi. Þessu veldur einkum tvennt: í fyrst.a lagi einmuna góð vetrar- tið, sem leitt hefir til þess að frost er farið úr jörðu í marz- mánuði, og í öðru lagi kemur svo velmegun fólks vegna við- reisnarinnar og góðra aflabragða, einkum á síld. Þessi fádæm.a byggingaáhugi hefir leitt til þess að timbur mun víðast hvar vera gengið til þurrðar, og þá sérstak- lega mótatimbur, og úr því er erfitt 'að bæta svona snemma vors vegna isalaga og erfiðleika af völdum tíðarfars við Eystra- s.alt, en aðaltimburkaup sín gera ríkjunum. „Við erum ?ð vísu að ríkjunum. Við erum að vísu að reyna að fá timburfarm frá Finn- landi snemma í apríl en vitum ekki ennþá, hvort það tekst, m. a. vegna jámbrautarverkfallsins þar í landi“. Þannig fórust Haraldi Sveins- syni forstjóra í timburverzlun- inni Völundi orð í viðtali við Vísi í morgun. Hann sagði enn- fremur sem kunnugt er, að eftir gengisbreytinguna 1960 hefðu byggingaframkvæmdir nokkuð dregizt saman í bili, en nú hefði þetta snúizt við aftur og virtust óvenju margir ætla að hefja bygg ingaframkvæmdir í vor, og sumir væru þegar byrjaðir, en hætt væri við að allir gætu ekki not- fært sér hið hagstæða tíðarfar um þessar mundir, vegna þess að timbur væri gengið til þurrð- ar. Timburskipin koma yfirleitt ekki til landsins fyrr en í mai- mánuði og hefði það ekki komið að sök nú, fremur en endranær, ef ekki stæði þannig á, sem ó- venjulegt er, að frost er farið úr jörðu og öndvegis byggingatíð' runnin upp. Haraldur Sveinsson- sagði að timburinnflutningur væri háður leyfisveitingum ennþá Framh. á bls. 5

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.