Vísir - 25.03.1963, Blaðsíða 5
V1 S IR . Mánudagur 25. marz 1963.
Ný rannsókn á
Hrafnkelssögu
tökum þeim, sem virðast vera berg
máluð í sögunni. Eftir því sem ég
fæ bezt séð eru rökin fyrir því,
að Brandur Jónsson ábóti sé höf-
undur sögunnnar svo margvísleg
og traust, að óþarft er að draga
slíkt í efa“.
Auk inngangs eru í bókinni 11
kaflar fyrir utan nafnaskrá og til-
vitnanir. Stærð bókarinnar er 176
blaðsíður, hún er prentuð í prent-
smiðjunni Hólum og bundinn í
Hólabókbandinu. Frágangur er
allur hinn smekklegasti.
Hermann Pálsson lektor.
áreksfur —»
Kramhald at hls i
bifreið af Mercedes gerð R-2062
var að koma niður Stóragerði
(gamla Háaleitisveginn) Kvaðst
bílstjórinn á henni hafa stöðvað
við Bústaðaveg og Iitið í kring
um sig en ekki séð bíl koma
eftir Bústaðaveginum. Tók hann
þá af stað aftur, en þá kemst
hann að raun um að Dodge
bifreið R-5103 hafði verið á
mikilli ferð á Bústaðavegin-
um og við það að fara af stað
ekur leigubíllinn á vinstri hlið
hennar.
Dodge-bifreiðin nam þó ekki
staðar við þetta, enda mikil ferð
á henni, hélt hún áfram austur
eftir Bústaðaveginum en beygði
yfir á hægri vegarbrún. Þar
munaði 1 fyrstu litlu að hún
æki á ljósastaur, en síðan hélt
hún áfram eins og stjómlaus
eftir hægra kanti. Þar stóð
Fólksvagn R4772 á vegarkantin-
um og tveir menn hjá honum.
Skellur nú Dodgebifreiðin á
Fólksvagninum og mönnunum.
Öðrum manninum tekst með
undraverðum hætti að velta sér
undan hinni aðvífandi bifreið.
Hinn kastast upp á Fólksvagn-
inn og slasaðist illa, fótbrotnaði
m. a. Eftir þetta þverbéygir
Dodge-bifreiðin yfir á vinstri
vegarbrún og stöðvast á sk;urð-
bakkanum. Farþegi sem f henni
sat kastaðist á mælaborð og '
rúðu og meiddist illa.
Þegar blaðið átti tal við lög-
regluna um þetta f morgun bað ■
hún að birt yrði skilaboð til
sjónarvotta ef þeir væm ein-
hverjir að þeir kæmu og gæfu
lögreglunni skýrslu um atburð-
inn
Bókaútgáfan Þjóðsaga hefur
sent frá sér bókina Hrafnkels
saga og Freysgyðlingar eftir Her-
mann Pálsson lektor í Edinborg.
Hermann Pálsson er eins og kunn
ugt er afkastamikill rithöfundur og
hefur ritað margt um íslenzkar
bókmenntir. Með rannsóka sinni
á Hrafnkels sögu hyggst höfund-
ur sýna fram á að sagan sé skrifuð
upp úr miðri 13. öld með samtíma
viðburði í huga þótt efniviður sé
á margan hátt sóttur til 10. aldar.
Einig leitar Hermann að höfundi
Hrafnkels sögu. Um þetta hvor
tveggja segir í inngangi bókarinn-
ar:
Ráðherrar og miðstjórn Sjálfstæðisflokksins bera kistu Valtýs Stefánssonar í kirkju. .
Útför Valtýs Stefánssonar
Útför Valtýs Stefánssonar rit-
stjóra var gerð á laugardaginn frá
Dómkirkjunni. Hófst athöfnin kl.
10,30 fyrir hádegi. Kistu hins
Iátna ritstjóra báru í kirkju ráð-
herrar og miðstjórnarmenn’ Sjálf-
^æðisflokksins. Þá lék dr. Páll
ísólfsson sorgargöngulag eftir
Beethoven og Dómkirkjukórinn
söng „Hærra minn guð til þín“.
Dómprófasturinn sr. Jón Auðuns
flutti líkræðuna og minntist hins
mikla starfs Valtýs Stefánssonar.
Þá söng Kristinn Hallsson lofsöng
eftir Beethoven. Úr kirkju báru
kistuna nánustu samstarfsmenn
Valtýs Stefánssonar við Morgun-
blaðið, form. Árvaks h.f. og for-
maður Blaðamannafélags Islands.
Lúðrsveit Reykjavíkur lék sorg-
argöngulag utan við kirkjuna. Jarð
sett var í Fossvogskirkjugarði og
bárps,skó.aþækt^rstióri og skógrækt
grménn^kistuna si'ðasta spölinn.
Vaf,útfö,rin’t|njögJvirðuleg. Mik-
ill fjöldi blóma og minningar-
kveðja barst hvaðanæva að af
landinu.
„Þjóðfélag það, sem kemur fram
í Hrafnkels sögu, er blendið og
sundurleitt. Annars vegar koma
fram einkenni tíundu aldar, svo
sem Iandnámsþættir, heiðinn sið-
ur og sumar réttarvenjur, en hins
vegar eru aðrir þættir sóttir til
samtímans: afstaða höfðingja til
þingmanna, átök höfðingja og
valdabarátta, og fyrirmyndir ein-
stakra mannlýsinga og viðburða.
Og þegar Hrafnkels saga er lesin
ofan í kjölinn, má glögglega sjá,
að höfundur hennar hefur haft til
tekna samtíðaratburði í huga. At-
burðir þeir, sem hér um ræðir,
gerðust á tímabilinu 1242—1255,
og er þeim Iýst í Sturlungu, svo
að hægt er um vik að bera frá-
sagnir hennar saman við skáld-
söguna... Leitin að höfundi Hrafn
kels sögu er í sjálfu sér auðvelt
verk, þar sem höfundur hennar
virðist vera Svínfellingur, og á
hinn bóginn er kunnugt um einn
Svínfelling, sem sjálfur var rit-
höfundur og einnig nákominn á-
Ævintýri —
Málverkasýning ICára Eiríkssonar
Sl. laugardag opnaði Kári
Eiríksson sýningu í Listamanna-
skálanum. Kári hefur stundað
nám á Norðurlöndum og á Ítalíu
um þriggja ára skeið. Og síðast
í Róm, í boði Ítalíustjórnar. Þar
var honum boðið að sýna í
„Galleria Babuinetta. 1958 sýndi
Kári í fyrsta skipti í Flórens og
sama ár í Milano.
Gífurleg aðsókn hefur verið
að þessari sýningu og munu um
1400 manns hafa séð hana á
tveim dögum. 40 af 55 myndum
hafa selzt.
Sýningin stendur yfir í hálfan
mánuð og verður opin frá kl. 10
22 dag hvern.
Þetta er önnur sýning Kára
hér á landi. Sú fyrsta var í
Listamannaskálanum 1959.
Timbur —
Framh at I siðu
og leyfin væru venjulega veitt i
byrjun hvers árs. Hann sagði
ennfremur að hans verzlun t .d.
hefði þótt um innflutningsleyfi á
síðasta fjórðungi ársins sem leið,
og ætlað að birgja sig þannig
upp nógu snemma, en hefði þá
ekki fengið leyfi fyrir nema til-
tölega litlum hluta þess magns,
sem um hefði verið sótt.
Framhald af bls. 16.
hneig þá niður. Einhverjir vegfar-
endur sáu til mannsins og gerðu
lögreglu og sjúkraliði aðvart. Var
maðurinn fiuttur f slysavarðstof-
una og komst þar til sjálfs sín, en
reyndist lítið sem ekki meiddur.
Var hann að því búnu fluttur í
fangageymslu og geymdur þar yf-
ir nóttina.
Lögreglunni skýrði maðurinn svo
frá að hann hafi haft aðgang að
bíl bróður síns sem býr hér í borg,
en sjálfur býr hann utan við bæ-
inn og ætlaði hann að fara í bif-
reiðinni heim til sín eftir vel heppn
aða drykkju.
Tvennt slasast
í bifreiðaárekstri
í gærkvöldi, á tímabilinu kl.
hálfníu til níu varð umferðarslys
á þjóðveginum skammt frá Félags-
garði í Kjós. Tvennt slasaðist þar
í árekstri og var flutt í sjúkrabíl
í slysavarðstofuna í Reykjavík.
Fólkið sem slasaðist var í Volks-
wagen bíl og var á leið upp i
Kjös. Við stýrið sat kona, Sigþrúð-
ur Elísabet Jóhannesdóttir, en eig-
andi bifreiðarinnar Konráð Péturs-
son kennari við hlið hennar í fram-
sæti. I aftursæti sat unglingsstúlka
oa tvö börn.
Sigþrúður skýrði svo frá að hún
hafi ekið á hægri ferð, séð bíl
koma á móti sér, en um það leyti
og bílarnir mættust telur hún að
bíllinn hafi lent í skvompu á veg-
inum og í sömu andrá skullu bíl-
arnir saman. Við það brotnaði
framrúðan £ Volkswagenbifreiðinni
og bæði Sigþrúður og Konráð skár
ust allmikið í andliti, Konráð þó
meira, en hann hlaut stóran skurð
á enni.
Þá sem sátu í aftursætinu sak-
aði hins vegar ekki.
Þau Sigþrúður og Elísabet voru
bæði flutt í Slysavarðstofuna til
aðgerðar, en læknir taldi meiðsli
þeirra ekki alvarlegs eðlis, þótt
þau hafi skorizt og skrámast
meira eða minna.
Hjarkær eiginmaður minn faðir, tengdafaðir og afi
KRISTINN KRISTJÁNSSON
kaupmaður
Njálsgötu 77 andaðist 23. þ. m.
Vilborg Sigmundsdóttir
Reynir Kristinsson
Erna Haraldsdóttir
og barnabörn.