Vísir - 25.03.1963, Blaðsíða 11
V1SIR . Mánudagur 25. raarz 1963.
11
Slysavarðstofan i Heilsuverndar-
stöðinni er opin allan sólarhring-
inn — Næturlælcnir kl 18—8,
sími 15030.
Næturvarzla vikunnar 23.—30.
marz er í Vesturbæjar Apóteki.
Útivist barna: Börn yngri en 12
ára, til kl. 20.00, 12 —14 ára, til
kl. 22.00. Börnum og unglingum
innan 16 ára aldurs er óheimill að-
gangur að veitinga- dans- og sölu-
stöðvum eftir kl. 20.00
ÚTVARPIÐ
Mánudagur 25. marz:
Fastir liðir eins og venjulega.
13.15 Bændavikan hefst:
a) Ávarp búnaðarmálastjóra,
dr. Halldórs Pálssonar.
b) Þáttur frá búnaðardeild.
Flytjendur: Dr. Björn Sigur-
björnsson, Ingvi Þorsteins-
son magister og dr. Bjarni
Helgason.
14.00 „Við vinnuna" .tónleikar.
14.40 „Við, sem heima sitjum“:
Sigurlaug Bjarnadóttir les
skáldssöguna „Gesti“.
17.05 Sígild tónlist fyrir ungt fólk
(Reynir Axelsson).
18,00 Þjóðlegt efni fyrir unga
hlustendur (Stefán Jónsson.)
20.00 Um daginn og veginn (Guð-
múndur Jósafatsson frá
Brandsstöðumj.
20.20 Ástardúett úr óperunni „Tri
stan og Isolde" eftir Wagn-
er (Frida Leider og L. Melc-
ior syngja).
20.40 Spurningakeppni skólanem-
enda (10): Hagaskóli og Voga
skóli keppa í þriðju umf.
21,30 Útvarpssagan: „íslenzkur að-
all“ eftir Þórberg Þórðarson.
! 22.20 Hijómplötusafnið (G.G.).
23,10 Skákþáttur (Sveinn Kristins-
son). 23.45 Dagskrárlok.
7077
PIB
CGPENHASíN
Nær 18 þús. hafa séð
PÉTUR GAUT
Aðsókn hefir yfirleitt verið góð
hjá Þjóðleildiúsinu í vetur, en fyrst
og fremst að Pétri Gaut og Dýr-
unum* í Hálsaskógi.
Á laugardaginn verður 30. sýn-
ingin á Pétri Gaut, og má segja,
að nær alltaf hafi. verið uppselt,
en þó hefir þess orðið vart upp á
síðkastið, að aðeins hefir dregið
úr aðsókninni í miðri viku. Sýn-
ingargestir eru orðnir hátt á 18.
þúsund, og hefir sjaldan verið önn-
ur eins aðsókn að dramatísku verki
er Þjóðleikhúsið hefir sýnt. Mönn
um kann að finnast það einkenni-
legt, að talað sé um hagstæða tíð
fyrir leikhús, en þess hefir mjög
orðið vart að undanförnu, að fólk
hefir komið langar leiðir til að
sækja sýningar Þjóðleikhússins, en
slíkt mundi ekki auðvelt, ef tíð
væri verri.
Sama máli gegnir í rauninni um
aðsókn að Dýrunum í Hálsaskógi,
sem sýnd hafa verið 35 sinnum.
Þaú hafa laðað til sín börnin úr
nágrenninu, og má segja, að börn
í öllum skólum á stóru svæði, séu
búin að sjá leikritið. Er greinilegt,
Nú, hvað gætir þú svo hugsað þér
að borða hér, feitabollan þín?
asssssias'sHaBmíœ.'sni*
Gunnar Eyjólfsson i hlutverki
Péturs Gauts.
að sýningar verða yfir 40, en Kardi
mommubærinn var sýndur 45 sinn-
um fyrri veturinn. Vel getur svo
farið, að Dýrin fari fram úr því
meti.
Á miðvikudag verður svo frum-
sýning á leikriti, sem Þjóðleikhúsið
gerir sér góðar vonir um, að nái
til fjöldans. Það er leikritið And-
orra, sem fjallar um fjölskyldulíf,
kynþáttaofsóknir og annað — mál-
efni, sem eru á dagskrá í dag í
ríkara mæli en oft áður.
Þá er þess að geta, að hafnar
eru æfingar á óperunni II trovatore
síem frumsýnd verður um miðjan
maí. Fritz Weisshappel æfir ein-
söngvarana, en Carl Billich kórinn.
Sænskur leikstjóri kemur svo um
miðjan apríl.
Viðskiptasamning-
ur framlengdur
Viðskiptasamningur milli íslands
og Svíþjóðar frá 19. júní 1947 hef-
ur verið framlengdur óbreyttur
fyrir tímabilið 1. apríl 1962 til 31.
marz 1963.
Samningurinn framlengist sfðan
sjálfkrafa um eitt ár í senn, sé
honum ekki sagt upp með 2ja
mánaða fyrirvara. Bókun um fram
lengingu samningsins var undirrit
uð í Stokkhólmi hinn 11. marz
1963 af Hans G. Andersen, sendi
herra, og Thorsten Nilsson, utan-
ríkisráðherra Svíþjóðar.
VÖNDUÐ SAGA
EIMSKIPAFÉLAGSINS
Eimskipafélag Islands verður 50
ára gamalt á næsta ári — stofnað
14. janúar 1914 og mun þess verða
minnzt á ýmsan hátt.
Meðal annars mun saga félags-
ins, upphaf þess og allrar starf-
semi, verða gefin út í tilefni af af
mælinu, og verður mjög til henn-
ar vandað' í hvívetna. Það er Egg
ert P. Briem, fulltrúi, sem starfað
hefir um langt árabil hjá félaginu
sem félagsstjórnin hefir ráðið til
þess að rita sögu þess.
SJÓNVARPIÐ
Mánudagur 25. marz:
17,00 The Dennis Day show
17.30 Dobie Gillis
18.00 After News
18,15 American Bandstand
19,00 Sing along with Mitch
20,00 Death Valley Days
20.30 Overseas Adventure
21,00 The Witness
22,00* Twilight Zone
22.30 Peter Gunn
23,00 Country America
Final Edition news
/.■.V.V.V.V.V.v.v.v.'.v.'.v.v.v.v.v.v.v.v
stjörnuspá ^r*
morgundagsins *
Hrúturinn, 21. marz til 20.
apríl: Rétt að ræða málin við
aðra í dag. Ákjósanlegt undir
núverandi afstöðum.
Nautið, 21. apríl til 21. maí:
Taktu mark á upplýsingum,
sem verða veittar þér í trún-
aði, því þær geta komið þér
mjög vel þótt sfðar verði.
Tvíburarnir, 22. maí til 21.
júní: Heppilegt að taka þátt í
félagshfi í dag.
Krabbinn, 22. júní til 23. júlí:
Allar horfur á að þú vaxir í
áliti á vinnustað. Láttu það
samt ekki stíga þér til höfuðs.
Ljóniö, 24. júlí til 23. ágúst:
Aðrir kunna að hafa talsverð
áhrif á framtfðaráætlanir þín-
ar. Mál fólks í fjarlægum lands
hluta áberandi.
Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.
Ágætt að rukka inn gamlar
skuldir f dag. Sömuleiðis að
gera grein fyrir þínum eigin.
Vogin, 24. sept. til 23. okt.:
Deginum væri bezt varið með-
al fólks. Óráðlegt að hafa sjálf
ur frumkvæðið.
Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.
Ættir að geta afkastað miklu á
vinnustað. Forðastu deilur.
Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21.
des.: Dagurinn mjög hagstæð-
ur til tómstundaiðju. Útlit í
ástamálum vænlegt i kvöld.
Steingeitin, 22. des. til 20.
jan.: Réttast að sinna sem mest
heimili og fjölskyldu. Bjóddu
kunningjunum heim.
Vatnsberinn, 21 .jan. til 19.
febr.: Nokkur tilhneiging er hjá
þér til að hafa of mörg járn í
eldinum. Slíkt ber að forðast.
Fiskarnir, 20. febr. til 20.
marz: Allar líkur á eignaaukn-
ingu því tælúfæri til fjáröflun-
ar eru góð.
AV/.V.'.V.V.V.W.V.'.W.V.V.V.V.V.VASSW.V.V.V.V
Páskaferð Guðmund-
ar Jónassonar
Eins og um mörg undanfarin ár
mun Guðm. Jónasson, efna til
páskaferðar í Öræfasveit. Það var
fyrst 1957 að farin var páskaferð
í Öræfin, og hafa æ síðan verið
farnar við slvaxandi þátttöku. Á
þessum árstíma er hægt að aka
bifreiðum leið sem ekki er hægt
að sumri til. Ferðir þessar hafa
ætfð tekizt mjög vel.
Ferðin tekur 5 daga og verðið
er kr. 900,00.
11. apríl er ekið frá Rvík kl. 9
f.h. Viðkoma í Vík í Mýrdal og
Hjörleifshöfða, að Kirkjubæjarkl.
Gist þar. 12. apríl: Frá Kirkjub.kl.
austur yfir Skeiðarársand í Öræfi.
Farið í Bæjarstaðaskóg, Mosárdal
og að Svartafossi. Gist að Hofi. 13.
april: Dvalið I öræfum. Farið að
Jökulsá á Breiðamerkursandi, og
komið við á Fagurhólsmýri, Kví-
skerjum og Ingólfshöfða ef fært er.
Gist að Hofi. 14. apríl: Á Páska-
dag verður farið frá öræfum tii
baka yfir Skeiðarársand að Kírkju
bæjarklaustri. Gist þar. 15. apríl:
Ekið frá Kirkjubæjarkl. Komið í
Dyrhólaey og að Skógarfossi og
til Rvíkur um kvöldið. — Allar
uppl. ásamt farmiðasölu annast
Ferðaskrifstofan Lönd og Leiðir,
Aðalstr. 8, sími 20800.
Fundur fulltrúaráðsins
í Gullbringusýslu
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna
í Gullbringusýslu hélt fund föstu
daginn 15. þ.m. í nýja samkomu-
húsinu I Njarðvíkum.
Formaður fulltrúaráðsins Jósa-
fat Arngrímsson setti fundinn og
rakti ýtarlega þau mörgu verkefni
sem biðu í starfi félaganna og full-
trúaráðsins.
Fundarstjóri var kjörinn Einar
Halldórsson og fundarritari Áki
Granz.
Fundurinn kaus fulltrúa á 18.
landsfund Sjálfstæðisflokksins.
Sverrir Júlíusson og Axel Jóns-
son fluttu stutt ávörp og ræddu
um væntanlegar alþingiskosningar,
síðan voru almennar umræður og
tóku þessir til máls:
Valdimar Björnsson, Sveinn
Ólafsson, Einar Halldórsson, Magn
ús Guðmundsson, Páll Ó. Pálsson
og Jósafat Arngrímsson. Kom fram
mikill áhugi fundarmanna fyrir því
að gera sigur Sjálfstæðisflokksins
í Reykjaneskjördæmi sem glæsileg
astan f kosningunum í sumar.
CUT IT OUT, YOU CREEPS.
THE LORP OF THE MANOR
15 CHECKIN5 IN
TOPAY...
— herbergjum „þjónanna" í
Desmondale. Hvers konar spil
eru þetta. Sex drottningar? Ég
hélt að þér geðjaðist vel að
kvenfólki. Ekki þegar það er
með einhverjum öðrum. Hættið
draugarnir ykkar. Lávarðurinn
kemur í dag.