Vísir - 25.03.1963, Blaðsíða 16

Vísir - 25.03.1963, Blaðsíða 16
»r*v VISIR Mánudagur 25. ♦ Á áttunda þúsund manns meidd- ust af völdum umferðarslysa f Noregi 1962. Þar af biðu 349 bana og af þeim voru 48 undir 8 ára aldri og 22 8-14 ára. — Um 80 flelri meiddust eða biðu 'bana en 1961. Ævintýrí ölvaðro ökumanna Hvorki meira né minna en 10 ökumenn voru teknir um helgina vegna gruns um ölvun við akstur. Er það fátítt og nær einsdæmi að svo margir ökumenn hafi verið teknir fyrir ölvun við akstur um eina og sömu helgi. Einn þeirra sem var tekinn hafði lent úti í skurð við Breiðholtsveg á föstudagskvöldið. Með honum f bílnum var mágkona hans og höfðu þau ekið farartækinu til skiptis. Sá galli var þó þar á að hann var áberandi ölvaður en hún próflaus. Hafði maðurinn auk þess verið sviptur ökuréttindum ævi- langt áður í vetur. Annar ölvaður ökumaður hafði ekið á ljósastaur á mótum Miklu- brautar og Reykjahlíðar. Þetta atvik skeði aðfaranótt sunnudagsins og var ökumaðurinn dauðadrukkinn. Hann var á leið austur Miklubrautina, en fór þar upp á reitinn milli akbrautana síð- an yfir hann og yfir akbrautina hinumegin þar til hann komst upp ' á gangstéttina. Eftir henni ók hann spottakorn unz bifreiðin stað næmdist á ljósastaur og braut hann niður. En bifreiðin sjálf fór í hálfhring við áreksturinn. Við þetta fór maðurinn út úr bifreið- inni, gekk nokkur skref áfram, en Framhald á bls. 5 I ferðum á stolnum bilum m Keflavíkurveginn Tveim bifreiðum var stolið f fyrrinótt, annarri í Njarðvíkum en hinni í Hafnarfirði og þó ekk ert sé upplýst frekar um þessa bilþjófnaði bendir allt til þess, að sami bílþjófurinn hafi verið á ferð í bæði skiptin, hann hafi þurft að bregða sér fram og aft- ur milli Keflavíkur og Hafnar- f jarðar. Svo mikið er víst að bíll inn sem stolið var úr Njarðvík- um fannst í Hafnarfirði og bíll- inn sem stolið var úr Hafnar- firði fannst í Keflavík. Bifreiðinni J-0452 var stolið um nóttiha frá Reykjanesvegi 2 í Njarðvíkum. Er það Chervolet fólksbifreið eign bandarísks starfsmanns á Keflavíkurvelli. Þessi bifreið fannst síðan við Víðihvamm í Hafnarfirði. Um kortérsgang frá þeim stað sem J-bifreiðin fannst, stóð Chevrolet-vörubifreiðin G-2385 við Mosabarð 5 í Hafnarfirði. Var það verkstjóri við fiskverk unarhús í Hafnarfirði, sem hafði komið heim seint um kvöldið og skilið bifreiðina eftir fyrir utan hús sitt um nóttina með einu tonni af fiski á pallinum. Um morguninn þegar hann kom út og ætlaði í vinnuna var bíllinn horfinn með öllum fiskin um. Seinna i gær bárust hins- vegar fréttir af því að vörubíll- inn væri komihn fram. Billinn hafði fundizt við Hafnargötu 9 í Keflavík. Ekki var vitað til að neinar skemmdir hefðu orðið á bifreiðunum tveimur sem stol- ið var. Ohappaheígi hestamanna Einn dó og tveir slösuðust Þrjú meiriháttar slys og óhappa- tilfelli urðu hér i bænum um helgina í sambandi við útreiðar og hestamennsku. Einn maður dó, en tvennt siasaðist, karl og kona. Um klukkan 5 s.l. laugardag voru nokkrir menn að koma úr útreiðartúr og voru komnir á Skeiðvöllinn við Elliðaárnar. I þessum hópi var Kristinn Krist- jánsson sérleyfishafi til lieimilis að Njálsgötu 77. Þegar hann var að stíga af hestbaki rétt við hest- húsið á Skeiðvellinum hné hann allt í einu niður og missti um leið meðvitund. Var strax sent eftir sjúkrabifreið sem flutti Kristinn í slysavarðstofuna, en þegar þangað kom var Kristinn dáinn. Kristinn heitinn var á 60. aldursári og læt- Framboð Sjálfstæðis- fíokksins á Vestfjörðnm Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Vestfjarðakjördæmi hefur samþykkt fram boðslista flokksins í kjördæminu við alþingiskosningarnar í sumar. Listinn er þannig skipaður: ur eftir sig konu og börn. í gær datt Baldur Pálmason, Egilsgötu 14, hinn kunni útvarps- maður okkar, af hestbaki á Vatns- veituvegi. Baldur hlaut mikið höfuðhögg og heilahristing og var lagður inn í Landakotsspítala að athugun iokinni í slysavarðstof- unni. Þá varð annað óhapp á hestbaki í gær við Hafnarfjarðarveginn skammt frá benzínstöðinni í Hraunholti. Þar var kona ein úr Hafnarfirði Sigrún Árnadóttir á útreiðartúr og var með tvo til reið- ar. Allt í einu féll hún af baki. Var leitað hjálpar hjá lögreglunni og var konan flutt í fyrstu heim til sín en síðar á sjúkrahúsið Sól- vang. Ekki er vitað með vissu, hvernig þetta siys varð, en konan mun vera að nokkru lömuð. Hafnaði í verzlun Það óhapp vildi til á Akureyri í ' gærkveldi að mannlaus bifreið fór í ferðalag um Akureyrargötur og hafnaði inni á miðju gólfi verzlunarinnar Heba í Kaupangs- stræti. Bifreið þessi, stór og nýleg sendiferðabifreið hafði verið skil- in eftir fyrir framan aðalverzlunar- byggingu Kea, en runnið af ein- hverjum ástæðum á stað og kom- izt á allmikla ferð. Hún sýndi þó þá fullu kurteisi að stefna beint á dyr verzlunarinnar Hebu, en það er ný og glæsileg kvenfataverzlun sem Jón Þórarinsson kaupmaður á. Vegna þess að dymar voru of þröngar fyrir bílinn tók hann dyra- umbúnaðinn með sér og ennfrem- ur nokkuð af veggnum og nam þar staðar eftir að vera komin hálf inn á búðargólfið. 1. Sigurður Bjarnason, ritstjóri, frá Vigur, Reykjavík. mm ■ ■ \ ■ ' Wmm iilil •) 'i 2. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, framkvæmdastjóri, Reykjavík. 3. Matthías Bjamason, fram- kvæmdastjóri, ísafirði. 4. Ari Kristinsson, sýslumaður, Patreksfirði. 5. Kristján Jónsson, kennari, Hólmavík. Bgfllæi r Xír$.-. ■; j ■■•'■'" ■ í ' ■• '■ iVJV-i'-V'-4?ívV-.'■••• • ÍMMÉHBlmg; ■ f . * - .. 6. Einar Guðfinnsson, útgerðar- maður, Bolungarvik. 7. Rafn A. Pétursson, fram- kvæmdastjóri, Flateyri. 8. Aðalsteinn Aðalsteinsson, bón’di, Hvallátrum. 9. Séra Andrés Ólafsson, prófastur, Hólmavik. 10. Marzelius Bernharðsson, skipasmiðameistari, fsafirði.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.