Vísir - 25.03.1963, Síða 2

Vísir - 25.03.1963, Síða 2
2 V í S I R . Mánudagur 25. marz 1C63. im KR ÍSLANDSMEISTARAR ÍR burstaði Ármann 71:48 Ármann sigurvegari í 8. flokki 1 gærkvöldi voru leiknir tveir leikir i körfuknattleiksmótinu. Ár- mann og Skarphéðinn í I. flokki og f meistaraflokki ÍR og Ármann. Fyrri leikurinn var milli Ár- manns og Skarphéðins. Ármann sigraði með yfirburðum 73:41 og hlaut þar með meistaratignina í I. flokki. Eru þeir vel að titlinum komnir þar sem þeir hafa unnið alia leiki sína með yfirburðum. I liði Árnesinganna eru nokkrir efnilegir leikmenn. en þeir eiga mikið ólært. Seinni leiksins var beðið með nokkurri eftirvæntingu, þar sem Ármenningar hafa staðið sig mjög vel að undanförnu. Var þess vænzt, að þeir mundu hafa í fullu Framh. á bls. 6 26—15 og unnu mótið — og ísland varð neðst fyrir bragðsð ísland hafnaði i neðsta sæti Noröurlandamótsins í hand- knattleik unglingalandsliða. — Samt var árangurinn nú betri en í fyrra. Nú vann ísland einn Ieik, én í fyrra fékkst aðeins eitt jafntefli. „Við verðum að horfast í augu við staðreyndirnar,“ sagði Ásbjörn Sigurjónsson, er við náðuni í hann í gærkvöldi á Regnbuen, binum víðkunna veit ingastað í Oslo, en þar sat liðið að snæðingi. „Föstudagurinn reið liðinu að fuliu. Fyrst harð- ur leikur gegn Norðmönnum. síðan harka gegn Dönurn, en þann leik hefðu piitarnir unnið, ef ekki hefði liðið svo stutt frá leiknum við Noreg. Á laugar- dag var liðið mjög slakt, menn með harðsperrur og strengi um alian skrokkinn og ekki mikið um góða baráttu f liðinu.“ ísland tapaði á laugardag gegn Finnum nieð 17-12 og var sigur Finna sanngjam. íslend- ingar voru greinilega þreyttir í leiknum og leikgieðin brauzt aldrei fram hjá þeim. í gær tapaði íslenzka liðið með 15-26 gegn Svíum og gátu aldrei rönd við reist gegn hinum snjöllu leikmönnum Svía, sem urðu Norðurlandameistarar með því að skora svo oft hjá íslending- um. í hálfleik var staðan 12-7. Danir unnu Svía 15-13 í gær og Norðmenn Finna 15-11. Svíar unnu keppnina á aðelns 1 marki yfir Dani, en hefði Dönum tekizt að skora einu sinni enn í úrslitaleiknum gegn Svíum, hefði sigurinn lent í þeirra höndum. Neðsta sætið lenti mjög knappt f höndum fslands, sem hafði 4 mörkum lakara markahlutfall en Finnar, en bæði vom löndin með 2 stig. íslcnzku leikmennimir eru viðurkenndir sem góðir „taktík- erar“ f leik sfnum, en allt of daufgerðir og þróttiitlir, og er það mál manna í Noregi að ís- lendingum hafi hér orðið lít- ið út úr góðum efnivið. Sex leikmannanna sem léku með nú fá aldurs vegna að vera með í Framhald á bls. 6. Körfuknattleikur: i II. FL OKKI r — Unnu IR naumlega 48:44 Úrslitaleikurinn í II. fl. á fs- landsmótinu f körfuknattleik var háður s.l. laugardagskvöld. Átt- ust þar við KR og ÍR; 1 byrjun var taugaóstyrkur helzta ein- kenni leiksins og voru dómararn- ir manna verstir. Anton skoraði fyrstu tvö stigin fyrir fR, úr vlta- köstum. ÍR náði þegar betri tök- um á leiknum. Voru mun ákveðn- ari en KR-ingar, lengst af. Þeim gekk betur að skora og höfðu yfirhöndina allan fyrri hálfleikinn. Komust þeir mest 12 stigurn yfir (21:9) er nokkrar mínútur voru eftir af hálfleiknum. KR rétti nokkuð hlut sinn það sem eftir var hálfleiksins og stóðu leikar 21:15 fyrir ÍR að honum loknum. KR skoraði fyrstu þrjú stig seinni hálfleiksins. ÍR-ingar tóku sig á og héldu forustu sinni megn- ið af hálfleiknum. Mest munaði 10 stigum, lengst af höfðu þeir þó átta stig yfir. En þar kom, að þeir misstu tökin á leiknum og um ieið fslandsmeistaratitilinn. — KR sótti mjög í sig veðrið og minnkaði bilið jafnt og þétt. Er örfáar mínútur voru til leiksloka stóðu leikar jafnir 42:42. KR tryggði sér sigur á síðustu mín- útu, en leiknum lauk með 48:44. Hlutur dómara er mikill í hverj- um leik;, og vandrataður hinn gullni meðalvegur. Venjulegast dæma þeir of lítið. Þessi leikur var andstæðan. Fyrsti ofdæmdi leikurinn í körfuknattleik á fs- landi, að margra áliti. Setti þetta mjög svip á leikinn. í byrjútt var dæmd villa á hverja varnartilraun af beggja hálfu. Einum ieikmanna ÍR, Viðari, varð það á að verða hissa á þessu athæfi. Fyrir vikið var dæmd á hann hæfnisvilla (ótil- hlýðileg framkoma gagnvart dóm- ara). Þar með var hann kominn með 4 villur (á 5 mín.). Við næsta brot hefði hann orðið úr leik og hafði hann sig lítt í frammi eftir það. Þegar á leið varð úr þessu hrein vitleysa. Sem dæmi má nefna, að einn leikmanna KR fékk sína 5. Framh. á bls. 6. Hulda Guðmundsdóttir og Óskar Guðmundsson unnu Reykjavíkur- meistaratitilinn í tvenndarkeppninn i. Norðurlandamót í handknattleik: Svtor sigruBu Ísíendingu Hinir ungu og efnilegu KR-ingar sem hrepptu sigurinn á íslandsmóti en þeir unnu spennandi úrslitaleik gegn ÍR með þriggja stiga mun. 2. flokks í körfuhandknattleik, með 6-—15, vann hins vegar seinni lotuna 15—3. Aukalotuna vann Óskar svo með 15—8. Jón Árnason, sem keppti gegn Óskari í úrslitunum hefur um nokkurt skeið stundað sjómennsku og ekki getað sinnt æfingum af þeim sök- um. Verður fróðlegt að fylgjast með þeim köppunum á íslandsmót- inu í vor, þegar Jón verður kom- inn í æfingu. Óskar og Garðar Alfonsson fengu óvænta andstæðinga í úrslit- Framhald á bls. 6. ÓSKAR GUÐMNDSSON sýndi í gærdag geysilega yfirbu'rði á Reykjavíkurmótinu í badminton, sem fram fór í Valsheimilinu. Ósk- ar, hinn hnellni og snöggi leik- maður varð þrefaldur meistari og virtist alis ósigrandi. Hann vann einliðaleikinn, tvíliðaleik karla á- samt Garðari Alfonssyni og tvenndarkeppnina ásamt Huldu Guðmundsdóttur. Úrslitin i einliðaleiknum voru skemmtileg. Óskar var ekki fijót- ur í gang og tapaði fyrstu lotunni w/y////Æk//////////áM/////////M Badminton: ÓSKAR ÞREFALD- UR MEISTARI

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.