Vísir - 09.04.1963, Page 2
2
V1S IR . Þriðjudagur 9. apríl 1963
SKÍÐALANDSMÓTIÐ HAFIÐ Á
SIGLUFIRÐI
©•- \%Lrn |—j u—! n^j
/M
‘=T~r=1 T
v-. y////m v//////////sm '//////////,m //////
Fara varð upp undir Siglu-
fjarðarskarð fil að fá snjó
í dag hefst íslandsmót á
skíðum á Siglufirði. Átti
að setja það kl. 2,30 í dag
og síðan átti að hefjast
keppni í 10 km. göngu.
Ætlunin hafði verið' að skíða-
landsmótið yrði haldið á Aust-
fjörðum í ár, en þegar til kom
neyddust Austfirðingar til að til-
kynna að slíkt væri ekki fram-
kvæmanlegt þar sem snjó vantaði.
Þá hlupu Siglfirðingar undir
bagga, enda eru fjöllin upp af
Siglufirði ein mesta snjóakista
iandsins og auk þess er hvergi á
landinu eins mikill og almennur
•íhugi fyrir skíðaíþróttinni eins og
á Siglufirði, hvergi eins margar
hendur reiðubúnar til að leggja
■-kíðaíþróttinni lið.
Svo snjólétt er nú á landinu, að
bað hefur reynzt erfiðleikum bund-
ið jafnvel á Siglufirði að finna
-njóinn. Venjulega eru skíðamótin
haldin í hlíðinni rétt fyrir ofan
síldarverksmiðjurnar á Siglufirði
og þar hefur staðið skúr fyrir
skíðalyftu, en nú hefur bara eng-
inn snjór verið í þeirri hlíð kring-
um skíðalyftuna.
í stað þess fara Siglfirðingar
með mótið upp á fjöll og fer það
að mestu fram í Skarðdal, Siglu-
fjarðarmegin við Siglufjarðarskarð.
Þó þar sé komið upp í 300 metra
hæð er ekki meira en svo að hægt
sé að fá snjó þar. Hafa siglfirzkir
áhugamenn t. d. orðið að leggja
geysilega vinnu í að laga til stökk-
braut þar á dalnum og flytja til
mikið magn af snjó. Er aðdáunar-
vert hve Siglfirðingar hafa unnið
vel og rösklega að undirbúningn-
um og hefðu engir nema þeir getað
braugðið svo rösklega við.
Mótið átti að hefjast í dag kl,
14.30 og skyldi Einar B. Pálsson
formaður Skíðasambands íslands
setja það. Kl. 15 átti að vera 10
km. ganga fyrir 15—16 ára kepp-
endur, kl. 16.00 10 km. ganga
fyrir 17—19 ára keppendur og kl.
16,45 15 km. ganga fyrir full-
orðna. Rás og endamörk eru við
Þvergil, en þangað eru Siglfirðing-
ar búnir að flytja skíðalyftuskál-
ann, sem staðið hefur í hlíðinni
fyrir ofan Siglufjörð. Þar verður
mótsstjórn, fyrirgreiðsla og fleira.
Á miðvikudag verður keppt í
skíðastökki í öllum greinum, bæði
í norrænni tvíkeppni og í meistara-
flokki. Hefst keppnin kl. 14,00.
Stökkpallurinn er í Skarðdal vest-
an í Súlum.
Á fimmtudag (skírdag) hefst kl.
14,00 keppni í svigi karla og kl.
15.30 verður 4x10 km. boðganga.
Á föstudaginn langa verður
haldið kl. 10 um morguninn þing
skíðasambandsins og kl. 14 fara
skíðamenn í messu í Siglufjarðar-
kirkju. Sr. Ragnar Fjaiar Lárusson
prédikar.
Skíðalyftuskálinn, sem staðið hefur rétt fyrir ofan Siglufjörð, sem hefur nú verið fluttur upp i Skarðdal.
Þar verður mótsstjórnin.
Páskadag kl. 14 hefst svig
kvenna og kl. 14,45 flokkakeppni
í svigi.
Ýmsar skemmtanir verða haldn-
ar á Hótel Höfn. Á miðvikudags-
kvöldið verður dansleíkur þar og
á fimmtudagskvöldið verður kvöld-
vaka. Á páskadagskvöld verður
verðlaunaafhending þar og á mið-
jj Knattspyrnumenn í
iiVíðavangshlaupi IR?
Víðavangshlaup lRr hið 48. f
■| röðinni, fer fram á sumardag-
inn fyrsta, 25. apríl n. k., enda
■I er hlaupið fyrir löngu orðið ein
■“ hinna ómissaniegu „tradisjóna“
J> í borgarlífinu.
•I Undanfarin ár hefur hlaupið
[■ ekki verið eins reisnarlegt og
*• áður fyrr og er leitt tii þess að
vita. Er ekki ósennilegt að
margir íþróttamenn beri of
mikla virðingu fyrir hlaupinu
og telji að hér sé aðeins um
þraut að ræða fyrir góða frjáls-
íþróttamenn, en vitanlega þarf
það ekki að vera, knattspyrnu-
menn, handknattleiksmenn og
leiknienn úr öðrum íþrótta-
greinum geta tekið þátt í því |
og oft hafa einmitt slíkir komið J
á óvænt með getu sinni, enda ■
eiga þeir um þetta leyti árs að J
hafa góða úthaldsþjálfun.
Það sem mælir einnig með ■
þátttöku t. d. knattspyrnu- J
manna er að víðavangshlavpið ■
er sveitakeppni 3ja og 5 manna J
auk þess sem keppt er um ein- 1
staklingsverðlaun, en undan- ■
farin ár hefur stundum aðeins J
ein eða jafnvel engin 5 manna <
sveit verið með í hlaupinu. ]
Þátttaka í Víðavangshlaupinu J
á að berast til formanns ÍR, i
Reynis Sigurðssonar í Sokka- J
búðinni, Laugavegi, sími 13662, 1
ekki síðar en 20. apríl n. k. J
nætti hefst dansleikur sem stendur
til kl. 5 um nóttina.
I mótsstjórn eru þessir menn:
Helgi Sveinsson, Aðalheiður Rögn-
valdsdóttir, Baldur Ólafsson, Bragi
Magnússon, Guðmundur Árnason,
Jón Þorsteinsson og Vilhjálmur
Guðmundsson.
Snyrtiskólinn
Dagnámskeið laus eftir páska.
SNYRTISKÓLINN
Hverfisgötu 39. Sími 13475
Úrvals vestfirzki hákarlinn
er nú kominn aftur.
HAKARL fIskbúðin laxá
Grensásvegi 22.