Vísir - 09.04.1963, Blaðsíða 5
VÍSIR . Þriðjudagur 9. apríl 1963
5
^vwwywA/vwwNA^vy
Óhæf
auglýs-
ing
Daglega birtist nú í öllum
[ borgarblöðunum bíóauglýsing
’frá Bæjarbíói í Hafnarfirði. Er
I þar auglýst mynd sem bíóið
* kallar „eina fegurstu náttúru-
, mynd sem sést hefir á kvik-
i myndatjaldi“. Og síðan bætir
' bíóið við: „Sjáið öm hremma
i bjamdýrsunga". Vafalaust hefir
»stjórn þessa kvikmyndahúss
í ekki gert sér ljóst að þessi aug-
, lýsing er hneyksli. Hámark
»myndarinnar virðist vera það,
| eftir auglýsingunni að dæma, er
i ránfugl ræðst á hún og
»limlestir hann ef ekki drepur.
’ Og á þessu atriði er smjattað í
, auglýsingunni til þess að auka
> aðsóknina.
Þannig auglýsingabrögð eru
, langt fyrir neðan virðingu
1 þessa ágæta kvikmyndahúss —
[ einkum og sér í lagi þegar þess
, er gætt að kvikmyndin er ekki
»bönnuð börnum.
60. sýning á
Hart í bak
í kvöld sýnir Leikfélag Reykja-
víkur Hart í bak eftir Jökul Jak-
obsson í 60. sinn. Leikrit Jökuls
hefur vakið feikilega athygli, það
fékk á tínum tíma góða dóma leik-
gagnrýnenda, og fólk hefur keppzt
við að komast á sýningar Leikfé-
lagsins. Mun það eins dæmi í sögu
félagsins, að leikrit hafi gengið
svo frábærlega sem Hart í bak,
því uppselt hefur verið á allar sýn-
ingar fram til þessa.
Pearson —
rramnaio -il hls I
Creditflokksins, sem hindraði Frjáls
lynda flokkinn í að sigra þá. Þeir.
virðast hafa misst fylgi, eins og
spáð var fyrir kosningarnar, en
Nýdemokratar hafa nokkurn veg-
inn haldið sínu. Attaníossar
þeirra eru kommúnistar og
sprengju-„bannmenn‘ (ban-the-
bombers) og slangur af öðrum.
Diefenbaker sótti hart fram í
kosningunum og ætlaði að sigra
á andúð gegn því, að bandarísk
kjarnorkuvopn væru geymd í Kan-
ada o. s. frv., en Pearson kvað
skylt að standa við gerða samninga
um vamir við Bandaríkin og fyrir
beztu, að með Kanada og Banda-
ríkjunum væri sem bezt samvinna.
Þetta var framan af mesta hita-
málið, en í vaxandi mæli var deilt
um efnahagsmál og mál manna af
frönskum stofni því lengra sem
leið á kosningabaráttuna. Nærri 10
milljónir manna voru á kjörskrá.
Þvf var spáð fyrir kosningamar,
að Frjálslyndi flokkurinn kynni að
sigra með naumum meirihluta, en
svo gæti farið, að enn yrði mynduð
minnihlutastjórn eftir kosningarn-
ar, en í fernum kosningum á 6 ár-
um hefir það verið gert. — Áður
en íhaldsflokkurinn komst til valda
hafði Frjálslyndi flokkurinn verið-
við völd í 22 ár samfleytt og þar
af hafði Lester Pearsson verið
utanríkisráðh. 9 ár og yegur hans
vaxandi sem stjórnmálamanns á al-
þjóðamælikvarða. Nú mun honum
vafalaust verða falin stjórnar-
myndun, þar sem hann hefir að
baki sér langstærsta þingflokkinn.
Björn Pálsson kominn mei
Lóu til Orkneyja
Vfsir átti viðtal við Björn Páls-
son flugmann kl. um 11,20 og var
hann þá lentur í STORNOWAY
á Orkneyjum fyrir um 20 mín.
— Við flugum hingað frá Prest
vík ,sagði Björn og er allt í bezta
gengi hjá okkur. Við fengum aust
an golu og sólskin, en annars
finnst okkur hálfkalt.
— Eru fleiri með þér en Bright
12 mílur
Framh ai l. síðu
tíðinda í færeyskum stjórnmál
um, þar sem stjórnarflokkarnir
eru svo ósammála í þessu megin
máli.
Vísir átti í morgun stutt sím-
tal við Hákon Djurhuus lögm.
og spurði hann hvað myndi nú
gerast í færeyskum stjórnmál-
um. Hann sagðist ekki geta sagt
um það. Mótmæli Erlendar Pat-
urssonar væru sama eðlis og
barátta vissra flokka á íslandi
gegn landhelgissamkomulaginu.
Ég er hins vegar þeirrar skoð-
unar, að úr því að Danir hafa
síðasta orðið í þessu máli, þá
beri að fagna því sfðasta orðið
komi eftir 10 mánuði
Færeyingar séu svo lengi bún-
ir áð bíða eftir því að réttur
þeirra sé virtur í þessu, að 10
mánaða bið til lokaúrslitanna
skipti engu verulegu máli.
Vísir spurði, hvernig lögmað
urinn héldi að færeyska þjóðin
tæki þessu. Hann svaraði að
meirihluti hennar myndi á-
byggilega sætta sig við þetta
og öruggur meirihluti væri fyr
ir stuðningi við þetta á Lög-
þinginu, hvað sem Þjóðveldis-
flokkurinn gerði, þar sem öll
stjórnarandstaðan myndi styðja
þessa ’ákvörðun.
Útvíkkun landhelginnar við
Færeyjar er mikið réttinda- og
nauðsynjamál fyrir Færeyinga.
Nauð erlendra togara á færeysk
um miðum hefur jafnvel verið
miklu meiri en á miðunum við
ísland og fiskveiðar þeirra
heimafyrir illa farnar af ofveiði
heima fyrir illa farnar af of-
veiði.
Tösku stolið —
Framhald af bls. 16.
tösku. Hún var horfin. Enginn veit
hvernig á hvarfi hennar stendur og
skipverjar í m.s. Akraborginni telja
sig ekki hafa orðið grunsamlegra
mannaferða varir,
I töskunni voru aðallega föt, þ.
á. m. ljósbrúnn rúskinnsjakki,
skíðabuxur og skyrtur, en auk þess
rafmagnsrakvél og smádót ýmis-
legt. Merkispjald var á töskunni
merkt upphafsstöfunum „T. T.“ Ef
einhver hefði orðið töskunnar var,
eða gæti gefið upplýsingar I þessu
máli, er hann beðinn að hafa tal
af rannsóknarlögreglunni.
flugstjóri?
— Já, Lárus Óskarsson og Örn-
ólfur Árnason.
— Ertu búinn að taka ákvörð
un um næsta áfanga?
— Nei, ég geri það innan
klukkustundar. Þá læt ég flug-
turninn vita. Hafðu samband við
hann. Það er spáð versnandi veðri
heima, svo að ég er að bíða frek-
ari frétta og athuga málið.
— Ætlarðu beint til Reykjavík-
ur?
— Það veit ég ekki enn. Fái ég
mótvind, fljúgum við til Horna-
fjarðar. Annars beint til Reykja-
víkur.
— Þú ert ánægður með flugvél-
ina?
— I alla staði. Þú heilsar öll-
um heim.
' Sjálfsagt, og gott gengi.
Fölksvagnarnir
sfreyma inn
Undanfarið hefur bílainnflutn
ingurinn verið óvenjulega mik-
ill til landsins. Vísir birti fyrir
rúmum tveimur vikum mynd af 1
bílastæði við Kleppsveginn þar I
sem yfir 100 fólksvagnar stóðu ,
og biðu eftir hinuin nýju eig-
endum sínum, nýkomnir úr
skipi. Ljósmyndari blaðsins átti
leið fram hjá sama stað í gær
og tók þá þessa mynd. Allir'
bílamir eru horfnir út á götur 1
borgarinnar og út á land. En
ekkert lát er á bílainnflutningn-
um, og í dag eða á morgun verð i
ur komið stórt hundrað fólks- |
vagna á bílastæðið.
Fyrirlestur um brezlca
framhaldsskóla
Hingað til lands er væntanlegur
á næstunni brezkur skólameistari,
Mr. C. R. Allison, og mun hann
flytja fyrirlestur þann 18. þ. m.
um efnið „Changes in British
Secondary Education". Verður
fyrirlesturinn fluttur í I. kennslu-
stofu Háskólans kl. 5 e. h. og er
öllum heimill aðgangur. Það er fé-
lagið Anglia sem gengst fyrir
komu Mr. Allison hingað til lands.
Mr. Allison er skólastjóri Brent-
wood School í Essex og er kunnur
skólamaður í Bretlandi. Hann lauk
háskólaprófi frá Cambridge og
hefir síðan gegnt ýmsum kennara-
embættum og skólameistarastarfi
við þrjá brezka menntaskóla. Hann
er meðlimur hinnar brezku stjórn-
arnefndar UNESCO, Council for
Education in World Citizenship
og situr í stjórn Convenantors
Educational Trust. Hingað kemur
hann frá Bandaríkjunúm þar sem
hann hefur verið á fyrirlestrarferð
að undanförnu.
MMMBWMOMMH
Einar Olgeirsson á Alþingi:
Villidýr / frumskogum auísins
Þjóðviljinn gerði í síð-
ustu viku tilraun til að
bera Vísi á brýn fölsun
á ummælum Einars 01-
geirssonar með því að
rangfæra orð hans og
setningar. Þeim ásökun-
um hefur verið svarað
hér í blaðinu. En þar
sem ræður og málfiutn-
ingur Einars Olgeirsson-
ar hefur borizt í tal, gæti
verið fróðlegt að gefa
lesendum tækifæri til að
kynnast orðbragði þessa
stjórnmálaforingja.
Á laugardaginn flutti Einar
rúmlega klukkutíma ræðu uni
Efnahagsbandalag Evrópu, ekki
um þá afstöðu sem við verðum
að taka, efnahagslega séð,
heldur skv. áliti sfnu á stofnun
bandalagsins og forystumönn-
um þess. Lagði hann áherzlu á,
að við íslendingar ættum ekki
að ánetjast Efnahagsbandalag-
inu, ekki að Iáta það ráða yfir
okkur. Ástæðan fyrir því er sú,
hvernig mennirnir eru, sem
stofnuðu bandalagið og stjórna
því nú. Gaf Einar nokkra lýs-
ingu á þessum mönnum og
verða hér upp talin nokkur
þeirra orða, sem þessi íslenzki
stjómmálaforingi notaði:
Þrælasalar og heimsvelda-
sinnar
harðsvíraðir og harðbrjósta
auðdrottnar
villidýr auðsins
kúgarar, sem gera tilraunir
til að svelta bændur
rnenn, sem hata lýðræðið
skammsýn borgarastétt
svikarar síns lands
villidýr í frumskógum
auðsins.
Því miður gafst ekki tækifæri
til að ná öllum þeim stóryrðum
sem Einar stjórnmálaforingi
Olgeirsson Iét sér um munn fara
við þetta tækifæri, en þessi
sýnishorn eru tekin, sem glöggt
dæmi speki þeirrar og hygg-
inda, svo ekki sé talað um hug
þann sem að baki býr þess, sem
foringi fslenzkrar konunúnista
viðhefur á Alþingi íslendinga.