Vísir - 09.04.1963, Síða 15
“75
y í S IR . Þriðjuda^ur 9. apríl 1933
©
framhaídssaga
etiir Jane Blackmore
■■irvir ■ v—jviwwjtju:» ■■■^v'iWffgaEBsasaagiMat’BegBg't
skin
Hún dró gndann eins og hún
skyndilega væri gripin mæði.
— Ég hafði gert mér vonir um,
að þú veldir Lauru.
—Ég veit það.
— Veizt —- þú -— það?
— Sorrel sagði mér það.
Hann hristi höfuðið og horfði á
hana og bætti við:
— Þetta var ekki fallegt af þér,
mamma, það kom eins og dálítil
harka í svip hennar.
— Laura tilbiður þig, Davíð.
— En ég tilbið hana ekki.
— En hún er héðan, allir þekkja
hana og fólkið hennar og hún er
vinsæl. Það er mikilvægt, að þú
sem ert Iæknir, takir allt til greina.
Það er ekki sama hvaða konu þú
gengur að eiga.
Hann hló við vinsamlega.
— En, mamma, þú hlýtur að
vita, að allir eru þannig gerðir, að
þeir vilja helzt ganga að eiga þá
konu, sem þeir elska.
— En hvernig geturðu elskað
hana — þú þekkir hana ekki neitt.
Þú þekkir ekki fólkið hennar —
veizt ekki einu sinni hvaðan hún
er.
— Ég ætla mér ekki að kvongast
heilli fjölskyldu — heldur konu.
Frú Vane var orðin hikandi á
svip. Hún horfði á son sinn, sem
hún elskaði af innileik, næstum
örvæntingarfullum kvíða. Hún
hafði engar sannanir eða fram-
bærilegar ástæður. Bara hræðileg-
an grun um, að eitthvað óttalegt
mundi koma fyrir hana. Og þetta
hugboð hafði haldið innreið sína
sína sama daginn og Sorrel kom
til hennar — hin fagra Sorrel, sem
virtist halda vel á virðingu sinni
en all kuldalega. En hvað sem
því leið var henni farið að þykja
vænt um þessa ungu, fögru konu.
Davíð leit í áttina til Sorrel og
Jónatans, sem litu upp og fylgdust
af ákefð og ánægju með ferðum
flugdrekans. Hún virtist svo ung —
og lítið lifsreynd — eins og hún
var nú. Honum fannst erfitt að gera
sér í hugarlund, að þetta var sama
konan, sem hafði horft á hann af
örvæntingu i tunglskininu. Hann
hafði þrátt fyrir allt sannfærzt um
að hún hafði farið frá honum með
kærleik í hjartanu.
— Davíð, sagði frú Vane.
— Já, mamma.
— Hefirðu — hefirðu spurt
hana. ,
Það brá eins og skugga á andliti
hans.
— Nei, það hefi ég ekki gert.
— Fyrst svo er langar mig til
þess að biðja þig að bíða — bíða
svolítið lengur.
Hann horfði kuldalega á hana
en áður hann gæti sagt nokkuð
bætti hún við titrandi röddu:
— Davíð — ég er ekki á móti
— En það ertu nú samt.
— Nei, nei, sagði hún og kom
þjáningarsvipur á andlit hennar,
— ég vil bara, að þú verðir ham-
ingjusamur.
— Það veit ég, mamma, svaraði
hann.
Tárin komu allt í einu fram í augu
hennar.
— Davíð, ef ég að eins vissi
hvað er á seyði — Ég er hrædd,
Davíð.
Þetta var eins og bæn, borin
fram í angist. Og honum fannst
eins og verið væri að slíta hjarta
sitt í sundur, því að hann elskaði
báðar þessar konur, móður sína
og Sorrel.
Hann greip um hendur móður
sinnar — tók um þær eins og hann
vildi ylja henni.
— Treystu mér, mamma, sagði
hann innilega. Ég skal vernda þig.
Og treystu á Sorrel, trúðu því, að
þér er það óhætt.
En áður en hún gæti svarað var
sagt háum, hvellum rómi bak við
hana, biturt og háðslega:
— Vitanlega, treystu Sorrel.
G. kapituli
Davíð rétti úr sér, en frú Vane
snéri sér við og sagði undrandi:
— Díana.
Davíð reyndi að hlæja napurlega.
— Svo að þú ferð snuðrandi um
að baki fólks og ieggur við hlust-
irnar
Diana hafði komið labbandi milli
runnanna án þess þau yrðu henn-
ar vör. Hún nam staðar ögrandi á
svip fyrir framan þau. I’ kinnum
hennar voru rauðir dílar og heift
í augum og þurfti ekki að fara í
grafgötur um, að reiðin sauð í
henni.
— Á þessum stað tel ég mig
hafa rétt til að leggja við hlustir-
nar hvenær sem er, enginn segir
mér neitt.
Hún brosti við beisklega.
Ég vona, að þér finnist það
skemmtilegt sem þú kemst á
snoðir um, sagði Davíð hæðnis-
lega.
— Mjög svo.
— Hvers varstu svo vísari?
— Nægilega mikils til þess að
óska þér til hamingju. Hún horfði
á hann frekiulega — þótt það sé
kannski dálítið á undan áætlun
að korna með hamingjuóskirnar nú.
Svo kom eins og kipringur í
munnvikin.
— Rupert hefir sýnt mér þann
hciður, ef ég má orða það svo, að
óska eftir skilnaði.
—: Skilnaði hrópaði frú Vane,
veikdm rómi.
— Það er orð sem lætur ekki
vel í eyrum þeirra. sem ekki óska
eftir slíku.
Davíð horfði á hana. Var þetta
satt? Var það þetta, sem Sorrel
hafði átt við? Var það þetta, eða
eitthvað þessu tengt, sem hún
hafði ekki árætt að segja honum.
— Jæja, þér skilst kannski nú,
Davíð, hélt Diana áfram, að þú
hefir keppinaut.
— Jónatan?, spurði frú Vane.
Hvað verður um drenginn?
Diana horfði hvasst á hana.
— Það þarf ekki að ræða um
Jónatan vegna þess.
— Hvers vegna ekki?
— Vegna þess, að þú tókst hann
frá mér og hann hefir ekki verið
minn lengi.
Diana mælti næstum eins og
hún væri gripin móðursýki. Það
var ekki nóg á mig lagt með því,
að ég gat ekki átt barn. Það varð
að taka frá mér það barn, sem
ég hafði tekið að mér, barn annar-
ar konu, sem ég hefði tekið að
mér sem mitt eigið barn og vildi
fórna öllu.
— Diana, væna mín, sagði gamla
konan, ég meinti ekki . . .
— Það skiptir engu hver mein-
ingin var, heldur hitt hvað þú
gerðir. Og þú tókst hann frá mér.
Þögn ríkti um stund. Ekkert
heyrðist nema þegar laufin á trjá-
num bærðust í golunni.
— Hvenær bað Rupert þig um
þetta?, spurði Davíð allt í einu.
Það var einkennilegur gljái á
augum Diönnu, er hún svaraði:
— I nótt.
— I nótt? endurtók Davíð, og
honum fannst sem gripið hefðiverið
kaldri hendi um hjarta hans.
— Þau höfðu nýtt stefnumót í
dagstofunni, hann og Sorrel.
Hún hló æðislega.
— Það fer brátt að verða að
venju hjá þeim að vera að þessu
næturrölti.
— Hvenær í nótt? spurði hann.
Hún yppti öxlum kæruleysislega.
— Ég veit það ekki nákvæmlega,
líklega um klukkan tvö.
Sorrel hafði eftir þessu farið
beint úr örmum hans á stefnu-
mót með Rupert. Honum fannst
hann heyra rödd hennar hljóma
fyrir eyrum sér: Ég er að reyna
að vera hreinskilin við þig. Fór |
hún svona að því að vera hrein-
skilin?
— Og þú?, spurði hann Díönu
kuldalega. Hverju svaraðir þú
Rupert? Ertu honum sammála —
um skilnað?
— Ætti ég að fallast á hann,
Davíð?, spurði hún lágt.
Alls staðar eru stöðumælarnir.
— Hvernig ætti ég að svara því?
spurðj hann óþolinmóðlega.
— Þér finnst kannski ekki, að
það skipti miklu máli hvað ég geri
eða geri ekki?, sagði hún þreytu-
lega.
— Vitanlega skiptir það máli.
— Heldurðu það? Veistu, nema
það komi út á eitt? Þekkirðu eigin-
lega Rupert nokkurn skapaðan
hlut.
— Vitanlega þekki ég hann
mæta vel.
— O, nei, nei, Rupert, þú þekkir
hann bara á yfirborðinu, eins og
hann kemur fram, mjúkmáll og
prúður, við alla — og því mjúk-
málli er hann og nærgætnari, þeg-
ar unr þá er að ræða, sem hann
gæti haft einhvern hag af, — en
hann hefir annað andlit, sem hann
sýnir þeim, sem honum finnst
þvælast fyrir sér. Við þá — mig
einkanlega — nýtur hann þess að j
heyja einvíg i sem hinn sterki, |
slungni maður, sem hefir sitt fram 1
hvað sem tautar..
— Vertu ekki að þessu bulli
Díana, sagði frú Vane.
— Ég vissi að þú mundir segja
þetta, því að hann hefir lagt sér-
staka stund á að ná hylli þinni.
En þú ferð villur vegar. Hann er
allt öðruvísi inn við beinið en þú
hyggur hann vera. Þú ættir að
sjá hann innan læstra svefnher-
bergisdyra okkar, — sjá hann þar
í sinni andlegu nekt. Þá mundir
þú sjá mann, sem er ekkert annað
en eigingirnin — erfiðan mann,
en mann með sterka skapgerð,
sterkar ástríður ...
Beiskjubros lék um varir hennar.
— £" á ekki við líkamlegar á-
stríður, heldur að það sé ástríða,
sem hann er gagntekinn af, að
njóta aðdáunar — haldinni þörf á
að vera dáður — og ekki af einni
konu aðeins -— að vera dáður og
að honum sé unnað — allt sé lagt
í sölurnar fyrir hann, án tilits til
hamingju þeirra, sem tii þess eiga
að vera reiðubúnar. Og komi hann
ekki sínu fram, hélt hún áfram
og lækkaði röddina, er hann hættu
legur, því að þá kerríst engin hugs-
un að nema, að koma fram hefnd-
um. Þá er hann, liggur mér við að
segja, haldinn brjálæðislegri löng-
un til hefnda.
Hún þagnaði allt í einu, er hin
bjarta, glaða rödd Jónatans hljóm-
aði til þeirra.
— Hvað er það, sem þú ert að
reyna að segja mér, Diana?, spurði
Dvíð, og var nístings kuldi í hverju
orði.
Tillit augna henna virtist nú bera
jrví vitni, að einhver breyting hefði
orðið á henni, og hún hristi höfuð-
ið eins og hún væri ný vöknuð
af vondtun draumi.
Veljið
yín?
VOLVO
sfr
ZIMSU INTROFUCEF
TARZAN. "I a*\
ACTING AS GUIFE
POZ MK.PACE."
'Zimby kynnti Tarzan. „Ég
starfa sem leiðsögumaður fyrir
herra Pace!“ „Ég er Ed Pace,
v FACS,
i‘> iVCE OF A
HUNTING MAGAZI’
TRYING TOGATHf
SOME MATEEIAL.
FOR ASTOKY.1
ritstjóri veiðimannatímaritsin'
Ég er að safna efni f sögu, og
ég held, að það sé bezt að ég
... ANF, BY TH2 tVAy, I THINK I SHCULF TELL YOU
THAT WAS OUK TKAP VOU FELL INTO!" SMILEF
THE HUNTEK. "5UT WHVZ'
INQUIKEF THE AFE-MAN. ‘ j0Kj
CílAHfO
BSiWfflTRSSTBaiArÆ
egi þér, að það var aildran
okkar, sem þú féll
„En hvers vegna eruð þið með
þessa gildru?“ spurði Tarzan.
ÞAÐ er alltaf vandasamt að
velja sér bifreið, — en þó
sérstakiega hér á landi, þar
sem veðurfar og vegir virðast
ekki sem heppilegastir fyrir
rnargar tegundir bifreiða.
VOLVO er byggður með sér-
stöku tilliti til slíkra aðstæðna.
Komið strax og kynnið
yður hinar ýmsu gerðir af
VOLVO. Þér getið valið
um 75 og 90 ha. vél —
þriggja og fjögurra hraða
gírkassa og VOLVO fæst
tveggja og fjögurra dyra.
ÞAÐ ER ALLTAF RÉTTUR
TÍMI FYRIR VOLVO.
Komið sjáið og reynið VOLVO
VOLVO
(iiinnuii
Ásgeirsson hf.
Suðuriandsbraut 16 . Sími 35200
Nælonundirpils
Verð r.r. 85.00