Vísir - 10.04.1963, Blaðsíða 1

Vísir - 10.04.1963, Blaðsíða 1
VÍSIR S3. árg. — Miðvikudagur 10. apríl 1963. — 83. tbl. 4 menn hafa eftir fárviðríð fyrír Norðuríandi Tvo menn tók út nf Hríng Siglufirði í morgun: í gærmorgun, skömmu fyrir hádegi brast á eitt hið versta hríðarveður sem komið hefur árum saman á Siglufirði. í gærmorgun var blíðskaparveð- ur með 5 stiga hlta, en kl. 11 , árdegis var skollin á stórhríð með 7 st. frosti og 10 stiga veðurhæð og stórhrið til hafs. í morgun er veður skaplegra orðið, en byljir samt öðru hvoru með 13 stiga frosti. Siglufjarðarbátar sem voru að veiðum áttu í miklum erfiðleik- um í gær en komust þó allir til hafnar nema m.b. Hringur, 80 lesta bátur, sem var staddur út af Skagagrunni þegar óveðr- ið skalf á. Heyrðist ekkert í honum eftir það og ekkert í alla nótt svo tekið var að ótt- ast um hann. En f morgun Framh. á bls. 5 farízt og 7 saknað Það er nú ljóst, að í norðanrokinu sem.skáil skyndilega og óvænt yfir Norð- urland í gær hafa a. m. k. fjórir sjómenn farizt. Eru það tveir menn sem fórust, þegar trillubáturinn Valur frá Dalvík sökk og tveir menn sem tók út af Siglu- fjarðarbátnum Hring. Tveir trillubátar frá Dalvík fórust þeir Valur og Helga, en mannbjörg varð af þeim. Þá var enn saknað tveggja báta, annar þeirra er Hafþór frá Dalvík með 5 menn og er óttazt að hann hafi farizt og ennfremúr er saknað bátsins Magna frá Þórshöfn, með tveimur mönnum en annar Þórshafnarbátur Lómur, sem saknað var í gær kom til lands í morgun og gera menn sér enn vonir um að Magni muni hafa staðið af sér óveðrið. í morgun geisaði enn iðulaus stórhríð og rok um allt austanvert Norðurland og Austurland. Hafði það staðið stanzlaust frá því í gærkvöldi og alla nóttina. Þegar veðrið skall yfir var mikill fjöldi fiskibáta á miðunum fyrir Norðurlandi. Hafði-veður verið gott um nóttina og skall veðrið svo sn?gsl?£!> yfir, fð margir bátar tóku það til ráðs að skera á lín- u.is. M&rgir bátanna lentu í miklum erfiðleikum fyrst og fremst vegna roksins, en einnig vegna mikillar ísingar sem stafaði af hinu skyndi- lega frosti, en víða skall yfir 10 stiga frost með veðurbreytingunni. voru Guðmundur frá Bæ og Hilmir | náðu ekki höfn við Steingrímsfjörð en fóru til Skagastrandar. Við iyjafjörð Flestir voru bátarnir út af Eyja- firði, og var rokið svo mikið að innsiglingin til Siglufjarðar og Ólafsfjarðar lokaðist og urðu allir bátarnir að leita inn á Eyjafjörð. Þar var varðskipið Ægir þeim til aðstoðar. Samkvæmt viðtali við Akureyri í morgun skall óveðrið yfir í gær eins og hendi væri veifað og kom flestum mjög á óvart því veður var gott í gærmorgun og bátar á sjó úr öllum Eyjafjarðarhöfnum. Dnlvík Verst urðu Dalvíkingar úti, en þaðan fórust þrjár trillur í gær, þó björguðust mennirnir . af þeim nema einni, bátnum Val, sem á voru tveir bræður, Gunnar og Sigvaldi Stefánssynir. Þeir voru norður af Gjögrum þegar veðrið brast á, höfðu seinna samband við m.s. Esju sem var á vesturleið og báðu um að mega fylgjast með henni fyrir Gjögra. Allt í einu hvolfdi bátnum og gátu skipverjar á m.s. Esju dregið annan manninn, Sigvalda, meðvitundarlausan úr sjó, en Gunnar bróður hans sáu þeir aldrei. Fór Esja með Sigvalda til Akureyrar, en hann komst aldrei til meðvitundar og þegar til hafnar kóm, úrskurðaði læknir hann látinn. Sigvaldi heitinn lætur eftir sig konu og þrjú börn. Gunn- ar bróðir hans var óvæntur. Þá er enn eins báts frá Dalvík saknað, Hafþórs, sem á er 5 manna áhöfn. Það síðasta sem til hans er vitað var það að hann sást norður af Gjögrum um kl. 4 í gærdag. Síðan hefur ekki til hans sézt. Skip hafa leitað bátsins í alla nótt en árangurslaust. Skip- Framh. á bls. 5. Frá Steingrímsfirði voru fjórir bátar á sjó. Þar sendi Pólstjarnan frá Drangsnesi út neyðarskeyti þar sem vélin hafði bilað er báturinn var á hættulegum stað. Þeim tókst að sigla inn til Drangsness. Smári var á svipuðum slóðum en komst líka I höfn. Tveir bátar sem þarna Mikið rok var í Reykjavík í morgun, og sýnir myndin sem tekin var um 7 leitið í morgun, hvernig braut yfir Skúlagötuna. (Ljósm. I. M.) Á Vestfjörðum Einn bátur frá Önundarfirði Einar Þveræingur sendi einnig út neyðar- skeyti, þar sem hann fékk áfall 4 sjómílur NV af Barða og var María Júlía stödd í önundarfirði og fór honum til hjálpar, en þegar til kom komst hann hjálparlaust inn á Önundarfjörð. Margir línubátar af norðurhöfnum Vestfjarða leituðu til Patreksfjarðar undan veðrinu. Við Húnaflóa Stórhuga uppbyggingaráætlun Mun Efnahagsstofnunin vinna og Seðlabankinn að jöfnu. — ^ Mun Efnahagsstofnun vinna áfram að Framkvæmdaáætlun- inni ,en til grundvaliar henni iiggur ýtarleg gerð þjóðhags- reikninga, sem unnið hefir ver ið að bæði í Framkvæmdabank anum og Efnahagsstofnuninni undanfarin misseri. • Vísir mun skýra ýtarlega frá áætluninni i næsta blaði. Jr Skýrsla ríkisstjórnar innar um Framkvæmda- áætlunina var lögð fram á alþingi í dag og fékk Vísir vitneskju um skýrsluna skömmu eftir hádegið. • Framkvæmdaáætlunin er stórhuga áætlun um verklegar framkvæmdir á vegum ríkisins næstu fjögur árin, eða fyrir ár- in 1963, 1964, 1965 og 1966. Fylgir heildaráætluninni spnd- urliðuð greinargerð yfir þær framkvæmdir, sem fyrirhugaðar eru í ár, en þær eru m.a. á sviði hafnarframkvæmda, raf- orkuframkvæmda og byggingu nýrra skóla. Verður hundruðum milljóna króna varíð til þessara og annarra uppbyggingarfram- kvæmda fyrir árslok. • Auk þessa er í skýrslunni að finna miklar og fróðlegar upplýsingar um þjóðarhaginn og efnahagsmái almennt og hvernig framkvæmdum verður bezt hagað í samræmi við efna- hag þjóðarinnar. Eins og fyrr segir er hér aðeins um umgerð- aráætlun að ræða varðandi framkvæmdir ríkisins, en ekki einkaframkvæmdir. Verða síð- ar gerðar sundurliðaðar áætl- anir fyrir framkvæmdir næstu ára, eins og þegar hafa verið gerðar um árið 1963. Það voru norskir hagfræð- ingar sem unnu að gerð áætlun arinnar, en þeir fóru héðan af landi i árslok 1961. Þá tók Efna hagsstofnun ríkisins við starf- inu, en kostnaðinn ber ríkis-

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.