Vísir - 10.04.1963, Blaðsíða 5
I
V í SIR . Miðvikudagur 10. apríl 1963.
r
Tvær nýjar
bækur AS
Út eru komnar hjá Almenna
bókafélaginu apríl- og maí-bækur
féiagsins.
Apríl-bókin er Hvíta-Níl eftir
hinn vfðkunna ástralsk-enska rit-
hðfund Alan Moorehead í þýðingu
Hjartar Halldórssonar. Bókin seg-
ir frá einhverjum viðburðaríkustu
og erfiðustu landkönnunum, sem
sögur fara af — könnun Mið-Af-
ríku og leitinni að upptökum Níl-
ar. Hefst frásögnin árið 1856 og
lýkur árið 1900 er Níl er kunnug
frá upptökum til ósa.
Maí-bókin er Stormar og stríð
— Um Island og hlutleysið eftir
Benedikt Gröndal alþingismann.
Fjallar bókin um eitt höfuðatriði
íslenzkra utanríkismála, hvort ís-
land eigi að verða eða geti verið
hlutlaust í samskiptum þjóða.
Tvo fók úf —
Framhald al bls. 1.
kom hann inn |til Siglufjarðar
og hafði þá misst útbyrðis tvo
skipverja sem báðir drukknuðu.
Ástæðan fyrir því að ekki hafði
heyrzt til hans í nótt var sú, að
loftskeytatækin höfðu bilað.
Eitt varðskipanna sem var í
nótt fyrir Norðurlandi að að-
stoða báta og leita að bátum
hafði orðið fyrir áföllum, en
ekki frétzt hve mjklum.
Siglufjarðarskarð lokaðist
um hádegið í gær. Fyrir hádegið
var talsverð umferð um það, en
þá tók að kyngja niður snjó og
færð að þyngjast. Jeppabifreið,
sem í voru hjón með tveim
börnum, lagði um hádegið í
gær frá Siglufirði og ætiaði
vestur yfir. En skömmu eftir að
komið var vestur yfir háskarðið
sat bíllinn fastur og komst
ekki lengra. Var hjálparleið-
angur gerður út úr Fljótunum
í gærkveldi og komst hann
með hjónin og börnin niður að
Hraunum í Fljótum ki. 4 í nótt.
Hafði fjölskyidan setið í bílnum
í allan gærdag og nótt þar til
leiðangurinn náði til hennar.
Var fólkinu að vonum orðið
hrollkalt.
Ekkert hefur getað orðið enn
af skíðalandsmótinu, því var
frestað í gær og aftur í dag.
Allt er í óvissu með það éins
og stendur.
Lcandor i.. —
Framhald af bls. 16.
Sigurðsson stjórnaði. Þorri ís-
Iendinga sem nú dvelst í Lond-
on var kominn til fagnaðarins
og auk þess allmargir Englend-
ingar, alls um 140 manns. —
Björn Björnsson, stórkaupm. í
London átti frumkvæðið að
stofnun félagsins ásamt Pétri
Benediktssyni þáverandi sendi-
herra í London og Magnúsi V.
Magnússyni núv. sendiherra í
Bonn. — I hófinu voru þessir
menn gerðir að heiðursfélögum
Islendingafélagsins: Agnar Kl.
Jónsson, ráðuneytisstjóri, dr.
Kristinn Guðmundsson ,sendih.
Hendrik Sv. Björnsson ,sendih.
Björn Björnsson stórkaupm.,
Karl Strand læknir og frú Ferr
ier. Hendrik Sv. Björnsson
sendiherra færði félaginu fund
arhamar að gjöf í hófinu og
flutti ræðu og Björn Björnsson
tók til máls og minntist félags
ins og stofnunar þess. Ómar
Ragnarsson skemmti og Ruth
Little söng með undirleik Jó-
hanns Tryggvasonar. Dansað
var síðan lengi nætur.
Engin hætta á gengislækkun
— meðan núveramli kaupgjald atvinnuveganna helzt
Ekki er ástæða til þess
að óttast að til gengis-
lækkunar komi meðan
atvinnuvegirnir greiða
núverandi kaupgjald,
sagði viðskiptamálaráð-
herra Gylfi Þ. Gíslason
á fundi Seðlabankans í
gær.
Ráðherra drap á það að ýmsir
virtust bera ugg í brjósti út af
því að kauphækkanirnar á s.i.
ári hafi verið meiri en útflutn-
ingsatvinnuvegirnir þoli, þann-
ig að jafnvægið og jafnvel geng
ið hafi komizt í nokkra hættu.
En vegna hagstæðra ytri skil-
yrða, bæði að því er snertir
aflamagn og viðskiptakjör í
utanríkisverzluninni, væri ekki
genginu hætta búin með ó-
breyttu kaupgjaldi atvinnuveg-
anna, sagði hann.
Formaður stjórnar Seðla-
bankans, Jón Maríasson
bankastjóri, tók mjög í sama
streng í ræðu sinni. Hann
sagði: „Það hlýtur því að vera
meginverkefni í efnahagsmálum
á næstunni að koma á íestu í
kaupgjaldsmálum, þannig að
ekki eigi sér stað kauphækkanir
umfram það sem framieiðslu-
auk'ning þjóðarinnar leyfir. Hér
er um að ræða eitt erfiðasta
efnahagsvandamál þjóðarinnar,
en til Iausnar því skiptir öilu
máli að launþegar skilji að
auknar tekjur án framleiðslu-
aukningar geta ekki til lengdar
fært þeim bætt lífskjör.“
Hann gat þess cinnig að
stefnan í peningamálum s.l. ár
hefði ekki haft £ för með sér
samdráttaráhrif og ekki hefði
tekizt að koma í veg fyrir þá
mikiu þenslu eftirspurnar sem
nú einkennir efnahagsástandið.
Sízt væri því ástæða nú til þess
að draga úr aðhaldi í peninga-
málum eða breyta grundvall-
aratriðum þeirrar stefnu sem
fylgt hefir verið. (Hér mun m.
a. vera átt við vaxtaiækkun.)
Vonandi ber þjóðin gæfu til
þess að skilja þetta vandamál,
sagði Jón Maríasson, og stöðva
hina nýju verðhækkunaröldu
áður en hún rís of hátt og koll-
varpar því jafnvægi sem hefur
náðst.
Fámðrið —
- FramhalO at hls i
stjóri á Hafþóri er Tómas Péturs-
son. ^höfnin er öll frá Dalvík. Alls
voru þrfr þilfarsbátar og margar
trillur á sjó frá Dalvík þegar ó-
veðrið brast á, en aðrir bátar en
framangreindir fjórir björguðust.
Akureyri
Veðrið skall á um hádegisleytið.
Myndaðist flughálka á götum og
orsakaði marga bifreiðaárekstra,
auk þess sem aðrir bílar fóru út af
vegum. Einn bíll með tveim mönn-
um valt og skemmdist mjög mik-
ið. Einn hjólríðandi maður féll af
hjólinu og fótbrotnaði.
Sums staðar eru komnir allt að
metersháir skaflar og eru orðnir
til trafala fyrir umferðina. Raf-
magnið fór af um stundarsakir. í
nótt var 12 stiga frost en 11 í
morgun og veður heldur hægara.
Óbfsfjörður
Um kl. 10 f. h. í gær byrjaði að
snjóa í Ólafsfirði en rétt á eftir
brast á stórhríð með miklu fann-
fergi og 9—10 stiga veðurhæð.
Er leið á daginn braut yfir allan
fjörðinn svo að engu skipi var
fært, hvorki út eða inn. Fjórir
Ólafsfjarðarbátar voru á sjó og
komst enginn þeirra til heima-
hafnar, en komust þó heilu og
höldnu inn til Eyjaf.'arðar. Einn
þeirra, Anna, var við Grímsey og
átti í miklum erfiðleikum. Var
bátsins leitað og fannst út af Héð-
insfirði. Var honum leiðbeint inn
á Eyjafjörð. — í Ólafsfirði er kom-
inn talsverður snjór.
Hrísey
Margir bátar voru þaðan á sjó,
flestir út af Gjögrum, lentu þeir í
ofsalegu veðri en komust slysa-
laust til hafnar.
Círimsey
í gærmorgun var ágætt veður
þar með 11 stiga frosti, en í gær-
dag var komið fárviðri með mikilli
snjókomu og í gærkvöldi var þar
11 stiga frost. Fjórir Grímseyjar-
bátar voru á sjó norðvestur af
eynni þegar veðrið skall á og
komust þeir heilu og höldnu til
hafnar. í morgun var þar enn
sortahríð með 14 stiga frosti.
iúsavík
Allir bátar sem höfðu verið á
sjó frá Húsavík komust til hafn-
ar. Menn voru orðnir hræddir um
7 tonna þilfarsbát Grímar, en hann
kom síðastur inn í gærkvöldi Tveir
opnir trillubátar slitnuðu upp á
Húsavíkurhöfn, annar þeirra rak út
úr höfninni og bar þar upp í kletta,
hinn rak á hafnargarðinn. Þeir
brotnuðu báðir og eru taldir ónýt-
ir.
SCégðnsker og
Þérshöfn
Allir bátar á Kópaskeri komu til
hafnar, en Kári var mjög hætt
kominn og munaði minnstu tvisvar
að hann strandaði, stafaði það fyrst
og fremst af rokinu sem var ofsa-
legt.
Tveggja báta var saknað í gær
frá Þórshöfn, en kl. 7 í morgun
kom annar þeirra Lómur inn. Hinn
báturinn Magni var ókominn inn í
morgun síðast þegar til var vitað.
Á Þistilfiiði
Tveir Eyjafjarðarbátar, Svanur
frá Akureyri og Auðunn frá Hrísey
eru búnir að vera að berjast í alla
nótt á Þistilfirði austur af Mel-
rakkanesi og sést til þeirra úr
Iandi. Þeir eru hjálparþurfi en ekki
hægt að veita þeim aðstoð. Þetta
eru Iitlir bátar, sennilega tveir
menn um borð í hvorum þeirra.
Blönduós
Ofsalegt veður í morgun og sér
ekki út úr augurn, samt ekki kom-
inn mikill snjór ennþá. Ekki er
talið viðlit að hreyfa bíl og leiðin
norður ófær sökum blindu og
hríðar.
Mývcifnssveit
Þar skall veðrið á um kl. 3 e. h.
Veðurhæð gífurleg en snjókoma
ekki að sama skapi. Fé var þegar
smalað á öllum bæjum og náðist
mestallt í hús.
Vesfmonnaeyjar
Ekki hafa orðið teljandi skemmd
ir hér þó hafa verið nokkur brögð
af því að plötur fykju af húsum,
enda eru menn ekki eins á verði
gegn norðanátt hér og austanveðr-
um sem eru tíðust, sagði Sigfús
Johnsen í símtali í morgun.
Mikil ókyrrð var í höfninni og
allir bátar inni. Hafnarverðir voru
allir við gæzlustörf og mun ekki
teljandi tjón hafa orðið á bátun-
um. Veður þetta er með hvössustu
norðanveðrum sem hér koma.
StykkishéBmur
Árni Helgason sagði að veðrið
hefði skollið á þar um að ganga
eitt í gær. Bátar voru á sjó en
náðu allir til hafnar með 4—5
tonna afla. Árni kvað sér ekki
kunnugt um að tjón hefði orðið á
bátum á öðrum höfnum á norðan-
verðu Snæfellsnesi.
Akrunes
Vigtarmaðurinn á Akranesi sagði
að ekkert hefði orðið að þar í of-
viðrinu. Þrír Akranesbátar liggja
í vari úti í sjó, Höfrungur undan
Jökli og Haraldur og Sigurfari
sunnan undir Reykjanesi, en þeir
voru á Ieið að austvi með síldar-
afla.
Tweir mean í
sæluhúsi
Fréttaritari Vísis á Egilsstöðum
sagði í morgun að þar hefði verið
norðaustan . stórhríð með mikilli
fannkomu í alla nótt og væri enn-
þá. Vegir hafa teppzt á Fljótsdals-
héraði, nema helzt 1 innsveitum,
og £ nótt urðu þrfr ferðamenn af
Héraði, sem voru að kom í jeppa
frá Seyðisfirði yfir Fjarðarheiði,
að leita skjóls £ sæluhúsinu á
heiðinni, Þeir láta fyrirberast þar
enn og munu gera unz veðrinu
slotar. Simasamband er við sælu-
húsið og láta mennirnir vel af sér,
hafa nægan mat, teppi til skjóls og
upphitun.
Stérhríö
Framhald af bls. 16.
þess þó að um suðlæga átt sé
að ræða að svo stöddu.
Á Suður-Grænlandi er hiti
um frostmark. Versta kulda-
svæðið liggur sem stendur yfir
norðaustur Grænlandi og ís-
landi. En ég geri mér vonir um
að veðurskilyrði batni heldur
á þessu kuldasvæði á næsta
sólarhring svo að við komumst
í bakhlið háþrýstisvæðisins um
páskana, sagði Jón Eyþórsson
að lokum.
Leiðrétting
Þau mistök urðu £ frétt á for-
síðu blaðsins £ gær að Ragnar Ás-
geirsson héraðslæknir á ísafirði,
var sagður héraðslæknir að Klepp-
járnsreykjum, og nafn Þórðar Odds
sonar, hins raunverulega héraðs-
læknis þar féll niður. Þetta leið-
réttist hér með.
Sendisveinar
Óskum eftir röskum sendisvein-
um hálfan daginn fyrir og eftir
hádégi. Uppl. £ sfma 11660.
DagblaSib ViSIR
Tveir brúð-
kvaddir
Tveir menn urðu bráðkvaddir
s.I. sólarhring, annar £ Reykjavík.
hinn á Akurej:ri.
í morgun var aldraður maður,
Jón Jónsson frá Stóra Skipholti
á Bráðræðisholti hér £ Reykjavík
á gangi á mótum Framnesvegar
og Holtsgötu þegar hann hné allt
í einu niður og var örendur. Jón
heitinn mun hafa verið um átt-
rætt.
í gærdag varð prentari i Prent-
verki Odds Björnssonar á Akur-
eyri bráðkvaddur við starf sitt í
prentsmiðjunni. Maður þessi, Sig-
urður Jónsson, var um sextugt og
hafði unnið um 40 ára skeið í
Prentverki Odds Björnssonar.
í morgun datt maður á Lækj-
artorgi fyrir framan Útvegsbank-
ann og missti meðvitund. Hann
var fluttur', í slysavarðstofuna og
var að komást til meðvitundar um
hádegisleytið i dag.
Bíllinn —
Framhald af bls. 16.
liggur nú. Hann heitir Sverrir Vil-
hjálmsson til heimilis að Breiða-
gerði 19. Stúlkunni sem með hon-
um var i bílnum, Sigriði Sigur-
björnsdóttur Skúlagötu 68 var
bjargað út um framrúðu bifreiðar-
innar. Stúlkuna mun litið sem
ekki hafa sakað.
Lögreglan skýrði Visi svo frá,
að farþegarnir f langferðabílnum,
sem björguðu fólkinu út úr sendi-
ferðabílnum, hafi verið mjög hik-
andi við að snerta á Sverri fyrr
en sjúkralið kæmi, þar sem hann
var meðvitundarlaus við stýrið.
En þegar séð varð að bíllinn fór
æ lengra og dýpra út i vatnið varð
ekki hjá því komizt að taka mann-
inn út og var hann tekinn í segl.
Leiðrétting
Leiðrétting við lista yfir fermingar-
börn í Kópavogskirkju.
kl. 10,30. Guðrún Jónsdóttir Bás-
enda 1 á að vera Guðrún Jónas-
dóttir.
Við bætist: Svanhvít Gróa
Ingólfsdóttir Mosgerði 18.
Ásbjörn Jóhannesson Háaleitis-
braut 46.
Gísli Ásgeirsson Skólagerði 21
Kópavogi.
Jón Örn Guðmundsson Breiðagerði
8 á að vera Jón Ö. Guðm. Rauða-
gerði 8.
Við bætist kl. 2: Jón Ingi Har-
aldsson Álfhólsvegi 24 Kópavogi
SHSat'JSKiiUB