Vísir - 10.04.1963, Blaðsíða 6

Vísir - 10.04.1963, Blaðsíða 6
6 V 1 S 1 R . Miðvikudagur 10. apríl 1963. SAMVIZKAN Framh. af bls. 9. sagt hvað við eigum að gjöra, en vér vitum ekki hve langt nær miskunnsemi guðs og hvaða aðrar leiðir hann hefur til að bjarga mönnunum. — En það hefur verið viðtekið lögmál að sá sem breytir eftir beztu vitund, megi vera þess vís að guð synji honum ekki um náð. Menn eiga að breyta eftir samvizku sinni. Samvizkan er úrslitadómari vor I þessum heimi. Heiðnir menn geta einnig öðlazt himnaríkisvist ef þeir breyta vel samkvæmt samvizku sinni. Það er að vísu til gamalt orða- tiltæki, er segir: Extra Ecclesi- am nulla salus, þ. e. utan kirkj- unnar ekkert hjálpræði. En menn verða að skilja þetta orðalag. Máltæki eru ætluð að vera stutt og að menn skilji meininguna. Þess háttar orða- tiltæki eru mörg á íslenzku, sem engum dettur í hug að taka al- gjörlega eftir orðanna hljóðan. — En orðalagið þýðir: sá sem vísvitandi (hér þyrfti ég helzt að stama nokkrum sinnum), sá sem vísvitandi — að yfirlögðu ráði snýst öndverður gegn trúnni, mun ekki fá hjálpræði, eins lengi og hann sýnir þessa stífni gagnvart guði. Við teljum að kaþólska kirkjan sé í eðli sinu nauðsynleg, vegna þess að Kristur stofnaði hana sem leið- toga vorn til eilífs lífs o^ að hann hét því að hún mnndi standa sem vegur vor til hjálp- ræðis allt til enda veraldar. Við álítum að kaþólskur maður stanfii betur að vígi f lífinu vegna þess að Kristur hefur stofnað kirkjuna og séð um að hún hefði yfir fleiri náðarmeð- ulum að ráða en nokkur önnur trúarbrögð. Þessi náðarmeðul eru hin 7 sakramenti: skírn, ferming, altarissakramentf, skriftir, heiiög olean fyrir þá sem þungt eru haldnir, prests- vígsla og hjónaband. Kristinn maður. Hvað er kristinn maður sam- kvæmt yðar skilgreiningu? Kaþólska kirkjan telur þann mann kristinn sem er skírður með vatni í nafni heilagrar Þrenningar í þeim tilgangi að hann tilheyri kirkju Krists. Sér- hver viti borinn maður getur skírt svo að gilt sé, jafnvel heið- ingi, — hafi hann eingöngu þann tilgang að gjöra það sem gjörir kirkju Krists og að hann gjöri það á réttan hátt, það er: helli vatni á skírnarþegann og segi um leið: Ég skíri þig í nafni Föðurins og Sonarins og hins Heilaga Anda. — En skirnin er svo mikilvæg og nauðsynleg að ég tel að hafi hin upprunalega skírn af einhverjum ástæðum verið talin vafasöm, eigi að gefa varaskírn, — þ. e. Segja á und- an orðunum: Ef þú ert ekki skfrður... — Þvf að eingöngu má skíra einu sinni, — en hafi skírnin þegar átt sér stað, er þessi varaskírn engin skírn. Kirkjan telur að öll börn, sem skírð eru og hafa ekki afneitað henni tilheyri henni, — og hætti ekki að tilheyra henni fyrr en þau sverji annari kirkju holl- ustueiða (t. d. í fermingunni). Þá er ég kristinn maður, en mér er neitað um að fara til altaris í kaþólsku kirkjunni. Það stafar af því að þér hafið við fermingu (kannski einnig með öðrum hætti) hafnað ka- þólskri trú. Væruð þér kaþólsk- ur maður gætur þér farið til skrifta og til altaris og orðið að- njótandi að hinum ýmsu náðar- meðulum kirkjunnar. Kirkjuþingið. Getið þér sagt okkur eitthvað um kirkjuþingið, sem nú stendur yfir í Róm? Að svo komnu máli er ekki hægt að segja mikið um það. Fram að þessu er lítið orðið end anlegt á þinginu, en margt er í undirbúningi. Það er unnið sleitulaust f Róm að framgangi málanna, en bæði verkefnin og málefnin eru það mikilvæg að enda þótt Jóhannes páfi XXIII. vilji að þingi ljúki á jóladag þessa árs (400 ára afmælis kirkjuþingsins f Trent) er varla hægt að búast við svo skjótum endi. Á þinginu eru miklar breyt- ingar í bígerð, en of snemmt að segja til um það hvað nái þar fram að ganga. Og hvemig er að vera kaþólsk ur biskup á íslandi? Ég minnist þess, að Ólafur Thors, forsætisráðherra, hafi einu sinni spurt mig að þessu sama. Jæja, hverju á ég a svara? Vitaskuld slepp ég við margt óþægilegt, sem þyrfti að sinna ef kaþólska kirkjan væri ríkiskirkja, — hins vegar er ka- þólska kirkjan það virðuleg og gömul stofnun og langstærsta kristna trúarfélagið f heimi og nýt ég einnig einhvers góðs af þvf. Messur um hátíðarnar Hallgrímskirkja: Skírdagskvöld: Messa og altarisganga kl. 8,30. Séra Hjalti Guðmundsson. Föstudagurinn langi: Messa kl. 11, séra Jakob Jónsson. Messa kl. 5, séra Sigurjón Þ. Árnason. Páskadagur: Messa kl. 8 árdeg- is, séra Jakob Jónsson. Messa kl. 11, séra Sigurjón Þ. Árnason. 2. páskadagur: Messa og altaris- ganga kl. 11, séra Sigurjón Þ. Árnason. Ferming kl. 2, séra Jakob Jónsson. Kirkja Óháða safnaðarins (við Háteigsveg). Föstudagurinn langi: Söng- og lesmessa kl. 5 síðdegis. Páskadagur: Hátíðamessa kl. 8 árdegis. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Séra Emil Björnsson. Neskirkja: Skírdagur: Almenn altarisganga kl. 2. Föstudagurinn langi: Messa kl. 2 Páskadagur: Messa kl. 8 árdegis. 2. páskadagur: Barnamessa kl. 11.30. Messa'kl. 2. Séra Jón Thor- arensen. Háteigssókn: Messur í hátíðasal Sjómannaskólans: Föstudagurinn langi: Messa kl. 2. Páskadagur: Messa kl. 8 árdegis. Messa kl. 2. Séra Jón Þorvarðsson. Bústaðaprestakall: Skírdagur: Altarisgöngumessa í Kópavogs- kirkju kl. 8,30 e. h. Föstudagurinn langi: Messa 1 Réttarholtsskóla kl. 2 e. h. Páskadagur: Messa í Kópavogs- kirkju kl. 8 f. h. Messa í Kópavogs kirkju kl. 2 e. h. 2. páskadagur: Fermingarmessa i Kópavogskirkju kl. 10,30 f.h. Ferm- ingarmessa í Kópavogskirkju kl. 2 e. h. Séra Gunnar Árnason. Laugarneskirkja: Skirdagur: Messa kl. 2, altarisganga. Föstudagurinn langi: Messa kl. 2.30. Páskadagur: Messa kl. 8 árdegis. Messa kl. 2,30. 2. páskadagur: Messa kl .10,30, ferming, altarisganga. Séra Garðar Svavarsson. Elliheimilið: Skírdagur: Guðsþjón usta og altarisganga (útvarpað) kl. 11 f. h. Séra Magnús Runólfsson annast altarisþjónustu, séra Sigur- björn Á. Gíslason predikun og Hjalti Guðmundsson orgelleik. Föstudagurinn langi: Guðsþjón- usta kl .10 f. h. Séra Hjalti Guð- mundsson og heimilispresturinn, séra Sigurbjörn Á. Gíslason. Páskadagur: Guðsþjónusta kl. 10 f. h. Heimilispresturinn, séra Sig- urbjörn Á. Gíslason. 2. páskadagur: Guðsþjónusta kl. 2, séra Bragi Friðriksson. Á eftir finnast fyrrverandi sóknarprestar. Langholtsprestakall: Skírdagur: Messa kl. 11 (almenn altarisganga). Föstudagurinn langi: Messa kl. 2. Páskadagur: Messa kl. 8 árdegis. Messa kl. 2. 2. páskadagur: Messa kl. 10,30 (ferming). Messa kl. 2 (ferming). Fríkirkjan: Skírdagur: Messa og altarisganga kl. 11 f. h. Föstudagurinn Iangi: Messa kl. 2 Páskadagur: Messa kl. 8 f. h. Messa kl. 2. 2. páskadagur: Fermingarmessa kl. 2. Séra Þorsteinn Björnsson. Dómkirkjan: Skírdagur: Messa kl 11. Altarisganga. Séra Óskar J. Þorláksson. Kl. 8,30 kvöldsamkoma Bræðrafélagsins. Föstudagurinn langi: Messa kl. 11. Séra Jón Auðuns. Messa kl. 5. Séra Óskar J. Þorláksson. Páskadagur: Messa kl. 8. Séra Óskar J. Þorláksson. Messa kl. 11. Séra Jón Auðuns. 2. páskadagur: Messa kl. 10.30. Ferming. Séra Óskar J. Þorláksson. Messa kl. 2. Ferming. Séra Jón Auðuns. Kaþólska kirkjan: Skfrdagur: Kl. 6 sfðd. hámessa. Föstúdágurínn langi: Kl. 5.30 síðd. Minningar- guðsþjónusta um píslir og dauða Jetsús Krists. Aðfangadagur páska: Kl. 11 sfðd. hefst páskavakan. Stuttu eftir miðnætti hefst páskamessan. Páskadagur: KI. 9.30 árd. lág- messa með prédikun. (Barnakórinn syngur). Kl. 11 árd. biskupsmessa. KJrkjukvöld / Dómkirkjunni Fimmtudaginn 11. apríl (skfrdag) gengst bræðrafélag Dómkirkjunnar fyrir kirkjukvöldi í Dómkirkjunni. Athöfnin hefst kl. 20,30. Efnisskráin verður þannig: 1. Hr. prófessor Þórir Kr. Þórð- arson setur samkomuna og stjórn- ar henni. 2. dr. Páll ísólfsson leikur á orgel. 3. Stúdentar úr guðfræði- deild Háskólans syngja þætti úr messu. 4. Frú cand. theol. Geirþrúð ur Bernhöft flytur ræðu. 5. Svala Níelsen syngur. 6. Að lokum syngja allir: Son Guðs ertu með sanni. Bræðrafélagið vonar, að sem flestir innan- og utansafnarmenn komi í Dómkirkjuna á skfrdags- kvöld. Dr. Pál ísólfsson þekkja allir, hann þarf ekki að kynna. Svala | Níelsen á vaxandi vinsældum að j fagna meðal borgarbúa. Það Vérð- ur áreiðanlega ánægjulegt að hlusta á hana í Dómkirkjunni, með undir- leik dr. Páls. Þeir guðfræðistúdent- ar, er hér koma fram, hafa æft undir handleiðslu dr. Róberts A. ! Ottóssonar söngmálastjóra Þjóð- kirkjunnar. Þarf ekki að efa, að 'þeir þættir, er þeir flytja, verði I viðstöddum til ánægju. Frú Geir- ! þrúður Bernhöft er guðfræðingur að menntun. Það við bezt vitum, hefur hún ekki áður komið fram á kirkjukvöldi. Við, sem að þessu kirkjukvöldi stöndum, erum frú Geirþrúði Bernhöft afar þakklátir fyrir góðvilja hennar, að flytja ræðu við þetta tækifæri í Dóm- kirkjunni. Skrifstofuhúsnæði Skrifstofuhúsnæði til leigu á bezta stað í Miðbænum. Upplýsingar í síma 13851. Tilboð má senda í Pósthólf 252, Reykjavík. AÐALFUNDUR Flugfélag íslands h.f. verður haldinn föstu- daginn 17. maí 1963 og hefst kl. 14.00 í fund- arsal Hótel Sögu, II. hæð. D A G S K R Á : 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Aðgöngu- og atkvæðamiðar fyrir fundinn verða afhentir hluthöfum á aðalskrifstofu félagsins í Bændahöllinni 15. og 16. maí. Reikningar félagsins fyrir árið 1962, munu liggja frammi fyrir hluthafa á aðalskrifstofu félagsins frá 10. maí. Stjórnin. Frá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur Frá og með 1. maí n. k. hættir Bjöm Guð- brandsson að gegna heimilislæknisstörfum fyrir Sjúkrasamlagið,. vegna anna við sér- fræðistörf. Þess vegna þurfa allir þeir, sem hafa hann fyrir heimilislækni, að koma í afgreiðslu " samlagsins, Tryggvagötu 28, með samlags- bækur sínar, hið fyrsta, til þess að velja sér lækni í hans stað. Skrá yfir samlagslækna þá, sem velja má um, liggur frammi í samlaginu. v Sjúkrasamlag Reykjavíkur. SJÓNVARPIÐ Miðvikudagur 10. apríl. 17.00 What’s My Line? 17.30 Sea Hunt 18.00 Afrts News 18.55 Social Security in Action 18.30 Focus On America 19.00 My Three Sons. 19.30 Wonders Of The World 20.00 Bonanza 21.00 The Texan 21.30 Freedom And You 22.30 The Fight Of The Week 23.15 Northern Lights Playhouse „Blake of Scotland Yard“ Final Edition News Fimmtudagur 11. apríl (skírdagur). 17.00 Magic Land Of Allakazam 17.30 Science In Action 18.00 Afrts News 18.15 The Telenews Weekly 18.30 To Tell The Truth 19.00 Zane Grey Theater 19.)0 Bell Telephone Hour 20.30 The Dinah Shore Show 21.30 Bat Masterson 22.00 The Untouchables 23.00 Science Fiction Theater 23.30 Lock Up Final Edition News Föstudagur 12. apríl (föstud. langi). 17.00 So This Is Hollywood 17.30 Password 18.00 Afrts News 18.15 Greatest Dramas 18.30 Lucky Lager Sports Time 19.00 Current Events 19.30 Tennessee Emie Ford 20.00 The Garry Moore Show 21.00 Naval Aviation Review 21.30 Music On Ice 22.30 Northern Lights Playhous „Bridge of San Luis Rey" Laugardagur 13. apríl. 12.30 The Shari Lewis Show 13.00 Current Events 14.00 Saturday Sports Time 16.30 Harvest 17.00 The Price Is Right 17.30 Candid Camera 17.55 The Chaplain’s Comer 18.00 Afrts News 18.15 The Airman’s World 18.30 The Big Picture 19.00 Perry Mason 20.00 Wanted, Dead Or Alive 20.30 Gunsmoke 21.30 Have Gun — Will Travel 22.00 Opening Night 22.30 Northem Lights Playhouse „Heartaches"

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.